Morgunblaðið - 07.01.1977, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 1977
3
Setudómarinn í handtökumálinu:
„Sakbending fór
vel fram og eftir
settum reglum”
— ÉG HEF ekki fengið
skýrslu um sakbendinguna
i Keflavík, en samkvæmt
þeim upplýsingum sem ég
hef fengið, fór hún mjög
vel fram og alveg eftir
settum reglum, sagði Stein-
grímur Gautur Kristjáns-
son, setudómari í hand-
Skartgrip-
um fyrir
600 þúsund
kr. stolið
NOKKUR innbrot voru framin
í fyrirtæki f miðborg Reykja-
vfkur f fyrrinótt. Stærsti
þjófnaðurinn var framinn f
heildverzlun einni, en þar var
tekinn mikill fjöldi gullhúð-
aðra skartgripa af ýmsum
gerðum. Er verðmæti þeirra
áætlað um 600 þúsund krónur.
Málið er f rannsókn.
tökumálinu, í samtali við
Mbl. í gær, en komið hefur
fram hér i blaðinu að
Haukur Guðmundsson
rannsóknarlögreglumaður
hefur ýmislegt við sak-
bendinguna að athuga, og
hefur falið lögfræðingi
sínum að kanna málið.
Steingrímur sagði að margvfs-
legur misskilningur hefði komizt
á kreik í sambandi við þessa sak-
bendingu, t.d. sá að hann sem
dómari í málinu hefði átt að sjá
um sakbendinguna og' boða til
hennar, en ekki lögreglustjórinn f
Keflavík. Það rétta væri, að í 5.
kafla laga um meðferð opinberra
mála, en sá kafli fjallaði um
lögreglumenn og upphaf
rannsóknar, væri sakbending
nefnd í 35. grein, þannig að
greinilega væri um verk lögreglu
að ræða en ekki sakadóms.
Þegar Steingrfmur var spurður
um boðun eiginkonu og þriggja
systra Hauks í sakbendinguna,
sagði hann að það væri misskiln-
ingur að þær væru kallaðar til
sem vitni. „Þær voru ekki þarna
bara til að uppfylla töluna,“ sagði
Steingrfmur, en vildi ekkert
nánar úttala sig um þetta atriði.
V atna vextir
MIKIL flóð urðu f Stóru Laxá og Hvftá við Auðsholt á mánudag-
inn. Skemmdust girðingar verulega af þeim sökum og vegir
spilltust, auk þess sem naumlega tókst að bjarga 19 hrossum frá
Unnarsholtskoti. Á Hellu urðu einnig talsverðar skemmdir í
þessum vatnavöxtum, en flóðin sjötnuðu fljótlega eftir að árnar
höfðu rutt sig og kólna tók f veðri á ný. 1 gær var hvass
útsynningur á Suðurlandi og gekk á með éljum. Meðfylgjandi
mynd tók Sigurður Sigmundsson f Syðra Langholti á mánudaginn
og sýnir hún vatnavextina.
AJfabrenna
í Kópavogi
BJÖRGUNARSVEITIN
Stefnir stendur fyrir álfa-
brennu í Kópavogi á morg-
un á æfingasvæði UBK
sunnan Fifuhvammsvegar.
Kveikt verður i brennunni
klukkan fimm síðdegis, en
sitthvað fleira verður auk
þess til skemmtunar.
Hestamannafélagið Gustur
sér um hópreið með log-
andi kyndla og koma reið-
mennirnir á fákum sínum
ofan úr heiðinni með álfa-
kóng og álfadrottningu í
broddi fylkingar. Þá flytur
Leikfélag Kópavogs þjóð-
sögulegan þátt, síðustu
jólasveinarnir koma og
kveðja og björgunar-
sveitarmenn sjá um flug-
eldasýningu. Aðgangur að
brennusvæðinu er ókeypis,
en hins vegar munu
Stefnismenn selja þarna
merki félagsins.
Fyrsti pólski skuttogar-
inn af minni gerd kemur
til landsins í næstu viku
Stofnfundur salt-
verksmið ju haldinn
um miðjan febrúar
SAMKVÆMT lögum frá þvf f maí síðastliðnum hefur verið ákveðið að
stofna hlutafélag, sem hafi að markmiði að kanna aðstæður til að reisa
og reka saltverksmiðju á Reykjanesi og annast undirbúning þess, að
slfku fyrirtæki verði komið á fót, m.a. með því að reisa og reka
tilraunaverkmsiðju. Með saltverkmsiðju er f lögum átt við iðjuver til
vinnslu á salti, natríumklórfði fyrir innlendan og erlendan markað og
hagnýtingar á efnum, sem til falla við þá vinnslu.
Samkvæmt auglýsingu í
Lögbirtingarblaðinu hefur verið
ákveðið að aðild að félaginu sé
öllum innlendum aðilum heimil,
einstaklingum og stofnunum eða
félögum, sem áhuga hafa á mál-
inu, og geta stofnendur skráð sig
fyrir hlutafé hjá iðnaðarráðu-
neytinu fyrir 1. febrúar næstkom-
andi, en þar liggja fyrir drög að
stofnsamningi og samþykktum
fyrir félagið.
Lágmarkshlutaf járframlag
hvers stofnanda er 20 þúsund
krónur og er við það miðað að 5
þúsund krónur af hlutafjárloforð-
inu eða 'A hluti þess sé greiddur
innan viku frá stofnfundi. Stofn-
fundur verður haldinn 15.
febrúar, enda hafi þá fengizt
nægilegt hlutafjárloforð að mati
stofnenda á stofnfundi.
Eins of fram kom í Morgunblað-
inu fyrir tveimur dögum, eru 7
sveitarfélög á Reykjanesi nú að
kaupa háhitasvæðið, þar sem
fyrirhugað er að gera tilraunir
með saltverkmsiðjuna af
bræðrunum Katli og Oddi
Ólafssonum fyrir samtals 21
milljón króna, en samningurinn
milli bræðranna og sveitarfélag-
anna var háður fullgildingu
stjórna sveitarfélaganna sjö, því
að enn hafa aðeins bæjarstjórar
eða sveitastjórar sveitarfélaganna
undirritað hann.
STÆRSTI skuttogarinn af
þremur, sem að undan-
förnu hafa verið í smíði í
Póllandi fyrir íslendinga,
er væntanlegur til heima-
hafnar sinnar, Sandgerðis,
síðari hluta næstu viku.
Þessi togari, en þeir eru
allir af minni gerð er um
480 lestir, nefnist Ólafur
Jónsson og er í eigu
Miðness h.f. Hinir togar-
arnir tveir nefnast Bjarni
Herjólfsson og Klakkur, og
er Bjarni I eigu fyrirtækja
á Stokkseyri og víðar í
Árnessýlu en Klakkur fer
til Vestmannaeyja. Bjarni
Herjólfsson mun koma til
Karlsefni fékk
144 kr. á kílóið
SKUTTOGARINN Karlsefni
frá Reykjavfk seldi um 180
lestir af fsfiski f Bremerhaven
f gær fyrir 25,8 milljónir
króna og er meðalverð á hvert
kfló kr. 144 eða tveimur kr.
hærra en var hjá Vigra f fyrra-
dag.
Laxárvirkjunarsvæðið tengt
Landsvirkjun í næstu viku
BYGGÐALÍNAN norður , sem tengja mun veitusvæði Laxárvirkjunar
við veitusvæði Landsvirkjunar, mun verða formlega tekin f notkun
næstkomandi fimmtudag með þvf að iðnaðarráðherra, Gunnar Thor-
oddsen, opnar Ifnuna á Rangárvöllum f Eyjafirði, en þar er aðveitustöð
fyrir Akureyri. Mun þessi Ifna geta flutt þegar f stað 4 megawött frá
Landsvirkjunarsvæðinu á Laxárvirkjunarsvæðið og ætti þetta afl að
minnka að einhverju leyti rafmagnsskammtanir á Akureyri, þegar
fshrafl hindrar nægilega raforkuframleiðslu f Laxá. Slíkt ástand var
einmitt nyrðra f gær og var þá rafmagn skammtað á Akureyri.
Sambandið, sem kemst á milli
þessara tveggja veitusvæða, er
fyrir tilstilli raflínu, sem lögð hef-
ur verið yfir Holtavörðuheiði frá
Vatnshömrum í Borgarfirði að
Laxárvatni. Fer línan síðan þaðan
í Varmahlíð, en þar tekur við
„hundur Magnúsar Kjartansson-
ar“ eins og línan frá Varmahlíð og
austur hefur jafnan verið kölluð.
Kemur hún nú fyrst að fullurn
notum, en línan hefur verið notuð
til þessa til að flytja rafmagn frá
svæði Laxárvirkjunar og til
Skagafjarðar.
Samkvæmt upplýsingum Guð-
jóns Valgeirssonar, fulltrúa hjá
Rafmagnsveitum ríkisins, mun
ástand þessara mála enn batna, er
lögð hefur verið lína yfir Hval-
fjörð til járnblendiverksmiðjunn-
ar á Grundartanga, en sú lína
verður 132 kílóvolta lína eða lina
eins og sú, sem lögð hefur verið
yfir Holtavörðuheiði. Mun þessi
lína yfir Hvalfjörð hafa það í för
með sér að unnt verður að flytja
norður allt að 50 metawött. Nú
mun unnt að flytja norður Holta-
vörðuheiði allt að 19 megawötten
talsvert af því er notað á leiðinni
r.orður, svo að við núverandi að-
stæður er ekki búizt við að Akur-
eyringar eða notendur á Laxár-
virkjunarsvæði fái meira en 4
megawött.
Um næstu helgi mun ætlunin
að prófa byggðalínuna og ef allt
gengur samkvæmt áætlun — eins
og Guðjón Valgeirsson hjá Rarik
sagði í viðtali við Morgunblaðið í
gær, verður unnt að opna hana
formlega á fimmtudaginn að
Rangárvöllum í Eyjafirði.
Samkvæmt upplýsingum Knúts
Framhald á bls. 18
landsins um mánaðamótin,
en Klakkur um mánaða-
mótin febrúar-marz.
Ólafur B. Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Miðness h.f. i Sand-
gerði, sagði f samtali við Morgun-
blaðið í gær, að tekizt hefði að
öllu leyti að koma f veg fyrir galla
þá, sem komu fram í aðalvél eins
togarans. Galfinn hefði uppgötv-
azt strax á framleiðslustiginu og
hefði t.d. vélin í Ólafi Jónssyni
reynzt vel f reynslusiglingum.
Mældist ganghraði skipsins 15.8
sjómílur, en i skipunum er 2200
hestafla aðalvél.
„Einlægnin skipt-
ir mestu máli”
SIGFÚS Hafldórsson opnar mál-
verkasýningu á Kjarvalsstöóum á
morgun, laugardag. „Ég syndi sfð-
ast hér f Revkjavfk árið 1974 en
var sfðast með sýningu f Borgar-
nesi f fyrra. Þessar myndir eru
flestar málaðar ’75 — ’76. Þó er
hér t.d. einn bás, sem með mynd-
um frá námsárunum f Englandi,
gerðar 1945 — myndir af bygg-
ingum og vistaverum mfnum
þar.“
Sigfús var við nám f leikmynda-
gerð í Englandi, en á sýningunni
eru einmitt nokkrar myndir af
þeim vettvangi, leikmynd Sigfús-
ar fyrir óperuna Igor fursti eftir
Borudin. Þá eru margar manna-
myndir, en flest þó málverkin af
fslenzku landslagi og úr Reykja-
vfk, einkum af gömlum húsum og
götum. „Ég nota allt — olíu,
vatnsliti, japanska krft, blýant,
túss ....
— Tengsl milli myndlistar og
músfkur, nei, ekki hvað mig varð-
ar, og þó, þegar ég var að vinna að
Reykjavfkursýningunni minni,
samdi ég ein 10 lög. En þetta er
ekki eins og var þegar maður var
stráklingur og vissi ekki f hvorn
fótinn átti að stíga, að mála eða
semja, nú held ég þessu alveg
aðskildu. Að mála er meiri vinna
— tónlistin, hún kemur svona af
sjálfu sér.“
Og það kemur af sjálfu sér, að á
miðju gólfi sýnangarsalarins
stendur pfanóið — Sigfús ætlar
að taka lagið „svona þegar þannig
liggur á honum“.
„En það er sama hvað maður er
að gera, aðalatriðið er að vera
einlægur, annað er bara hismi. Að
gera alla hluti eins vel og manni
er mögulegt, það skiptir mestu
máli.“
Lýsing bóka
— leiðrétting
TVÆR setningar runnu saman f
eina og nokkur orð féllu niður f
grein Braga Ásgeirssonar, „Lýs-
ing bóka“, í blaðinu i gær þar sem
rætt er um pennateikningar f bók-
inni „Punktur punktur komma
strik”. Þar átti að standa: „For-
sfða bókarinnar er sérkennileg,
grípur og vekur forvitni um inni-
hald hennar. Teikningar innan i
bókinni eru mjög misjafnar..
o.s.frv.