Morgunblaðið - 07.01.1977, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 07.01.1977, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JANUAR 1977 17 Eiginkonur varð- skipsmanna færa Landhelgisgæzlunni b j örgunarbúninga og öndunardúkku HLIÐSKJÁLF — félag eiginkvenna varðskips- manna — afhenti Land- helgisgæzlunni nokkrar góðar gjafir í gær um borð í varðskipinu Ægi, að viðstöddum forstjóra Landhelgisgæzlunnar, Pétri Sigurðssyni, Ólafi Jóhannessyni, dómsmála- ráðherra, og fleiri gestum, m.a. yfir- mönnum Ægis. Gjaf- irnar, sem Hliðskjálf afhenti, eru öndunar- dúkka, sem einnig er hægt að nota til að æfa hjartanudd, plastspelkur og 9 björgunarbúningar, en þeir hafa hlotið nafnið „lífgjafinn". Það var Selma Júlíus- dóttir, sem hafði orð fyrir eiginkonum Gæzlu- manna. Sagði hún i upp- hafi, að Hliðskjálf hefði verið stofnað 26. maí á Pétur Sigurðsson forstjóri Landhelgisgæzlunnar skoðar einn björgunarbúninganna ásamt Þresti Sigtryggssyni skipherra, Hálfdáni Henryssyni 2. stýrimanni, Þorvaldi Axelssyni 1. stýrimanni og Baldri Möller ráðuneytisstjóra. Ljósm. Mbl. RAX. ii Ólafur Jóhannesson dómsmálaráðherra þakkar Selmu Júlfusdóttur gjöfina, til hægri er Helga Larsen s.l. ári. Um leið hefði Helga Larsen lagt fram stofnfé I sérstakan sjóð, sem verja ætti til varð- skipsmanna, ekki sízt til að bæta aðbúnað þeirra, og styrkja þá í starfi. Til að fá meira fé í þessu skyni hefði verið leitað til allra landsmanna með góðum árangri og fénu síðan varið til kaupa á þeim tækjum, sem ákveðið hefði verið að gefa, og sagðist Selma vona, að þetta væri að- eins upphafið að frekara starfi félagsins í þessu skyni. Það kom fram hjá Selmu að öndunardúkkan er fyrst og fremst ætluð til að þjálfa varð- skipsmenn í að vekja menn úr dauðadái og æfa hjartanudd, plastspelkurnar eru æfinga- spelkur í að búa um beinbrot manna. Björgunarbúningarnir eru ætlaðir til notkunar við björgunarstörf við erfið skil- yrði og eans fyrir varðskips- menn þegar þeir fara á milli skipa eða í vita við erfiðar aðstæður. Fyrir hönd Landhelgisgæzl- unnar tók Ólafur Jóhannesson dómsmálaráðherra við gjöf- unum. Sagði hann það ánægju- legt að Landhelgisgæzlunni bærist gjöf sem þessi og bæri að þakka konunum fyrir frum- kvæðið. Sagði ráðherra að vitað væri að skipsmenn á varð- skipunum bæru oft sinar byrðar, ekki sizt í ný afstöðnu striði. Það hugsuðu kannski færri út í það að konur þeirra bæru lika sina byrði og færðu sínar fórnir og erfitt væri að meta við hvaða andlegt ástand þær þyrftu stundum að búa. Styrktarfélag vangefinna f ær 15 milljónir króna að gjöf Arangur söfnunarherferðar Hjálparstofnunar kirkjunnar HJÁLPARSTOFNUN kirkj- unnar hefur afhent Styrktar- félagi vangefinna 15 milljónir króna til byggingar afþrey- ingarheimilis fyrir vangefna. Er hér um að ræða fé, sem safnaðist f tveim söfnunar- og kynningarherferðum, sem Hjálparstofnunin efndi til á sfðasta ári og renna skvldi til málefnis vangefinna f landinu. Fór afhendingin fram f gær f Bjarkarási, vinnuheimili, sem rekið er af Styrktarfélagi vangefinna, að viðstöddum full- trúum úr stjórn Styrktarfélags- ins og fulltrúum Hjálparstofn- unarinnar, biskupi fslands og öðrum gestum. Séra Bragi Friðriksson, for- maður framkvæmdanefndar Hjálparstofnunarinnar, rakti i nokkrum orðum tildrög söfn- unarinnar og hvernig hún gekk fyrir sig. I þessari herferð gaf Hjálparstofnun kirkjunnar út 3 blöð í dagblaðsbroti sem dreift var í 10—12 þúsund eintökum, greinar birtust í dagblöðum og þættir í útvarpi. Þá lögðu ýmsir starfshópar lið og félagasamtök og þakkaði sr. Bragi þessum aðilum fyrir veittan stuðning. Sagði hann að það takmark hefði verið sett að safna 70 kr. á hvert mannsbarn í landinu og því marki hefði verið náð. Taldi sr. Bragi að hér væri um eina stærstu söfnun að ræða sem verið hefði hér á landi. Jón Kjartansson, formaður stjórnar Hjálparstofnunar kirkjunnar, afhenti Magnúsi Kristinssyni, formanni Styrktarfélags vangefinna, gjafabréfið, en ákveðið hefur verið að Styrktarfélagið beiti Magnús Kristinsson (t.v.) tekur við gjafabréfinu úr hendi Jóns Kjartanssonar. Bak við þá má sjá frumdrög að skipulagi lóðar Styrktarfélagsins. Dökka húsið til hægri er Bjarkarás, en til vinstri er hið fyrirhugaða afþreyingarheimili. Milli húsanna er gert ráð fyrir íþróttavelli. sér fyrir byggingu afþreyingar- heimilis. Biskup Islands, herra Sigur- björn Einarsson, tók einnig til máls og sagði að Hjálpar- stofnuninni væri ætlað að vera opið auga og útrétt hönd til hjálpar og það væri þvi gleði- efni að geta gefið þessa upphæð til málefnis þessa, þetta væri eitt af hennar hlutverkum. Þá voru sýnd frumdrög að afþreyingarheimilinu, sem ráð- gert er að risi á lóð Styrktar- félagsins við Bústaðaveg, og skv. þessum frumdrögum, sem enn á eftir að samþykkja af borgaryfirvöldum mun húsið risa sunnan við Bjarkarás. Arkitektar eru þeir Vilhjálmur og Helgi Hjálmarssynir og Reynir Vilhjálmsson skrúð- garðaarkitekt. Afþreyingar- heimilið á að rúma 24 vist- menn, en þetta er eins konar dagheimili og á að taka við því fólki sem kemur frá Lyngási og Bjarkarási og þar á að veita því enn markvissari og meiri kennslu en aðstaða er til þar. Verður húsið byggt með svip- uðu sniði og Bjarkarás, og þar verða föndurherbergi, iþrótta- aðstaða, leiðbeiningarherbergi og eldhús og borðstofa. Sagðist Magnús Kristinsson vona að endanlegar teikningar lægju fyrir í febrúar — mars og þá yrði verkið boðið út. Taldi hann mögulegt að gera húsið fokhelt fyrir næsta haust, en þessi upp- hæð, 15 milljónir, er ætluð nægileg til að gera húsið fok- helt. Var Magnús bjartsýnn á að vel tækist til að afla fjár til þess sem þá vantaði upp á, þeir hefðu oft farið af stað með minna, en þessi sólskinsdagur gerði þá styrktarfélagsmenn mjög bjartsýna, sagði hann að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.