Morgunblaðið - 07.01.1977, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 07.01.1977, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JANUAR 1977 „íþróttamaður ársins 1976" útnefndur í dag í DAG munu Samtök íþróttafrétta manna tilkynna úrslit I hinni árlegu kosningu þeirra á ,, íþróttamanni ársins". Er þetta 121. sinn sem samtökin gangast fyrir sllku kjöri. Var það fyrst árið 1 956 að „ íþróttamaður ársins" var kjörinn og hlaut þá Vilhjálmur Einarsson kosningu, en það var einmitt þetta sama ár sem Vilhjálmur hlaut silfurverðlaun á Ólympfuleikum I Melbourne Hingað til hafa 14 íþróttamenn hlotið umræddan heiðurstitil og hinn veglega verðlaunagrip sem honum fylgir. Enginn hefur oftar verið kjörinn „ íþróttamaður ársins" en Vilhjálmur Einarsson, er hlaut titilinn alls fimm sinnum: 1956, 1957, 1958, 1 960 og 1 961. Tveir aðrir íþróttamenn hafa hlotið útnefningu oftar en einu sinni: Valbjörn Þorláksson 1959 og 1965 og Guðmundur Gfslason 1 962 og 1 969. Hlutur frjálsfþróttamanna hefur verið áberandi beztur f kjörinu um fþróttamann ársins. Alls hafa frjálsfþróttamenn verið kosnir 10 sinnum, knattspyrnumenn hafa þrfvegis verið kjörnir, og einnig handknattleiks menn og sundmenn. og einu sinni hefur körfuknattleiksmaður hlotið titilinn. Til þessa hefur aðeins ein kona hlotið titilinn: Sigrfður Sigurðar- dóttir úr Val sem kosin var árið 1964, en það ár varð fslenzka kvennalandsliðið Norðurlandameistari í handknattleik, og átti Sigrfður ekki hvað minnstan þátt í þvf. Fyrirkomulag kosningar fþróttafréttamanna er þannig að hver fjölmiðill ræður yfir einum atkvæðaseðli og rita viðkomandi nöfn 10 íþróttamanna á seðilinn. Hlýtur efsti maður 10 stig, næsti 9 o.s.frv. Hámarksstigafjöldi að þessu sinni eru þvf 80 stig. Til þessa hafa eftirtalin hlotið titilinn „íþróttamaður ársin". 1956: Vilhjálmur Einarss. ÍR 1957. Vilhjálmur Einarss. ÍR 1 958: Vilhjálmur Einarss. ÍR 1959: Valbjörn Þorlákss ÍR 1 960: Vilhjálmur Einarss. ÍR 1961: Vilhjálmur Einarss ÍR 1962: Guðmundur Gfslason. ÍR - 1963: Jón Þ. Ólafss ÍR 1964: Sigrfður Sigurðard. Val 1965: Valbjörn Þorlákss ÍR 1966: Kolbeinn Pálsson, KR 1967: Guðmundur Hermannss. KR 1968 Geir Hallsteinss. FH 1969: Guðmundur Gfslason ÍR 1970: Erlendur Valdimarss. ÍR 1971: Hjalti Einarss FH 1972: Guðjón Guðmundss. ÍA 1973: Guðni Kjartanss ÍBK 1974: Ásgeir Sigurvinss. Standard Liege 1975: Jóhannes Eðvaldss. Celtic — frjálsar fþróttir — frjálsar íþróttir — frjálsar fþróttir — frjálsar fþróttir — frjálsar fþróttir — frjálsar fþróttir — sund — frjálsar fþróttir — handknattleikur — frjálsar íþróttir — körfuknattleikur — Frjálsar fþróttir — handknattleikur — sund — frjálsar fþróttir — handknattleikur — sund — knattspyrna — knattspyrna — knattspyrna Í dag bætist 21. nafnið við á hinn fagra verðlaunagrip sem fylgir særndarheit- inu „íþróttamaður ársins." Ólafur Jónsson þyggur hressingu hjá Gunnlaugi Hjálmarssyni landsliðsnefndarmanni, en Axel Axelsson hefur greinilega hug á því sem er að gerast úti á vellinum. Fróðlegt verður að sjá hvernig þeir Ólafur og Axel falla inn f íslenzka landsliðið sem mætir pressuliðinu f Laugardalshöllinni f kvöld. Pressuleikur í kvöld: ÓLAFUR OG AXEL MEÐ LANDSLIÐINU - pressuliðið skipað harðsnúnum varnarmönnum ÞEIR Ólafur H. Jónsson og Axel Axelsson, leikmenn með vestur- þýzka félaginu Dankersen, munu kiæðast (slenzku landsliðspeys- unni í fyrsta sinn á þessu keppn- istfmabili I kvöld, er þeir leika með fslenzka landsliðinu gegn úr- valsliði sem (þróttafréttamenn hafa valið — pressuliði f Laugar- dalshöllinni f kvöld. Hefst leikur þessi kl. 20.30. Þeir Axel og Ólafur hafa æft með fslenzka landsliðinu að undanförnu, Axel frá því um jól og Ólafur nú undanfarna daga. Hins vegar hefur landsliðsþjálfar- inn, Janus Cerwinski, lftið séð til þeirra, þar sem hann fór heim til Póllands um jólin og kom ekki aftur fyrr en nú í þessari viku. En f leiknum í kvöld og öðrum pressuleik sem verður á sunnu- dagskvöld, gefst honum gott tæki- færi til þess að fylgjast með Ólafi og Axel í leik, og „koma þeim fyrir“ í landsliðinu. Eftir landsleiki tslendinga í desember við Austur-Þjóðverja og Dani lá ljóst fyrir að helzti veikleiki liðsins var varnarleikur- inn. Þrátt fyrir að nýting liðsins I sóknarleiknum væri betri en oft- ast áður, og allt upp f það að vera mjög góð, vannst ekki nema einn leikur af sex. Var fyrst og fremst slökum varnarleik að kenna að svo fór. Ekkert efamál er að vörn íslenzka landsliðsins styrkist til muna þegar Ólafur H. Jónsson kemur inn í liðið, en Ólafur er tvímælalaust einn bezti varnar- leikmaður sem við eigum. Þá erum það einnig góð tfðindi að Árni Indriðason, annar mjög sterkur og klókur varnarleikmað- ur, hefur nú hafið æfingar með landsliðinu að nýju. Kemur nokk- uð á óvart að Janus og félagar skyldu ekki velja hann í landslið- íð sem leikur við pressuliðið í kvöld. LANDSLIÐIÐ Landsliðsnefnd tilkynnti í gær val sitt á landsliðinu sem mætir pressuliðinu I kvöld og verður það þannig skipað: Markverðir: Ólafur Benediktsson, Val Gunnar Einarsson, Haukum Aðrir leikmenn: Geir Hallsteinsson, FH Þórarinn Ragnarsson, FH Viðar Símonarson, FH Jón H. Karlsson, Val Bjarni Guðmundsson, Val Ólafur Einarsson, Víkingi Björgvin Björgvinsson, Vfkingi Viggó Sigurðsson, Víkingi Axel Axelsson, Dankersen Ólafur H. Jónsson, Dankersen Ágúst Svavarsson, ÍR Pressuliðið Iþróttafréttamenn völdu pressuliðið í gær og verður það þannig skipað: Markverðir: örn Guðmundsson, IR Kristján Sigmundsson, Þrótti Aðrir leikmenn.: Bjarni Jónsson, Þrótti Trausti Þorgrímsson, Þrótti Konráð Jónsson, Þrótti Þorbergur Aðalsteinsson, Víkingi Páll Björgvinsson, Vfkingi Árni Indriðason, Gróttu Hörður Sigmarsson, Haukum Jón P. Jónsson, Val Steindór Gunnarsson, Val Sigurbergur Sigsteinsson, Fram Sigurður Gíslason, ÍR. Svo sem glögglega má sjá á upp- talningu leikmanna pressuliðsins höfðu blaðamenn það íhuga er þeir völdu lið sitt að tefla fram sterku varnarliði. I hópi pressu- liðsmanna eru margir leikmenn sem hafa löngum fengið orð fyrir að láta ekki sinn hlut baráttulaust f vörninni og má þar nefna Árna Indriðason, Trausta Þorgrimsson, Bjarna Jónsson, Sigurberg Sig- steinsson og Steindór Gunnars- son.í pressuliðinu er að þessu sinni einn nýliði f slíkum leik — hinn ungi og bráðefnilegi leik- maður úr IR, Sigurður Gíslason, sem hefur vakið mikla athygli að undanförnu, og þá ekki sfzt fyrir að vera harður og útsjónarsamur varnarleikmaður. Þá er það einn- ig athyglisvert að nú kemur Páll Björgvinsson inn i pressuliðið, en sem kunnugt er var Páll einn helzti máttarstólpi fslenzka lands- liðsins f fyrra og fyrirliði þess. Hann gerðist sfðan þjálfari á Akranesi, og hefur lítið verið í sviðsljósinu í vetur. Nú hefur hann ákveðið að ganga aftur f raðir sinna fyrri félaga — Vík- inga — og hefur æft með þeim að undanförnu og er kominn í ágætt form. Er ekki að efa að Páll getur gert landsliðsmönnum erfitt fyrir f leiknum f kvöld. Stjórnandi pressuliðsins í kvöld verður Ingólfur Óskarsson, þjálf- ari Framliðsins, en Ingólfur stjórnaði pressuliðinu einnig í síð- asta leik þess við landsliðið, fyrir jól, með góðum árangri. Connors mesti gullkátfurinn JIMMY Connors frá Banda- rfkjunum var sá tennisleikari sem vann sér inn mesta fjár- upphæð fyrir tennisleik á árinu 1976. Námu laun hans samtals 687.335 dollurum. Sá sem varð f öðru sæti á þessum vettfvangi var Rúmeninn Ilie Nastase sem hafði 569.205 dollara f tekjur, þá kom Raul Ramirez frá Mexikó sem hafði 465.942 dollara og f f jórða sæti varð svo Björn Borg, hinn óopinberi heimsmeistari f tennis, eftir Wimbledon-sigur sinn f fyrra, en tekjur hans af fþróttinni námu 406.420 dollurum. Tekjur tennisleikaranna hafa aukist mjög mikið á sfð- ustu árum, enda orðin hörð samkeppni hinna ýmsu aðila sem gangast fyrir tennismótum að fá til sfn aðalstjörnurnar. Má geta þess til samanburðar að árið 1974 voru tekjur Connors 285.000 dollarar. Tekjuhæst tenniskvenna var Chris Evert, fyrrum unnusta Jimmy Connors. Hafði hún f laun á árinu 343.165 dollara. Evonne Goolagong frá Ástralfu hafði 209.952 dollara og Virginia Wade frá Bretlandi hafði 157.713 dollara.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.