Morgunblaðið - 07.01.1977, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JANUAR 1977
7
Ræktun
lands og
lýðs.
Ólafur Jóhannesson
dómsmálaráðherra ræð-
ir I áramótahugleiðingu
um verðmæti, æðri f jár-
munum. Hann segir:
„Vitaskuld lifum við
á breyttum tfmum, og
hugsjónir okkar þurfa
ekki endilega að miða
sérstaklega að meira
rfkidæmi. Lffsham-
ingja er æðri pening-
um, sem eru umfram
raunverulegar þarfir;
og hugsjónir nútfma-
manna eiga ekki sfður
að stefna að þvf að
tryggja og auka þau
gæði, sem eru mikils
virði, þótt örðugt sé að
meta þau til f jár, en eru
samt undirstaða þess að
fólki geti liðið vel, og
geta orðið niðjum okkar
góður arfur. Þar á með-
al er ræktun eða glæð-
ing þess hugarfars, að
hver og einn kjósi sér
öðru fremur að vera
nýtur þegn á þeim vett-
vangi, er hann hefur
valið sér eða lffið skák-
að honum á; — þegn
með fullri reisn og
sjálfsvitund og frjálsu
og fordómalausu skyni
og vilja til þess að láta
gott af sér leiða — ekki
aðeins fyrir sfna nán-
ustu, heldur einnig
aðra. Hugarfar, sem
metur og viðurkennir
hvert það starf, sem
samfélaginu er nauð-
synlegt eða er til heilla,
en lokast ekki innan
einhvers hrings
þröngra sérhagsmuna.
Gerum fyrst kröfur til
okkar sjálfra sfðan til
annarra. Stöndum sam-
félaginu skil á skuld
okkar við það, áður en
við gerum kröfur á
hendur þvf. Þá hugsun
þarf að rækta með þjóð-
inni. Þá dafnar hér
traust og „gróandi þjóð-
líf“.
Lifum
nútíðina
með fram-
tíðina
í huga.
Ólafur segir áfram:
„Jæja, þá er hann nú
farinn að predika, segja
menn. Já, vfst má það
til sanns vegar færa. Og
ætli það sé þá ekki bezt
að vitna til Predikar-
ans: „Varpa þú brauði
þfnu út á vatnið, þvf
þegar margir dagar eru
liðnir, munt þú finna
það aftur. Skiptu hlut-
anum sundur f sjö eða
jafnvel átta, þvf að þú
veizt ekki, hvaða ógæfa
muni koma yfir land-
ið.“ „Sá sæði þfnu að
morgni og lát hendur
þínar eigi hvflast að
kveldi, þvf að þú veizt
ekki, hvað muni heppn-
ast, þetta eða hitt, eða
hvort hvort tveggja
verður gott.“
Þetta er forn speki
sem nútfmamanni kann
að koma undarlega fyr-
ir sjónir. En ég heid, að
þarna sé hinn spaki
maður f raun og veru að
boða fyrirhyggjuna,
sem vill vera viðbúin
þvf, sem að höndum
ber. Þessi kenning um
fyrirhyggjuna á brýnt
erindi til okkar. Islend-
ingar eru áhlaupa-
menn, en trúa meira en
góðu hófi gegnir á
slembilukkuna, upp-
gripin og það, sem þau
gefa af sér. Sáðu og
Ólafur Jóhannes-
son, dóms- og
kirkjumálaráð-
herra
bfddu uppskeruiinar
með þolinmæði, þótt
svo hún falli þér ekki f
skaut, heldur þeim, sem
eftir þig koma, og vertu
viðbúinn hverju sem að
höndum ber. Þetta er
hugsunin bak við fvitn-
uð orð hins spakvitra
höfundar þeirra. Án
fyrirhyggju megum við
Islendingar sfzt af öllu
vera á komandi ári.
Við eigum að minnast
fortfðarinnar og læra af
sigrum og ósigrum fyrri
manna, en lifa f nútfð-
inni með framtfðina f
huga. Og hennar verður
dómurinn um verk okk-
ar.“
Lífs-
hamingja
er fólgin
í réttu
gildismati.
„Deyr fé, deyja
frændur, deyr sjálfur it
sama, en orðstfrr deyr
aldregi hveim er sér
góðan getur“, segir á
Hávamálum, og það er
orðstfrinn einn, sem
eftir stendur, þegar
fram Ifða stundir. Það
er þó ekki fyrst og
fremst vegna hans,
heldur vegna gildis
þess, sem verk okkar og
viðhorf hafa fyrir
ókomna tfð, að við verð-
um að fella lff okkar og
gerðir f þann farveg, að
við höfum betur lifað
en ekki. Að þessu skul-
um við hyggja á kom-
andi ári. Án hugsjóna,
umbótavilja og fórnar-
lundar, verður lffið fá-
tæklegra, hvað sem öll-
um Iffsþægindum og
ytri gæðum Ifður. Lffs-
hamingjan er ekki hvað
sfzt fólgin f réttu gildis-
mati.
Brátt gengur gestur f
garð — árið 1977. Við
heilsum þvf og bjóðum
það velkomið. Enginn
veit, hvað það hefur f
fórum sfnum. En allir
bera fram óskir um, að
það verði gott ár og far-
sælt. Ég vona, að það
verði ár hófsemi á sem
flestum sviðum. Ég
vona að það verði ár
jafnvægis, bæði út á við
og inn á við, Sú er mfn
von og bæn, að gern-
ingahrfð glæpa og alvar-
legra afbrota sloti á ár-
inu. Ég vona og bið þess
að reynt verði að af-
stýra hvers konar slys-
um eftir þvf, se f mann-
legu valdi stendur.
Megi friður rfkja um
heimsbyggðina, og sam-
ábyrgar tilfinningar
mannkyns vaxa.“
Hér er drepið á verð-
ugt fhugunarefni á
nýjum áfanga á vegferð
manns og þjóðar. Hóf-
semd og fyrirhyggja
þarf að móta afstöðu
okkar sem heildar og
einstaklinga, þann veg,
að við steytum ekki sf-
fellt á sömu skerjum
mistaka f þjóðfélaginu;
lærum af lexfum
reynslunnar á gegnum
árum og lifum nútfðina
með framtfðina f huga.
Þá mun sú sól raunhæfs
efnahagsbata og feg-
urra mannlffs rfsa yfir
þá skugga verðbólgu-
vandans og „of mikið of
fljótt hugsunarháttar,"
sem nú grúfa yfir þjóð-
Iffinu.
Síðasti innritunardagur
Skírteini afhent að Brautarholti
4 sunnudaginn 9, jan kl. 4 — 7.
Dafnarfelli 4 sama daq
kl. 4----7.
/-----------------------------\
INNRITUN DAGLEGA
KL. 10-12 OG 1-7
Reykjavik
Brautarholt 4, sími 20345 — 24959.
Drafnarfell 4 (Breiðholti), sími 74444.
Félagsheimili Fylkis (Árbæ), simi 381 26.
Kópavogur sími 38126
Seltjarnarnes sími 38126.
Hafnarfjörður sími 381 26.
Orð krossins
Fagnaðarerindið verður boðað á íslenzku frá
Monte Carlo (TWR) á hverjum laugardegi frá kl.
10.00 —10.15 f.h. á stuttbylgju 31 m. band-
inu.
ELÍM, Grettisgötu 62, Reykjavík.
Atlas hf
GROFINNI 1 - SIMI 26755
Vökvastýrisvélar
og sjálfstýringar
fyrir allar stærðir fiskibáta.
Flestar stærðir fyrirliggjandi.
Hagstætt verð.
Góðir greiðsluskilmáiar.
Kodak Kodak j Kodak Kodak ; Kodak j! Kodak j Kodak
í Kodak í Kodak
Kodak ! Kodak Kodak Kodak Kodak
„vonuB
.VOH-UH
vorur