Morgunblaðið - 07.01.1977, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 07.01.1977, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JANUAR 1977 13 Tollskrárfrumvarpið: Fataiðnaði veitt lakari kjör en öðrum iðngreinum % EINS og komið hefur fram í Morgunblaðinu hafa talsmenn fslenzks iðnaðar verið mjög ðánægðir með þá tollalegu aðstöðu, sem þeir álfta iðnaðinum vera búna og hafa þeir jafnvel gengið svo langt að tala um tollvernd, sem íslenzk stjðrnvöld veita erlendum iðnaði í sam- keppni við íslenzkan iðnað. Fyrir jðl lagði ríkisstjórnin fram nýtt tollskrárfrumvarp, sem meðal annars á að bæta íslenzkum iðnaði þennan aðstöðumun, með lækkun eða niðurfellingu innflutningsgjalda af hráefnum og f j árf estingarvörum. Davíð Scheving Thorsteinsson, formaður Félags islenzkra iðnrek- enda, sagði Morgunblaðinu I gær að iðnrekendur væru þeirrar skoðunar að tollskrárfrumvarpið væri til verulegra bóta en þó væru á þvi ýmsir agnúar. Fataiðn- aðurinn væri samkvæmt frum- varpinu til dæmis ekki látinn njóta sömu kjara og aðrar iðn- greinar og þyrfti hann ennþá að greiða tolla af sinum hráefnum. Þá benti Davlð á að iðnaðurinn þyrfti enn að greiða há opinber gjöld af ýmsum nauðsynlegum tækjum, hlutum og varahlutum. 0 Gosdrykkjaverksmiðjan Sani- tas hefut tekið að sér dreifingu á pilsner og maltöli fyrir gos- drykkjaverksmiðjuna Sana á Ak- ureyri. Mun Sanitas dreifa þess- um tveim drykkjum á öllu dreif- Þessi gjöld sem eru tollar, vöru- gjald og söluskattur nema oft um 80% af verði vörunnar. „Þá er ég mjög óánægður með meðferðina á fiskiðnaðinum," sagði Davíð. „Það er hneyksli að hann borgi 30.5% innflutnings- gjald af sínum vélum á meðan erlendur fiskiðnaður býr við toll- frelsi. Þetta er aðeins til þess að draga niður lífskjör á íslandi." Davlð sagði að I 3. grein toll- skrárfrumvarpsins væri veitt heimild til að leiðrétta ýmsa agnúa þar á meðal það misrétti, sem fataiðnaðurinn er látinn búa ingarsvæði sfnu sunnan og suð- vestanlands, en það nær austur að Kirkjubæjarklaustri og vestur um Snæfellsnes. Samkomulag verksmiðjanna nær ekki yfir dreifingu annarra gosdrykkja. við. Kvaðst Davíð bjartsýnn á að fataiðnaðurinn fengi leiðréttingu sinna mála, en það ylti á þvl hvort framkvæmd tollskrárlaganna yrði I þeim anda sem 3. greinin er. Bjarni Björnsson, forstjóri Dúks h.f. sagði að það ylli honum vonbrigðum að ekki skyldi vera hægt að láta fataiðnaðinn, sem erlendis hefur orðið harðast úti vegna fríverzlunarbandalaga, njóta sömu kjara og aðrar iðn- greinar. Sagði hann að tollar af dúk, sem er mikilvægasta hráefni fataiðnaðarins, verði yfirleitt 4 til 11%, ef frumvarpið verður sam- þykkt, en það felur I sér 4% tolla- lækkun. Sagði Bjarni það vera spurn- ingu um 20 til 30 milljónir fyrir ríkissjóð hvort tollar af dúk yrðu algerlega felldir niður og hefði skipt mun meira máli fyrir hann ef tollalækkunum úr 25% I 20%. Aðspurður sagði Bjarni að Is- lenzki fataiðnaðurinn hefði fram til þessa staðið sig vel I sam- keppni við erlendan fataiðnað, en það væri vafaatriði hvort hann gerði það áfram. Tollar á fullunn- um fatnaði hafa verið lækkaðir úr 65% I 20% og taldi Bjarni málin vera komin á það stig að vafamál væri hvort islenzki fataiðnaður- inn gæti staðið sig. Benti hann á að nokkrar greinar fataiðnaðarins hefðu þegar lagst niður eins og skyrtuframleiðsla. Hann benti einnig á þá athyglis- verðu staðreynd að útflutningur fataiðnaðarins hefði aukist á með- an hlutdeildin á innlendum mark- aði hefði minnkað. Sanitas dreifir Sana drykkjum gjaldmiðla þá er það almenn skoðun að viðkomandi ríkisstjórnir hafi þar einnig haft hönd í bagga Grunur leikur einnig á um að efna- hagslega sterk rlki eins og Japan og Vestur-Þýzkaland hafi notað fljótandi gengi I eiginhagsmunaskyni. Með leyndum afskiptum af gjaldeyris- mörkuðum hafa efnahagslega sterk lönd reynt að tefja fyrir hækkun gjald- miðla sinna auðvitað I þeim tilgangi að koma I veg fyrir að viðskipti tapist í hendur keppinauta Það sem gerir þennan grun þeim mun alvarlegri er að eina sjáanlega leiðin til efnahagslegrar viðreisnar Evrópu og Japans er aukinn útflutning- ur. Allt frá upphafi hefur útflutningur verið meiriháttar hvati á efnahagslegan uppgang. Nú var búist við að aukin fjármunamyndun myndi hraða efna- hagsafturbata En fjármagnið kom aldrei fram og er ekki að sjá að svo verði á næstunni og þvl hafa þjóðir heims enn treyst á aukningu útflutn- ings til að mæta samdrætti innanlands. Þetta stefnuval rfkisstjórna, þ.e.a.s. að leggja alla áherslu á að auka útflutn- ing gerir það freistandi fyrir þær að hafa rangt við á gjaldeyrismörkuðum til að bæta samkeppnishæfni sina Afleiðingin hefur orðið meiri sam- keppni og tortryggni. sem leitt hefur til tilhneiginga til að grípa til innflutnings- hafta og strangara eftirlits með sölu á erlendum gjaldeyri. ítalir hafa t.d sett 7% vörugjald á innflutning en áður höfðu þeir reynt að takmarka innflutn- ing með innborgunargjaldi, svipuðu og gilti á íslandi 1 974 í Frakklandi stend- ur til að auka gjaIdeyriseftirlit og herða á reglum um meðferð erlends gjaldeyr- is og Bretar hugsa alvarlega um að koma á innborgunargjaldi vegna inn- flutnings og kvótakerfi Þá eru flest Evrópulönd á því að innflutningskvótar verði settar á japanskar vörur eða inn- flutningur þeirra takmarkaður á ein- hvern hátt, en þau álíta að Japanir hafi notið um of þess að yenið hefur verið of lágt skráð. Ljóst er að hvað sem segja má um kosti fljótandi gengis. þá hefur það ekki leitt til þess stöðugleika. sem í upphafi var ætlað Það hlýtur þvi að vera stofnunum eins og Alþjóðagjald- eyrissjóðnum og Efnahagsbandalaginu mikið kappsmál að skapa kerfi sem að sem mestu leyti útilokar afskipti einstakra ríkisstjórna af gjaldeyris- mörkuðum en það er forsenda þess að stöðugleiki alþjóðlegra peninga- markaða verði varðveittur Arnarflug: Sækir um levfi til áætlunarflugs ARNARFLUG hefur sótt um heimild til að hefja áætlunarflug til ýmissa landa, að þvf er Bryn- jólfur Ingólfsson. ráðuneytis- stjóri 1 samgönguráðuneytinu, staðfesti I samtali við Mbl. 1 gær. Er þar bæði um að ræða lönd sem Loftleiðir og Flugfélagið hafa áætlunarflug til, en einnig ýmiss önnur lönd. Beiðni þessari verður vfsað til umsagnar flugráðs nú á næstunni. Þá sneri Morgunblaðið sér til Magnúsar Gunnarssonar, fram- kvæmdastjóra Arnarflugs, og spurði hann hvaða lönd það væru einkum sem félagið hefði hug á að hefja áætlunarflug til. Magnús kvaðst ekkert vilja ræða um þetta atriði á þessu stigi eða þar til flugráð hefði fjallað um málið. Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til viðtals í Sjálfstæðishúsinu Bolholti 7 á laugardögum frá klukkan 14:00 til 16 00 Er þar tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum ogábendingum og er öllum borgarbúum boðið að notfæra sér viðtalstíma þessa. Laugardaginn 8. janúar verða til viðtals Ólafur B. Thors. borgarfulltrúi, Bessi Jóhannsdóttir, varaborgarfulltrúi. VIÐTALSTIMI Til Oddvita I þessum mánuði verða póstlög ýmis gögn til trúnaðarmanna Sambands dýraverndunar- félaga íslands. Skorað er á þá ottvita sem enn eiga eftir að tilnefna trúnaðarmann fyrir S.D.Í. að gera það nú þegar. Stjórn Sambands dýraverndunarfélaga íslands. hugsaðu um fætuma Þetta er kuldaskórinn í snjóinn, loðfóðraður með þykkum hrágúmísóla fyrir 8.000 krónur. SKÓBÚÐIN SUÐURVERI GRÁFELDUR HF Stigahlíð 45 sími 83225 Ingólfsstræti 5 sími 26540

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.