Morgunblaðið - 07.01.1977, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JANUAR 1977
23
Stefanía Ingimundar-
dóttir - Minningarorð
sjónarsviptrr að. Utförin fer fram
kl. 10.30 frá Fríkirkjunni.
Að leiðarlokum er Hreins Páls-
sonar fyrst og fremst minnst sem
manns gleðinnar. Manns sem
gekk heill að hverju starfi og naut
þess að vera virkur þátttakandi i
mannlegu samfélagi.
Hann gegndi hinum margvís-
legustu störfum á lífsleiðinni:
skipstjóri, skipeigandi og út-
gerðarmaður, rak sfldarsöltun og
stjórnaði sfldarleit, kaupfélags-
stjóri i Hrisey, útibússtjóri Oliu-
verzlunar tslands hf. á Akureyri,
og siðar forstjóri þess félags i nær
18 ár og siðan stjórnarmaður
félagsins til æviloka.
Ég minnist Hreins Pálssonar
fyrst á sviðinu í Nýja Bíói á Akur-
eyri sem einsöngvara með karla-
kórnum Geysi. Það var ekki að-
eins mikil og fögur rödd hans sem
vakti athygli, heldur fyrst og
fremst persónuleiki hans og reisn
i framgöngu sem stafaði að
nokkru af likamsstærð hans og
myndugleika. Það var eins og
hann gnæfði yfir allan hópinn
þegar hann gekk fram I einsöngs-
hlutverkum sfnum.
Söngurinn var honum mikil
lífsfylling og gleði. Hann var á
yngri árum sínum svo vinsæll
söngvari að þegar sfldin brást eða
illa gekk i útgerðinni bætti hann
sér það upp með einsöngshljóm-
leikum í Reykjavik og fyllti þar
hús kvöld eftir kvöld.
Síðar áttu leiðir okkar eftir að
liggja saman sem samstarfsmenn
hjá Oliuverzlun tslands hf. í nær
30 ár, sem ljúft er nú að minnast.
Á þessum degi eru bornar fram
þakkir stjórnar og starfsmanna
Olíuverzlunar tslands hf. fyrir
störf þau er Hreinn Pálsson vann
félaginu á liðnum tíma og fyrir
vináttu og drengskap i samstarfi
að málefnum félagsins.
Fyrir um 8 árum síðan tók
Hreinn Pálsson að kenna til
Parkinsonsveiki, sem ágerðist
með hverju ári. Hann gekkst tvis-
var undir heilaaðgerðir til að
stöðva áhrif sjúkdómsins, sem
sýnir hversu dugmikill og kjark-
góður hann var þrátt fyrir þenn-
an erfiða sjúkdóm. Þegar Hreinn
Pálsson nú kveður, er þar á ferð
þjáður maður sem lokið hefur
jarðneskri göngu sinni og skilað
miklu og gæfuríku dagsverki.
Lausnin er honum líkn. Dauðinn
er fagnaðarefni þeim sem þjáður
er og lokið hefur ferð sinni.
Ég sendi Lenu og öðrum vanda-
mönnum, sem nú sjá á eftir góð-
um lífsförunaut og fjölskylduföð-
ur, innilegar samúðarkveðjur.
önundur Ásgeirsson.
í dag er frá Innri-
Njarðvikurkirkju til moldar borin
Stefanía Ingimundardóttir.
Hún er fædd þann 26. janúar
1897 í Snartartungu í Bitru, en
þar bjuggu foreldrar hennar, sem
voru Ingimundur Magnússon frá
Hrófbergi við Steingrímsfjörð og
Sigríður Einarsdóttir I Snartar-
tungu.
Foreldrar Stefaniu hófu búskap
I Snartartungu 1893, og bjuggu
þar fram til 1903 að þau fluttu að
Bæ í Króksfirði i Reykhólasveit.
Systkini Stefaniu voru Guðrún,
fædd 1894, Magnús, f. 1901, sfðar
bóndi I Bæ, Ólöf Ingibjörg, f.
1906, en hún lézt barn 1908, og
Ólöf Ingibjörg, f. 1909, húsmóðir i
Garðabæ.
Guðrún lézt 1924 i blóma lffsins
og var harmdauði vinum og
vandamönnum.
Þau Ingimundur og Sigrfður
bjuggu við góð efni eftir því sem
þá gerðist, og var Stefanfa I föður-
húsum f góðu yfirlæti, þó I mörgu
væri að snúast á stóru heimili.
Nitján ára gömul lagði hún land
undir fót og nam kjólasaum í
Reykjavik, en hverfur aftur til
föðurhúsa að þvf loknu.
Vorið 1920 giftist hún Kristni
Hákonarsyni frá Reykhólum, og
voru þau fyrst í stað heima hjá
foreldrum hennar í Bæ, þar til
þau fluttu að Kletti i Gufudals-
sveit vorið 1921 og hófu þar bú-
skap.
Börn Stefaníu og Kristins eru
Ingimundur Magnús, f. í Bæ 1920,
þá Hákon Magnús, f. 1922 að
Kletti, Halldór Hallgrímur, f.
1928 að Hamarlandi I Reykhóla-
sveit, en þangað fluttu þau
Stefania og Kristinn 1926.
Arið 1930 flytja þau Stefania og
Kristinn suður á Seltjarnarnes í
Bygggarð, og þar fæddist dóttir
þeirra, Erna, 1931.
Heldur munu kjör þau sem
Stefania átti við að búa i búskap
þeirra Kristins hafa verið lakari
en í föðurhúsum, en þó ekkert
lakari en gerðist á þeim árum, var
vinnudagurinn langur en hún
stóð sig og lét i engu bugast. Þeg-
ar Stefanía eignaðist Hákon
Magnús, tók hún þá plágu sem
margar konur tóku og var barns-
fararsótt, hlaut hún af henni mik-
il fótasár og örkuml æ síðan en
bar sig vel og kvartaði ekki.
1936 slitu þau Stefanía og Krist-
inn samvistum, og harðnaði þá
enn I ári hjá henni með börnin
fjögur.
En synir hennar studdu hana
og voru henni góðir synir, því
1942 kaupa þeir henni íbúð að
Meðalholti 13 i Reykjavík, og má
segja að þar með séu búraunir
Stefaníu úr sögunni, en þar bjó
hún fram til 1960.
Mikið var reynt til þess að
græða sár Stefaníu, og kostuðu
synir hennar sjúkrahúsdvöl í
Sviss um tfma, en bati varð aldrei
langvinnur. Árið 1954 tók Halldór
Hallgrimur ókennilega veiki og
missti hann smátt og smátt afl og
vald á hreyfingum, flutti Stefania
því 1960 er Halldór var orðinn illa
haldinn suður i Innri-Njarðvík til
að hafa Halldór hjá sér. Var Hall-
dór hjá henni í nokkur ár en
veikin ágerðist og lézt hann á
sjúkrahúsinu í Keflavik 1967.
Halldór hafði verið hinn mann-
vænlegasti maður, harðger og
sterkur og var sjúkleiki hans
Stefanfu mikill harmur, sem og
vinum og skyldum.
Stefania missti einnig son sinn
Ingimund Magnús 1971, og misstu
þar margir góðan dreng.
Síðustu árin hefur Stefania ver-
ið á sjúkrahúsinu í Keflavík, sjúk
og farlama, þar til hún lézt 29.
desember sl.
Hér er mörgu sleppt varðandi
elsku ömmu mina Stefaníu, það
lék aldrei við hana lifið, en hún
Framhald á bls. 18
Egill Kristinsson
—Minningarorö
Fæddur 4. maf 1908
Dáinn 29. desember 1976 1 %
Þann 29. desember s.l. andaðist
Egill Kristinsson eftir að hafa átt
við langvarandi vanheilsu að
stríða.
Egill heitinn var fæddur að
Mýrarkoti á Höfðaströnd, Skaga-
firði, hann var næstyngstur af
fimm börnum hjónanna Kristins
Egilssonar og Kristínar Rutar
Jóhannsdóttur, sem þar bjuggu
um nokkurra ára skeið.
Elstur var Jóhann Jakob sem
lengst af hefur búið á Hofsósi,
Skagafirði, kvæntur Guðleifu
Jóhannsdóttur, Eggertssonar frá
Ytra-Ósi.
Sigríður Ingibjörg, giftist Jóni
Pílsyni, hún andaðist fyrir nokkr-
um árum.
Baldvin, drukknaði f Vest-
mannaeyjum árið 1930, ókvænt-
ur.
Yngstur er Sigvaldi búsettur í
Keflavfk, ókvæntur.
Egill heitinn ólst upp hjá for-
eldrum sínum, en fluttist síðan til
Siglufjarðar og átti þar heimili
um allmörg ár.
Hann nam vélvirkjun og starf-
aði sem vélstjóri á fiskiskipum og
þótti ætfð traustur og áreiðanleg-
ur starfsmaður.
Arið 1935 kvæntist hann eftir-
lifandi eiginkonu sinni önnu
Halldórsdóttur frá Skriðulandi f
Arnarneshreppi, Eyjafirði, og
reyndist hún manni sínum traust-
ur og góður lffsförunautur.
Þau Egill og Anna eignuðust
eina dóttur, Agnesi, sem er gift
Árna Gunnarssyni viðskiptafræð-
ing, eru þau búsett f Garðabæ.
Eftir nálægt tuttugu og sex ára
búskap á Siglufirði fluttu þau
Anna og Egill árið 1961 til
Reykjavíkur og átti hann þar
heima til hinstu stundar.
Fljótlega eftir komu sina til
Reykjavfkur réðst Egill til starfa
hjá útgerð Reykjavfkur og vann
þar alla tíð sfðan, þó heilsan væri
mikið farin að gefa sig siðustu
árin þá stundaði hann starf sitt til
sfðasta dags.
Egill heitinn var glaðvær og
léttur í lund, það birti ætíð yfir
fólki þar sem hann kom, gaman-
söm orð og léttur hlátur hljómaði,
en þó var gamansemi hans
græskulaus og ekki á kostnað
annarra, hann átti auðvelt með að
sjá björtu hliðar lifsins og vildi
færa gleðina inn i líf annarra.
Mér er ljúft að minnast heim-
sókna Egils frænda til min er ég
dvaldi á sjúkrahúsi fyrir nokkru,
hann kom eins oft og nokkur tök
voru á og það var eins og sjúkra-
stofan fylltist af lifi þegar hann
birtist með gamanyrði á vörum,
brosandi og glaðlyndið geislaði af
honum, það veit aðeins sá er
reyht hefur hvers virði slikar
heimsóknir að sjúkrabeði eru.
Svona var Egill fram á siðústu
stund, enda þótt hann væri löng-
um sárþjáður, hann var einn af
þeim sem vilja lifa lifinu fagn-
andi með þakklátum hug.
Ég votta eftirlifandi eiginkonu,
dóttur og öðrum ættingjum og
vinum Egils heitins mína innileg-
ustu samúð, en gott er að minnast
Framhald á bls. 18
t
Eiginkona min, móðir okkar,
tengdamóðir og amma.
HULDA JÓNSDÓTTIR
frá Bakkagerði,
verður jarðsungin frá Reyðar-
fjarðarkirkju laugardaginn 8 jan-
úar kl 14
Gfsli Sigurjónsson, böm,
tengdabörn og barnabarna
börn.
t
RÓSA HJÖRVAR
Suðurgötu 6,
lést í Landakotspitala miðvikudaginn 5. janúar 197 7.
Börnin.
t
GUÐBJÖRG EINARSDÓTTIR
Hrlsey
lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri miðvikudaginn 5. janúar
Ottó Þorgilsson
Svandis Gunnarsdóttir
Oddný Einarsdóttir.
t
JÓN BJORNSSON.
vélstjóri
Frá Ketilisstöðum, á Tjörnesi,
til heimilis að Guðrúnargötu 5, Rvk.
andaðist í Torremolions. Spáni þann 30 des Jarðarförin verður
tilkynnt síðar.
Fyrir hönd eiginkonu og ættingja.
Hallgrfmur J. Jónsson, flugstjóri.
t
Eiginkona rhin, móðir okkar. tengdamóðir. amma og langamma.
GUÐNÝ PETRA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Skólavegi 8,
sem lést i Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 30 desember s I verður jarð
sungin frá Landakirkju laugardaginn 8 janúar kl. 2 e h
Runólfur Runólfsson Sigrún Steinsdóttir,
Einar Ólafsson Helga Vfglundsdóttir
Stefán Runólfsson Sigurborg Björnsdóttir,
Ólafur Runólfsson
böm og bamabörn
t
Sonur okkar og bróðir
GUÐJÓN SIGUROUR HERMANNSSON.
GoSatúni 5.
Garðabæ.
er lést aðfaranótt 1 janúar s.l verður jarðsunginn frá Garðakirkju
laugardaginn 8 janúar kl 13.30.
Ósk Óskarsdóttir Hermann Sigfússon
María Hermannsdóttir
Hermann Hermannsson
Þorsteinn Hermannsson
Þórunn Hermannsdóttir
Guðmundina Hermannsdóttir Jón B. Einarsson
Sigríður Ósk Jónsdóttir
t
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför móður
okkar. tengdamóður. ömmu og langömmu.
ÞORBJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR
Krókahrauni 8, Hafnarfirði
Guðrún R. Rögnvaldsdóttir Eirfkur Stefánsson
Ragnhildur P. Rögnvaldsdóttir, Sigurður Brynjólfsson,
Björg Ragnvaldsdóttir, Óskar Brynjólfsson,
Rögnvaldur Rögnvaldsson, Guðrún Albertsdóttir,
Hjördfs Jónsdóttir, Ragnar Sigurðsson
barnabörn og barnabarnaborn
t
Einlægar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför
SIGRÍOAR BJORNSDÓTTUR
frá Öxl
Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Svavar Jónsson
og börn.