Morgunblaðið - 15.01.1977, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 15.01.1977, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JANUAR 1977 7 Krafla og flokksformað- urinn Áramótahugleiðing Ragnars Arnalds, for- manns Alþýðubandalags- ins, í Þjóðviljanum, vakti ekki sízt athygli sem varnarskjal fyrir Kröflu- virkjun, en hann hefur verið í Kröflustjórn allar götur síðan Magnús Kjartansson, þáverandi iðnaðarráðherra, setti nefndina á legg. En lög um Kröfluvirkjun voru sett í hans ráðherratið og umsvif á Kröflusvæði eru framkvæmd þeirra laga Ragnar talar þar um „áróður" Alþýðuflokks- manna gegn Kröflu, sem sé ,,einhæfur og staðnaður í lítt sönnuðum fullyrðingum og ofleik" i hlutverki ,,pólitísks siðgæðis". Hann segir ennfremur: ,,Einu mistök- in, sem gerð hafa verið við Kröflu vóru þau, að ekki skyldu boraðar vinnsluholur, áður en bygging virkjunar hófst, heldur tvær grynnri rannsóknarholur sem reyndust ekki gefa fullnægjandi upplýsingar. En á þetta benti enginn, svo að mér væri kunnugt, þegar ákvörðun var tekin <lög vinstri stjórnar), en alltaf er auðvelt að vera vitur eftir á. Sveinbjörn Björnsson, eðlisfræðingur sem m.a. hefur gagnrýnt þessi mistök réttilega. Ragnar — sem árásm var gerð á segir í dagblaðinu Visi 1. desember sl „Menn töldu líklegt að svæðið yrði svipað Námafjalls- svæðinu, þar sem kopiin var mikilvæg reynsla. Og í ársbyrjun 1975 var ekkert það komið fram, sem benti til þess, að svæðið væri öðru vísi en Námafjall. Það var kannski fyrst með holu 4 sem varð hver, að i Ijós kom, að svæðið var afbrigðilegt. Menn fór eiginlega ekki að gruna þetta að neinu ráði fyrr en á þessu ári." Hér kemur Sveinbjörn einmitt að kjarna málsins." Ragnar segir ennfremur: „Ef Kröflu- virkjun kemst Í gang ein- hvern tíma á næstu mán- uðum, sem má heita stór- merkilegt, þvi að ekki er lengri tími liðinn en 1 V2 ár siðan bygging virkjunar hófst, er harla óliklegt, að Alþýðuflokkurinn hagnist á ábyrgðarlausri andstöðu sinni við þetta nauðsynja- mál. . ." Sjónarmið Ragnars Arnalds hafa til skamms tima mótað af stöðu Þjóðviljans til Kröfluvirkjunar. Annað hljóð í strokkinn Svavar Gestsson söðlar yfir ? aðra afstöðu i for- ystugrein Þjóðviljans 1 gær gagnvart Kröflu, en Þjóðviljinn hefur áður haft, og síðast var áréttuð i áramótahugleiðingu flokksformannsins 31. Svavar — sá sem árásina gerði desember sl. Nú tekur Þjóðviljinn i leiðara af- stöðu með sjónarmiðum gagnrýnenda virkjunar- innar, gegn sjónarmiðum flokksformannsins. Hitt er verra að Svavar fer með visvitandi ósannindi i máli sinu. Hann segir: „Orku- stofnun sendi iðnaðar ráðuneytinu AÐVÖRUN SÍNA fyrir að minnsta kosti þremur vikum, en enn bólar ekkert á við- brögðum ráðuneytisins. Nú er öllum Ijóst, eftir aðvörun Orkustofnunar, að ábyrgðin á áframhaldi framkvæmda við Kröflu, svo og hvað gert er eða ekki gert til varnar, ber iðnaðarráðuneyti eitt." Svo mörg vóru þau orð. Sannleikurinn er hins vegar sá að Orkustofnun, sem er visindalegur ráð- gjafi iðnaðarráðuneytis. hefur ALDREI lagt til að framkvæmdir við Kröflu verði stöðvaðar. Hins vegar sendi Orkustofnun iðnaðarráðuneyti 30. desember 1976, eða um áramótin, sérálit tveggja visindamanna, Axels Björnssonar, jarðeðlis- fræðings, og Kristjáns Sæmundssonar, jarðfræðings. I framhaldi af þvi lagði Orkustofnun, sem ráðgjafaraðili ráðu- neytis, eftirfarandi til: 1) að lágmarksmannafli verði hafður á vinnslu- svæðinu til loka janúar mánaðar 1977, en mest hætta var talin á ferð í þeim mánuði, einkum fyrri hluta hans. 2) Öryggisnefnd athugi sér- staklega öryggisráðstaf- anir með hliðsjón af miðs- vetraraðstæðum. 3) Skipulagður verði brott- flutningur verðmæta, eftir þvi sem hægt er, ef til þyrfti að gripa 4) Eftirlit allt, þ. á m. jarðskjálfta vakt, verði eflt. Iðnaðar- ráðuneytið hafði þegar, er þessar ábendingar bárust, framkvæmt sumar þeirra, en gaf strax skýr fyrirmæli um, að eftir öðrum skyldi farið. Viðbrögð ráðu- neytisins voru þvf þau, eins og áður, að taka fullt tillit til ábendinga, sem Orkustofnun gefur sem slfk. Sérálit einstakra vfs- indamanna er annar hlut- ur, sem erfitt var að fram- kvæma, einkum þegar niðurstöður þeirra stöng- uðust á, enda Orkustofn- unar að leggja á þau fræðilegt mat. Arás — illa dulbúin Hér skal enginn dómur lagður á rannsóknir né framkvæmdir við Kröflu. Aðeins látin f Ijós sú von, að þessi fyrsta stóra jarð- gufuvirkjun okkar takist og reynist vel. Hjá hinu verður ekki komizt að minna á, hver hefur verið afstaða Alþýðubandalags- ins og formanns þess til málsins. Leiðari Svavars Gestssonar, sem i raun er dulbúin árás á flokksfor- manninn og stefnumörk- un hans alla f Kröflu- nefnd, opinberar aðeins eina hliðina enn á marg- þættum skoðana- ágreiningi innan fjölkliku- sambandsins, þ.e. Alþýðu- bandalagsins. Undir yfir skyni árásar á iðnaðarráð- herra er hér vegið að Ragnari Arnalds. Svo klaufalega tekst þó til, að ekki er hægt að „afsaka" ritstjórann með þeim góðu og gömlu orðum: „Sér hann ekki sfna menn, svo hann ber þá Ifka." í þessu tilfelli hefur ritstjórinn flokksmanninn fyrir sjónum — og ber hann vitandi vits. GUÐSPJALL DAGSINS: Jóh. 2, 1.—11.: Brúðkaupid í Kana. DÓMKIRKJAN Nýir messustaðir vegna viðgerðar á kirkjunni: Messað kl 11 árd í Kapellu háskólans, gengið inn um aðaldyr. Séra Þórir Stephensen. Klukkan 5 síðd. messa í Fríkirkjunni. Séra Hjalti Guðmundsson. Barnasamkoma kl 10.30 í Vesturbæjarskólanum við Öldugötu. Séra Hjalti Guðmunds- son BÚSTAÐAKIRKJA Barnasamkoma kl 1 1 árd. Guðsþjónusta kl 2 síðd Altarisganga Barnagæzla Birgir Ás Guðmundsson organisti Séra Ólaf- ur Skúlason. LAUGARNESKIRKJA Barnaguðs þjónusta kl. 11 árd. Guðsþjónusta kl 2 síðd. Altarisganga. Fundur verður i Æskulýðsfélagi Laugarnes- kirkju á sunnudagskvöld kl 8, fjöl- breytt dagskrá. Sóknarprestur SELTJARNARNESSÓKN Guðsþjónusta kl 11 árd í félags- heimilinu. Séra Frank IVI Halldórs- son DÓMKIRKJA KRISTS Konungs Landakoti Lágmessa kl 8 30 árd Hámessa kl 10 30 árd ogjág- messa kl 2 síðd. FRÍKIRKJAN Reykjavík. Barna samkoma kl 10.30 árd Guðni Gunnarsson Messa kl 2 síðd Séra Þorsteinn Björnsson. NESKIRKJA Barnasamkoma kl 10.30 árd. Guðsþjónusta kl 2 síðd Séra Guðmundur Óskar Ólafsson BREIÐHOLTSPRESTAKALL Sunnudagaskóli kl 11 árd Messa kl. 2 siðd i Breiðholtsskóla Séra Lárus Halldórsson HALLGRÍMSKIRKJA Messa kl 1 1 árd Séra Karl Sigurbjörnsson Fjöl- skyldumessa kl 2 siðd Séra Ragnar Fjalar Lárusson LANDSPÍTALINN Messa kl 10 árd. Séra Ragnar Fjalar Lárusson HJÁLPRÆÐISHERINN Helgunar samkoma kl 1 1 árd Sunnudaga- skóli kl 2 siðd Hjálpræðissamkoma kl 8.30 siðd Preben Simonsen og frú. frá Danmörku, tala Kafteinn Daniel Óskarsson ÁSPRESTAKALL Messa kl 2 siðd að Norðurbrún 1. Séra Grimur Grimsson GRENSÁSKIRKJA Barnasamkoma kl 10 30 árd Messa kl 2 siðd Séra Halldór S Gröndal FELLA- OG HÓLASÓKN Barna- samkoma i Fellaskóla kl. 1 1 árd Guðsþjónusta og messa kl 2 siðd Séra Hreinn Hjartarson HÁTEIGSKIRKJA Barnaguðsþjón- usta kl 11 árd Séra Arngrímur Jónsson Guðsþjónusta kl 2 síðd Séra Tómas Sveinsson. Siðdegis- guðsþjónusta kl. 5. Séra Arngrimur Jónsson KIRKJA Óháða safnaðarins. Messa kl 2 siðd Séra Emil Björns- son ELLI- og hjúkrunarheimilið Grund Messa kl 2 siðd Séra Bjarni Sig- urðsson lektor Fél fyrrverandi sóknarpresta LANGHOLTSPRESTAKALL Barna LITUR DAGSINS: Grænn, Táknar vöxl, eink- um vöxt hins andlega lífs. samkoma kl. 10.30 árd. Guðsþjón- usta kl 2 siðd Séra Árelius Níels- son. ÁRBÆJARPRESTAKALL Barna- samkoma i Árbæjarskóla kl 10 30 árd Guðsþjónusta i skólanum kl. 2 síðd. Æskulýðsfélagsfundur á sama stað kl. 8 siðd Séra Guðmundur Þorsteinsson KÁRSNESPRESTAKALL Barna samkoma i Kársnesskóla kl. 1 1 árd Guðsþjónusta i Kópavogskirkju kl. 1 1 árd. Séra Árni Pálsson DIGRANESPRESTAKALL Barna- samkoma i safnaðarheimilinu við Bjarnhólastíg kl 1 1 árd Guðsþjón- usta i Kópavogskirkju kl 2 siðd Foreldrar fermingarbarna beðnir að koma. Séra Þorbergur Kristjánsson MOSFELLSPRESTAKALL Messa i Lágafellskirkju kl. 2 siðd Sóknar- prestur. GARÐAKIRKJA Barnasamkoma i skólasalnum kl. 11 árd. Guðsþjón- usta kl 2 siðd Séra Bragi Friðriks- son KAPELLA St. Jósepssystra, Garðabæ Hámessa kl 2 siðd HAFNARFJARÐARKIRKJA Guðsþjónusta kl 2 siðd Séra Garðar Þorsteinsson FRÍKIRKJAN Hafnarfirði Barna- samkoma kl 10 30 árd Safnaðar- prestur NJARÐVÍKURPRESTAKALL Sunnudagaskóli i Innri- Njarðvikurkirkju kl 1 1 árd og i Framhald á bls. 29 Skipulagssýningin að Kjarvalsstöðum Á skipulagssýningunni í dag laugardaginn 15. janúar kl. 16 verða kynntar samþykktir skipu- lagsnefndar varðandi aðalskipulag Grjótaþorps- ins. Ennfremur munu arkitektarnir Ólafur Sig- urðsson og Guðmundur Kr. Guðmundsson kynna deiliskipulagshugmyndir sínar af Grjóta- þorpinu. Þróunarstofnun Reykjavíkurborgar. Grísaveiz/a if Kl. 19.00 HúsiB opnað. if Kl. 19.30 — Hátlðin hefst stundvlslega Matseðill: Spénskur veizlumatur sangria og aðrir lystaukar. Matarverð aðeins kr. 1850,- if Skemmtiatriði: Bessi Bjamason, Ragnar, Þurlður og Stefán I fyrsta sinn I Reykjavtk. if Myndasýning. if Ferðabingó: Spilað verður um 3 sólarferðir með Útsýn til Spánar og Itallu. if Fegurðarsamkeppni ungfrú Útsýn 1977 forkeppni. Ferðaverðlaun samtals að upphæð kr. 700 þús. if Dans Hin vinsæla hljómsveit Ragnars _ | w Bjarnasonar. Gestir, sem koma fyrir kl 20.00, fá ókeypis happdrættismida og vinningurinn er ókeypis Útsýnarferó ti/ Spánar eóa Íta/íu. Munið að panta borð snemma hjá yfirþjóni Hjá Útsýn komast jafnan færri að en vilja Utsýnarkvöld eru skemmtanir I sérflokki, þar sem fjörið og stemmningin bregzt ekki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.