Morgunblaðið - 15.01.1977, Side 11

Morgunblaðið - 15.01.1977, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JANUAR 1977 11 „Finnsku uppskeru- mennimir syna sig Þrettán finnskir listamenn sýna í Norræna húsinu SÝNING þrettán finnskra listamanna verður opnuð í Norræna húsinu laugar- daginn 15. janúar og er það fyrsta sýning hússins á þessu ári. Sýningin er köll- uð „Adhesiva Arketyper“, sem gæti útlagst á íslenzku sem „Aleitin og óbreytan- leg frumtákn“ eða „Klfstr- uð frumtákn“. Sjálfir kalla listamennirnir sig „Elankorjaad“ eða „ungu uppskerumennirnir". Af þeim þrettán, sem verk eiga á sýningunni komu þrír til landsins til að setja upp sýninguna og kynna hana. Þeir eru Philip von Knorring ljósmyndari, Antero Kare og Olle Lyytikáinen. Antero Kare fékk styrk til íslandsfarar- innar til þess að skrifa um list á Islandi í finnsk blöð. Hann mun halda fyrirlest- ur í Norræna húsinu hinn 16. janúar um finnska list og sýna kvikmynd. Sýning- in hefst kl. 16 og er öllum heimill aðgangur. Finnsku listamennirnir eru úr hópi sem hefur rekið gallerý i Helsinki síóan 1971 og fékk ný- lega styrk frá Norræna menning- arsjóðnum til að setja upp farand- sýningu, sjem opnuð vár i Helsinki i vetur. Norræna húsið er fyrsti viðkomustaður utan heimalands- ins, en héðan fer sýningin til Stokkhólms. Að þvi er listafólkiö segir sjálft, beitir það hvers kyns aðferðum til að tjá sig, en á sýningunni eru málverk, grafik ljósmyndir og tónlist af segulböndum. Sýning „finnsku uppskerumannanna" stendur til 30. janúar. „Finnsku uppskerumennirnir“ f Norræna húsínu I gær ásamt aðstoðarstúlku sem einnig er finnsk. Volkswagen og Auói árgerð 1977 bílasýning verður í sýningarsal okkar að Laugavegi 172 laugard. 15. jan. og sunnud. 16. jan. frá 1 —6 e.h. Þar verða sýndir hinir glæsilegu nýju Aoói-bílar Akureyri: Gáfu vönduð heyrnarmæl- ingatæki Akureyri, 12. janúar — KIVV ANISKLÚBBURINN Kald- bakur afhenti l gær mjög vönduð heyrnarmælingarlæki með einangrunarklefa sem gjöf til Heilsuverndarstöðvar Akureyrar. Þar með var stofnuð heyrnardeild Ileilsuverndarstöðvarinnar, sem nú tekur til starfa undir stjórn Eirfks Sveinssonar læknis, en hann valdi lækin í samráði við Gylfa Baldursson, fyrrverandi forstöðumann heyrnardeildar Ileilsuverndarstöðvar Reykjavlk- ur. Tækin kostuðu um 750 þúsund krónur og var þess fjár aflað með sölu páskaeggja, sem Kiwanis- menn buðu Akureyringum til kaups fyrir síðustu páska. Með tækjunum er hægt að heyrnar- prófa fólk og greina heyrnarsjúk- dóma og þar með segja til um lækningaaðferðir. Birgir Guð- mundsson, forstöðumaður heyrn- ardeildar Heiisuverndarstöðvar Reykjavíkur, var til ráðuneytis við uppsetningu tækjanna, en þeim var komið fyrir i læknamið- stöðinni i Amaró-húsinu. Við af- hendingu þeirra töluðu þeir Rafn Hjaltalin fyrir hönd Kiwanis- manna, Baldur Jónsson læknir og Eiríkur Sveinsson læknir og voru Kiwanismönnum fluttar miklar þakkir fyrir framtak þeirra. — Sv.P. n\\ Auói 80 LS Audi ÍOO LS Au<ii-bílarnir eru frábærir að gæðum og með fullkominn tæknibúnað. — Sjón er sögu ríkari. - Komið, skoðið og kynnist Auói árgerð 1977 V.W. 1200 hefir aldrei verið betri og hagkvæmari í rekstri. Golf fallegur nútímabíll með fullkomnum búnaði. LT sendibíll hagkvæmur og fáanlegur af mörgum gerðum. Volkswagen og i-bílar eru vestur-þýzk gæðaframleiðsla Voíkswagen GOOOAuöi HEKLA HF. Laugavegi 170—172 — Sími 21240

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.