Morgunblaðið - 15.01.1977, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JANUAR 1977
13
Sinfóníutónleikar
Iláskólablo 13. jan. 1977
Stjórnandi: V. Ashkenazy
Einleikari: B. Belkin
Efnisskrá: P. Tsjaikovsky,
Forleikur — Komeó og Júlta
Fiðlukonsert I D-dúr S.
Rachmaninoff, Sinfónia nr. 2 I
e-moll, op. 27.
7. tónleikar Sinfóniuhljóm-
sveitar íslands á þessu starfsári
fóru fram í Háskólabíói ,sl.
fimmtudagskvöld. Að þessu
sinni brá svo við að húsið var
troðfullt út úr dyrum og kom-
ust færri að en vildu, — fyrir-
bæri, sem ekki gerist oft á vetri
hverjum. En skýringin var auð-
fundin, Ashkenazy var mættur
til leiks, að þessu sinni í hlut-
verki hljómsveitarstjórans og
hafði fengið til liðs við sig ung-
an landa sinn, Fiðluleikarann
Boris Belkin. Það er augljóst að
Ashkenazy nýtur mikillar hylli
meðal borgarbúa, þvf janfan er
fjölmenni á tónleikum, þegar
hann á hlut að máli og er það
vel. Vissulega var það mikill
fengur fyrir Islenzkt menn-
ingarlíf, þegar forsjónin beindi
braut hans hingað. Á síðari ár-
um hefur Ashkenazy fengist æ
meira við hljómsveitarstjórn,
og virðist kunna býsna vel við
sig með tónsprotann i hendi.
Það er ef til vill ekki tímabært
að bera saman píanóleikarann
Ashkenazy, en þar er hann einn
fárra útvaldra, og hljómsveitar-
stjórann Ashkenazy. Hins veg-
ar er greinilegt að honum tekst
að laða fram marga af bestu
kostum sinfóníuhljómsveitar-
innar. Honum tekst að hrifa
hljóðfæraleikarana með sér í
krafti persónuleika sins og
mana menn til átaka með afger-
andi hætti. Undir hans stjórn
leikur hljómsveitin aldrei logn-
mollulega og sjaldan þunglama-
lega. Og eitt atriði er það enn.
sem áreiðanlega skiptir miklu,
honum tekst að örva leikgleði
hljómsveitarinnar. Hins vegar
vill koma fyrir að of brattar og
stundum ótimabærar styrk-
leikabreytingar valda þvi að
spenna stefs missir marks og
ferill laglinu riðlast. Ofan-
greind einkenni komu vel fram
i fyrsta verki kvöldsins, sem
var Forleikurinn Romeó og
Júlia eftir Tsjaikovsky, og þrátt
fyrir annars góð tilþrif hljóm-
sveitarinnar, komust blásararn-
ir ekki með öllu áfallalaust frá
sinum hlut.
Um vinsældir fiðlukonserts
Tsjaikovskys efast enginn,
enda verkið hárómantiskt í
þess orðs bestu merkingu og
hlutverk einleikarans eitt það
glæsilegaasta, sem skrifað hef-
ur verið. Allir fremstu fiðlarar
heims hafa glímt við þennan
margspilaða konsert og saman-
burður því nærtækur. Að þessu
sinni fór ungur rússi, Boris
Belkin að nafni, með einleiks-
hlutverkið, og víst er að hann
hreif áheyrendur með tilþrifa-
miklum leik og afburða tækni.
Túlkun hans einkenndist fyrst
og fremst af miklum til-
finningahita, fiðlan grét og hló
i höndum hans, stundum hjal-
aði hann undurblitt en tók svo
hraustlega á i annan tima að
g-strengurinn urraði að manni.
Slikur leikmáti er vænlegur til
V. Ashkenazy
að vekja hrifningu, enda
fögnuðu áheyrendur honum
ákaft. En meðferð hans á
konsertinum i heild er um-
deilanleg og hefði yfirvegaðri
leikur gert túlkun hans heil-
Iegri. Tónleikunum lauk svo
með annarri sinfóniu
Rachmaninoffs. Verkið er stór í
sniðum og ber öll einkenni sið-
rómantikur. En innihaldslega
ristir sinfónían ekki djúpt og
formið er losaralegt þó
umgjörðin sé glæst. Þvi verður
þó ekki á móti mælt að hljóm-
sveitarútfærslan er alltaf skrif-
uð af óbrigðulli smekkvisi með
öryggi fagmannsins og skilaði
Sinfóniuhljómsveitin hlutverki
sinu ágætlega.
P.s.
Ekki get ég stillt mig um að
óska ungum klarinett-Ieikara,
Einari Jóhannssyni, til ham-
ingju með ágæta frammistöðu í
adagio-þættínum.
Egill Friðleifsson.
Jónas Pétursson:
„Fyrst allir adrir þegja
þá ætla ég ad segja...”
Þrátt fyrir amstur daganna og
lækkandi sólargang, bæði á ævi
og árstíð, vilja ýmis fyrirbæri
þjóðarlífsins, sem enn eru áhuga-
efni eða vakin athygli á i mæltu
máli eða rituðu, — í blöðum og
útvarpi — ýta svo við manni að
naumast verður haldið kyrru fyr-
ir, orða bundist, eða jafnvel hjá
því komist að grípa til pennans.
Að visu má ætla það til litils gildis
á þeim ofgnóttatfma talaðs máls
og ritaðs i þvi forheimskunar-
flóði, sem hellt er yfir þjóðina,
enda muna nú fæstir stundinni
lengur, það sem fyrir augu og
eyru bar. Minni flestra er tæpast
orðið 5 aura virði — jafnvel tvít-
ugir duga litlu betur en sjötugir
seggir.
En þó skal bætt í ofgnóttarflóð-
ið.
í Morgunblaðinu laugardaginn
23. október gafst að líta á baksíðu
með allstóru letri:
Nfu nýjar íbúðir koma á hvern
nýjan fbúa. Þrfr f fbúð f Reykja-
vík. Þar undir: „Á árinu 1975
fjölgaði íbúum I Reykjavik um 84,
en á sama tíma fjölgaði íbúðum
um 743. Eru nýjar ibúðir, sem við
bættust í fyrra því nærri niu sinn-
um fleiri en nýir Reykvíkingar. I
árslok 1975 voru ibúar borgar-
innar 84.856 og voru þá 28.263
íbúðir í Reykjavík. Þannig eru að
meðaltali 3 i hverri íbúð. Hefir sú
tala farið sílækkandi frá 1964 þeg-
ar voru að meðaltali 3.86 í hverri
íbúð“. í framhaldi af þessu eru
svo að finna upplýsingar um ibúð-
ir, sem við bættust 1975 og fólks-
fjölgun á því ári á Faxaflóasvæð-
inu frá Mosfellshreppi og suður
fyrir Hafnarfjörð, og niðurlagið
er þetta:
,,En á öllu svæðinu koma 1.13
nýir íbúar á hverja Ibúð, sem
byggð er“.
Dagblaðið (frjálst og óháð dag-
blað) mánudaginn 29. nóvember
s.l., 269. tbl. blaðsiðu 11:
Hagnaður byggingaraðila er
gffurlegur. Stór fyrirsögn á
rammagrein eftir Þorvald
Mawby. Rekur hann þar íbúða-
verð hjá Byggung- félagi ungs
fólks um fjölbýlishús. 70 fm. ibúð
hjá þvi félagi 3.310 þús. Hjá öðr-
um aðila, einnig 70 fm. 8.250 þús.
og hjá þriðja aðila 77 fm. 6.250
þús. Tölurnar tala! Minna vil ég á
I leiðinni: Kastljós i sjónvarpi 10.
des. s.l. rætt um byggingar-
kostnað. Akureyringurinn
Tryggvi Pálsson athyglisverðast-
ur, — þeir sem byggja sambæri-
lega við Byggung. Skoðanir
Tryggva ákveðnar og rökfastar,
ekki sfst það er hann sagði um
uppmælinguna!
Enn Dagblaðið 29. nóv. Opnan
bls. 14—15. Dagvistunarmálin:
Aðalfyrirsögn: Ætli yfirvöld séu
að rumska.
Dablaðið 10. des. 279. tbl. bls. 9,
rammagrein: Heilsugæslustöðvar-
innar: Reykvfkingar, sem allt
borga eru sfðastir á lista. Undir-
fyrirsögn: Höfuðborgin síðust í
röðinni um aðkallandi heilsu-
bótarréttindi! Tekur því ekki að
minnast á: Landspítala, Borgar-
spftala, Landakotsspítala, nær all-
an „sérfræðinga" skara lækna-
stéttarinnar- auk fjölda annarra
sjúkra og hjálparstofnanna. Jú,
Biblian geymir einhversstaðar
þessi orð: Drottinn ég þakka þér
að ég er ekki eins og aðrir menn,
og ekki eins og þessi tollheimtu-
maður!
1 leiðurum Visis heyrðust
ítrekaðar heiftarárásir á Kröflu-
virkjun og þá sem þar hafa staðið
í fylkingarbrjósti (og margar
fleiri raddir um það heyrst) — að
ekki sé talað um hina guðlegu
forsjón fjölmiðlanna, að draga nú
úr samneyzlunni, sem svo er
nefnd, — og ekki dylst hvert
stefnt er með því: i minni
„opinberar" framkvæmdir — jú,
þær koma einnig að liði, hinnu
strjálu byggð —: Þjoðareinkenni
tslendinga. Borgarf jarðarbrú!
Óhæfa — út yfir tekur að hugsa
til brúar yfir Ölfusárós — en
Borgarleikhús u.þ.b. l'A til 2
milljarðar, loksins , loksins —
enda I miðborg Reykjavikur.
Og enn Dagblaðið. Jú, það má
Jónas Pétursson
spara á fjárlögunum, þurrka út
8H milljarð, sem það nefndi
styrki til landbúnaðar! Og
þörungavinnslan! Svoleiðis ævin-
týri á að stöðva. Tölvan nær því
ekki að fyrirtæki, að framtak við
verðmætaöflunar úr skauti
islenzkrar náttúru kunni að eiga
sina bernskutið — enga dag-
heimilasamúð með slíkri vitleysu
á Vestfjarðarkjálka!
En Hrauneyjarfossinn. Tilbú-
inn til útboðs, áfram í smérið, svo
að þessar 1.13 manna fbúðir við
Faxaflóann fái nóg rafmagn og
steinstypuhjól verðbólgunnar
geti haldið hraðanum- og dúsu
verði stungið upp í kjarklitlar og
auðtrúa sálir i strjálbýlinu, sam
halda að guð almáttugur stýri
Orkustofnun og Rafmagnsveitum
rikisins og þeir fái bara þó nokk-
ur megawött úr Þjórsá eftir
náðarspenanum, sem reynt er að
teygja umhverfis landið.
Svo skeði nýtt, eftir að framan-
skáð fór á blað. Steinar Berg —
það minnir mig að hann heiti —
talaði um daginn og veginn- og
heyr! Faxaflóamenn mega aldeil-
is fara að vara sig að verða ekki of
grátt leiknir í raforkumálum.
Landsvirkjun, sko, það er okkar
mál. Mig rekur minni til að ég
væri einhverntima i umræðuhópi
þar, sem Steinar Berg var lfka og
skirpti einhverjum tölvutölum,
sem áttu að tákna einskonar
dauðadóm á raforkudreifingu um
Austurland. Ein aðferðin, eitt
vopnið til að halda austfirðingum
hikandi og hræddum i sinum
orkumálum!
Þessum minnispunktum og til-
vitnunum, sem ég hefi varpað hér
fram, er liklega rétt að fylgja eftir
með fleiri orðum. Tilvitnunin í
Morgunblaðið 23. október er svo
athyglsiverð að eigi má um þegja.
Áberandi hefir verið í dagblöð-
um, sjálfstæðismanna ekki síst, —
að opinberu framkvæmdirnar séu
Framhald á bls. 25
0(6
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
m
SjS
<ii<| Miðnæiursýning
M| Austurbæjarbíói
OXB f kvöld kL 24.00.
' Aðgöngumiðasala í Austurbæjar-
<BÁO bíói frá kl. 16, simi 11384.
HUSBYGGINGASJOÐURI