Morgunblaðið - 15.01.1977, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JANUAR 1977
15
Tékkóslóvakía:
Minni harka í árás-
um á andófsmenn
Prag, 14. janúar Heuter
LÖGREGLAN f Prag hélt
áfram yfirheyrslum yfir
andófsmönnum í dag, en
þó virðist svo sem heldur
hafi dregið úr árásum yfir-
valda á þá sem undirrituðu
„Mannréttindayfirlýsingu
77“.
Á þriðja hundrað Tékkar
og Slóvakar undirrituðu
yfirlýsinguna þar sem þess
var krafizt á mannréttindi
yrðu virt.
Eiginkona leikritahöfundarins
Vaclav Havels, sem meðal
annarra var f yfirheyrslum í dag,
sagði i samtali við fréttamann
Reuters, að Havel hefði verið
sóttur árla morguns og byggist
hún við því að hann yrði i aðal-
stöðvum lögreglunnar fram á
kvöld.
Árásir fjölmiðla á hópinn sem
stóð að yfirlýsingunni virðast nú
minni en áður, og telja ýmsir það
stafa af því að yfirvöld hafi
ákveðið hvernig bregðast skuli
við aðgerðum andófsmannanna.
Gérard Fréche, grunaður um að hafa hleypt skotinu af.
skulduðu prinsinum. De Ribe-
mont neitar því afdráttarlaust að
hann hafi á nokkurn hátt verið
við málið riðinn.
Frönsk bíöð hafa dregið i efa
opinbera skýringu á málinu er
kom fram á blaðamannafundi
sem Michel Poniatowski innan-
ríkisráðherra hélt. Hann nafn-
greindi þá sem hann kvað bera
ábyrgð á morðinu og dómarar og
dómsmálaráðuneytið gagnrýndu
hann fyrir að dæma i raun og
veru grunaða menn áður en þeir
væru ákærðir.
Meðal annarra sem hafa verið
ákærðir vegna málsins eru Ger-
ard Freche, sem er sakaður um að
hafa drýgt morðið, og Guy Simone
lögregluforingi, sem lögreglan
segir að hafi skipulagt morðið.
Jean de Broglie prins.
Pierre
de Varga.
De
Ribemont.
Corvalan
fær orðu
Leníns
Moskvu, 14. janúar. AP.
Kommúnistaleiðtog-
inn Luis Corvalan, sem
Chilestjórn lét lausan f
skiptum fyrir sovézka
andófsmanninn Vladi-
mir Bukovsky, var f dag
sæmdur Lenfnorðunni.
Fiikolai Podgorny
sæmdi Corvalan orðunni
á sextugsafmæli hans
„fyrir framúrskarandi
störf i þágu alþjóðahreyf-
ingar kommúnista, virka
þátttöku í baráttunni fyr-
ir friði, lýðræði og þjóð-
Corvalan
félagslegum framförum
og gegn heimsvalda-
stefnu og mikilvægan
skerf hans i þágu efling-
ar vináttu þjóða Sovét-
ríkjanna og Chile.“
Daoudmálid:
Yfirstjórn hersins á
Spáni endurskipulögð
Madrid, 14. janúar. Rputer
BREYTINGAR hafa verið gerðar
ð yfirstjórn spænska hersins,
bersýnilega til þess að koma I veg
fyrir að herinn skipti sér af
stjórnmálum, og þær eru taldar
liður I undirbúningi þingkosning-
a sem eru ráðgerðar slðar á árinu.
Jose Vega Rodriguez hers-
höfðingi, yfirmaður hersins á
Madridsvæðinu, var skipaður for-
seti herráðsins. Við starfi hans
tekur Federico Gomez de Salazar
hershöfðingi sem hafði yfirum-
sjón með brottflutningi spænska
hersins frá Vestur-Sahara I
febrúar I fyrra.
Báðir þessir hershöfðingjar eru
taldir frjálslyndir, en stjórnin vill
friða íhaldssama herforingja þar
sem hún skipaði yfirmann þjóðar-
varðliðsins sem nýlega var rekinn
í stöðu yfirmanns Valladolid-
herstjórnarsvæðisins fyrir norðan
höfuðborgina.
Þessi hershöfðingi, Angel
Campano, var rekinn i síðasta
mánuði ásamt fjórum öðrum yfir-
mönnum öryggismála eftir ein-
stæðar mótmælaaðgerðir 400 lög-
reglumanna og þjóðvarðliða fyrir
utan innanrikisráðuneytið.
171 fangi
á Spáni
Madrid, 14. janúar. AP.
171 pólitfskur fangi er í haldi á
Spáni tæpum sex mánuðum eftir
að Juan Carlos konungur lýsti
yfir sakaruppgjöf að sögn tals-
manns spænska dómsmálaráðu-
neytisins I dag.
Talsmaðurinn sagði að 75 fang-
anna afplánuðu dóma fyrir
hermdarverk og hinir biðu þess
að réttarhöld hæfust í málum
þeirra.
Barre skellir skuld-
inni á V-Þjóðverja
Stjórnin samþykkti jafnframt
að auka herútgjöld á þessu ári um
4,5 milljarða peseta til þess að
unnt verði að efla herinn þrátt
fyrir efnahagserfiðleika sem
Spánverjar eiga við að stríða.
Markgreifinn af Valenzuela var
skipaður yfirmaður lífvarðar
konungs. Hann tekur við af
hörðum francoista, Sanchez
Galiano hershöfðingja sem sagði
af sér í siðasta mánuði. Bæði
markgreifinn og hinn nýi forseti
herráðsins eru taldir tryggir
konungssinnar.
Jose Veaga Rodriguez hers-
höfðingi, hinn nýi herráðsforseti,
verður æðsti yfirmaður land-
hersins og hermálaráðherrann
mun aðallega gegna pólitísku
hlutverki.
Nýskipuð nefnd vinnur að þvi
að endurskipuleggja herinn til
samræmis við skipulagningu
herja NATO-landanna.
Paris, 14. janúar. Reuter.
FRAKKAR reyndu í dag
að mæta þeirri fordæm-
ingu sem þeir hafa orðið
fyrir, að hafa látið lausan
palestínska skæruliðafor-
ingjann Abu Daoud með
þvf að koma sökinni yfir á
Vestur Þjóðverja. For-
sætisráðherra Frakka,
Reymond Barre, sagði í
löngu viðtali f frönskum
blöðum: „Franska stjórnin
gat ekki varist þvf að veita
athygli því sem ég vil kalla
óákveðni vestur-þýzkra
stjórnvalda“.
Abu Daoud, sem grunaður var
um að hafa skipulagt árásina á
israelsku íþróttamennina á
Ólympíuleikunum i Múnchen
1972, var sleppt og sendur til
Alsír, fjórum dögum eftir hand-
tökuna. Barre sagði að hann hefði
verið hafður i haldi að beiðni
vestur-þýzku lögreglunnar, en
Bonn-stjórnin hefði ekki itrekað
formlega eftir diplómatiskum
leiðum beiðni sina um að Daoud
yrði framseldur henni samkvæmt
samningi rikjanna.
„Þetta er mjög undarleg hégð-
an þar sem þrem dögum áður
hafði vestur-þýzka innanrikis-
ráðuneytið lagt svo rika áherslu á
að fá hann framseldan" sagði
hann.
Barre sagði að væri megin
ástæðan fyrir því að Daoud hefði
verið sleppt að Vestur Þjóðverjar
hefði ekki itrekað beiðni sína
formlega.
Barre hafnaði þeirri fullyrð-
ingu að franska stjórnin hefði
skýlt sér á bak við lagaleg forms-
atriði til að vernda viðskiptalega
og pólitiska hagsmuni sina i Mið-
austurlöndum.
Raymond Barre
Dómari ákærir
félaga Broglie
París, 14. janúar. Reuler.
DÓMARI í París ákærði f
dag Patrick Allenet de
Ribemont, samstarfsmann
Jean de Broglie fyrrver-
andi ráðherra í viðskipta-
Iffinu, fyrir þátttöku í
morðinu á honum á að-
fangadag.
De Ribemont er einn sex
manna sem hafa verið
ákærðir í sambandi við
morðið. Hann hefur verið f
haldi sfðan f sfðasta mán-
uði fyrir að hafa haft vopn
ólöglega undir höndum.
Morðið á de Broglie prins var
framið fyrir framan fjölbýlishús
þar sem de Ribemont bjó og auk
þess annar félagi þeirra í við-
skiptamálum, Pierre de Varga,
sem hefur einnig verið ákærður
fyrir að vera samsekur.
Lögreglan heldur því fram að
de Ribemont og Varga hafi komið
morðinu til leiðar til þess að
sleppa við að greiða fjórar
milljónir franka sem þeir
menn hefði hann komist að raun
um að mikill hugmyndaágreining-
ur væri innan öryggisþjónustunn-
ar frönsku.
„Stundum fannst mér ég meira
að segja eins og ég væri með fólk
frá Tel Aviv en ekki Frakka fyrir
framan mig“, sagði hann. „Auk
þess virtist mér að zionistar, seru
andstæðir væri þeirri opinberu
stefnu Frakka að virða réttindi
Araba, vera i innsta hring franska
stjórnkerfisins.
Þá kvartaðí hann yfir þvf að
hafa þurft að sitja f klefa með
eiturlyfjaneytendum og
whiskyþjóf.
Abu Daoud
í viðtali við Le Mond, sem tekið
var í Ageirsborg sagði Daoud að
handtaka hans hefði verið
pólitísk. Sagði hann að með sam-
tölum sinum við franska lögreglu-
Tass „leid-
réttir” frétta-
skýringu um
hemaóarmátt
risaveldanna
Moskvu, 14. janúar Reuter
TASS-fréttastofan birti í fyrra-
dag fréttaskýringu þar sem
haldið var fram, að Sovétmenn
hefðu á ýmsum sviðum
hernaðarlega yfirburði yfir
Bandarfkjamenn, en að sumu
leyti stæðu Bandaríkin þó
framar. Nú hefur þessum um-
mælum verið breytt á þann
veg, að rfkin „standi nokkurn
veginn jafnfætis“ hvað
hernaðarmátt snertir.
Undanfarna daga hafa
margar greinar birzt í
sovézkum fjölmiðlum þar sem
segir að á Vesturlöndum gæti
nú vaxandi tilhneigingár til að
vekja ótta meðal almennings
um að Sovétríkin stefni að
yfirburðum á hernaðarsviðinu.
Framhald á bls. 21