Morgunblaðið - 22.01.1977, Page 3

Morgunblaðið - 22.01.1977, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1977 3 Reyðarfjörður: Örn loðnu landaði- og strandaði Reyðarfjörður. 21. janúar. ÖRN KE 13 landaði 573 tonn- um af loðnu hér í nótt. Er báturinn var að sigla út fjörð- inn rúmlega sjö i morgun, sigldi hann i strand við Bjargareyri. Snjókoma og dimmt var er þetta gerðist. Báturinn Gunnar var að koma úr veiðiferð um þetta leyti, og höfðu skipverjar þar samband við Örn, og var ákveðið að bíða flóðsins. Upp úr hádeginu komst báturinn út fyrir eigin vélarafli. Nú er allt að fyllast hér af loðnu. Guðmundur RE er væntanlegur í kvöld með 700 tonn af loðnu, Snæfugl með 200 tonn og Helga RE er að landa 240 tonnum. Byrjað verður að bræða kl. 12 á hádegi á morgun. Afli vb. Gunnars úr framan- greindri veiðiferð voru 10 tonn. _ Gréta Skipaðir dómarar í morðmáli RÍKISSAKSÓKNARI hef- ur nýlega gefið út ákæru á hendur Ásgeiri Ingólfssyni vegna morðsins að Miklu- braut 26 s.l. sumar og falið sakadómi Reykjavíkur dómsmeðferð málsins. Yfirsakadómari hefur skip- að þrjá dómara til að dæma i málinu, sakadómarana Harald Henrýsson, sem er dómsformaður, Jón Abra- ham Ólafsson og Sverri Einarsson. I þessum klefa dvaldi Cristopher Barba Smith frá 5. janúar þangað til að miðviku- dagskvöldið að honum tókst að flýja. frá, en ekki hefur verið greint frá því á hvern hátt Smith lokaði hinn vörðinn ínni Var Smith eini fanginn i fangels- inu og siðan hann hvarf hefur enginn fangi verið þar Vistarverum er þannig háttað i fang- elsi varnarliðsins að þegar kemur inn i húsið er borð fangavarðar á hægri hönd og sér hann i spegli inn eftir öllum ganginum Þegar gengið er inn eftir gangi fangelsisins kemur fljótlega að herbergi á hægri hönd þar sem eru þægindi og er þetta herbergi fyrst og fremst hugsað fyrir fangaverðina, en þar munu fangar einnig hafa fengið að dvelja með þeim og þá einnig Smith Innar á ganginum er salerni og hreinlætisaðstaða, en er þvi sleppir taka við vistarverur fanganna Er þar ekki um klefa að ræða i þeim skilningi, Framhald á bls. 18 HÖFUM VID ÞÁ ÁNÆGJU AÐ KYNNA VENJULEGT ÞRIHYRIMDUR LITGJAFI LÓÐRÉTTUR LITGJAFI HIN FRÁBÆRU LIISJÖNVMPSTÆKIFRÁ * * . . •••••• %>.. ° MIV ■ - Jk ’ Þér standið agndofa gagnvart litsjónvarpstækni SHARP litmyndavarpinn er frábærlega vel hannaður m.a. til að gefa sannan lit Tæknilegir yfirburðir litsjónvarpstækjanna eru: rafeinda bylgjuskiptir sjálfvirk rafeinda birtustilling rafeinda litblæskipting í litmyndavarpanum eru þrír lóðréttirlitgjafar í stað 3ja þríhyrningslaga (sjá mynd) Allt þetta tryggir. hárnákvæman litflutning, sterkari bjartari, skýrari og eðlilegri mynd en áður hefur sést á íslandi. YFIRBURÐIR ERU YFIRÞYRMANDI Sharp Irtsjónvarpstækin hafa reynst fróbærlega vel á hafi úti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.