Morgunblaðið - 22.01.1977, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JANUAR 1977
7
| Fiskiðnaður —
I samkeppnis-
, iðnaður
1 Tollar á öllum vélum til
I iðnaðar, sem flokkast
' undir „samkeppnis-
I iðnað", hafa nú verið
I felldir niður, sem er mikil
I vægt spor I þá átt að
' tryggja jafnkeppnisstöðu
| íslenzks iðnaðar. Hins
I vegar er enn nokkur tollur
I af fiskvinnsluvélum, 2 til
I 7%. í viðtali við Morgun
. blaðið fyrir skemmstu lét
Guðmundur H. Garðars-
son, alþingismaður, I Ijós
þá skoðun, að tollfríðindi
véla til samkeppnisiðn-
aðar ættu, ef rétt væri að
málum staðið, að ná jafn-
I framt til véla I fiskiðnaði,
' þar sem hann þyrfti að
I selja afurðir sínar í harðri
' samkeppni á EFTA- og
I EBE-mörkuðum.
' í þessu sambandi er rétt
I að minna á að Albert Guð-
I mundsson, alþingis-
maður, flutti margs konar
breytingartillögur við toll-
I skrárfrumvarp ríkis-
' stjórnarinnar, sem sumar
| hverjar gengu I þessa átt.
ILagði hann til að tollar
féllu niður á flökunar-
Albert
vélum, flatningsvélum,
sfldarsöltunarvélum, roð-
flettingarvélum,
slægingarvélum og haus
skurðarvélum til vinnslu á
fiski. Núverandi tollur er
7%. Þessar tillögur náðu
ekki fram að ganga.
Forðabúr
annars vegar,
hungur hins
vegar
Alþýðublaðið segir
m.a. í leiðara I gær:
„Þegar íslendingar
meta kjör sín er oftast
gripið til samanburðar og
leitað til hinna Norður-
landanna. Yfirleitt er ekki
farið lengra. En ef á hinn
bóginn er litið framhjá
þessum auðugustu vel-
ferðarþjóðfélögum ver-
aldar verður allur saman-
burður íslendingum mjög
í hag. Sú skoðun er þó
ríkjandi, að við eigum að
miða við það bezta og
ekki það sem lakara er.
Þótt fjarri sé því, að
Alþýðublaðið vilji gera
lítið úr ríkjandi erfið-
leikum á íslandi, er stund-
um hollt og gott að beina
sjónum sínum út fyrir
landamærin og llta á þá
mælistiku, sem við notum
til að meta afkomu okkar
og lífskjör.
Guðmundur
íslendingar þurfa ekki
að kvarta undan atvinnu-
leysi né matarskorti. Hús
þeirra eru betri en víðast
þekkist. Enn er þjóðin
ekki fjölmennari en svo,
að einstaklingurinn eigi
ekki hjálpar von, ef hann
leitar eftir henni. Vanda-
mál milljóna þjóðfélaga
hafa gert vart við sig, en
eru ennþá ekki allsráð-
andi."
Úr moldar-
kofum í stein-
steypuhallir
Enn segir Alþýðublaðið:
„það er ekki langt
síðan, ef tekið er mið af
ævi þjóðar, að íslendingar
bjuggu við sult og seyru.
Bylting í framfaraátt
hefur orðið á nokkrum
tugum ára, — íslendingar
stigu beinlfnis út úr
noldarkofum inn í stein-
steypuhallir. Þessi þróun
hefur kostað mikla bar-
áttu og gffurlega vinnu.
Þetta var unnt að gera
vegna þess að viljinn var
fyrir hefndi og landið gott,
sem þjóðin býr I.
Það ætti að vera auð-
velt fyrir íslendinga að
skilja nauð mikils meiri-
hluta mannkyns, sem
stafar af hungri og nær-
ingarskorti. En það er eins
og þjóðin vilji ekki af
þessum vanda vita. Börn
með útblásna maga og
beinberir og deyjandi
unglingar eru þúsundir
kílómetra frá íslands-
ströndum. Grátur barna,
sem eru dæmd til að deyja
nokkurra mánaða gömul,
berst ekki hingað norður I
haf. *
Það hrikalegasta við
næringarskort mikils
meirihluta mannkyns er
það, að kæligeymslur rfku
þjóðanna eru yfirfullar af
smjöri og kjöti og þaðflóir
út úr kornturnunum.„
Vandamálin
ólík
Síðan ræðir Alþýðu-
blaðið um, að komm-
únistaríkin séu I engu frá-
brugðin öðrum svoköll
uðum auðvaldsríkjum,
búandi við nægtir og
birgðir fram f tfmann, við
hlið sveltandi milljóna-
þjóða. Þarna mætist öfgar
í aðbúð mannfólksins,
annars vegar þeir, sem
svelta, hins vegar þeir, er
sitja á umframbirgðum
langt fram f tfmann.
Loks segir blaðið:
„íslendingar hafa kynnzt
smjörfjöllum og kjöt-
birgðum. Þeir eiga gnótt
matvæla og enginn Ifður
fæðuskort. Staðreyndin
er sú, að vandamál dag-
legs lífs á íslandi eru
hreinir smámunir, þegar
litið er til þróunarland-
anna og þeirra hörmunga,
sem fbúar þeirra líða.
Auðvitað ber íslendingum
að berjast stöðugt fyrir
bættu og betra þjóðfélagi.
En á sama tíma ættu þeir
að hafa f huga, hve vel
þeim er borgið og framar
öllu öðru að gleyma ekki
skyldum sínum við svelt-
andi heim."
idleööuf
á morgtm
DÓMKIRKJAN Nýir messu-
staðir vegna viðgerðar á
kirkjunni: Klukkan 11 messa í
Kapellu háskólans, gengið inn
um suðurdyr. Séra Hjalti Guð-
mundsson. Klukkan 5 síðd.
Messa í Fríkirkjunni. Séra
Þórir Stephensen. Barnasam-
koma í Vesturbæjarskólanum
við Öldugötu kl. 10.30 árd. Séra
Þórir Stephensen.
NESKIRKJA Barnasamkoma
kl. 10.30 árd. Guðþjónusta kl. 2
siðd. Séra Frank M. Halldórs-
son.
IIÁTEIGSKIRKJA Barnaguð-
þjónusta kl. 11 árd. Séra Tómas
Sveinsson. Messa kl. 2 síðd.
Séra Arngrímur Jónsson. Sið-
degisguðþjónusta kl. 5. Séra
Tómas Sveinsson.
DÓMKIRKJA KRISTS
Konungs, Landakoti. Lágmessa
kl. 8.30 árd. Hámessa kl. 10.30
árd. Lágmessa kl. 2 siðd.
FÍLADELDFÍUKIRKJAN
Safnaðarsamkoma kl. 2 siðd.
Almenn guðþjónusta kl. 8 síðd.
Guðmundur Markússon.
FELLA- OG IIÓLASÓKN
Barnasamkoma í Fellaskóla kl.
11 árd. Guðþjónusta í skólanum
kl. 2 síðd. Séra Hreinn
Hjartarson.
LANGHPLTSPRESTAKALL
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðþjónusta kl. 2 siðd. Séra
Árelíus Níelsson.
BÚSTAÐAKIRKJA Barnasam-
koma kl. 11 árd. Guðþjónusta
kl. 2 síðd. Barnagæzla. Organ-
isti Birgir Ás Guðmundsson.
Séra Ólafur Skúlason.
HALLGRÍMSKIRKJA Messa
kl. 11 árd. Séra Ragnar P’jalar
Lárusson. Fjölskyldumessa kl.
2 síðd. Séra Karl Sigurbjörns-
son.
LANDSPÍTALINN Messa kl.
10 árd. Séra Karl Sigurbjörnss-
on.
ÁSPRESTAKALL Messa kl. 2
síðd. að Norðurbrún 1. Séra
Grímur Grímsson.
FRÍKIRKJAN Reykjavik.
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðni Gunnarsson. Messa kl. 11
árd. Séra Þorsteinn Björnsson.
AÐVENTKIRKJAN Reykjavík.
Samkoma kl. 5 síðd. Sigurður
Bjarnason.
Arbæjarprestakall
Barnasamkoma í Árbæjarskóla
kl. 10.30 árd. Guðþjónusta í
skólanum kl. 2 síðd. Séra Guð-
mundur Þorsteinsson.
BREIÐIIOLTSPRESTAKALL
Barnasamkoma i Breiðholts-
skóla kl. 11 árd. Messa í skól-
anum kl. 2 síðd. Séra Ingólfur
Guðmundsson prédikar.
Sóknarnefnd.
HJAIÆRÆÐISHERINN
Helgunarsamkoma kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 2 síðd.
Hjálpræðissamkoma kl. 8.30
síðd. Kafteinn Daíel Óskarsson.
ELLIHEIMILID GRUND
Messa kl. 10 árd. Séra Jón Kr.
ísfeld.
GRENSÁSKIRKJA Barnasam-
koma kl. 10.30 árd. Guð-
þjónusta kl. 2 síðd. Séra Hall-
dór S. Gröndal.
LAUGARNESKIRKJA Barna-
guðþjónusta kl. 11 árd. Guð-
þjónusta kl. 2 síðd. Helgistund í
Hátúni 10 B fyrir Landspítala-
deildirnar kl. 4 síód. Sóknar-
prestur.
SELTJARN ARNESSÓKN
Barnasamkoma kl. 11 árd. í fé-
lagsheimilinu. Séra Guðmund-
ur Óskar Ólafsson.
DIGRANESPRESTAKALL
Barnasamkoma í Safnaðar-
GUÐSPJALL DAGSINS:
Matt. 8, 1—13.:
Jesús gekk ofan
af fjallinu.
LITUR DAGSINS:
Grænn. Táknar vöxt, eink-
um vöxt hins andlega Iffs.
heimilinu við Bjarnhólastíg kl.
11 árd. Guðsþjónusta i Kópa-
vogskirkju kl. 11 árd. Séra Þor-
bergur Kristjánsson.
KARSNESPRESTAKALL
Barnaguðsþjónusta í Kársnes-
skóla kl. 11 árd. Guðsþjónusta í
Kópavogskirkju kl. 2 síðd. Séra
Árni Pálsson.
GARÐASÓKN Barnasamkoma
í skólasalnum kl. 11 árd. Séra
Bragi Friðriksson.
KAPELLA ST. Jósepssystra I
Garðabæ. Hámessa kl. 2 síðd.
FKIKIKKJ AN I HAFNAR-
FIRÐI. Barnasamkoma kl.
10.30 árd.
Guðsþjónusta kl. 2 síðd. Vænzt
er þátttöku fermingarbarnanna
og foreldra þeirra. Séra
Magnús Guðjónsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA
Guðsþjónusta kl. 2 siðd. Séra
Bragi Friðriksson messar. Séra
Garðar Þorsteinsson.
MOSFELLSPRESTAKALL
Barnasamkoma í Lágafells-
kirkju kl. 10.30 árd. Séra Birgir
Asgeirsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA Guðs-
þjónusta kl. 2 síðd. Kvöldvaka
kl. 8.30 síðd. Séra Olafur Oddur
Jónsson.
GRINDAVÍKURKIRKJA
Barnaguðsþjónusta kl. 11 árd.
Sóknarprestur.
ÚTSKÁLAKIRKJA Messa kl. 2
síðd. Séra Erlendur Sigmunds-
son.
STOKKSEYRARKIRKJA
Barnaguðsþjónusta kl. 10.30
árd. Almenn guðsþjónusta kl. 2
siðd. Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA Barnasam-
koma kl. 10.30 árd. Messa kl. 2
síðd. Um kvöldið kl. 8.30 hefst
árlega kristniboðsvika. Séra
Björn Jónsson.
Islenzk fyrirtæki
Auglýsið vörúr yðar á frumlegan hátt. íslenzkur
auglýsingaljósmyndari starfandi i París býður
yður þjónustu sína 30 mismunandi litskyggnur
samkeppnisfærar við hverja erlenda gæða
auglýsingu fyrir aðeins 1 800 franska franka og
2000 franska franka fyrir „special effect" t.d.
tvöfalda lýsingu. Sendið tillögur yðar til
Sigurður Thorgeirsson,
10 Rue Rene Boisanfray no. / 2,
28 / 00 Dreux France.
GOLFKLUBBUR REYKJAVÍKUR
Árshátíð og þorrablót
klúbbsins verður
haldin í Golfskálanum, laugardaginn 29. janúar
og hefst kl. 1 9.00.
Félagar vinsamlega tryggið ykkurmiða tíman-
lega.
Miðasala og pantanir hjá Kára Elíassyni, sími
10375 og Ólafi Þorsteinssyni, sími 85044.
Skemmtinefndin.
Morgunblaðið
óskareftir
blaðburðarfólki
Vesturbær
Faxaskjól
Ægissíða
Sólvallagata
Austurbær
Hverf isgata
frá 63—125
Úthverfi
Blesugróf
Langholts-
vegur
Kópavogur
Hraunbraut
Skjólbraut
Upplýsingar I síma 35408
pJnriimmMitMíb
i
VIÐTALSTÍMI |
Alþingismanna og ^
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins
I Reykjavík
i
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins verða til viðtals í Sjálf-
stæðishúsinu Bolholti 7 á laugardögum frá
klukkan 1 4:00 til 1 6:00. Er þar tekið á móti
hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum og
er öllum borgarbúum boðið að notfæra sér
viðtalstíma þessa.
Laugardaginn 22. janúar verða til viðtals:
Davíð Oddsson, borqarfulltrúi oq Siqríð1
f
I