Morgunblaðið - 22.01.1977, Side 19
19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JANUAR 1977
— Hestar
Framhald af bls 11
kaupendurnir. Þeir óska eftir
hestum, sem eru a.m.k. 135 sm
á hæð (stangarmál), þægilega
viljugir og taugasterkir. Þetta
fólk hefur almennt ekki neina
reiðmannshæfileika. Það
verður að fá vel tamda hesta,
sem eru þægir og auðveldir þó
að þeim sé ekki riðið daglega.
Forðist að nota kynbótahross
sem eru of skeiðlagin.
Skógarútreiðarmaðuritin
mun gera skeiðlagin hest að
lullara á stuttum tíma. Ræktið
reiðhesta. Litið gagnrýnisaug-
um á stóðið ykkar og útilokið
þau hross frá ræktuninni sem
hafa hvorki útlit né hæfileika
reiðhrossa. Hafið hugfast að á
meginlandi Evrópu eru aðrar
aðstæður fyrir hestafólk en á
Islandi. Menn verða stundum
að rfða meðfram stórum um-
ferðarbrautum, jafnvel eimlest-
um og á þröngum skógargötum
og þar verða hestar að vera
hlýðnir. Hesturinn verður að
hafa sterkar taugar og aðlög-
unarhæfileika.
Vandið sérstaklega val stóð-
hesta ykkar. Þið, sem eru
reyndir fagmenn, verðið að
nota stóðhesta, sem þið gerið
ykkur fyllilega ánægða með.
Hlægið að bændum sem nota
ennþá ótamda stóðhesta. Stóð-
hesturinn hefur úrslitaáhrif á
ræktunina og þið verðið að
prófa afkvæmin. Ef þið eignist
stóðhest, sem er reiðhestur
sjálfur og gefur reiðhross, þá
notið hann, hvað sem hver
segir. Trúið á þann hest og not-
ið hann. Verðið sem þið munið
fá fyrir hrossin ykkar mun sýna
að það borgar sig að rækta fyrir
erlendan markað. Og mikill
verðmunur mun koma fram á
slíkum hestum og þeim sem eru
einungis keyptir vegna þess að
betri hross eru ekki fáanleg.
Sennilega draga sumir orð mín
í efa, og segja, við erum búnir
að rækta góða hesta I þúsund
ár. Vissulega er það rétt. En
eftirspurn eftir reiðhestum
hefur aldrei verið eins mikil og
þessi sfðustu ár.
Ég vona að þið misskiljið ekki
þetta bréf. Ég elska land ykkar
og þjóð og dái fslenska hestinn.
Gagnrýni mín á að hjálpa til
þess að íslenski hesturinn megi
standa sig vel í síharðnandi
samkeppni við önnur hestakyn
á meginlandinu. Við verðum að
taka upp nánari samvinnu. Við
megum ekki láta stjórnast
einungis af keppnisreið-
mönnum. Okkar framtíðar-
markaður er hjá þeim sem fara
á hestbak til þess að ríða út í
skóginum.
Ég er fús til að ræða þessi
mál nánar, þegar ég heimsæki
Island næst. Það mundi og
verða mér til mikillar ánægju
ef ég gæti tekið á móti
islenskum ræktunarmönnum í
heimahéraði minu.
Kær kveðja
Claus Becker
Forystumenn
ASÍ þinga í
Finnlandi
FORYSTUMENN Alþýðusam-
bands íslands hafa síðustu
daga verið á þingi Norrænu
verkalýðssamtakanna í Finn-
landi. Hafa þeir Björn Jóns-
son, forseti ASl, Snorri Jóns-
son og Ásmundur Stefánsson,
hagfræðingur ASÍ, setið þetta
þing. Þá hefur Ölafur Hanni-
balsson, skrifstofustjóri sam-
bandsins, verið í Ísrael síðustu
daga, en þangað var honum
boðið sem einum nefndar-
manna í nefnd á vegum Nor-
rænu verkalýðssamtakanna.
Voru Björn Jónsson og Snorri
Jónsson væntanlegir heim f
gærkvöldi og má búast við því
að skriður komist á undirbún-
ing fyrir kjarasamningana,
sem framundan eru, næstu
daga.
essi nýju Nordmende littæki t
iklu kaidari en önnur littæki:
f sem tækið hitnar minna.
nordIDende
nordííIende
nordííIende