Morgunblaðið - 22.01.1977, Síða 19

Morgunblaðið - 22.01.1977, Síða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JANUAR 1977 — Hestar Framhald af bls 11 kaupendurnir. Þeir óska eftir hestum, sem eru a.m.k. 135 sm á hæð (stangarmál), þægilega viljugir og taugasterkir. Þetta fólk hefur almennt ekki neina reiðmannshæfileika. Það verður að fá vel tamda hesta, sem eru þægir og auðveldir þó að þeim sé ekki riðið daglega. Forðist að nota kynbótahross sem eru of skeiðlagin. Skógarútreiðarmaðuritin mun gera skeiðlagin hest að lullara á stuttum tíma. Ræktið reiðhesta. Litið gagnrýnisaug- um á stóðið ykkar og útilokið þau hross frá ræktuninni sem hafa hvorki útlit né hæfileika reiðhrossa. Hafið hugfast að á meginlandi Evrópu eru aðrar aðstæður fyrir hestafólk en á Islandi. Menn verða stundum að rfða meðfram stórum um- ferðarbrautum, jafnvel eimlest- um og á þröngum skógargötum og þar verða hestar að vera hlýðnir. Hesturinn verður að hafa sterkar taugar og aðlög- unarhæfileika. Vandið sérstaklega val stóð- hesta ykkar. Þið, sem eru reyndir fagmenn, verðið að nota stóðhesta, sem þið gerið ykkur fyllilega ánægða með. Hlægið að bændum sem nota ennþá ótamda stóðhesta. Stóð- hesturinn hefur úrslitaáhrif á ræktunina og þið verðið að prófa afkvæmin. Ef þið eignist stóðhest, sem er reiðhestur sjálfur og gefur reiðhross, þá notið hann, hvað sem hver segir. Trúið á þann hest og not- ið hann. Verðið sem þið munið fá fyrir hrossin ykkar mun sýna að það borgar sig að rækta fyrir erlendan markað. Og mikill verðmunur mun koma fram á slíkum hestum og þeim sem eru einungis keyptir vegna þess að betri hross eru ekki fáanleg. Sennilega draga sumir orð mín í efa, og segja, við erum búnir að rækta góða hesta I þúsund ár. Vissulega er það rétt. En eftirspurn eftir reiðhestum hefur aldrei verið eins mikil og þessi sfðustu ár. Ég vona að þið misskiljið ekki þetta bréf. Ég elska land ykkar og þjóð og dái fslenska hestinn. Gagnrýni mín á að hjálpa til þess að íslenski hesturinn megi standa sig vel í síharðnandi samkeppni við önnur hestakyn á meginlandinu. Við verðum að taka upp nánari samvinnu. Við megum ekki láta stjórnast einungis af keppnisreið- mönnum. Okkar framtíðar- markaður er hjá þeim sem fara á hestbak til þess að ríða út í skóginum. Ég er fús til að ræða þessi mál nánar, þegar ég heimsæki Island næst. Það mundi og verða mér til mikillar ánægju ef ég gæti tekið á móti islenskum ræktunarmönnum í heimahéraði minu. Kær kveðja Claus Becker Forystumenn ASÍ þinga í Finnlandi FORYSTUMENN Alþýðusam- bands íslands hafa síðustu daga verið á þingi Norrænu verkalýðssamtakanna í Finn- landi. Hafa þeir Björn Jóns- son, forseti ASl, Snorri Jóns- son og Ásmundur Stefánsson, hagfræðingur ASÍ, setið þetta þing. Þá hefur Ölafur Hanni- balsson, skrifstofustjóri sam- bandsins, verið í Ísrael síðustu daga, en þangað var honum boðið sem einum nefndar- manna í nefnd á vegum Nor- rænu verkalýðssamtakanna. Voru Björn Jónsson og Snorri Jónsson væntanlegir heim f gærkvöldi og má búast við því að skriður komist á undirbún- ing fyrir kjarasamningana, sem framundan eru, næstu daga. essi nýju Nordmende littæki t iklu kaidari en önnur littæki: f sem tækið hitnar minna. nordIDende nordííIende nordííIende

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.