Morgunblaðið - 11.02.1977, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚ’AR 1977
Þessi mynd er frá Spáni, nánar tiltekið Madrid þar sem mikil
mótmælaganga átti sér stað (janúar s.I. vegna dýrtfðar. Miðdegissagan
( útvarpinu er einnig frá Spání en hún fjallar um annars konar
baráttu, þ.e. baráttuna við dauðann.
Middegissagan klukkan 14.30:
Móðir og sonur
— saga frá Spáni
Á dagskrá útvarpsins klukkan
14.30 er þriðji lestur miðdegissög-
unnar MÓÐUR OG SONUR, sem
Steinunn Bjarman les. Sagan er
eftir þýzkan rithöfund, Heins G.
Konsalik, og er þetta ( fyrsta sinn,
sem saga eftir hann er flutt (
útvarpi hér og engar bækur hafa
verið þýddar eftir hann á
fslenzku. Sögu þessa þýddi Berg-
ur Björnsson.
Sagan gerist á Spáni eftir 1950.
I upphafi segir frá fátækri sveita-
fjölskyldu í Castiliu og ungum
pilti, Juan, sem þar elst upp.
Þorpslæknirinn hefur uppgötvað,
að Juan er gæddur miklum lista-
mannshæfileikum á sviði högg-
mynda. Þorpslæknirinn talar
máli piltsins við vin sinn, sem er
forstjóri listasafns í Madrid. Það
verður úr að hinn ungi Juan, sem
er átján ára gamall, er sendur á
listaskóla í nálægri borg, Toledo.
Þá vissi þorpslæknirinn þegar að
Juan var veill fyrir hjarta, en
þegar til Toledo er komið kemur
fyrst í ljós, að hann er alvarlega
veikur. Því er Júan sendur til
Madridar og honum komið á
sjúkrahús. Siðan fjallar sagan
um, baráttu lækna, sem þá þegar
hafa tekið nýjustu tækni á sviði
læknavisindanna í sina þágu, og
eru þegar byrjaðir að framkvæma
liffæraflutninga. Og það kemur á
daginn að slíkrar aðgerðar er þörf
á Juan. Móðir hans, Anita, er
tilbúin að gangast undir aðgerð til
hjálpar syni slnum. En hér skal
ekki öll sagan rakin, þvi þegar
eru eftir ellefu lestrar i útvarpi.
En miðdegissagan er á dagskrá
mánudaga, miðvikudaga og föstu-
daga.
Að sögn flytjanda sögunnar,
Steinunnar Bjarman, fjallar sag-
an um hina einu sönnu móðurást,
baráttu ungs pilts við alvarlegan
sjúkdóm og siðferðilegt og laga-
legt hlutverk læknavísindanna.
Sagði Steinunn ennfremur að sag-
an væri í alla staði mjög spenn-
andi.
Kastljós í sjónvarpi kl. 21.00:
Kynferðisfræðsla og
hass-sala til umræðu
1 KASTLJÓSI, sem er á dagskrá
sjónvarpsins ( kvöld klukkan
21.00, verður fjallað um tvö mál
er bæði varða unglinga, að því er
umsjónarmaður þáttarins að
þessu sinni, Sigrún Stefánsdóttir,
sagði.
í fyrsta lagi verður tekin fyrir
kynferðisfræðsla unglinga I skól-
um. Til að mynda hvernig fram-
kvæmd slikrar fræðslu hefur ver-
ið háttað undanfarin ár og verður
í þvi sambandi m.a. rætt við land-
lækni, Ölaf Ölafsson, en hann hef-
ur yfirumsjón með uppbyggingu
ráðgjafar og fræðslu þessara
mála. Þá verður, að þvíer Sigrún
sagði, farið I heimsókn á kyn-
fræðsludeild Heilsuverndarstöðv-
arinnar, sem starfrækt hefur ver-
ið síðastliðin tvö ár. Þá ræðir Sig-
rún við fjóra unglinga I Haga-
skóla og innir þau m.a. eftir
hvernig þau vilji að kynferðis-
fræðslu I skólum sé háttað og
hverju þeim finnst ábótavant.
í Kastljósi verður einnig tekið
fyrir hass-sölumálið svonefnda I
framhaldi af bréfi Stefáns Jó-
hannssonar, félagsmálafulltrúa,
um könnun þá, sem á að fara fram
um það hvort við rök eigi að
styðjast að hass-sala fari fram I
skólum borgarinnar eins og kom
fram I frétt hér i Morgunblaðinu
fyrir tveimur dögum.
Rætt verður við Ásgeir Frið-
jónsson um hass-sölu og hvaða
augum lögreglan lítur þessi mál.
Rætt verður einnig við landlækni
i þessu sambandi og hann beðinn
að útskýra afleiðingar hass-
reykinga, hvort þær séu vana-
bindandi og hversu hættulegar. í
sjónvarpssal munu svo mæta til
umræðna um þessi mál þeir
Guðni Guðmundsson, rektor MR,
Pétur Maack fyrir hönd fram-
kvæmdastjórnar Tónabæjar og
tveir unglingar.
Guðni Guðmundsson rektor MR.