Morgunblaðið - 11.02.1977, Qupperneq 13
MORGL NBLAÐIÐ, FÖSTLDAL.UR 11. FEBRÚAR 1977
13
Plata Gunnars
kemur út í
Bandaríkjunum
um miðjan marz
ÁKVEÐIÐ er að plata Gunnars
Þórðarsonar, „lce and fire'' komi úr í
Bandaríkjunum á vegum umboðs-
manns Gunnars Lee Kramer um
miðjan marz n.k. Gunnar, sem nú er
nýkominn frá Bandaríkjunum, sagði
í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi, að i þessari för sinni hefði
verið ákveðið að breytingar á plöt-
unni yrðu litlar, en upphaflega var
ákveðið að platan kæmi út i breyttri
mynd frá því sem hún kom út á
íslandi, en þá hét hún einfaldlega,
Gunnar Þórðarson. —
Aðalbreytingin við útgáfu plötunnar
í Bandarikjunum er kannski plötu-
umslagið, sagði Gunnar, það verður
nú grafiskt.
Þá sagði Gunnar að honum hefði
verið boðið til hinnar heimsfrægu
söngkonu Olivíu Newton John. þar
sem hún býr i Malubuhæðum. en hún
og Lee Kramer búa saman Ennfremur
var Gunnari boðið i ferðinni að leika
með þekktum enskum söngvara á eyju
Söngstjórar —
söngfólk
Út er komið nýtt sönglagahefti eftir Jón Björns-
son frá Hafsteinsstöðum, Skagfisrkir ómar II,
með 15 sönglögum. Upplýsingar og dreifingu
annast Snæbjörg Snæbjarnardóttir Fellsmúla
13 sími 37017 og Myndprent, Sauðárkróki
sími 95-5298.
Grafo — Press
20 ára Grafo dígulprentvél í mjög góðu lagi til
sölu.
Stimplagerðin
Hverfisgötu 50.
/-----------------;---------------------\
Orð krossins
Fagnaðarerindið verður boðað á íslenzku frá
Monte-Carlo á hverjum laugardegi frá kl. 10 —
10.15 f.h. á stuttbylgju 31 m. bandinu, sama
og 9.50 MHZ.
Pósthólf 4187 Reykjavík.
V ______________________/
undan strönd Venesúela um miðja
marz, en hann afþakkaði vegna mikilla
verkefna hér heima. Um miðjan júlí
heldur Gunnar á ný til Bandaríkjanna
til að ganga frá nýrri plötu sem á að
koma út i Bandaríkjunum síðar á þessu
ári.
— Þó svo að tvær plötur verði
sendar frá mér á Bandaríkjamarkað á
þessu ári, er ekki þar með sagt að
björninn sé unninn, þetta er harður
bransi og að komast á toppinn er eins
og að vinna stóran vinning i happ-
drætti, sagði Gunnar
Við bjóðum ykkur velkomin
á opinbera fyrirlestra að
Hallveigarstöðum v/Tún-
götu, föstudaginn 11/2 Um
andlega heiminn (á ensku)
fyrirlestur með litskugga-
VS& myndum.
Fyrirlesturinn hefst kl.
20 00
/g^g\ Samtök Heimsfriðar
yBv/ og Sameiningar.
'S
Morgunblaðið
óskareftir
biaðburðarfóiki
Úthverfi Austurbær Veturbær
Blesugróf Hverfisgata Lynghagi
63—125. Melabraut
Uppiýsingar í síma 35408
[tffgnsilrlfifcife
Góð samstaða meirihluta-
flokkanna í Kópavogi
— segir Richard Björgvinsson formaður bæjarráðs Kópavogs
MEIRIHLUTl sjálfstæðismanna og framsóknarmanna 1 bæjarstjórn
Kópavogs lagði fram fjárhagsáætlun I desemberbyrjun, svo sem
bæjarmálasamþykkt Kópavogs gerir ráð fyrir. Þessar upplýsingar fékk
Morgunblaðið í gær hjá Richard Björgvinssyni, formanni bæjarráðs
Kðpavogs, en hann tók fram að í fjárhagsáætluninni hefði þá ekki
verið sundurliðun á stofnkostnaði framkvæmda. Staðhæfingar fulltrúa
Aiþýðubandalagsins í Þjóðviljanum sfðastliðinn miðvikudag eiga þvf
ekki við rök að styðjast — sagði Richard, en þar er látið að þvf liggja
að meirihlutinn hefði ekki getað komið sér saman um fjárhagsáætlun
og því hefði minnihlutinn gert það. Sfðastliðinn þriðjudag eða sama
dag og alþýðubandaiagsmennirnir lögðu fram „frumvarp um fjárhags-
áætlun“ iagði meirihlutinn fram kostnaðaráætlun um framkvæmdir.
Richard Björgvinsson sagði í
viðtali við Morgunblaðið, að á
þeim tíma, sem liðinn væri frá því
er fjárhagsáætlunin var lögð fram
í febrúarbyrjun, hefði meirihlut-
inn unnið að gerð vandaðrar
kostnaðaráætlunar um fram-
kvæmdir, sem byggð var á
reynslu síðastliðins árs. „Lögðum
við fram endanlega fjárhagsáætl-
un á sama fudinum og.þeir lögðu
fram sitt plagg. „Frumvarp" al-
þýðubandalagsmannanna er þó
breytingartillaga við vinnuplagg
embættismanna, sem alls ekki er
formleg fjárhagsáætlun og hefði
verið nær að miða það við fjár-
hagsáætlunina frá í desember.
Kostnaðaráætlun okkar er hins
vegar unnin upp eftir bókhalds-
gögnum síðastliðins árs og þannig
er fengin raunhæf áætlun.“
í áætlun meirihlutans er
áherzla lögð á götur, en til þeirra
er varið 210.590.000 krónum, í
gatnagerð og holræsi og er þar
ekki meðtalinn sá liður, sem fer í
gatnagerð i miðbæ Kópavogs. I
hann er varið 288.240.000 krón-
um. Hins vegar sagði Richard að
alþýðubandalagsmenn hefðu ver-
ið tregastir allra til þess að styðja
gatnagerðarframkvæmdir. Þeir
gagnrýna i Þjóðviljanum að
skuldir bæjarsjóðs hafi aukizt, en
leggja til að bæjarsjóður taki lán
að upphæð 233 milljónir króna,
en meirihlutinn gerir ráð fyrir
lántöku að upphæð 104.900.000
krónur, en sú fjárhæö fer m.a. til
þess að kaupa upp nýbýlalönd og
erfðafestu, i uppgjör á fasteigna-
kaupum i sambandi við það
o.s.frv. Um þetta atriði eru í
sjálfu sér engar deilur. Táknrænt
er — sagði Richard, að á síðast-
liðnu ári greiddi minnihlutinn at-
kvæði gegn 50 milljón króna er-
lendri lántöku til gatnagerðar,
sem bærinn tók, en nú leggja þeir
til 233 milljón króna lántöku. í
þeirri tölu eru þó peningar til
jarðakaupanna.
Richard Björgvinsson sagði að
það væri, aðeins óskhyggja, er
fulltrúar Alþýðubandalagsins
segðu i Þjóðviljanum, að mikil
óeining og upplausn væri innan
meirihlutans I bæjarstjórn Kópa-
vogs. Hann sagði að meirihlutinn
Framhaid á bls. 19
N
Frönsku
húsgögnin
Fataskápar, skrifborð, svefnbekkir, hillueiningar, náttborð,
kollar og kistlar.
Vörumarkaðurinn hf.
Ármúla 1 a Sími 86112
„Káetustíl"
nýkomin