Morgunblaðið - 22.02.1977, Page 10
JQ MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1977
Erum hógvœrlega bjartsgnir
- Parísarflug í undirbúningi
NÝLOKIÐ er á Húsavík fundi umboðsmanna og sölumanna Flugleiða, en
þessir fundir eru haldnir tvisvar á ári, vor og haust, þar sem skiputögð er
sölustarfsemin og ferðaáætlun. Davið Vilhelmsson var einn þeirra sem
sótti þennan fund, en Davið er svæðisstjóri Flugleiða á svonefndu
austursvæði, sem nær yfir meginland Evrópu, og lönd þar fyrir sunnan,
Afríku og Asíu. Davíð hefur aðsetur í Frankfurt og starfa þar á markaðs-
skrifstofu Flugleiða 10 manns, en 1 6 til viðbótar á söluskrifstofunni.
Rætt við Davíð Vilhelmsson svæðis-
stjóra Flugleiða í Frankfurt
Davíð Vilhelmsson sagði i viðtali
við Mbl að solusvæðin væru þrjú,
vestursvæðið. sem væri Norður- og
Suður Amerika. norðursvæðið, ís-
land. Norðurlöndin og Bretland og
siðan austursvæðið
— Okkar starf er að samræma
sem mest starfsemi soluskrifstof-
anna á svæðinu. en þær eru m a i
Þýzkalandi og Austurriki, Frakk
landi. Lúxemborg. Hollandi, Belgíu,
Sviss og Ítalíu — i þessum löndum
erum við ýmist með skrifstofur eða
umboðsaðila Verkefnin eru mörq
og fjölbreytileg. við eigum samskipti
við mismunandi fólk. sem hefur mis-
munandi siði og venjur Við sam-
ræmum’gerð auglýsmga við erum
t d með íslandsbækling sem kemur
út i 10—15 útgáfum eftir því i
hvaða landi það er, en öll prentun
fer fram i Frankfurt og það sparar
mikið þegar hægt er að hafa sem
mesta samvmnu og samræmi i því
— Þjóðverjar eru langfjölmenn-
astir i ferðum með Flugleiðum ef
litið er á heildarfjolda flugfarþega og
Frakkar koma í næsta sæti Það
hefur þróazt þannig s I 2 ár að
aukning á íslandsfluginu er mest
meðal Frakka, en hún er einnig mikil
i Hollandi Með tilkomu leiguflugs
s I vor og haust í samvinnu við
stóra ferðaskrifstofu í Sviss hefur
aukizt mjög fjöldinn og við ráðqer-
um að efna til svipaðra leiguferða
% Davfð Vilhelmsson, svæðis-
stjöri Flugleiða á svonefndu
austursvæði, sem er meginland
Evrópu.
hmgað í vor aftur Þá eru þetta t d 7
daga ferðir þar sem 4—5 dögum er
varið í Reykjavík til að skoða, síðan
2—3 á Húsavík en þar er aðstaða til
móttöku á ferðamönnum mjög til
fyrirmyndar
— Við ætlum að reyna að auka
þetta leiguflug og við erum að leita
að nýjum markaði fyrir það Við
erum bjartsýnir á að það takist og
við förum t d með DC-8 vélarnar til
Frankfurt í ár i fyrsta sinn þar sem
auknmgin er svo mikil Þá erum við
að reyna að lengja þann tima sem
flogið er til Dússeldorf, bæði með
leigu- og áætlunarflugi og í undir-
búningi er að hefja áætlunarflug til
Parisar á næsta ári
— En varðandi aukningu á flug
inu til íslands verður að hafa í huga
að hótelrými er varla nægilegt hér
og vantar t d tilfinnanlega aðstöðu
á Akureyri. en við höfum þessar
leiguferðir þannig að farþegum úr
einni Boemg vél. 126 manns. er
skipt í 3 hópa er hingað kemur og
flýgur hver hópur t d með Fokker-
vélunum til Húsavikur og skipulagð
ar eru þannig innanlandsferðir eins
og ég gat um áðan Á þennan hátt
erum við einnig að reyna að auka
við mnanlandsflugið
Air Bahama fellur einnig undir
starfssvið Daviðs í Frankfurt og hann
hafði þetta að segja um gang mála
þar
— Air Bahama kemur ekki eins
vel út og við höfðum vonað seinni
part síðasta árs, en við vonum að
það standi til bóta og nú er í undir-
búningi reglulegt leiguflug milli
Nassau og Frankfurt i hverri viku
Gert er ráð fyrir að það hefjist í
október i ár Nokkrar leiguferðir hafa
verið farnar milli Zúrich og Nassau
og standa þær raunar yfir nú fram i
april og verða aftur teknar upp á
timabilinu frá október til maí 78
Þá kom Davíð inná þá miklu sam-
keppni sem rikir milli flugfélaga
— Samkeppnin er mikil og fer
vaxandi er óhætt að segja. hún er
mest við leiguflugfélög. ekki aðeins
vegna hins lága verðs heldur og
vegna þess hversu starfsemi þeirra
er orðin skipulögð og markviss Við
getum ekki mætt fargjaldalækkun-
um nema að litlu leyti með fargjalda-
lækkunum hjá okkur, en við reynum
að mæta þessu á annan hátt, t d
með því að bjóða upp á rýmri reglur
með bókanir. Hjá þessum leigufé-
lögum verða oft að gilda strangar
takmarkanir um bókanir og greiðslur
inná fargjöldin Við reynum að vera
rýmilegri með þessi atriði
Að lokum var Davíð spurður að
því hvort Flugleiðamenn væru bjart-
sýnir á sumarið framundan:
— Við erum hógværlega bjart-
sýnir held ég að sé óhætt að segja.
það hefur gengið vel með Norður-
Atlantshafsflugið og hvað það snert-
ir 'erum við i heildina bjartsýnir
Hins vegar er þvi ekki að leyna að
okkur likar ekki hugsanleg sam
keppni frá Arnarflugi. og hvað varð-
ar Air Bahama urðum við dálítið
vonsviknir með útkomuna á síðasta
ári, en teljum að takast megi að rétta
við þar
V ar frá Norðfirði, setti
svip á bæjarlífið í Þórshöfn
ÞEIR sem hafa komið til Þórs-
hafnar á undanförnum áratug-
um hafa ekki haft langa viðdvöl
i hinum færeyska höfuðstað,
unz á vegi þeirra hefur orðið
aldraður maður, jafnan vinnu-
klæddur, akandi hjólbörum
niður Vogsbotn hinni gömlu
hafnarbryggju. Sjálfur var
gamli maðurinn jafnan með
kaskeiti og hvitan koll, — á
sumrin. Embættisskjöldur var
framan á kaskeitinu. Það virt-
uts allir þekkja þennan góðlega
gamla mann. Margir tóku hann
tali. „Þetta er Jóin,“ sagði fær-
eyskur vinur minn og Þórs-
hafnarbúi. „Hann er partur af
bæjarlífsmyndinni hér í Þórs-
höfn, bætti hann við.“
Áratugum saman hefur hann
verið starfsmaður Þórshafnar-
bæjar. Á sinum tima, er hann
náði hámarksaldri starfsmanna
í þjónustu bæjarins, var honum
sagt, að nú ætti hann að hætta
og fara á eftirlaun. Þetta hafði
fallið Jóin illa. Átti erfitt með
að skilja slika ákvörðun, —
hann væri vel hraustur og vildi
fá að vinna áfram. Það mun
ekki hafa liðið langur tími unz í
ljós kom að Jóin gamli var
eiginlega ómissandi fyrir bæ-
inn, svo gjörkunnugur var
hann holræsakerfinu i miðbæ
Þórshafnar. Urðu bæjaryfir-
völdin að leita til hans dag
nokkurn um upplýsingar. Þetta
hafði orðið til þess að orðið var
við þrábeiðni hans um að fá að
starfa áfram hjá bænum og þar
hafði hann starfað fram undir
það siðasta.
Þórshafnarblöðin segja frá
því að Jóin sé nú látinn.
Þegar ég sá Jóin í fyrsa skipti
Jóin farín
ám-
;.t'S
r komu deyðsboðini av Jón Vilhelmsen, komm-
irbciðara í Tórshavn, 84 arai gama ■ um fyrstul
n (Jó-in nevndur), var . . „ so avgjörtl
i kommunuarbeiðarum i Havnm „ g s h vði till
, sum longst hcvur starvast har. Hann
var það árla morguns. Hann var
þá með hjólbörurnar sínar, með
hvita kollinn á svörtu kastskeit-
inu, á leið niður Vogsbotn til
daglegra starfa — sópa göturn-
ar og bryggjuna. Hann átti
mjög litið bárujárnshús i hjarta
Þórshafnar. Þar bjó Jóin einn.
Hann var ekkjumaður. Upp-
komin börn hans, þrjú að mig
minnir, eru i Færeyjum. Annar
tveggja sona hans var hér á
landi um árabil við sjómennsku
og vertíðarstörf hjá Arnarvík i
Grindavík og heitir sá Sigurður
Vilhelmsen. Jóin hafði unnið
fram til hinztu stundar. Hann
hafði látizt heima (litla húsinu
sinu í lok janúarmánaðar, 84
ára að aldri.
Jóin var borinn og barnfædd-
ur tslendingur og var skirður
Jón.
Foreldrar hans voru sárfátæk
hjón austur í Neskaupstað. Jóin
(Jón) var 9 eða 10 ára gamall,
er færeysk kona, sem vann í
fiskþvotti austur i Neskaup-
stað, hafði tekið drenginn i
fóstur og fluttist hann með
henni til Færeyja. Hann mun
aldrei eftir þetta hafa komið til
íslands. Ekki verður þessi frá-
sögn af lífshlaupi Jóins lengri.
íþað skiptið sem ég hitti hann,
var hann ekki til viðtals um
„blaðasamtal“ enda fáskiptinn
ef I hlut áttu ókunnugir.
Fósturfaðir hans i Færeyjum
hét Vilhelmsen. Nafnið tók
hann upp. Hið íslenzka skírnar-
nafn breyttizt yfr á færeysku
úr Jón í Jóin.
Ef til vill er einhver lesenda
Mbl. sem getur einhverju bætt
við þessar fáu linur um þennan
Framhald á bls 30
Skrifstofu
eða
iðnaðarpláss
á bezta stað í borginni
til leigu eða sölu.
Uppl. í síma 15561
milli kl. 5 — 7.
Parhús Karlagata
1. hæð 2 saml. stofur, eldhús.
2. hæð 3 svefnh. bað. Kjallari 2
herb. þvottahús og geymsla.
Parhús í
Hveragerði
Fokhelt ca. 70 fm. með tvöföldu
gleri. Útihurð og svalahurð. Frá-
gengið að utan. Verð 3.7 m útb.
1.1 m.
Digranesvegur
5 herb. efri hæð, 3 svefnh. gott
bað. Sérinngangur, sér hiti.
Svalir. Bílskúrsréttur.
Vesturbær
3 herb. íbúð 2. hæð. Sameign t
mjög góðu ástandi.
Drápuhlið
3 herb. risibúð ca. 87 fm. Falleg
ibúð
Elnar Sígurðsson. hri.
Ingólfsstræti4,
Al'(ilASIN(iASÍ.MINN ER:
22480
JRorgunbTntiiíi
17900F3
Fasteignasaian
Túngötu 5 jyggg
KÓNGSBAKKI
3ja herb. 85 m2 íbúð á 2. hæð í
blokk. Stofa, 2 svefnherb. og
þvottaherb. í íbúðinni. Verð: 7.5
millj. útb. 5.5 millj.
EYJABAKKI
3ja herb. 90 m2 íbúð á 2. hæð í
blokk, stofa og 2 svefnherb. Gott
útsýni. Verð: 8.5 millj. útb: 6.2
millj.
LYNGHAGI
3ja herb. 95 m2 ibúð á jarðhæð
í fjölbýlishúsi. 2 skiptanlegar
stofur og 1 svefnherb. Verð: 8.8
millj. útb: 6.0 millj.
SÓLVALLAGATA
3ja herb. 75 m2 íbúð á 3. hæð í
nýlegri blokk, stofa og 2 svefn-
herb. Mjög stórar suður svalir.
Verð: 9.0 millj. útb: 6.5 millj.
KÓPAVOGUR
4ra herb. 90 m2 miðhæð í þrí-
býlishúsi, stór stofa 3 svefnherb.
Nýleg teppi. Bílskúrsréttur.
Skipti möguleg á 4ra herb. íbúð
í Reykjavík. Verð: 9.0 millj. útb:
6.0 millj.
ÁLFTAMÝRI
4ra herb. 1 06 m2 endaíbúð á 1.
hæð i blokk. Stofa og 3 svefn-
herb. Tvennar svalir. Fæst að-
eins i skiptum fyrir 5 — 6 herb.
ibúð í Reykjavik. Verð: 10.2
millj.
MIKLABRAUT—
SÉRHÆÐ
2 stórar stofur og 2 svefnherbv
Tvennar svalir. Falleg eign. Fæst
aðeins í skiptum fyrir 4ra herb.
íbúð í háhýsi við Sólheima.
Verð. 1 2.0 millj.
MOSFELLSSVEIT
Fokhelt einbýlishús um 140 m2.
Gler og útihurðir komnar i. Hita-
lögn komin inn í húsin. Fæst í
skiptum fyrir 4ra herb. ibúð i
Reykjavik. Verð: 10.0 millj
MIKIL EFTIRSPURN
eftir öllum tegundum eigna til
kaups eða i skiptum.
HÖFUM KAUPENDUR
að 2ja herb. ibúðum, útb:
2.5—4.0 millj.
17900
Gunnaf Jökull, sölustj.
Jón E Ragnarsson, hrl.
Heimasimi 74020