Morgunblaðið - 22.02.1977, Side 15

Morgunblaðið - 22.02.1977, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1977 15 Haraldur Baldursson, sem hefur lokið einkaflugmannsprófi og stefnir á atvinnuprófið, er hér að Iðta bensín á vélina, Tf-MEY, og gera hana til- búna fyrir flugið Nú var hann að fara með kennara til að fá réttindi á Cherookee vélina, en sérstaka uppáskrift, ef svo má að orði komast, þarf fyrir hverja tegund flugvélar. Haraldur, sem er nemi á þriðja vetri í Menntaskólanum við Hamrahlíð, sagðist vera búinn að verja um 300 þúsund kr. í flug- námið, en það yrði í allt yfir milljón, sennilega nær einni og hálfri milljón. „Þetta er eina námið sem ekki er ríkisstyrkt," sagði Haraldur, „og það er sjálfsagt eitt dýrasta nám sem hægt er að stunda miðað við hverja kennslustund" Það fyrsta sem nemandinn gerir fyrir flug er að athuga vélina, bensínið, athuga hvort nokkuð sé athugavert við ytri búnað hennar og þegar Haraldur var búinn að því öliu var allt tilbúið og vélin með bensín til 5 tíma flugs. Hann sagði að regla væri að hafa alltaf bensin fyrir 45 mínútna lengra flug en ráðgert væri samkvæmt áætlun. Nú var ráðgert að vera á lofti I klukkutfma svo flugþolið var meira en nóg. Þegar búið var að hringja í flugturninn og greina frá flugáætlun fórum við út í vél, en það var Cherookee vélin sem notuð var í þetta sinn, enda var Haraldur að taka „tékk", með öðrum orðum að fá réttindi til að fljúga henni einn. Því má skjóta hér inn að það er heill kapítuli út af fyrir sig allur sá fjöldi orða sem notaður er f máli flugmanna og er að miklu leyti óskiljanlegur leikmanni. En það er ekki mjög auðvelt að snara þessum orðum á íslenzku og benda má á það að oft er enskan notuð jöfnum höndum, en enska og íslenzka eru einu leyfilegu tungu- málin f samskiptum flugvéla og flug- umsjónarmanna hérlendis. Allt „tékkað“ Þegar komið var inn f vél og búið að spenna beltin var farið yfir list- ann, athugaðir allir mælar, stjórn- tæki og radfóið. Sfðan var kallað f flugturninn og tilkynnt að „Magnús- Einar-Yngi" óskaði flugtaksheimild ar, en „Magnús-Einar-Yngi" eru einkennisstafir vélarinnar, TF-MEY. Flugturninn svarar um hæl og gefur upp hvaða braut eigi að nota, vind- átt, vindhraða, hvert hann eigi að aka vélinni og bfða og að lokum hvað klukkan sé. Sfðan er ekið að brautinni og enn fleiri atriði „tékk- uð" og flugturni tilkynnt eftir það, að „Magnús-Einar-Yngi" væri tilbúinn til flugtaks. Ekki voru aðrar vélar að lenda eða hefja sig til flugs svo turninn gaf strax leyfið og Har- aldur ekur vélinni f átt að brautar- enda, snýr henni við og þá er ekki annað eftir en að gefa hreyflinum duglegt „power" og fara f loftið. (Þetta eru bara tvö dæmi um áður- nefnda erlenda orðnotkun). Hér er stefnt niður á við, f áttina að Hafravatni, og æfð nauðlending. Hann fór nokkrar svona dýfur, en það kom þó aldrei til þess að hann þyrfti að lenda, það var aðeins meiningin að vera við öllu búinn. Lent eftir röð Nóg um það, þegar við vorum komnir inn yfir Laugarneshverfið kallar Haraldur f flugturninn og segir hvar hann sé og biður um heimild til lendingar. Flugturn tilkynnir braut- ina, stefnu og hraða vinds, 110 gráður, 15 hnútar og segir að hann megi lenda næst á eftir „Alfreð" sem var f þann veginn að lenda. Haraldur flýgur á meðan vestur fyrir Seltjarnarnes og beygir síðan til Framhald á bls 30 Þannig Iftur hluti miðbæjarins út ur lofti á laugardagsmorgni. Stefnan var tekin á Hafravatn og átti að æfa nokkrar nauðlendingar, en f nágrenni Reykjavíkur eru þrjú sYæði, eða hólf sem flugnemar geta æft sig í meðferð vélanna, þ.e. náð valdi á þeim við alls kyns aðstæður, æft nauðlendingar o.fl. f þeim dúr. Flughæðin var rétt innan við 2000 fet og allt f einu segir flugkennarinn um leið og hann tekur allt afl frá hreyflinum, að nú skuli Haraldur finna stað til nauðlendingar. Um leið og Haraldur lætur vélina svffa f hringi niður á við, skimar hann f kringum sig og leitar að hugsanleg- um lendingarstað, kemur auga á gott tún að þvf er virðist og þegar blaða- manninum virtist vélin brátt snerta síma- og rafmagnslfnur, sem þó voru víðsfjarri, hóf hann vélina aftur upp. Þannig eru gerðar nokkrar tilraunir og Yngvi flugkennari samþykkti alveg þá staði sem Haraldur valdi til hugsanlegrar nauðlendingar. En til þess kom þó aldrei og nú var tekin stefnan til Reykjavfkur og átti að æfa lendingar. En þessar nauðlend- ingaæfingar fara yfirleitt fram á þeim svæðum þar sem ætti að vera gott að lenda ef eitthvað bæri út af, svo sem við tún, vegi og þar sem ekki er mikið af sfma- eða rafmagns- vfrum. Kötlu- konsert Austurbæjarbfó 19. febr. 1977. Flytjendur: Karlakórinn Stefnir, stjórnandi Lárus Sveinsson. Karlakór Selfoss, stjórnandi Asgeir Sigurðsson. Efnisskrá: Flutt voru lög eftir innlenda og erlenda höfunda. Á laugardaginn komu tveir sunnlenskir karlakórar til höfuð- staðarins og héldu sameiginlegan konsert i Austurbæjarbíói. Um aðdraganda tónleikanna segir m.a. svo í efnisskrá: „Fyrir nokkru var stofnað samband sunnlenskra karlakóra og hlaut það nafnið Katla. Aðild að sam- tökunum eiga allir karlakórar á svæðinu frá Hornafirði til Stykkishólms. Ætlunin með stofn- un samtakanna var sú að efla sönglíf á svæðinu. Það er löngu viðurkennt af karlakórum að sá timi sem þeir koma fram sé of lítill miðað við þann tima sem fer f að æfa upp heila hljómleika. Þessi tlmi er kórarnir hafa aðal- lega komið fram er venjulega frá því I mars og þar til I júnf. Karla- kór Selfoss og Karlakórinn Stefn- ir, sem eru aðilar að Kötlu, hafa ákveðið að reyna að lengja þetta tímabil. Nú hafa þeir ákveðið að koma fram saman og gefa fólki kost á að kynnast þessum kórum I samstarfi“. — Karlakór Selfoss sté fyrstur á pallinn og söng nokkur lög. Persónulega geðjast mér vel að hvernig stjórnandinn mótar söng kórsins, en þar er áhersla lögð á mýkt og gott samræmi milli radda. Og þó hljómurinn verði e.t.v. nokkuð mattur á stundum eru jákvæðu hliðarnar miklu fleiri. Hann fylgir ekki þeirri for- skrift, sem fylgt hefur of mörgum karlakórum I of langan tima, að miða gæði söngsins við styrk raddanna. Hjá karlakórnum Stefni hlaut að vekja athygli hversu fjölmennir þeir voru, en söngmenn eru nálægt 50 að tölu. Ber það vott um þróttmikið starf og mættu önnur og stærri byggðarlög vel við una. Að vlsu segir f jöldinn ekii allt, en sé tekið tillit hve starfstlmi kórsins er stuttur verður árangurinn að telj- ast góður. Hins vegar olli laga- valið mér nokkrum heilabrotum og á það við um báða kórana. Á slðari hluta efnisskrárinnar var áhersla lögð á það sem kallað er létt lög. En lög, sem hvorki eru skrifuð fyrir karlakór né hugsuð sem konsertnúmer missa mest af léttleika sinum við umskiptin. Léttleiki þeirra felst m.a. I flutn- ingsmáta, og að mínu mati njóta þau sín öll með tölu betur I sinni upprunalegu geró- „Léttasta" lagið í mínum eyrum var „þei, þei og ró, ró“ eftir Björgvin Guðmundsson vegna þess að það var sungið létt og lipurt og áhersla lögð á að móta hendingar músikalskt og fallega. En hvað sem þvl líður var kórunum fagnað innilega af f jölmörgum áheyrend- um. Sönggleðin sjálf er þeirra sterkasta hlið og það er ómetan- legur kostur. Framtak þeirra er lofsvert, og vonandi á söngurinn og samstarfið eftir að dafna I framtlðinni. VHELLESENS ' ' HLAÐIÐ ORKU

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.