Morgunblaðið - 22.02.1977, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 22.02.1977, Qupperneq 20
20 MER FANNST EG VERA SEM ÓGNARLÍTIÐ PEÐ EINER WIEICH MORGUNBLAÐIÐ hefur að undanförnu birt nokkra kafla úr bók þýzka knattspyrnumannsins Franz Beckenbauer. Ilér með segir Beckenbauer frð fyrsta landsieik sfnum, sem var gegn Svfum f undankeppni heimsmeistarakeppninnar 1965. Lýsir hann þvf gffurlega taugaálagi sem leikmenn eru undir fyrir leiki sem þessa, og segir frá félögum sfnum f þýzka landsliðinu á þcssum tfma. þetta. Þú hefur á réttu að standa, aftur! kallaði hann — þeir eru að ÞETTA gerðist árið 1965. Framundan var landsleikur við Svía í undankeppni heims- meistarakeppninnar. Helmut Schön lands- liðsþjálfari ákvað að undirbúningur okkar fyrir þennan leik færi fram í íþrótta- skólanum Malente, en segja mátti að í skóla þessum værum við í algjörri einangrun. Jafnvel blaðamenn áttu tak- markaðan aðgang að okkur. Schön var ákaflega ánægður með þetta. — Þakkið þið fyrir að fá að vera í friði. Ég þekkti nokkra leikmannanna sem skipuðu landsliðið frá gamalli tíð, en samt var þetta mikið ævintýri fyrir mig. Ég var kominn í hóp hinna útvöldu. Ég hafði leikið gegn Uwe Seeler, en nú þegar hann lá við hliðina á mér í sólstól í hvíldartíma okkar og sagði mér frá fyrri landsleikjum sínum, kynntist ég honum fyrst. Og þarna hitti ég Karl Heinz Schnellinger sem hafði prætt mikla peninga sem atvinnumaður á Italíu. Og svo var auðvitað landsliðs- þjálfarinn þarna. Honum hafði ég kynnst þegar hann var unglingaþjálfari í Lörrach. Nú hegðaði hann sér eins og ég hefði verið langa lengi í landsliðinu. blaðamennirnir sem verið höfðu í heimsókn hjá okkur um daginn voru famir. — Ég vil segja þér eitt Franz minn, sagði Schön, þegar við vorum komn- ir af stað. — Þú átt að leika I Stokkhólmi, en við getum ekki tekið of mikla áhættu. Við verðum að sigra I þessum leik til þess að kom- ast I keppnina f Englandi. í svo mikilvægum leik hefði Herberger ekki sett nýliða inná, en Dettmar Cramer hefur sagt mér að þú sért leikmaður á heimsmælikvarða. Ég hef sjálfur séð þig í nokkrum félags- leikjum, og ég get ekki annað en viðurkennt að þú varst mjög góður I þeim. En þú verður sjálfur að gera þér grein fyrir því að það er allt annað að standa sig vel I leik með félagsliði en með landsliði. Leikurinn í Svfþjóð verður okkur ekki auð- veldur. Ég þagði, og allt f einu staðnæmd- ist Schön. — Segðu eitthvað, sagði hann. — Hvað á ég að segja, sagði ég. Fyrir mér er þetta hátindur ferils mfns sem knattspyrnumanns hingað sagði Schön. Fyrsti landsleikur minn var ekki aðeins höfuðverkur fyrir mig. Karl Heinz Schnellinger, atvinnu- maðurinn frá ítalfu, var mjög tauga- óstyrkur. Ég hafði vonast til þess að fá styrk frá honum, en hið gagn- stæða kom upp á teningnum. — Þú getur örugglega fengið at- vinnusamning á ítalfu, sagði hann. — Þú ert ftölsk „týpa". Ég er bara Ijóshærður Þjóðverji sem þeir fundu f þýzku skógunum. En Mflano eða Roma, það eru lið sem þú myndir falla vel inn f. Þú myndir meira að segja standa þig með Napoli. — Ég ætla að verða áfram hjá Munchen, sagði ég. Eftir lands- leikinn við Svfa verður mér sjálfsagt sparkað úr landsliðinu. Karl Heinz fór að hlæja. — Þú talar eins og Herberger sagði hann. Einu sinni sagði hann við mig. — Karl Heinz. Á morgun munt þú leika tvo landsleiki. — Ha, sagði ég, — hvað áttu við með því. — Jú, svaraði hann, — þinn fyrsta og sfð- asta. Þetta varð til þess að ég var titrandi af ótta þegar kom að leikn- um. koma, vörnin er opin. Takið þið hann, gangið þið frá honum! Niður með hann! Ég gægðist út um gluggann. Það var hánótt. Nótt í ókunnu landi. Ég heyrði að það brakaði f rúmi Horsts og sá að hann var kominn fram úr og gekk um gólf f herberginu. Ég þorði ekki að kveikja Ijósið. H .fði heyrt að maður ætti aldrei að vekja þá sem gengju f svefni. Átti ég að sækja nuddarann eða lækninn? Ef til vill þurfti Horstaðfá róandi pillur. Svo mundi ég eftir þvf að Helmut Haller hafði sagt mér að Horst hefði pissað inn f fataskáp sinn nóttina fyrir fyrsta landsleik sinn, og ég var á nálum um að hann mundi gera það einnig þessa nótt. Var meira að segja að hugsa um að taka fötin mfn og fela þau f rúminu mfnu. Sem betur fer lét Horst fataskápinn vera að þessu sinni. Loksins lagðist Horst aftur í rúmið sitt, en þá var farið að birta af degi. Ég náði að festa blund og var eins og rotaður þegar við vorum vaktir um morguninn. Ég reyndi þó að bera mig borginmannlega, óttaðist að Schön Fyrsti landsleikurinn minn — Jæja Múnchenarbúi, sagði hann við mig, — ef þú skilur ekki hvað Willi Schulz eða Wolfgang Weber segja, þá skalt þú spyrja Freddy, og hann þýðir á bayernsku fyrir þig Mér fannst Schön dálftið kynlegur náungi. Hann stóð jafnan með hnén svo þétt saman að það leit einna helzt út fyrir að hann væri einfættur. Og alltaf var hann með derhúfu, sama hvernig veðrið var. Maður sá líka alltaf á honum þegar hann var óánægður. Þá skaut hann neðri vör- inni langt fram. En æfingarnar hjá Schön voru skemmtilegar. Hann kastaði t.d. einu sinni knetti til mín og kallaði: — Sýndu hvað þú getur strákur. Það er alltaf verið að segja í blöðunum að þú getir allt með knöttinn. Finndu upp á einhverju nýju. Við höfum þörf fyrir uppfinningamenn f leiknum f Stokkhólmi. Með þá innanborðs er sigurinn vfs. Allir fóru að hlæja og það var góð stemmning f mannskapnum. — Svona er Schön alltaf, sagði Cramer við mig. Hann finnur alltaf upp á einhverju sem kemur mönnum í gott skap, sérstaklega daginn fyrir leik, þegar menn þurfa mest á þvf að halda Það var öðru vísi hjá Herberg- er sem var landsliðsþjálfari á undan Schön Hann lét menn púla og strita, þannig að menn komust varla upp f rúmið sitt á kvöldin. Kvöld eitt kom Schön til mfn og bað mig að fara f kvöldgöngu með sér. Það var komið kolamyrkur og til, og auðvitað er ég taugaóstyrkur. Hvað skeður ef allt gengur á aftur- fótunum hjá mér? Scön fór að hlæja. — Það skeður ekkert, sagði hann, — ekki hjá þér. En blöðin. Guð minn góður, þau hella sér yfir mig, landsliðs þjálfarann, sem er svo vitlaus að tefla fram nýliða í leik sem skiptir sköpum fyrir okkur. Blöðin telja að ég eigi að feta í fótspor Herbergers í einu og öllu. Ég er á öðru máli. Með því get ég aldrei unnið mig upp sem þjálfari, heldur spila alltaf sömu plötuna. Ég gat ekkert sagt. Schön varð óþolinmóður. — Ég vil ekkert hafa með leik- mann að gera sem ekki hefur munninn fyrir neðan nefið, sagði hann. Ég vil umræður. Ég er opinn fyrir ábendingum og skoðunum. Ég krefst þess að fá að vita um hvað þú ert að hugsa. — Ég hef ekki hugsað svo mikið um leik minn, svaraði ég þá — Ég fer inn á völlinn til þess að leika knattspyrnu. Hitt get ég sagt að ég tel mig hafa skilið þá leikaðferð sem þú hefur verið að leggja fyrir okkur, og ég er tiltölulega ánægður með hana. — Það var ánægjulegt að heyra — Þú ert greinilega óttasleginn núna, sagði ég. — Alveg rétt, sagði Karl Heinz. Ég er það alltaf fyrir landsleiki, en óstyrkurinn hverfur um leið og dómarinn flautar leikinn á. Síðasta nóttin fyrir landsleik er mér hreint helvíti. Ég þarf að fara I það minnsta fimm sinnum að heimsækja WC og þegar að leiknum líkur má segja að ég haldi uppi föstum áætlunarferð- um með nokkra mínútna millibili á umræddan stað. Erfið nótt Siðustu nóttina fyrir leikinn við Svía svaf ég Iftið. Herbergisfélagi minn, Horst Szymaniak, sem einnig hafði leikið sem atvinnumaður á ítalfu, vakti mig ótal sinnum um nóttina. Hann talaði f svefni. í fyrsta skiptið sem hann vakti mig. varð ég var við að hann sat uppi f rúminu sínu og tautaði eitthvað á ítölsku. Síðan skipti hann yfir f þýzku og fór að hrópa: Hann er með hann! Hann er með hann! Takið hann strákar! Helvfti er að sjá til ykkar! Svo lagðist hann útaf og sofnaði. Eftir nokkrar mínútur var hann þó kominn á fleygiferð aftur. — Aftur, og Cramer gætu séð það á mér, að ég hefði sofið Iftið. Við morgunverðarborðið sat Fritz Walter við hliðina á mér. — Þetta er ekki eins bölvað og þú heldur, sagði hann. — Ég var viti mfnu fjær f fyrsta skipti sem ég lék landsleik. — En það hjálpuðu mér allir. Ég var með tfu mömmur allt f kringum mig f leiknum. Það verður þú Ifka, Franz minn. Að vera beztir Ég fann að þessi orð hans virkuðu vel á mig, en ég gerði mér samt grein fyrir því að Walter var allt önnur manngerð en ég og flestir aðrir f liðinu. Hann hugsaði fyrst og fremst um félagsandann og heiður þjóðar sinnar. Við horfðum á kom- andi leiki með öðrum augum. Fyrir mig og flesta aðra i liðinu, höfðu landsleikir ekkert með félagsanda að gera. Fyrir mig var heimsmeistaratit- í11 ekki aðeins fþróttalegt takmark, heldur einnig fjárhagslegt. Hefði ég starfað sem lærlingur f verzlun, hefði ég strax byrjað að stefna að þvf að verða forstjóri fyrir- tækisins, og allt sem ég hefði gert miðað að þvf að komast á toppinn. Þannig var einnig knattspyrnuferill

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.