Morgunblaðið - 22.02.1977, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 22.02.1977, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1977 HOLLENZKA landsliðið sigraði með yfirburðum f fjögurra liða kvenna- keppninni f handknatt- leik f Laugardalshöllinni um helgina. Unnu þær alla sína leiki með yfir- burðum og voru eina vel- skipaða liðið. Mót þetta sannaði f rauninni aðeins einn hlut fyrir fslenzk- um áhorfendum; það að kvennahandknattleikur hér á landi er grátlega illa á vegi staddur og að við höfum svo sannar- lega ekki efni á að deila kröftunum með úlfúð. tsland — Færeyjar Fyrsti leikur kvennamótsins var milli íslenzka landsliðsins og Færeyinga. Eins og reyndar vænta mátti kom strax fram aö töluverður munur var á getu liðanna. Höfðu íslenzku stúlk- urnar áberandi betri tækni í leik sínum en gestirnir og sigr- uðu örugglega með 15 mörkum gegn 7, eftir að staðan hafð verið 7—3 í hálfleik. Ekki er hægt'að segja að leik- ur þessi hafi verið skemmtileg- ur á að horfa, en þó brá öðru hverju fyrir allþokkalegum leikköflum, og átti íslenzka lið- ið þar oftast hlut að máli. Tókst stúlkunum nokkrum sinnum að galopna vörn færeyska liðsins og skora síðan. Beztar I landsliði íslands í leik þessum voru þær Harpa Guðmundsdóttir sem átti þarna ágætan leik, svo og Svanhvít Magnúsdóttir, sem þjarkaði oft vel að vörn færeyska liðsins og dró að sér varnarleikmenn. Mörk íslands skoruðu: Harpa Guðmundsdóttir 5, Oddný Sig- urðardóttir 3, Hansína Melsteð 3, Svanhvít Magnúsdóttir 2, Margrét Brandsdóttir 1, Hjör- dfs Sigurjónsdottir 1. Mörk Færeyja: Svanna Han- ussardóttir 2, Jacobina Joensen 2, Herborg Joensen 1, Susanna Michaelsen 1, Ottolina Hansen 1. Skrap — Holland íslenzka B-landsliðið, þ.e.a.s. lið það sem kallað var saman á síðustu stundu til þess að hlaupa í skarðið fyrir banda- risku stúlkurnar sem afboðuðu þátttöku sína i mótinu, fór illa að ráði sínu í leik sínum við hollenzka liðið. Úrslit leiksins urðu 16—10 fyrir hollenzku stúlkurnar eftir að þær höfðu haft 4 marka forystu I hálfleik 9—5. Var það fyrst og fremst alltof mikið bráðlæti sem varð íslenzku stúlkunum að falli í leik þessum. Þær reyndu oft í tíma og ótíma, i stað þess að haida knettinum og bfða róleg- ar eftir tækifærunum, sem hefði verið nauðsynlegt fyrir þær, þar sem búast mátti við því að andstæðingurinn væri sterkari, og alla vega vitað að hollenzku stúlkurnar eru vel samæfðar. Þá gekk alltof illa að hemja tvær aðalskyttur hol- lenzka Iiðsins í leiknum, og vafalaust stór spurning hvort ekki hefði átt að freista þess að taka stúlku nr. 6 úr umferð, en hún stjórnaði öllu spili hol- lenzka liðsins. Gangur leiksins var í stuttu máli sá að Hollendingar skor- uðu fyrsta mark leiksins, en íslenzku stúlkurnar gerðu síðan þrjú mörk í röð og komust f 3—1. Léku islenzku stúlkurnar ágætlega þessar upphafsmfnút- ur leiksins, en eftir að hol- lenzku stúlkurnar höfðu jafnað var engri þolinmæði fyrir að fara hjá íslenzku stúlfeunum, og sifellt seig á ógæfuhliðina. Von- ir tóku þó að vakna er þeim tókst að minnka muninn f tvö mörk snemma í seinni hálfleik, og staðan var 10—8 fyrir Hol- land, en þessum góða spretti sfnum tókst stúlkunum ekki að fylgja eftir. Beztar i fslenzka liðinu voru Úr landsleik íslands og Hollands. Ein hollenzka stúlkan hefur komist í færi, en brotið er illa á henni og dæmt var vítakast. HOLLENDINGAR MEÐ YFIRBURÐA- UÐ Í KVENNAHANDKNATTLEIKNUM þær Ragnheiður Lárusdóttir og Björg Guðmundsdóttir. Mörk íslands skoruðu: Oddný Sigsteinsdóttir 3 (öll úr vfta- köstum), Guðrún Sverrisdóttir 2, Ragnheiður Lárusdóttir 1, Guðrún Sigurþórsdóttir 1, Björg Jónsdóttir 1, Anna Hall- dórsdóttir 1, Björg Guðmunds- dóttir 1. Holland — Færeyjar: Hollensku stúlkurnar áttu ekki f miklum erfiðleikum með þær færeysku á laugardaginn. Þó svo að Færeyingar næðu yfirhöndinni i byrjun leiksins, 2:1, þá var í rauninni aldrei spurning um það hvort liðið sigraði. Hollenska liðið var áberandi sterkasta lið þessa móts og eina liðið sem lék kvennahandknattleik eins og hann gerist annars staðar í V.- Evrópu. Þær röðuðu mörkun- um að baki færeyska markvarð- arins og þegar upp var staðið í lok leiksins voru þau orðin 20, en hinum megin hafði aðeins verið skorað 8 sinnum. 20:8 fyr- ir Hollandi og sigur tryggður í mótinu, þvf þó liðið myndi tapa fyrir „a-liði“ íslands, þá var markatala liðsins orðið það góð að sigurinn var í höfn. Flest marka sinna f leiknum gerði Holland úr vel æfðum og útfærðum hrapaupphlaupum, nokkuð sem sjaldan sést i kvennahandknattleik hér á landi, og reyndar ekki mörgum karlaliðum íslenzkum. Hol- lensku stúlkurnar voru greini- lega langbezt og mest þjálfaðar af liðunum, en landsliðsstúlk- urnar, sem mættu þeim fyrir tæpu ári síðan sögðu að liðinu hefði þó farið aftur á þessu timabili. Beztan leik í liði Hollands átti markvörðurinn og þær Nel Martens (9) og Hannie de Kok (3). Færeysku stúlkurnar kunna ýmislegt fyrir sér f handknatt- leiknum, en greinilegt er að breiddin er lítil hjá liðinu. Syst- urnar Svanna og Rannvá Hans- ardætur eru áberandi beztar f liðinu og standa hinar þeim nokkuð að baki. Færeyska liðið vantar greinilega meiri æfingu og reynslu í leikjum þessum. Mörk Hollands: Nel Martens 5, Hannie de Kok 5, Ingrid Koppen 3, Miek Pottbyut 3, Els Bbsten, Toos Alsemgest, Marja Moldus og Marjan Houtepen 1 hver. Mörk Færeyja: Svanna Hansar- dóttir 4, Ottolina Hansen 2, Rannvá Hansardóttir 1, Her- borg Joensen 1: Skrap — Island: Mikill var fögnuður stúlkn- anna í „skraplandsliðinu" eftir að þeim hafði tekizt að sigra „a-landsliðið “ á laugardaginn með 13 mörkum gegn 12. Var sá sigur fyllilega sanngjarn og hefði f rauninni getað orðið stærri, en f leikhléi leiddi „a- Iandsliðið“ með tveimur mörk- um, 8:6. Gangur leiksins var sá að framan af fyrri hálfleik var jafnt upp f 3:3, en þá náði „a- landsliðið" góðum spretti og skoraði 5 mörk gegn 3 það sem eftir var hálfleiksins. Var Harpa Guðmundsdóttir f aðal- hlutverkinu hjá „a-liðinu“ og gerði hún helming marka liðs- ins í fyrri hálfleiknum. öll mörk hennar komu með svipuð- um hætti, skotum frá punkta- línu frá hægri. Þó Harpa væri á knattleikinn MIKIÐ áfall hlýtur það að hafa verið fyrir landsliðsnefnd kvenna er landsliðið tapaðí á laugardag- inn fyrir liðinu, sem smalað var saman á síðustu stundu til að taka þátt í fjögurra liða keppninni i handknattleik, um helgina. Hlýt- ur landsliðsnefnd að verða að athuga sinn gang að þessu móti loknu og niðurstaða þeirrar könn- unar getur varla orðið önnur en sú að taka hverju einustu stúlkn- anna i „öldungalíðinu" inn i landsliðshópinn. B landsliðið. öldungaliðið, skrapliðið eða hvaða nafni á að nefna liðið sem á siðustu stundu var boðið eða beðið um að taka þátt í mótinu — til að bjarga mótinu — fékk aðeins tvaer aef- ingar saman fyrir mótið og þá ekki vegna fyrirgreiðslu HSÍ eins og lofað hefði verið. Eigi að siður tókst liðinu að sigra a-landsliðið. sem æft hefur saman i þrjá mán- uði. HSÍ gat ekki einu sinni út- vegað stúlkunum i „skrapliðinu" búninga. þær máttu gera sér að góðu að leika i Fram- og Valsbún ingum. Kvennahandknattieikur á islandi er ekki á það háu stigi að hægt sé að skella skollaeyrum þegar 53 af leikmönnum liðanna i 1. deild kvenna skrifa undir skjal til að mótmæla vinnubröð- um landsliðsnefndarinnar. Um kvennatandsliðið verður að nást samstaða svo hægt verði að mynda boðlegt landslið. Lið, sem gefur rétta mynd af þvi hvar kvennahandknattleikur er i raun á vegi staddur hér á landi. Það er eitthvað meira en litið að gerast þegar hálft hundrað leikmanna skrifa undir skjal eins og stúlkurnar á dögunum. Sú stirfni, sem hlaupin er i þessi mál. er engum til góðs og það er ekki islenzkum kvenna handknattleík i hag að útiloka stúlkur frá landsliðinu, sem náð hafa 23 ára aldri — nema með undanþágu. — áij. stundum utarlega á vellinum tókst „skrapliðinu" ekki að stöðva skot hennar og ekki heldur markverðinum. í seinni hálfleiknum var Hörp betur gætt, auk þess sem hún hafði meiðst lítillega í fyrri hálfleiknum og skoraði hún ekki mark I seinni hálfleik. Var engin skytta til að taka við hlut- verki hennar hjá „a- landsliðinu" og nú var komið að Oddnýju Sigsteinsdóttur að sýna getu sína og gerði hún 5 mörk í hálfleiknum og stórgóð- ur leikur hennar færði skrap- liðinu öðrum fremur sigur f leiknum. Var alveg sama þó reynt væri að taka hana úr um- ferð, með „blokkeringum", henni tókst að rífa sig lausa og skora. Auk Oddnýjar átti Sigur- björg Pétursdóttir f marki „skrapliðsins" mjög góðan leik og Ragnheiður Lárusdóttir gaf ekki eftir um tommu í vörninni. Af ,,-a-landsliðsstúlkunum“ komst Harpa bezt frá leiknum, en aðrar voru varla meira en meðallagi. Mörk „skrapliðsins" Oddný 7, Guðrún Sverrisdóttir 2, Guðrún Sigurþórsdóttir, Jóhanna Magnúsdóttir, Jóhanna Hall- dórsdóttir og Björg Jónsdóttir 1 hver. Mörk „a-Iiðsins“: Harpa 4, Hjördís 2, Svanhvít, Ágústa Dúa, Hansfna, Margrét T„ Mar- grét og Katrfn 1 hver. Eins og f leiknum gegn Fær- eyingum á laugardaginn voru hraðaupphlaupin helzta vopn hollenska liðsins og það var ekki að undra þótt einhver tal- aði um að þarna væru komnir Hollendingarnir fljúgandi. Öþarft er að hafa mörg orð um þennan leik. Hollenska liðið var heilum gæðaflokki fyrir of- an íslenzka liðið. Að leiknum loknum afhenti Jón Magnússon varaformaður HSÍ hollensku stúlkunum bik- arinn, sem um var keppt f mót- inu og stúlkurnar hófu þær upp raust sína og sungu hátt og snjallt meðan á verðlaunaaf- hendingunni stóð. Af stúlkunum í íslenzka lið- inu stóðu þær sig bezt Hjördís og Hansína, en enginn glans var á leik liðsins. Mörk liðsins skoruðu Hansína 3, Hjördís 2, Harpa 2, Margrét T. 1, Svanhvít 1, Halldóra 1. tsland — Holland Leikur ,,a-landsliðsins“ gegn Hollandi á sunnudagskvöldið gerði f rauninni ekki annað en að staðfesta það sem fyrirfram var vitað; hve fslenzkur kvennahandknattleikur er illa á vegi staddur. Hollenska liðið sigraði með yfirburðum 18:10, eftir að staðan f hálfleik hafði verið 12:7. |sland — Færeyjar Eitthvað voru þær miður sín færeysku stúlkurnar i fyrri hálfleiknum gegn „skraplands- liðinu" á sunnudagskvöldið. Ekki var heil brú f leik fær- eyska liðsins og í leikhléi var staðan 9:2 „skrapliðinu“ í vil. í seinni hálfleiknum tóku þær færeysku sig saman i andlitinu og héldu jöfnu í hálfleiknum, 5:5, þannig að úrslit leiksins urðu 14:7 „skrapliðinu” í vil. Að þessu sinni átti Björg Jónsdóttir einna beztan leik is- lenzku stúlknanna, en Ragn- heiður Blöndal komst einnig mjög vel frá leiknum. Annars er ekki hægt að meta liðið út frá þessum leik, til þess var mótherjinn of slakur. Mörk íslands gerðu Björg J. 5, Oddný 3, Ragnheiður 2, Kristin 2, Guðrún Sigurþórs- dóttir og Guðrún Sverrisdóttir 1 hvor. MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1977 23 KR-INGAR OPNUÐU1. DEILDINA MEÐ GÚÐUM SIGRIYHR ÁRMANNI KR vann Ármann, 74—68, í hörkuleik f 1. deildinni í körfu- knattleik nú um helgina, eftir að jafnt hafði verið í leikhléi, 37—37. Þessi úrslit opna deildina mikið og nú eru 4 lið efst og jöfn og hafa því öll möguleika á efsta sætinu og má búast við þvf að eftir þetta verði baráttan f algleymingi. KR-ingar voru að vonum mjög ánægðir með sigurinn og Einar Bolla- son þjálfari liðsins sagði að það hefði tvímælalaust verið betra liðið sem vann og vildi hann helzt þakka sigur- inn þvf hve mikil breidd er f KR- liðinu og hve ungu mennirnur „eru orðnir góðir. Það er ánægjulegt", sagði hann, „hve frammistaða þeirra hefur verið góð undanfarið og við KR-ingar lítum framtfðina björtum augum og að sjálfsögðu ætlum við að vinna mótið úr þvf sem komið er.“ Gangur leiksins var annars sá að Ármann náði forystunni strax f upp- hafi og hélt henni fram undir lok fyrri hálfleiks er KR-ingar jöfnuðu, 31—31 og hafði munurinn aldrei orðið meiri en 7 stig, en það sem eftir var til leikhlés var jafnt á öllum töl- um og lauk fyrri hálfleik með jafn- tefli, 37—37. Mikil harka færðist svo f leikinn í seinni hálfleik og réðu þeir Krist- björn Albertsson og Sigurður Valur Halldórsson ekki nægilega vel við leikinn, en þó er ekki hægt að segja að annað liðið hafi frekar hagnast á þvf en hitt. Það voru KR-ingar sem reyndust sterkari f seinni hálfleikn- um og höfðu þeir forystuna lengst af, en Ármenningum tókst að jafna er staðan var orðin 59—59 og 65—65 og á 19. mfnútu náðu þeir svo eins stigs forystu, 67—66 en það dugði þeim ekki og KR-ingar voru sterkari á endasprettinum og unnu 74—68 eins og áður sagði. Leikurinn einkenndist öðru fremur af baráttu og villuvandræðum beggja liða og voru til dæmis bæði Simon Ólafsson og Björn Christiansen komnir með 4 villur fyrir leikhlé og Atli Arason og Jón Sigurðsson urðu að yfirgefa völlinn seint í seinni hálf- leik með 5 villur. Það er ekki hægt að segja annað en að Ármenningar hafi hagað sér heimskulega í þessum leik, þeir létu mótlætið fara mjög í skapið á sér og kenndu dómurunum um tapið, en I raun og veru geta þeir engum um kennt nema sjálfum sér því að þeir fengu til dæmis dæmd á sig 4 tæknivíti vegna mótmæla og svívirðinga við dómarana og færðu þeir KR-ingum þannig 7 stig á silfur- bakka, en leikurinn vannst aðeins með 6 stiga mun, svo að ef Ármenn- ingar hefðu hagað sér eins og menn er ekki að vita hvernig farið hefði. Beztu menn KR-inga f þessum leik voru Einar Bollason, Eiríkur Jóhannesson og Birgir Guðbjörnsson, en annars átti liðið í heildina góðan leik, einkum f seinni hálfleik. Stigin fyrir KR skoruðu: Einar Bollason 27, Birgir Guðbjörnsson 13, Gunnar Ingi- mundarson og Kolbeinn Pálsson 12 stig hvor, Eirfkur Jóhannesson og Bjarni Jóhannesson 5 stig hvor. Símon Ólafsson og Björn Christiansen voru atkvæðamestir hjá Ármanni, en Björn Magnússon átti góðan varnarleik að vanda. Stigin fyrir Ármann skoruðu: Símon Ólafs- son 26, Björn Christiansen 14, Jón Sigurðsson, 13, Atli Arason 11, Haraldur Hauksson og Björn Magnús- son 2 stig hvor. HG. Björn Magnússon og Birgir Guóbjörnsson berjast um knöttinn er Jón Sigurðsson og Eirfkur Jóhannesson fylgjast með. Stefán Kristjánsson átti góðan leik með ÍR gegn Fram um helgina og þarna skorar hann örugglega. f ORUGGURIR- SIGURI TÍÐINDALITLUM LEIK ÍR vann Fram í 1. deildinni í körfuknattleik nú um helgina með 99 stigum gegn 85, eftir að staðan I leikhléi hafði verið 53—45 ÍR I vil. Sigur ÍR-inga var alltaf oruggur, þó að munurinn væri oft ekki mikill og leyfðu þeir ungu mönnunum að spreyta sig og komust þeir þokkalega frá leiknum, einkum Stefán Kristjánsson, sem er vaxandi leikmaður. Gangur leiksins var annars í stuttu máli að ef frá eru skildar 3 fyrstu mínútur leiksins höfðu ÍR-ingar alltaf nokkra yfirburði og i leikhléi var staðan orðin 53—4& þeim í vil. í upphafi seinni hálfleiks náðu Framarar að sækja aðeins í sig veðrið og náðu þeir að minnka muninn niður i 3 stig á 5 minútu þegar staðan var orðin 59—56 ÍR í vil, en ÍR-ingar voru sterkari og unnu leikinn örugglega með 99 stigum gegn 85 Þetta var þokkalega leikinn leikur af báðum aðiljum og er ánægjulegt að sjá hvað ÍR-ingar lofa ungu mönnunum að spreyta sig mikið, enda er það fors- enda þess að þeir nái að sýna nokkrar framfarir Beztu menn ÍR-inga voru Kristinn og Jón Jörundssynir. en stigin fyrir ÍR skoruðu: Kristinn og Jón Jörundssynir 24 stig hvor, Kolbeinn Kristinsson 21, Þorsteinn Hallgrims- son 16, Stefán Kristjánsson 10. Jón Pálsson 6 og Kristján Sigurðsson 4 Hjá Fram voru þeir Guðmundur Böðvarsson og Helgi Valdimarsson beztir og stigin fyrir liðið skoruðu: Guðmundur Böðvarsson 22, Helgi Valdimarsson 2 7. Eyþór Kristjánsson og Gunnar Bjarnason 8 hvor, Jónas Ketilsson 6, Þorkell Sigurðsson og Þorvaldur Geirsson 5 hvor og Ómar Þráinssom4 stig HG. STIGAMET HJÁ STÚDENTUM STÚDENTAR unnu BreiSablik I 1. deild íslandsmótsins I körfuknattleik nú um helgina með 112 stigum gegn 81 og settu þar meS met I stigaskorun þessa keppnistlmabils. Þetta var fremur skemmtilegur leikur og áttu stúdentar nú sinn bezta leik þaS sem af er vetri. Settu stúdentar stigamet meS þvl aS skora 112 stig I leiknum. Stúdentar áttu allir fremur góSan leik aS þessu sinni. en mest bar á þeim Bjarna Gunnari Sveinssyni, Inga Stefánssyni og Jóni HéSinssyni og stigin skoruðu: Bjarni Gunnar Sveinsson 35, Ingi Stefánsson 24, Jón HéSinsson 18, Ingvar Jónsson 16. Steinn Sveinsson 10, Þórður Óskarsson 3 og Guðni Kolbeinsson, Ebeneser Jensson og Helgi Jensson 2 stig hver. Blikarnir léku nokkuð góðan sóknárleik, en vörn þeirra var hins vegar I molum, eins og stigatalan bendir reyndar á. Atkvæðamestu menn liðsins voru þeir Erlendur Markússon og Rafn Thorarensen, sem báðir skoruðu 19 stig. en næstir voru. Guttormur Ólafsson 14, Ágúst Llndal 12, Sigurbergur Björnsson 8, Árni Gunnars- son 4, Óskar Bragason 3 og Pétur Eysteinsson 2 stig. HG.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.