Morgunblaðið - 22.02.1977, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 22.02.1977, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRUAR 1977 43 Sovézku geimfararnir Viktor Gorbatko og Yuri Glazkov höfðu verið tvær vikur um borð f Salyut-5 f gær og Ifðan þeirra er góð að sögn fréttastofunnar Tass. Frá þvf hefur ekki verið skýrt hvenær geim- fararnir koma aftur til jarðar, en á miðvikudag sagði Tass, að ferð þeirra væri hálfnuð. Samkvæmt því getur verið að geimfararnir lendi f þessari viku. (Á myndinni er Gorbatko til vinstri, Glazkov til hægri). Uppsagnir á Berlingi? Kaupmannahöfn, 21. febrúar NTB OLUF Poulsen, forstjóri danska blaðaútgáfufyrirtækisins Berlingske Hus, staðfesti í dag að stjórn útgáfunnar fhugaði þann möguleika að segja upp öllum starfsmönnum vegna deilunnar við prentara. Hann lagði þó áherzlu á að engin ákvörðun hefði enn verið tekin. Prentararnir neituðu enn í dag aó hefja aftur vinnu þótt vinnu- dómstóll hefði skipað þeim það. Ný kæra verður þvi send vinnu- dómstólnum, sennilega eftir nokkra daga. Jafnvel þótt dóm- stóllinn hraði afgreiðslu kærunn- ar er ósennilegt að nýr úrskurður liggi fyrir fyrr en i marzbyrjun. Ákvörðun um hugsanlega uppsögn starfsmanna Berlingske Hus verður ekki tekin fyrir fyrr en nýr úrskurður vinnudómstóls- ins liggur fyrir. Prentararnir ákváðu að hefja ekki aftur vinnu á fundi sem þeir héldu I dag. Þeir neita að hlita úrskurði dómstólsins þar sem þeir telja að ný vinnutilhögun í Berlingske Hus spilli vinnu- skilyrðum. Aðaltrúnaðarmaður þeirra, Poul Erik Hansen, sagði eftir fundinn i dag að samkomulag yrði að nást um nýja áætlun ef prent- arar ættu að hefja aftur vinnu. í yfirlýsingu sem var gefin út sagði að vinnudómstóllinn gæti ekki leyst deiluna og stjórn Berlingske Hus yrði að hætta að trúa hinu gagnstæða. Á laugardag komu prentararnir í veg fyrir að riti frá Berlingske Hus yrði dreift til áskrifenda og lesenda en því var dreift með öðrum Kaupmannahafnarblöðum í dag. Rússi sviptur doktorsgráðu Moskvu, 21. febrúar. NTB. SOVÉZKI heimspekingurinn Álexander Sinovjev, sem meðal annars er fulltrúi ( finnsku vfsindaakademfunni, hefur verið sviptur doktorsnafnbót sinni f heimspeki á þeirri forsendu, að hann stundi óþjóðlega starfsemi. Fyrir nokkrum mánuðum var Sinovjev sviptur prófessorsstöðu við heimspekistofnunina i Moskvu þar sem hann hafði unnið í 22 ár. Bæði hann og kona hans, sem er einnig heimspekingur, eru því atvinnulaus, Sinovjev er heimskunnur rök- fræðingur. Hann hefur lengi átt í útistöðum við sovézka starfsbræð- ur. 1 fyrra var honum meinað að sækja vfsindaráðstefnu I Finn- landi þótt finnska akademían byði honum sérstaklega til henn- ar. 1 fyrrahaust var Sinovjev rek- inn úr kommúnistaflokknum þar sem hann hafði gefið út bók með gagnrýni á sovézkt þjóðskipulag erlendis. Fyrir nokkrum vikum var há- skólakennari í stærðfræði í Leningrad sviptur doktorsnafn- bót. Hann hafði lánað íbúð sfna listamönnum sem héldu þar sýn- ingu á svokallaðri óopinberri list. Kona hans var ein þeirra, sem stóðu fyrir sýningunni. Yfirvöldin sögðu kennaranum, að hann missti atvinnuna ef hann skildi ekki við konuna. Galante nær undir sig yöldunum í Mafíunni New York, 21. febrúar. Reuter Glæpamaðurinn Carmine (Lillo) Galante er í þann veginn að ná undir sig völdunum í undirheimum Bandaríkjanna að sögn blaðanna New York Times og New York News. Staða leiðtoga fimm stófra Mafíu-fjölskyldna í New York hefur verið laus síðan síðasti leiðtoginn, Carlo Gambino, lézt eðlileg- um dauðdaga í fyrra. Gert var ráð fyrir að eftirmaður hans yrði Joe (Bananas) Bonanno en nú virðist ein- sýnt að næsti „Capo di tutti capo“ (foringi foringjanna) verði Carmine Galante. New York News segir að; Galante sé á góðri leið með að verða voldugasti mafiu- leiðtoginn siðan Lucy Carmine Galante Liciano leið og hafi náð í sínar hendur stjórninni á mestallri starfsemi Mafíunnar í Bandaríkjun- um og erlendis. Leyniþjónustustarfsmaður segir f samtali við New York Times að sfðan Vito Genovese leið hafi ekki verið við völd f Mafíunni jafn miskunnarlaus maður og enginn hafi vakið eins mikinn ótta. „Hinir voru úr kopar, Galante er úr stáli,“ sagði hann. Galante reynir bersýnilega að koma þvf til leiðar að Mafían öðlist aftur þau áhrif sem hún hafði í glæpaheiminum fyrir 20 árum Hann leggur hvað mesta áherzlu á eiturlyfjasölu sem Puerto Ricomenn og svartir glæpamannaleiðtogar hafa náð undir sig. Blóðugt strfð þessara eiturlyfjaglæpamanna mun þegar hafa kostað 40 lffið. Galante slapp sfðast úr fangelsi 1974 er hann hafði afplánað 12 ára dóimi fyrir eiturlyfjaglæpi. Upp á síðkastið hefur hann gert bandalag við glæpamenn frá Frakklandi, Korsfku og Kanada, sem hann starfaði áður með í eiturlyfjasölu sem kallaðist „The French Connection" (frá Mið- austurlöndum um Marseilles og Kanada til Bandaríkjanna). mátt bara alls ekki missa af útsölumarkaðnum Hreint út sagt, ótrúlega lágt verð fyrir nýlegar vörur 40—70% afsláttur ☆ Herraföt, ☆ stakir herrajakkar ☆ herraskyrtur, ☆ herrabuxur, ☆ herrapeysur, ☆ gallajakkar, ☆ gallabuxur, ☆ dömuföt, ☆ stakir dömujakkar, ☆ dömukápur, 'V dömupils, ☆ dömublússur, ☆ dömupeysur, ☆ dömumussur, ☆ kjólar, ☆ samfestingar, ☆ myndabolir, ☆ rúllukragabolir ☆ mittisjakkar, ☆ kuldajakkar, ☆ dömuskór. Látið ekki happ úr hendi sleppa TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS KARNABÆR Utsölumarkaðurinn LAUGAVEG 66 SiMI FRÁ SKIPTIBORÐI 28156

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.