Morgunblaðið - 15.03.1977, Page 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
59. tbl. 64. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Zaire:
útlendinga
Brussel 14. marz — NTB
ÁGREININGUR er risinn milli
Færeyinga og Efnahagsbandalags
Evrópu um fiskveiðar. Færeying-
ar hafa ákveðið að setja strangari
ákvæði um fiskveiðar innan 200
mflna fiskveiðilögsögu sinnar til
verndar fiskstofnum.
Framhald á bls. 47
Frakkland:
FVRSTU TÖLUR — Jacques Cbirac, fyrrum forsætisráðherra Frakk-
lands, ræðir við samstarfsfólk sitt f ráðhúsinu f Parfs þegar fyrstu
tölur um úrslit borgar- og sveitarstjórnarkosninganna höfðu verið
v'r*ar- Sfmamynd AP.
Leitar aðstoðar
Bandaríkjanna
málaliða inn f Zaire. Angóla-
stjórn neitar þvf að nokkur inn-
rás hafi verið gerð frá Angóla.
Kinshasa útvarpið skýrði frá
því á laugardag að her Zaire hefði
átt í höggi við málaliða í Shaba-
héraði, sem áður hét Katanga.
Samkvæmt útvarpinu hefur
Zaireher náð aftur á vald sitt stór-
um svæðum, sem málaliðarnir
höfðu lagt undir sig.
Frá Angóla koma þær fréttir að
bardagarnir séu á milli tveggja
andstæðra hópa í Zaire. Sam-
kvæmt bandariska utanrikisráðu-
neytinu hafa málaliðarnir kallað
sig Katangaherinn, en talsmaður
ráðuneytisins leggur áherzlu á að
svo til engar upplýsingar liggi fyr-
ir um þá.
EFTIR OEIRÐIRNAR — Götumynd frá Bologna eftir óeirðir stúdenta, sem urðu f borginni um
helgina. Jarðýta liggur á hvolfi, eyðilögð af eldi. Ýtan hafði verið notuð til að ryðja burt götuvfgum,
sem stúdentarnir höfðu sett upp. Stmamynd AP
Innanríkisrádherra Ítalíu:
Herlög hugsanleg
Washington 14. marz —
Reuter
BANDARtSKA utanrfkisráðu-
neytið skýrði frá þvf f dag, að
stjórn Zaire hefði beðið Banda-
rfkin um hergögn til að nota f
baráttu gegn innrás f landið.
Bandarfk stjórnvöld hugleiða nú
þessa beiðni.
Forseti Zaire, Mobuto Sese
Seko, hefur ásakað áhrifarfk er-
lend öfl í Angóla um að hafa sent
Skotið á
Sanjay
Nýju Delhi
14. marz — Reuter.
VOPNAÐIR menn reyndu f
kvöld að ráða Sanjay, hinn um-
deilda son Indiru Gandhi for-
sætisráðherra, Indlands, af
dögum, þegar hann var á kosn-
ingaferðalagi á Norður Ind-
landi samkvæmt indversku
fréttastofunni Samachar.
Gandhi, sem er 30 ára
gamall, slapp ómeiddur undan
fimm skotum, sem hittu jeppa,
sem hann ók í um kjördæmið,
þar sem hann býður sig fram.
Öryggisvörður Gandhis
svaraði skothríð tilræðismann-
anna, sem hurfu út í nátt-
myrkrið. Fimm skot hæfðu
jeppann og þar af lentu þrjú i
sæti Gandhis. Ekkert er vitað
um tilræðismennina, en þeir
sátu fyrir Gandhi á þjóðvegi.
Sanjay Gandhi er mjög
umdeildur fyrir þau völd, sem
móðir hans hlóð á hann á
meðan herlög voru i gildi á
Indlandi.
Færeyingar
ákveða tak-
mörkun veiða
Bologna 14. marz — Reuter.
Þúsundir ungra vinstrisinna
vottuðu f dag einum félags sinna
hinztu virðingu, en lát hans, sem
bar að f mótmælaaðgerðum á
föstudag, kom af stað óeirðum f
mörgum borgum Italfu um helg-
ina. Kista Francesco Lorusso,
sem féll fyrir skoti lögreglu, var
sveipuð rauðum fána og henni
var heilsað með steyttum hnef-
um.
Francesco Cossiga, innanrikis-
ráðherra ítaliu, sagði i Róm í dag.
að ef framhald yrði á óeirðum i
landinu væri ekki útilokað að her-
lög yrðu sett. Sagði hann, að
stjórnin mundi nota alla mögu-
leika, sem lögin veittu henni, ef
ástandið versnaði.
Líran féll nokkuð i verði miðað
við dollar á gjaldeyrismörkuðum i
dag. Þar sem líran hefur sýnt
vaxandi styrk að undanförnu
kemur þetta á óvart og kenna
miðlarar óeirðunum um.
Lögreglan segir að um 6.000
manns hafi verið við jarðarförina
í Bologna í dag. Mótmælaaðgerðir
höfðu verið bannaðar í borginni
nema á 300 metra langri götu,
sem liggur á milli kirkjunnar þar
sem jarðsungið var og kirkju-
garðsins. Lögreglan hafði mikinn
viðbúnað við jarðarförina.
Allir stjórnmálaflokkar frá
hægri til vinstri hafa fordæmt
óeirðirnar og vinstriflokkarnir
kenna litlum hópum æsinga-
manna um þær. Cossiga innan-
ríkisráðherra sakaði stúdenta-
hreyfinguna um samstarf við
borgarskæruliða. Sagði hann í
þinginu, að skæruhernaður hefði
hingað til v.erið einangrað
fyrirbrigði á ítalíu, en virtist nú
vera að verða að fjöldahreyfingu.
Lofaði Cossiga meiri hörku gegn
stúdentum i framtiðinni , en mót-
mælaaðgeróir hafa verið bann-
aðar i Róm næstu tvær vikurnar.
Merki um harðari aðgerðir
stjórnvalda eru brynvarðir bílar á
háskólalóðinni í Bologna og lokun
tveggja útvarpsstöðva i einka-
eign, sem lögreglan segir að hafi
verið notaóar sem stjórnstöðvar i
óeirðunum.
Óeirðirnar hafa orðið nokkuð
Framhald á bls. 47
Réttarhöld yfir
slagorðamálurum
Moskvu 14. marz — NTB.
TVEIR sovézkir listamenn hafa
verið dregnir fyrir rétt f Lenin-
grad fyrir óspektir og eyðilegg-
ingu á opinberum eignum, sem
þeir hafi málað á 16 andsovézk
slagorð f fyrra. I ákæruskjölun-
um er ekkert minnzt á and-
sovézka starfsemi.
Olíklegt að þingkosn-
ingunum verði flýtt
París — 14. marz — Reuter
SVO VIRÐIST sem stjórnarand-
staðan f Frakklandi hafi hlotið
51.5 af hundraði atkvæða f sveit-
arstjórnakosningunum f gær, en
stjórnarflokkarnir 46.5 af hundr-
aði. Stjórnarflokkarnir héldu
velli f Parfs og bendir nú allt til
þess að Jaeques Chirac, fyrrver-
andi forsætisráðherra, verði þar
borgarstjóri þegar endanleg úr-
slit verða kunn eftir næstu helgi.
I Chirac'hlaut 28 af hundraði en
frambjóðandi Giscard d’Estaings
| forseta, d’Ornano iðnaðarráð-
j herra, 20 af hundraði. Frambjóð-
andi kosningabandalags komm-
I únista og sósfalista f Parfs hlaut
um 40 af hundraði, en talið er að
kjósendur d’Ornanos fylki sér um
Chirac á sunnudaginn og verði
hann þvf fyrsti borgarstjóri Parfs-
ar f 100 ár.
Framhald á bls. 39
Réttarhöldunum gegn Oleg
Volkov, sem er 37 ára, og Juri
Rybakov, sem er 31 árs, lýkur á
þriðjudag. Volkov hefur játað
brot sitt, en heldur því fram að
matið á skemmdunum sé alltof
hátt.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum geta listamennirnir fengið
fimm ára fangelsi. Eitt slagorð-
anna, sem þeir máluðu, var 50
metra langt og hálfu annar metri
á hæð og hljóðaði „Þið bælið
frelsið, en sál þjóðarinnar getið
þið ekki bundið.” Það var málað á
Pétur og Páls virkið. Önnur slag-
orð segja, að kommúnistaflokur-
inn sé óvinur fólksins og Sovét-
rikin fangelsi þjóðarinnar.