Morgunblaðið - 15.03.1977, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977
fttofgttuirlfKfcifr
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarf ulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingasjóri
Ritstjóm og afgreiðsla
Auglýsingar
hf. Arvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson
Árni Garðar Kristinsson
Aðalstræti 6, sfmi 10100.
Aðalstræti 6, sími 22480
Áskriftargjald 1100.00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 60.00 kr. eintakið.
Einstaklingurinn
ekki þjónn ríkisins
—Ríkið þjóirn einstaklmgsins
Eftirtekt vakti í sjónvarpsþætti fyrir nokkrum dögum, að einn
þeirra vinstri sinna, sem ekki hafa fundið sér hentugt pláss á
vinstri væng stjórnmálanna, Bjarni Guðnason prófessor, taldi, að svo
væri nú komið, að eitt stærsta viðfangsefni okkar væri að vernda
einstaklinginn gegn yfirgangi rfkisvaldsins. Þessi ummæli vinstri
sinnaðs menntamanns koma í kjölfar þess, að verkalýðshreyfingin,
sem er að meirihluta til undir stjórn vinstri sinnaðra verkalýðsforingja
og stjórnmálamanna, hefur krafizt þess, að samneyzla verði minnkuð
og einkaneyzla aukin. I báðum tilfellum er um að ræða stefnubreyt-
ingu f grundvallaratriðum hjá vinstri sinnum, sem jafnan hafa flutt
þann boðskap, að félagshyggjan skuli ráða og einstaklingshyggjan
víkja, að hlutdeild og forsjá rfkisvaldsins í lífi einstaklinga skuli
stöðugt verða meiri og svigrúm einstaklingsins þar af leiðandi minna.
Ummæli Bjarna Guðnasonar og kröfugerð Alþýðusambandsins sýna,
að jafnvel áköfustu talsmönnum félagshyggju og ríkisforsjár er orðið
ljóst að lengra hefur verið gengið á þeirri braut en hyggilegt er og
almenningur sættir sig við og að nú er nauðsynlegt og hljómgrunnur
fyrir því að snúa við og auka á ný svigrúm og frelsi einstaklingsins.
Hin sfðari ár hefur mönnum smátt og smátt orðið ljóst, að einstakl-
ingurinn stendur sífellt verr að vígi gagnvart alls kyns kerfisvaldi.
Stundum er þetta kerfisvald sambland af pólitfsku og embættismanna-
valdi, í öðrum tilfellum blanda af embættismanna- og viðskiptavaldi.
Blanda af öllu þessu er til. Ekki er það alltaf hinn „áhrifalausi"
almúgamaður, sem verður fyrir barðinu á kerfinu. Engu virðist skipta
hver í forsvari er, einungis ef um er að ræða hagsmuni einstaklings eða
fámenns hóps einstaklinga gagnvart stærri valdasamsteypu.
Um þetta má nefna fjölmörg dæmi og nokkur nýleg. Það er alkunna
að einstaklingar mega sfn lítils f samskiptum við hið opinbera embætt-
isvald, ef þeir telja rétt á sér brotinn. Þeir eiga þá að jafnaði engan
annan kost en að leita til dómstólanna og sú braut réttlætisins er
þyrnum stráð eins og allir vita, sem reynt hafa að feta þann veg. örfáir
einstaklingar hafa á undanförnum árum leitazt við að ná rétti sfnum
gagnvart opinberum aðilum fyrir dómsstólum og hafa gjarnan fengið
sig fullsadda á þeim tilraunum, m.a. vegna þess hvílíkan óratfma það
tekur. Dæmi eru um, að það hafi tekið einstaklinga hátt f áratug að fá
úrlausn sinna mála.
En það eru ekki aðeins óbreyttir almúgamenn, sem lenda í höggi við
kerfið og þurfa á vernd að halda gagnvart því. Mjög var til umræðu sl.
haust, þegar lítið sláturhús stóð f stríði við rfkisvaldið til þess að fá
leyfi til sláturhúsrekstrar. Það leyfi átti bersýnilega ekki að veita og
hafði ríkisvaldið þar gengið f lið með hagsmunum viðskiptalegs stór-
veldis. Alþingismaður gekk fram fyrir skjöldu til þess að berjast fyrir
hagsmunum þessa litla sláturhúss og fékk rétt þess viðurkenndan að
lokum, eftir að hafa staðið í hinum harkalegustu deilum við ráðherra
og önnur ráðandi öfl, og hefur síðan legið undir linnulausum árásum
úr ýmsum áttum.
Annað nýlegt dæmi, sem sýnir hvers konar blanda af hagsmunum
geta komið saman, þegar mikið liggur við, er fæðingarorlofsmálið, sem
athygli hefur vakið síðustu daga. Þar hafa gengið saman f eina sæng
helztu verkalýðsforingjar þjóðarinnar, fulltrúar atvinnurekenda og
embættismannavald, til þess hreinlega að brjóta niður lög, sem Alþingi
tslendinga hefur sett vegna þess, að þau lög og þeir sem að þeim stóðu,
voru þessum aðilum ekki þóknanlegir. Þingmenn úr Sjálfstæðisflokkn-
um beittu sér fyrir því, að samþykkt voru lög á Alþingi þess efnis, að
Atvinnuleysistryggingarsjóður skyldi greiða fæðingarorlof fyrir konur
í hinum almennu verkalýðsfélögum. Þessi háttur var á hafður 'til þess
að tryggja almennum launþegum sama rétt og konur f opinberri
þjónustu hafa lengi haft, en ekki var talið fært að leggja þennan
útgjaldaauka á atvinnufyrirtækin sem slfk. Lagafrumvarp þetta sætti
andstöðu vinstri sinnaðra verkalýðsforingja, sem gátu með engu móti
þolað það, að þingmenn Sjálfstæðisflokksins hefðu frumkvæði að slíku
hagsmunamáli launafólks. Þegar eftir að lögin voru samþykkt hófu
verkalýðsforingjar leynt og ljóst andróður gegn þessum lögum og nú
hafa þeir ásamt fulltrúum atvinnurekenda og embættismannavaldsins
fengið þvf framgengt, að Atvinnuleysistryggingasjóður gengur gegn
markmiði laganna. í þessu tilfelli er kerfið, hið sameiginlega kerfi
embættismanna, atvinnurekenda og verkalýðsforingja að gera tilraun
til þess að brjóta niður lög, sem rétt kjörin löggjafarsamkunda hefur
sett.
Þessi dæmi eru tekin úr ýmsum áttum, en öll eru þau til marks um
það, sem Bjarni Guðnason, prófessor, vék að í fyrrnefndum sjónvarps-
þætti, að einstaklingurinn sem slfkur og hagsmunir hans eiga mjög
undir högg að sækja i viðureign við opinbera báknið. Nú eru að verða
straumhvörf í afstöðu almennings til ríkisvalds og einstaklinga. Stefna
vaxandi samneyzlu og ríkisforsjár er á undanhaldi. Mönnum er orðið
ljóst, að lengra verður ekki gengið á þeirri braut. Á næstu árum verður
áherzlan vafalaust lögð á að hemja samneyzluna innan núverandi
marka, þannig að sá ábati, sem þjóðarbúið kann að hafa, gangi fyrst og
fremst til þess að auka einkaneyzlu. Jafnframt munu koma fram
sterkari og sterkari kröfur um það, að hlutur einstaklingsins gagnvart
rfkisvaldinu verði réttur. Einstaklingurinn á ekki að vera þjónn
rfkisvaldsins heldur er rfkinu ætlað þjónustuhlutverk í þágu einstakl-
inganna.
Sigurður RE með
tæpar 17 þús. lestir
Loðnuaflinn þá 464 þús. lestir
LOÐNUAFLINN var orðinn
464.653 lestir s.l. laugardags-
kvöld, en I vikunni fór afla-
magnið fram úr aflanum, sem
fékkst á vertfðinni 1974, en þá
fengust rösklega 462 þúsund
lestir. Að þvf er segir I skýrslu
Fiskifélags tslands var Sigurð-
ur RE 4 aflahæstur á laugar-
dagskvöld með 16.979 lestir, þá
kom Börkur NK 122 með 16.367
lestir og Guðmundur RE 29
með 16.030 lestir. Fjórða skipið
f röðinni var svo Gísli Árni RE
375 með 13393 lestir.
Mestri loðnu hefur verið
landað f Vestmannaeyjum á
laugardag eða 70.802 lestum, þá
kom Seyðisfjörður með 56.546
lestir og Neskaupstaður með
40.899 lestir.
Hér á eftir fer listi yfir þau
skip, sem einhvern afla hafa
fengið á loðnuvertfðinni, en
þau eru 81 talsins.
Magn lestir
Sigurður RE 4 16979
Börkur NK 122 16367
Guðmundur RE 29 16030
Gisli Arni RE 375 13393
Pétur Jónss. RE 69 13131
Grindvfk. GK 606 12695
Súlan EA 300 12361
örn KE 13 11059
Hilmir SU 171 10848
Eldborg GK 13 10800
Rauðsey AK 14 10710
Albert GK 31 10562
Loftur Baidvins. EA 24 10016
Fífill GK 54 9864
Jón Finns. GK 506 9436
Skarðsvfk SH 205 9161
Gullberg VE 292 9155
Hákon ÞH 250 8933
Árni Sigurður AK 370 8933
Hrafn GK 12 8754
Helga Guðmunds. BA 77 8604
Huginn VE 55 8462
Þórður Jónas. EA 350 8377
Ásberg RE 22 8362
Guðmundur Jóns. GK 475 8360
Bjarni Ölafs. AK 70 8061
Helga II RE 373 7494.
Kap II VE 4 7345
Öskar Halldórs. RE 157 6928
Stapavík SI 4 6764
Sæbjörg VE 56 6160
Svanur RE 45 5783
Magnús NK 72 5676
Isleifur VE 63 5582
Húnaröst AR 150 5117
Helga RE 49 5083
Skírnir AK 16 5039
Hrafn Sveinbjs. GK 255 4744
Hilmir KE 7 4743
Ársæll KE 77 4605
Keflvikingur KE 100 4561
Ársæll Sig. GK 320 4542
Gunnar Jónss. VE 555 4450
Flosi IS 15 4417
Freyja RE 38 4398
Náttfari ÞH 60 4213
Vörður ÞH 4 4207
Dagfari ÞH 70 4096
Skógey SF 53 3752
Víkurberg GK 1 3680
Sæberg SU 9 3609
Sigurbjörg ÓF 1 3601
Vonin KE 2 3479
Faxi GK 44 3294
Andvari VE 100 3153
Arnarnes HF 52 2834
Árni Magnús. ÁR 9 2669
Kári Sölmundar. RE 102 2630
Ólafur Magnús. EA 250 2541
Þórkatla II GK 197 2402
Bylgja VE 75 2342
Sóley ÁR 50 2297
Bára GK24 2190
Geir Goði GK220 2039
Bergur VE 44 2016
Snæfugl SU 20 1882
Arnar ÁR 55 1831
Sölvi Bjarna. BA 65 1834
Bjarnarey VE 501 1804
Álsey VE 502 1683
Sandafell GK82 1484
Hamravík KE 75 1400
Reykjanes GK 50 1318
Klængur ÁR 2 1154
Glófaxi VE 300 1054
HringurGK18 958
Suðurey VE 500 957
Víkingur AK 100 951
SteinunnRE32 938
Ásborg GK 52 852
Steinunn SF 10 652
90—100 umsóknir um
24 íbúðir sem VR
hef ur by ggingu á í vor
Fullbúin 2ja herbergja íbúd á 3,9 millj. kr.
NÝLEGA auglýsti Verzlunar-
mannafélag Reykjavfkur til
sölu 24 fbúðir f f jölbýlishúsum,
sem byggð verða við Valshóla.
Söluverð minnstu fbúðanna,
sem eru tveggja herbergja, er
áætlað 3.9 milljónir. Þetta er
allmiklu lægra verð en tfðkast
á almennum fasteignamarkaði,
en verðið miðast við íbúðirnar
fullbúnar samkvæmt bygg-
ingarvfsitölu f desember-
mánuði s.l.
Hér er um að ræða þrjú hús,
sem reist verða á sömu lóðinni,
og eru átta fbúðir f hverju
þeirra, þar af tvær á jarðhæð.
Þessar fyrirhuguðu bygg-
ingaframkvæmdir eru nýmæli f
starfsemi Verzlunarmanna-
félags Reykjavfkur, og af þvf
tilefni átti Mbl. tal við Guð-
mund Karlsson, formann bygg-
ingadeildar félagsins, og spurði
fyrst hverjar orðið hefðu undir-
tektir félagsmanna:
— Okkur hafa borizt milli 90
og 100 umsóknir um þessar
íbúðir, og nú eftir helgi verður
dregið úr gildum umsóknum á
almennum félagsfundi. Við
teljum, að ekki sé hægt að út-
hluta íbúðunum á sanngjarnari
hátt, sagði Guðmundur.
— Hver voru tildrög þess að
félagið ákvað að hefjast handa
á þessum vettvangi?
— Það var fyrir tveimur til
þremur árum, að á félagsfundi
kom fram mikill áhugi á því að
byggja íbúðir fyrir félagsmenn
og gefa þeim kost á því að eign-
ast húsnæði á eins hagkvæmu
verði og frekast væri unnt að
bjóða. Var samþykkt á þessum
fundi að kanna möguleika og
skömmu sfðar var svo stofnuð
bygginganefnd. Um þetta leyti
var í undirbúningi úthlutun
lóða á Eiðsgranda og var sótt
þar um lóð fyrir fjölbýlishús.
Þá lóð fengum við ekki en I
haust var okkur svo úthlutað
þessari lóð við Valshóla. Nú
liggja fyrir teikningar og fram-
kvæmdaáætlun, og miðað við að
hafizt verði handa nú f vor ætti
byggingunni að verða lokið
eftir um það bil tvö ár.
— Verzlunarmannafélagið
hefur hingað til fyrst og fremst
starfað sem stéttarfélag og rfk-
ur þáttur í þeirri starfsemi hafa
að sjálfsögðu verið kjaramálin.
En það gefur auga leið, að bygg-
ing íbúðarhúsnæðis, sem
félagsmenn fá á kostnaðar-
verði, hefur ekki síður áhrif á
kjör þeirra en tíl dæmis launa-
hækkanir, sem eru sú kjarabót,
sem félagið hefur fyrst og
fremst beitt sér fyrir til þessa.
— Lánamál?
— Verzlunarmannafélagið
hefur þegar sótt um lán til Hús-
næðismálastofnunar rfkisins
fyrir allar íbúðirnar, en síðan
er ráð fyrir gert, að eigendur
taki við þeim þegar íbúðirnar
hafa verið afhentar. Skilyrði
fyrir þvf að hægt sé að fá fram-
kvæmdalán af þessu tagi er að
íbúðunum sé skilað fullbúnum
f hendur eigendanna, en ekki
t.d. tilbúnum undir tréverk og
málningu.
Að iokum sagði Guðmundur
Karlsson:
— Það er rétt að taka fram,
að þeir verðútreikningar, sem
nú liggja fyrir, eru miðaðir við
byggingavísitöluna eins og hún
var í árslok 1976, en síðan mun
bætast við hækkun bygginga-
vfsitölunnar fram til þess tíma
að byggingu lýkur og fbúðirnar
verða afhentar. Þetta áætlaða
verð, sem er á bilinu 3.9 til
tæpar 10 milljónir fyrir 2ja,
3ja, 4ra og 5 herbergja fbúðir
með lóð og annarri sameign
fullfrágenginni, gefur því vfs-
bendingu um endanlegt verð,
en í þjóðfélagi þar sem verð-
breytingar eru svo örar sem hér
er þvi miður ekki hægt að slá
byggingaverði föstu langt fram
f timann.