Morgunblaðið - 19.03.1977, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MARZ 1977
15
Rækjuveiðar heimilaðar í Öxarfirði:
Bátarnir bún-
ir seiðafælum
RÆKJUVEIÐAR hafa nú verið
heimilaðar á Öxarfirði á nýjan
leik, en sem kunnugt er hafa þær
legið niðri að mestu sfðan um
áramót vegna gffurlegs seiða-
magns f firðinum. Ellefu bátar
hafa nú leyfi tii að stunda veið-
arnar, en með þvf skilyrði að þeir
noti svokallaða seiðafælu, en til-
raunir með hana hafa gefið góðan
árangur á þessum slóðum.
Guðni Þorsteinsson fiskifræð-
ingur hefur að undanförnu verið
norður í Öxarfirði til að kynna
seiðafæluna og gera tilraunir með
hana. í samtali við Morgunblaðið
í gær sagði Guðni, að þegar þeir
hefðu gert tilraunir með seiðafæl-
una hefði verið farið á tveimur
bátum frá Kópaskeri. Var annar
búinn venjulegu rækjutrolli, en
hinn seiðafælu að auki. Drógu
bátarnir trollin hlið við hlið til
þess að hægt væri að fá sem ná-
kvæmastan samanburð.
— Fyrst áttum við í erfiðleik-
um, sagði Guðni, þar sem rækjan í
öxarfirði er svo stór, ca 150 stk.
fara í kílóið, sem er jafnbetra en
úthafsrækjan. Við gátum þv ekki
notað 60 mm. riðilinn og skiptum
síðan yfir í 80 mm. riðil og þá
fengum við mjög góðan árangur
með seiðafælunni. Afli á togtíma
reyndist þá vera 400 kg. af rækju,
þar sem seiðafælan var notuð, en
600 kg. þar sem rækjutrollið var
notað eitt.
Þá sagði Guðni, að úr hverjum
1000 kg., sem fengizt hefðu í troll-
ið með seiðafælunni, hefðu feng-
ist 628 ýsuseiði, 427 síldarseiði og
42 þorskseiði að meðaltali. í
rækjutrollið fengust hins vegar
úr hverjum 100 kg. 1154 ýsuseiði,
1922 síldarseiði og 356 þorskseiði,
þannig að munurinn er gífurleg-
ur.
S.l. mánudag var öllum bátun-
um síðan heimilað að hefja rækju-
veiðar á ný ef þeir notuðu seiða-
fælu. Fóru bátarnir 11 strax út til
veiða og reyndist meðalafli á tog-
tíma vera 311 kíló. Fengu bátarn-
ir að meðaltali 101 ýsuseiði, 205
síldarseiði og 15 þorskseiði pr.
311 kíló, sem telst vera í lagi. Var
því veiðin heimiluð áfram.
Að lokum sagði Guðni, að sjó-
Þorrablót í
Washington
ÍSLENDINGAFÉLAGIÐ í
Washington, D.C., hélt sitt árlega
þorrablót 5. marz sl.
Þorrablótið sóttu 275 manns
víðsvegar að úr Bandaríkjunum.
Á borðum var þorramatur, sem
Flugleiðir fluttu endurgjaldslaust
frá Islandi. Flugleiðir gáfu einnig
flugfarmiða, sem var aðalhapp-
drættisvinningur kvöldsins og frú
Hallfríður Guðbrandsdóttir
Schneider hreppti.
Heiðursgestir kvöldsins voru
fraú Ágústa Thors og Aage Lor-
ange, píanóleikari, sem kom frá
íslandi gagngert til að skemmta
Þorrablótsgestum og tókst mjög
vel.
Ræðumaður kvöldsins var Da-
vid Kickerson frá bandariska ut-
anríkisráðuneytinu.
Formaður stjórnaði þorrablót-
inu af miklum skörungsskap. Aðr-
ir I stjórn félagsins eru Hallfríður
Guðbrandsdóttir Schneider, Ás-
geir Pétursson, Kristin Wheeler
og Peter Colot.
©
menn vi Öxarfjörð hefðu tekið
seiðafæluna upp af frjálsum vilja.
í vetur þegar seiðamagnið hefði
verið sem mest hefðu þeir haft
samband við Hafrannsóknar-
stofnunina, sagt frá seiðafjöldan-
um og spurt hvað ætti að gera.
Væri því framkoma þessara
manna gagnvart ungviðinu til
mikillar fyrirmyndar.
Bandarísk-
ir kennarar
í heimsókn
HÓPUR bandariskra kennara,
sem komnir eru á eftirlaun, kem-
ur i heimsókn til íslands í dag,
alls um 20 menn. Munu þeir
dvelja á íslandi í nokkra daga,
skoða Reykjavik og ferðast til
Akureyrar og viðar. Sams konar
hópur kom s.l. ár.
Skemmtun danskennara
Danskennarasamband is-
lands gengst fyrir fjölskyldu-
skemmtun í Súlnasal Hótel
Sögu á morgun, sunnudag, kl.
14.00. 1 fréttatilkynningu frá
sambandinu segir, að þarna
gefist tækifæri fyrir alla fjöl-
skylduna að fara saman út og
skemmta sér, þvi börnin fái að
dansa auk þess sem nemendur
og kennarar dansskóla Sigvalda
og Ileiðars Ásvaldssonar sýni
nokkra dansa. Á þessari
skemmtun gefst tækifæri til að
sjá það, sem kennt er i dans-
skólunum.
Fyrrnefnd skemmtun verður
ekki endurtekin, en hins vegar
efnir sambandið til dansleikja i
Tónabæ tvo sunnudaga fyrir
unglinga. Danssýningar verða á
þessum dansleikjum. Sá fyrri
verður á morgunn, sunnudag,
kl. 19.00 til 22.00 og er ætlaður
12 og 13 ára krökkum, en
sunnudaginn 27. marz verður
dansleikur, sem ætlaður er 14
og 15 ára unglingum. Hefst
hann kl. 20.00 og lýkur kl.
23.00. Aðgöngumiðar verða
seldir i dansskólum borgarinn-
ar og við innganginn ef ekki
verður þegar orðið uppselt.
Félagar Danskennarasam-
bandsins eru liðlega 20 og hafa
unnið að undirbúningi fyrr-
nefndra skemmtana, en stjórn
sambandsins skipa Guðbjörg
Pálsdóttir, formaður, Edda Rut
Pálsdóttir, Iben Sonne Bjarna-
son, Klara Sigurgeirsdóttir og
Heiðar R. Ástvaldsson.
Björn Th. Björnsson.
Norræn
kvöldvaka
í Kópavogi
Norræna félagið i Kópavogi
efnir til kvöldvöku sunnudaginn
20. marz kl. 20.30 í Hamraborg 11.
Andrés Kristjánsson skólafulltrúi
skýrir frá úrslitum ritgerðarsam-
keppni meðal skólabarna um
vinabæinn Kópavog. Félagið
efndi til þessarar samkeppni i
tengslum við norrænu menning-
arvikuna I kaupstaðnum á liðnu
hausti. Barnakór Kársnesskóla
syngur og Björn Th. Björnsson
listfræðingur leiðir fundarmenn
um íslendingaslóðir I Kaup-
mannahöfn með myndum og tali.
Allir eru velkomnir.
Ályktanir um
og atvinnumál
AÐ undanförnu hafa borizt
blaðinu fjöldamargar ályktanir
um kjara-, atvinnu- og skattamál,
sem ýmis stéttarfélög hafa gert á
fundum sfnum og þingum. Hér á
eftir verða nú stuttlega raktar
þessar ályktanir og það helzta
sem þær hafa að geyma.
Sameiginlegur fundur fulltrúa-
ráðs, stjórnar og samninganefnd-
ar Sambands fsl. barnakennara
mótmælir þeim starfs- og launa-
kjörum sem fslenzkum kennur-
um er gert að búa við og eru
algerlega óviðunandi, segir f frétt
frá SÍB. Þá lýsir fundurinn
einnig yfir óánægju með mis-
ræmi það, sem rfkir um kennslu-
skyldu grunnskólakennara og
krefst að hún verði jöfnuð f
næstu samningum.
Sambandsstjórn Sjómannasam-
bands íslnds beinir þeim tilmæl-
um til aðildarfélaga sjómanna-
sambandsins og annarra félaga,
sem fara með málefni sjómanna,
að þau segi upp gildandi kjara-
samningum fyrir 15. marz.
Múrarasamband íslands hefur
einnig skorað á aðildarfélög sín
að segja upp kjarasamningum
eigi siðar en 31. marz.
Á félagsfundi Félags járn-
iðnaðarmanna var samþykkt
ályktun; sem segir m.a.: Telur
félagsfundur járniðnaðarmanna
að bregðast eigi þannig við verð-
hækkunarráðstöfunum stjórn-
valda að verkafólk efli með sér
víðtæka samstöðu og undirbúi
sem bezt samstillta uppsögn
kjarasamninga og kröfugerð.
Fundir í Iðju félagi verksmiðju-
fólks, mótmælir framkomnu
INNLENT
Frá lögreglunni:
Óskað eftir vitnum
SLVSARANNSÓKNARDEILD
lögreglunnar hefur beðið
Morgunblaðið að auglýsa eftir
vitnum að eftirtöldum ákeyrsl-
um. Sfmarnir hjá lögreglunni
eru 11166 og 10200.
Miðvikud. 9. marz. Ekið á bif-
reiðina G-2731 Citroen GS
fólksb. árg. 1974, bláa að lit, þar
sem hún stóð á bifreiðastæði
við Verzlunarskólann við
Grundarstig á timabilinu kl.
21:00—23:30. Skemmdir:
Hægri afturhurð og höggvari
dældað og skemmt.
Laugard. 12. marz. Ekið á bif-
reiðina R-9710 Volvo fólksb.
árg. 1967 dökkgræna að lit, þar
sem hún stóð við Miðtún 15, á
tímabilinu kl. 15:00—17:00.
Skemmdir. Framhöggvari
dældaður.
Laugard. 12. marz. Ekið á bif-
reiðina R-51770 Ford sendi-
ferðab. árg. 1977 rauða að lit,
þar sem hún stóð á bifreiða-
stæði við Torfufell 23 eða á
Háaleitisbraut. Þetta mun hafa
átt sér stað á tímabilinu kl.
23:00 þann 12. þar til kl. 08:00
morguninn þann 13. marz, þá á
móts við Torfufell, en annars
fyrir hádegið á Háaleitisbraut-
inni sama dag. Skemmdir:
Vinstra Framaurbretti og
vinstri hurð dældað og var hvít-
ur litur í skemmdinni sem var í
75—110 cm hæð.
Mánudag, 14. marz. Ekið á
bifreiðina R-52125 Austin Mini
fólksb. árg. 1977 mosagræna að
lit, þar sem hún stóð að austan
verðu við Faxaskála Eimskipa-
félagsins (Gamla Kalkofs-
veginum), á tímabilinu kl.
08:40—17:45.
Mánud. 14. marz. Ekið á
barnakerru sem hafði verið
skilin eftir við gróðurhúsið
Grænuhlið v/Bústaðaveg á
tímabilinu kl.
17:30—18:00.Talið er að tjón-
valdur sé blár Ford Bronco með
hvitan topp sem sást fara þarna
á brott á þessum tima.
Þriðjud. 15. marz. Ekið á bif-
reiðina R-29250 Cortina
•fólksb.árg. 1974 brúna að lit,
þar sem hún stóð á gamla
Kalkofnsveginum, austan Faxa-
skála, á tímabilinu kl.
13:00—16:00. Skemmdir:
Hægra framaurbretti og stefnu-
ljósker.
kjara-
frumvarpi um skattamál og skor-
ar á forsvarsmenn ASÍ að vera á
verði gagnvart frumvarpinu og
telur einnig að endurheimta verði
kaupmátt launa, eins og hann
hefur verið beztur áður.
Fundur verkalýðsfélaganna á
Akureyri lýsir yfir að stefna beri
að þvi í samningum á komandi
vori að kaupmáttur launa verði
ekki lakari en hann var beztur á
árinu 1974.
Þing Alþýðusambands Suður-
lands telur að ljúka verði varnar-
baráttu í kjaramálum og óhjá-
kvæmilegt sé að stórhækka hin
almennu verkamannalaun og
skuli lágmarkslaun ekki vera
lægri en 120 þúsund kr. fyrir dag-
vinnu. Þingið telur einnig að
árangursrikasta aðferð við ba-
ráttu fyrir bættum kjörum sé sú
að verkalýðsfélögin komi fram
sem ein heild gagnvart atvinnu-
rekendum og stjórnvöldum. Um
atvinnumál segir þingið að stuðla
beri að aukinni nýtingu auðlinda
landsins og fjölbreyttara atvinnu-
lifi. Þingið telur einnig að hraða
verði uppbyggingu atvinnulifs á
Suðurlandi og að leggja beri
áherzlu á brúargerð yfir ölfusár-
ós.
Sveinafélag málmiðnaðar-
manna á Akranesi mótmælir
verðhækkunum og skorar á
miðstjórn ASÍ að bregðast hart
við versnandi lífskjörum, og i
ályktun félagsins um atvinnumál
segir m.a. að vernda beri iðnaðinn
með lækkun tolla á hráefni og
betri lánafyrirgreiðslu. Kjara-
málaályktun félagsins segir m.a.
að stefna beri að sömu lífskjörum
hér og á hinum Norðurlöndunum.
í ályktun Iðnnemasambands
íslands um kjaramál, sem gerð
var á kjaramálaráðstefnu sam-
bandsins, segir m.a. að verðbólga
hafi haft þær afleiðingar að kaup-
máttur launa verkafólks hafi
minnkað og styður hún þá kröfu
kjaramálaráðstefnu ASÍ um 100
þúsund króna lágmarkslaun á
mánuði. Einnig er bent á að iðn-
nemar séu sennilega ein lægst
launaða stétt landsins, eins og
segir í ályktuninni og kröfur um
verkfallsrétt iðnnema eru
áréttaðar.
I * «lllltlfl IIItllflti I I 1