Morgunblaðið - 25.03.1977, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1977
17
Ifi Þ. Gfslason alþingismaður og heiðursgesturinn Trygve Bratteli,
rum forsætisráðherra Noregs.
s Atla Heimis, sem hér sést ásamt söngflokknum Hljómeyki
ilmars Ólafssonar, formanns Norræna Félagsins. Á myndinni
istján Eldjárn, Geir Hallgrlmsson forsætisráSherra og frú, Bratteli
BIÐSKÁKIR Larsens og
Portisch, Korchnois og
Petrosjans voru tefldar í gaer
og lauk báðum skákunum með
jafntefli. Á morgun verða tefld-
ar skákir í öllum einvígjunum
nema þvi, sem fram fer á ís-
landi, Spassky og Hort mætast
hins vegar við skákborðið á
sunnudaginn kl. 14.
Larsen
fann stór-
snjalla leið
BENT Larsen fann stórsnjalla
jafnteflisleið í biðskák sinni úr
níundu umferð einvfgisins við
Portisch. Þrátt fyrir þetta jafn-
tefli er þó óhætt að fullyrða að
aðstaða Larsens er mjög erfið
þar sem hann hefur aðeins
hlotið 3H vinning gegn 5‘A
vinningi andstæðingsins.
Svart: Lajos Portisch
Hvítt Bent Larsen
41. Hf7! (Eini leikurinn. 41...
Hb6 yrði nú svarað með 42.
Rf5) — Kg8, 42. Hc7 — IIf6
(Eftir 42. ... Hb6 43. Hgl!
Hxh2+ 44. Kd3 heldur hvitur
jafntefli eftir bæði 44. . . .
Hxb3+ 45. Kc4 Hc3+ 46. Kd5
Hxe3 47. Hgxg7+ með þráskák
og 44. ... g6 45. Rd5 He6 46.
Re7 + ) 43. Rf5 (43. Hgl hefur
nú ekkert að segja vegna 43.. .
Hxh2+ 44. Kd3 Hf7)
Larsen fann stórsnjalla
jafnteflisleið, en stendur þó
höllum fæti F einvíginu.
43. ... g6, 44. Hc6! (Með þessari
litlu fléttu nær hvítur upp-
skiptum sem létta svo mikið á
stöðu hans að honum er kleift
að ná jafntefli) — Hxc6, 45.
Re7+ — Kf7, 46. Rxc6 — g5, 47.
b4 — cxb4, 48. Rxb4 — Kf6, 49.
Rd5+ — Ke6, 50. Rc7+ — Kf7,
51. Rb5 — Bc5, 52. Rc7 — Kf6,
53. Rd5+ — Kg6, 54. IIcl —
Hxh2+, 55. Kd3 — Bd4, 56.
Hc6+ — Kf7, 57. Ilf6+ — Ke8,
58. Hf5 — g4, 59. fxg4 — h4,
(Eða 59. ... hxg4 60. Hg6 Hg2
61. Hxg4 Hxg4 62. Rf6+ með
jafntefli) 60. Ilh5 — Kf7, 61.
IIf5+ — Ke8, 62. Hh5 — Kf7,
63. Hf5+ Jafntefli.
Portisch aðeins feti frá
sigri.
Jafntefli
eftir þrjá
leiki
HVORUGUR reyndist hafa eft-
ir neinu að slægjast í biðskák
þeirra Korchnois og Petrosjans
úr níundu umferð einvígisins
þegar hún var tefld áfram í
gær. Var því samið jafntefli eft-
ir aðeins þrjá leiki. Korchnoi
hefur þvi enn forystu, hann
hefur hlotið fimm vinnínga en
Petrosjan fjóra.
Svart: Tigran Petrosjan
41. e5 Rb2+ 42. Kc3 Ra4+ 43.
Kd3 Rb2+ Jafntefli.
eftir MARGEIR
PÉTURSSON
Gunnar Thoroddsen um Blönduvirkjun:
STÓRVIRKJUN utan eld-
virknisvæda naudsynleg
Hart deilt um virkjunina í neðri deild í gær
GUNNAR THORODDSEN,
iðnaðar- og orkuráðherra,
mælti í gær fyrir stjórnar-
frumvarpi að heimildar-
lögum til virkjunar
Blöndu í Blöndudal í
Austur-Húnavatnssýslum.
Samkvæmt fyrstu frum-
varpsgrein skal ríkis-
stjórninni heimilt að fela
væntanlegri Norðurlands-
virkjun eða öðrum aðila að
reisa og reka vatnsafsstöð
við Blöndu með allt að 150
MW afli.
Ráðherra vitnaði til fyrirliggj-
andi rannsókna, sem sýna, að
Blönduvirkjun er í hópi hag-
kvæmustu vatnsaflsvirkjana á
íslandi. Hún er fyrsta stórvikjun
okkar, sem áformað er að reisa
utan eldvirknisvæða og rriikilvæg
sem slik af öryggisástæðum. Hún
er mjög vel staðsett gagnvart
aðalorkuflutningslínu milli
Norður og Suðurlands og einnig
með orkuflutning til Vestfjarða i
huga. Meðal kosta virkjunarinnar
eru mjög góðir miðlunarmögu-
leikar, sem stuðla að betri nýt-
ingu virkjunarinnar milli árstíða
og auka rekstraröryggi. Samteng-
ingu landshluta fylgir sá kostur
að vatnsorkan ný.tist betur vegna
þess, að rennsli vatnsfalia í mis-
munandi landshlutum fylgist
ekki að. Þá gerði ráðherra grein
fyrir orkuspám, sem sýna þörf
fyrir slíka virkjun, til viðbótar
fyrri virkjunum og væntanlegri
Hrauneyjafossvirkjun, þegar .
kemur fram á næsta áratug. Ráð-
herra lagði áherzlu á, að hér væri
um heimildarlög að ræða, en venj-
an væri sú, að slík lög væru til
staðar, áður en lagt væri út í
kostnaðarsamar lokarannsóknir,
sem var nauðsynlegur undanfari
endanlegar ákvarðanatöku.
Páll Pétursson (F) 3ji þing-
maður Norðurlandskjördæmis
vestra, mælti hart gegn virkjun-
inni; taldi hana spilla afréttar-
löndum og veiðivötnum og tengj-
ast hugsanlegum stóriðjufram-
kvæmdum í landshlutanum. Boð-
aði hann flutning tillögu tilþingsr
ályktunar um könnun virkjunar í
Héraðsvötnum í Skagafirði, við
Villinganes, 32 MW virkjunar,
sem fullnægði að hans mati orku-
þörf nyrðra ásamt öðrum fyrir-
huguðum framkvæmdum í orku-
málum. Sagði hann meðflutnings-
menn að þessari tillögu sinni
vera: Ragnar Arnalds (Abl).
Stefan Valgeirsson (F), Stefan
Jónsson (Abl). Steingrim
Ilermannsson (F) Jónas Arnason
(Abl) og Inga Tryggvason (F).
Sighvatur Björvinsson (A) mælti
og gegn virkjuninni og gerði
nokkrar fyrirspurnir hana varð-
andi, m.a. hvort frumvarpið væri
flutt með samþykki ríkisstjórnar-
innar og stuðningsflokka hennar.
Pálmi Jónsson (S) og Eyjólfur
Konráð Jónsson (S), þingmenn
úr Norðurlandskjördæmi vestra,
mæltu með frumvarpinu, og töldu
það styðja eitt helzta hagsmuna-
og framfaramál kjördæmisins.
auk þess sem hér væri um þjóð-
hagslega gott mál að ræða. Frám-
sögu ráðherra, sent og máli ann-
arra þingmanna, verða gerð nán-
ari skll á þingsíóu blaðsins siðar