Morgunblaðið - 07.04.1977, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1977
77
Mestallt
fauká
hafút
fíabb við Jón Krist/ánsson
sem þá var meðal nemenda
Jón Kristjánsson, sem nú er
búsettur á ísafirði, var einn
þeirra nemenda sem voru I
skólanum þegar þetta gerðist
og var hann þá á ellefta
aldursári. Jón minntist
atburðarins á þessa leið:
„Ég minnist þess að þegar við
vorum I einni kennslustund-
inni sáum við hvernig hviða f
fjallinu þyrlaði upp mold og
grjóti og rúðurnar tóku að
brotna. Kennslukonan kailaði
upp að við skyldum forða okkur
út, en til þess kom ekki þvf að
það næsta sem ég man er að ég
fór beint úr húsgrunninum út á
lóðina fyrir utan, það þurfti
ekki að fara f gegnum neinar
dyr. Allt þetta gerðist á einu
augnabliki.
Ekki meiddist ég neitt,
frekar en flestir en nokkrir
skárust þó og voru fluttir á
spftalann á ísafirði, En allir
urðu mjög hræddir og sjálfsagt
eimir enn eftir af þeirri
hræðslu þó að maður geri sér
ekki grein fyrir þvf.
Það eina sem stóð eftir af
skólanum var forstofan, þar
sem yfirhafnir og skótau var
geymt og þegar menn höfðu
áttað sig á þvf hvað gerst hafði
var það sótt þangað og borið til
okkar, sem þá biðum f næsta
húsi. Sfðan fórum við hvert
heim til sfn, við sem ekkert
vorum meidd. Áður höfðu
krakkar verið að týna saman
það sem fannst heillegt af dóti
fyrir utan skólann, töskur, og
aðra hluti, sem höfðu fokið út
um allt, uppi f hlfð og úti á
túni, en mest af okkar skólavör-
um týndist alveg. Þá má nefna
að þak skólans fór t.d. á haf út
ásamt fleira braki.
Skólinn var 2 kennslustofur
og kjallari undir annarri og þar
niðri var orgel, sem klemmdist
á milli gólfa þegar allt fauk og
úr kjallaranum fór allt út um
allt.
Jón Krist jánsson sagði einnig
að kennsla hefði hafizt nokkru
seinna f samkomuhúsi Hnffs-
dals og hefði verið kennt þar
fram að næstu áramótum er
nýtt skólahús var tekið f
notkun. Það var byggt hinum
megin við götuna, á móti þvf
gamla.
Vorum
ímiðri
kennsiustund
sagði skólastjórinn
Kristján Jónsson, sem var
skólastjóri barnaskólans, þegar
þetta gerðist er nú kominn á
áttugasta árið og kvaðst ekki
muna svo gjörla eftir þessu:
— Eg man það þó að við
vorum í miðri kennslustund, og
voru f skólanum þennan
morgun um 30—40 nemendur.
Þá heyrum við hviðu úti fyrir
og rúðurnar brotna og sfðan
brotnar allt. Ég féll f öngvit og
mér hefur síðan stundum hætt
til að fá aðsvif, ég hafði t.d.
spilað við messur, en ég hætti
þvf fljótlega, þvf ég fann að ég
var ekki eins vel upplagður til
þess og áður.
— Það sem eftir var vetrar
var kennt svona hingað og
þangað um þorpið meðal
annars í ungmennafélags-
húsinu, en það var annars strax
hafist handa um að byggja nýtt
skólahús. Nýi skólinn var reist-
ur á svipuðum stað, hinum
megin við götuna og við fórum f
hann að mig minnir næsta
haust.
EF ÞAÐ ER FRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Al (ÍI.YSINfiA-
SÍMINN KH:
22480
Hrein mi/di
að ekki
fór verr
sagói Kjartan Jóhannsson læknir
— Við vorum í miðjum upp-
skurði, sagði Kjartan Jóhanns-
son læknir, þegar blm. leitaði
til hans á dögunum og bað hann
að rif ja upp þennan eftiminni-
lega atburð f Hnffsdal fyrir 24
árum, og við flýttum okkur af
stað úteftir. Við gripum það
sem nauðsynlegast var til
skyndihjálpar, en við vissum
Iftið um hverju við gætum átt
von á.
— Þegar ég ók úteftir var
mjög hvasst og þegar ég nálg-
aðist Hnffsdal sá ég hvar vöru-
bfll hafði fokið út af veginum,
en hann var enn á hjólunum og
ekkert virtist alvarlegt hafa
gerst með hann. Nú þegar við
komum að var búið að koma
nokkrum börnunum fyrir f
næsta húsi við skólann og
fyrsta verkið var að róa þau og
man ég að þurfti að gefa nokkr-
um barnanna sprautur til að
róa þau, en þau höfðu orðið
mjög hrædd.
— Húsið sem þau höfðu verið
flutt f var steypt að mig minnir,
eða a.m.k. með steyptum kjall-
ara eða neðrihæð, þar sem við
vorum og ég man að við reynd-
um að róa börnin með þvf að
þetta væri steinhús, sem myndi
ekki geta fokið, þau gætu þvf
verið alveg róleg. Nú, — sfðan
þurfti að koma þeim slösuðu f
sjúkrabflinn og þegar hann
kom á vettvang sáum við að
þurfti aukasjúkrabörur.
— Þá man ég það að þegar ég
ók inn til lsafjarðar aftur var
ég feginn að hafa farþega f
bflnum, þvf það var ekkert auð-
velt að aka f þessu roki og
reyndi sem best ég kunni að
halda bflnum á veginum, en
ekki er vfst að það hefði tekizt
án þessa aukaþunga sem ég var
með, en það voru nokkrir ætt-
ingjar þeirra, sem þurftu að
fara á spftalann sem fóru með
mér. Nú þeir sem slösuðust
náðu sér að mig minnir nokkuð
fljótt, sagði Kjartan Jóhanns-
son að lokum, en það sem allir
voru hissa á var það að ekki
skyldi verr fara og það var
áreiðanlega hrein mildi að
börnin skyldu ekki slasast
meira en var.
Your
er boði
að skoða 2 DAS-hús, sem bæði eru vinningar á næsta
happdrættisári.
Hæðabyggð 28, Garðabæ
- aðalvinningur ársins.
Verðmæti 30 milljónir.
Dregið út í 12. fiokki.
Sýnt með öllum húsbúnaði.
Furulundur 9, Garðabæ
- dregið út strax í júlí.
Verðmæti 25 milljónir.
Húsin verða til sýnis alla virka daga kl. 18.00-22.00 en um
helgar og á helgidögum kl. 14.00 - 22.00.
Lokað föstudaginn langa.
Happdrættí
DAS