Morgunblaðið - 07.04.1977, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1977
75
FRÁ LEHBEIRINGASTðÐ HÚSMÆÐRA
Heimilisstörfin koma
meira niður á húsmóð-
urinni en húsbóndanum
Eru heimilis-
störfin tímafrek?
Konur nota að jafnaði 4 klst.
og 30 mín. til að inna af hendi
dagleg heimilisstörf, en karl-
menn 1 klst. og 7 mín. Tíminn
sem fer i eftirlit með börnum
er ekki tekinn með. Börnin á
heimilunum tóku naumast
nokkurn þátt í heimilisstörf-
unum.
Þetta voru niðurstöður rann-
sóknar sem Konsumentverket í
Svíþjóð gerði varðandi þann
tíma sem fer til heimilsstarfa
hjá 110 barnafjölskyldum.
Allar f jölskyldurnar áttu a.m.k.
eitt barn innan 6 ára aldurs og
bjuggu í þriggja eða fjögurra
herbergja íbúðum I fjölbýlis-
húsum i næsta nágrenni Stokk-
hólms. Rúmlega helmingur
kvennanna stundaði eingöngu
heimilisstörf á eigin heimilum,
hinar unnu úti hálfan eða allan
daginn. Karlmennirnir stund-
uðu vinnu utan heimilis allan
daginn nema tveir, sem unnu
heima oe tveir sem unnu úti
hálfan daginn: Margir karl-
menn stunduðu likamlega
erfiðisvinnu. Hérumbil allar
fjölskyldurnar áttu bifreið og
eitt eða fleiri reiðhjól. Nokkrar
fjölskyldur höfðu barn i gæslu
yfir daginn, var það algengast
hjá þeim sem áttu tvö eða þrjú
börn.
Karlmenn
þvo ekki
þvottinn
Æði mikill munur var á þeim
tíma sem konur og karlmenn
notuðu til þvotta- og ræsti-
starfa. Á virkum dögum sáu
konurnar um ræstistörf að jafn-
aði 1 klst. á dag en karl-
mennirnir 4 mín. Ef tölurnar
eru skoðaðar betur kemur I ljós
að konur sem vinna heima
stunda ræstistörf í 66 mín. á
dag en konur sem vinna úti í 54
min. og karlmenn sem vinna úti
í 2 mín.
Um helgar tóku karlmenn-
irnir að sér dálitið stærri hlut
af ræstistörfunum og notuðu 9
min. til þeirra verka á laugar-
dögum og 24 min. á sunnu-
dögum, en konurnar stunduðu
þá ræstingu ýmist 45 eða 48
min.
Þvotturinn virðist ekki valda
karlmönnum neinum vanda-
málum. Þeir þvoðu þvott að
jafnaði i 3 min. á dag en um
helgar var enginn þvottur hjá
þeim. Kónurnar þvoðu hins-
vegar að jafnaði í 15 min. á
virkum dögum, 9 mín. á laugar-
dögum og 11 mín. á sunnu-
dögum. Þeir sem unnu heima
eyddu ekki nema nokkrum
mín. í þvottastörf um hel'gar en
þeir sem unnu úti notuðu um
það bil 15 min. I þvottastörf
bæði laugardaga og sunnudaga.
Karlmenn eyddu engum tíma i
að ganga frá þvottinum, brjóta
hann saman og slétta hann en
konur næstum því 15 min. á
dag.
Matreiðsla og
uppþvottur tekur
lengstan tfma
Innkaup, matreiðsla, upp-
þvottur og frágangur eftir mat-
inn eru þau heimilisstörf sem
taka lengstan tíma eða um 60%
af þeim tima sem notaður er til
heimilisstarfa ef timinn sem
fer í að hafa eftirlit með börn-
um er ekki talinn með.
Að jafnaði tekur það 47 min.
að versla, fara á pósthús og í
banka, 1 klst. og 30 min. að
skipuleggja og laga mat og 46
mín. að þvo upp og ganga frá
eftir matinn.
í flestum fjölskyldum sáu
konurnar um þessi störf. En I
þeim fjölskyldum þar sem full-
orðna fólkið vinnur úti er al-
gengara að það hjálpist að.
Það er tímafrekt
að eiga
börn og húsdýr
Að jafnaði er það 1 klst.
vinna á dag að hreinsa íbúðina,
22 min. að sjá um húsdýr fjöl-
skyldunnar, 16 min. að þvo
þvottinn og 14 mín. að ganga
frá honum.
Þar sem þrjú börn voru eða
fleiri var lengri tíma varið til
heimilisstarfa en I fjölskyldum
þar sem færri börn voru. Fjöl-
skyldur sem áttu eitt eða fleiri
húsdýr notuðu einnig meiri
tima i heimilisstörfin.
Störfin tóku lengstan tíma
hjá þeim fjölskyldum sem áttu
þrjú eða fleiri börn og fleiri en
eitt húsdýr eða um 60% lengur
en meðaltimann.
Ræsting
eðainnkaup
á laugardögum
Þar sem konan vinnur heima
var 30% meiri tima varið til
heimilisstarfa á virkum dögum
en hjá þeim fjölskyldum þar
sem konan vinnur úti allan dag-
inn. Þær síðarnefndu notuðu
hins vegar 20% meiri tíma á
laugardögum til þvotta og ræst-
inga.
Á sunnudögum notuðu báðar
fjölskyldur jafnlangan tima við
heimilisstörfin en þær notuðu
tímann á ólíkan hátt. Þar sem
konán vann heima var verslað
(I Svíþjóð hafa sumar verslanir
opið á sunnudögum), lagaður
matur og þvegið upp, en þar
sem konan vann úti var þveg-
inn þvottur og íbúðin hreinsuð.
Bifreið
fjölskyldunnar
notuð við
innkaupastörfin
Mjög algengt er að laugardag-
arnir séu notaðir til að versla,
þó aðallega hjá þeim fjöl-
skyldum þar sem konan vinnur
heima. Fjölskyldan notar þá
bifreiðina og kaupir mikið i
einu. Á virkum dögum er bif-
reiðin ekki notuð til innkaupa-
ferða, þar sem maðurinn notar
hana til að komast I vinnu, og
það tíðkast yfirleitt ekki að
hann versli mikið fyrir heim-
ilið. Á virkum dögum sjá
konurnar um innkaupin og
bera heim allar vörur hvort
sem þær vinna úti eða eingöngu
heima. Flestar konur versla á
hverjum degi og var matvöru-
verslun innan við 10 minútna
gang frá heimilinu hjá þeim
fjölskyldum sem tóku þátt I
rannsókninni.
Konsumentverket hefur í
hyggju að framkvæma ýtarlegri
rannsókn á heimilisstörfunum
og að notfæra sér þær rann-
sóknaraðferðir sem notaðar
voru í þessari litlu rannsókn.
Menn vonast til að fá þá örugg-
ari niðurstöður þvi ekki er vist
að niðursstöður þessarar litlu
rannsóknar gildi fyrir öll heim-
ili, þótt menn hafi að vísu grun
um það.
S.H.
Nýskipaður sendiherra
Belgíu Chevalier Pierre
Anciaux Henry de Fave-
aux afhenti fyrir nokkru
forseta íslands trúnaðar-
bréf sitt að viðstöddum
utanrikisráðherra Einari
Ágústssyni.
Síðdegis þá sendiherr-
ann boð forsetahjónanna
að Bessastöðum ásamt
nokkrum fleiri gestum.
ÆTLIÍ> t>IB> AP FERÐAST?
A&V«ÖÍ> 44F
A.-r«Vy<SKI VlOOAB. />L AÆ? TVZY&OcJA SUS 0<S FXOAMefOB^
imu fvcir 4Iimom V( æv\ vookjkj a. MttfcA/sj
Tie> ERlÆMD .
HF BYc£>u‘R- yuJ6oe_ Míáfr roLUtoMNA RHt'í- «ltt
Ssha ÞieTrt*- yvococ- w-A- 6t=TierAPANii» tcxím :
^»CV#4T>|1.EG Ve4IC«MT»l . LJV4<>4i*u:oSTMA!E>o«.,A.vjvOrutos*cMA«t>oa.
V'ecSrMA. P/*Ej© IS OOe -H-ÓSM6-OIS, lOÖSCMAtXJU- V|J> +tetMFí-OtM|M<*\
S. 6©P - AuKAdíosrMAitooa- veaiMAc , eMX>o«<»eeit>SLA
C>MOnv*>s WAÆKR .
A-. * SkAí5A«iárActa2AroB. ve<tMA« AotL-jA'ie^-a-c
E-ÐA- é>+V/A-prs .
5. FAtZ-AHGUf^ - *»:7©rM#^o®-( SiGBmmDIP- \ Ft-UTMc» t>-R
LAÍTlfc SfVlZJÁST A«C> piE> Fe*-ÞIST Ór42-y«dr€> ! 22 DAO-A
TB.V6aiM.efc TVUIQ. H3ÓM, SuysArSftToB- 1 MIU-3ÓM FVBlR- HOoBT ( UÍdST AB.
Áe»EiMS TOaI \OL. 3.ZSO (fséliLA'C-.iNAiiFAt-iNN')- LeiTlt) FB.CJÍAUI UPBLysiMÆA *
ÁBYRGD” TRYGGINGAFÉLAG FYRIR BINDINDISMENN
' SKÚLAGÖTU 63— REYKJAVÍK — SÍMI 2 61 22