Morgunblaðið - 01.05.1977, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 01.05.1977, Qupperneq 14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. MAÍ 1977 45 Tö!vangurH/F Nýtt þjönustu- fyrirtœki ö sviði tölvubókhalds UM ÞESSAR mundir er aö taka til starfa nýtt fyrirtæki á4. hæð hússins nr. 36 við Glerárgötu. Það heitir Tölvangur h/f, og mun annast tölvubókhald fyrir ýmis fyrirtæki, einkum á Akur- eyri. Síðar er hugsanlegt, að það færi út kvíarnar, stækki viðskiptasvæði sitt og taki að sér annars konar verkefni af ýmsu tagi. Hluthafar eru 14 fyrirtæki: Aðalgeir og Viðar h/f, Fasteignasalan h/f, Hibýli h/f, íspan h/f, K. Jónsson & Co h/f, Möl og sandur h/f, Norðurljós s/f, Raftækni (Ingvi R. Jóhannsson), Reynir s/f, Sand- blástur og málmhúðun h/f, Varmi h/f, Ýr h/f, Þór h/f, öll á Akureyri, og Stígandi h/f á Ólafsfirði. í stjórn félagsins eru Aðalgeir Finnsson, formaður, Mikael Jónsson, ritari, og Hólmsteinn T. Hólmsteinsson, meðstjórnandi. Framkvæmda- stjóri fyrirtækisins er Guðmundur Jóhannsson, við- skiptafræðingur og lengi Ljósm. Sv.P. Kristófer Jermiasson, tölvufræðingur, og Guðmundur Jóhanns- son, viðskiptafræðingur og framkvæmdastjóri Tölvangs h/f. bæjargjaldkeri á Akureyri, en hann er nú þessa dagana að láta af þvi starfi. Auk hans verður einn starfsmaður, Rannveig Haraldsdóttir. Isdata s/f á Seyðisfirði verður ráðgefandi um tölvurit og rekstur, en starfsmaður þess fyrirtækis, Kristófer Jeremías- son, hefir unnið að uppsetn- ingu tölvukerfisins. Tölvan er af WANG-gerð og er talin mjög fullkomið tæki. Hún getur m.a. annazt fjárhags- bókhald með útskrift af höfuð- bók, hreyfingalista og fylgi- skjalalista, launabókhald með launaseðlum, launþegalista og ýmsar skilagreinir, viðskipta- mannabókhald, birgðabókhald o.fl. Hún getur einnig leyst af hendi hin fjölbreyttustu verk- efni af ýmsu tagi, svo sem leyst flóknar stærðfræðilegar þraut- ir. Með því að tengja við hana viðbótartæki getur hún geymt 20 milljón bókstafi, leyst af hendi fjarvinnslu með því að tengja hana símalinu og sitt- hvað fleira, sem hér verður ekki upp talið, en þess má þó geta, að tölvan býr sjálf til nauðsynleg eyðublöð og fyllir þau út, svo sem launaseðla o.þ.h. Fyrst í stað tekur Tölvangur h/f einungis að sér bókhald fyr- ir hluthafa sína, en þegar reksturinn er kominn i fullan gang eftir 1—2 mánuði verður hægt að bæta við bókhaldi fleiri fyrirtækja og fleiri verk- efnum. Bókhaldið verður sniðið eftir þörfum hvers einstaks fyr- irtækis og séróskum þeirra. Unnt er að gera margs hvers konar bókhaldslegar athuganir á ýmsum þáttum rekstrarins með stuttum fyrirvara og skila stundurliðuöum upplýsingum til fyrirtækjanna. Tölvangur h/f mun, ef óskað er, fylgjast með bókhaldi og fjárhag við- skiptafyrirtækja sinna og leið- beina um rekstur þeirra. Sv.P. eru verzlanir okkar fullaraf nýjum stór glæsi- legum Wksumar Mvörum Brekkugötu 3 Hafnarstræti 94

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.