Morgunblaðið - 01.05.1977, Side 22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. MAÍ 1977
53
Meiri síld í
firöinumog þö
eykst þorskurinn lika
Loönan veidd upp Fbíla og henni beitt
TRILLUUTGERÐ frá Akureyri
stendur með miklum blóma á
þessum tima árs. Þegar
Morgunblaðsmenn voru á ferð
á Akureyri fyrir skömmu fóru
þeir niður á bryggju um kvöld-
matarleytið og voru þá þrír
„trillukarlar“ að landa afla.
Þetta var einkum rígaþorskur
og afli prýðilegur, enda
þorskur nýgenginn í Eyjafjörð,
líklega í kjölfar loðnunnar.
Fyrstan hittum við að máli
Tryggva Valsteinsson. Hann
var með góðan afla. Tryggvi var
ekki margmáll um trilluútgerð-
ina en benti á Bergstein
Garðarsson sem sérfræðing í
þessum efnum, enda nokkurs
konar konungur þeirra „trillu-
karlanna“. Bergsteinn var rétt
ókominn að landi og ekki leið á
löngu þar til Hafbjörgin kom
siglandi á spegilsléttum sjónum
og lagði að bryggju. Var Berg-
steinn tekinn tali.
„Við erum nú ekki nema
einir sex menn, sem stundum
þessar veiðar á smábátum allt
árið, en miklu fleiri hafa þetta
sem sport á sumrin,“ sagði
Bergsteinn aðspurður. „Um
sjálfan mig má segja, að ég hafi
stundað sjóinn svo að segja frá
blautu barnsbeini og yfirleitt
stundað smábátaútgerð, en á
yngri árum var ég einnig á
stærri bátum.
Héðan hafa smábátarnir
stundað þorskveiðar og það var
ekki fyrr en í fyrravor að
hrognkelsaveiðar voru reyndar
hérna í fyrsta skipti að ég held.
Aflabrögðin hafa verið sæmileg
frá áramótum hjá mér á linuna.
Það kemur ævinlega ganga hér
i fjörðinn í apríl, þorskurinn
eltir loðnuna. Þetta er fyrirtaks
fiskur og vel hefur aflazt upp á
síðkastið. Ég er til dæmis núna
með 600 kg eftir daginn. Ég
lagði línuna úti undir Hjalteyri,
þetta er hálfs annars tima stím.
Við beitum nýrri loðnu sem við
veiðum á nóttunni. Það er dálít-
ið óvanalegt hvernig við
veiðum hana. Við förum á
bílum út á Gáseyri og vöðum
svo aðeins út í sjóinn í vöðlum
og erum með litlar nætur. Það
má eiginlega segja að við
veiðum loðnuna á bílum.
Nokkur undanfarin ár hefur
verið frekar lítill fiskur í Eyja-
firði en mér finnst þorskurinn
vera að koma aftur. Hann leitar
í loðnu og sild, en síldin er
greinilega að aukast aftur í
firðinum. Hún hefur alveg ver-
ið í lágmarki undanfarin ár.
Síldin er á uppleið þegar
þorskurinn er á niðurleið,
svona gengur þetta.“
Hugmyndaflug
Nú hækkar sól óðum á lofti.
Brátt gerir ferðalöngunin vart við sig
aftur, og hugmyndaílugið fer í gang:
,,Hvað eigum við að skoða af landinu
í sumar? Hvernig gerum við leyfið
frábrugðið því síðasta?“ Jæja, hvern-
ig væri að fljúga? Sjá nýjar hliðar á
landinu. Losna við ýmis óþægindi
sem fylgja ferðalögum í bíl. Minni
tími fer í að komast milli staða.
Meira tóm gefst til að skoða og njóta
margra staða, sem þú hefur e.t.v. ekið
um, en aldrei gefið þér tíma til að
kynnast.
Hefur þú kynnt þér möguleika, sem
flugið hefur að bjóða? Til dæmis
„hringflug“ FÍ um landið? Það er
nýjung, sem margir ferðamenn hafa
reynt og líkað vel.
Við óskum þér góðrar ferðar í hug-
myndaflugi þínu fyrir sumarið, um
leið og við minnum á að það er þægi-
legt að fljúga og ódýrara en ætla
mætti. Þér er ávallt heimil lending á
söluskrifstofu okkar, ef þú vilt kynna
þér kosti flugsins.
FLUCFÉLAC ÍSLANDS
IA/A/i..........