Morgunblaðið - 07.05.1977, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1977
Verzlunarmannafélag Vestmannaeyja:
Yfirvinnubann frá
og með mánudeginum
Esja séð frá höfninni
Fyrsta Esjuganga
Ferðafélagsins í dag
Fyrsta afmælisganga Ferðafélags tslands ð Esju verður í dag kl.
13. Verður lagt á fjallið frá Kleifum, ofan við Esjuberg, upphaflega
átti að leggja upp frá Mógilsá, en hætt var við það vegna fshranna á
þeirri leið.
Þórunn Lárusdóttir, framkvæmdastjóri Ferðafélags tslands,
sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að töluverð eftirspurn hefði
verið eftir þessum gönguferðum ð Esju, t.d. hefði verið tilkynnt um
60 manna hóp úr einum skólanum f Kópavogi, og vitað væri um
nokkra skátahópa sem ætluðu að taka þátt f göngunni.
Sagði Þórunn að fólk gæti valið um hvort það færi með langferða-
bílum frá Umferðarmiðstöðinni, eða kæmi á einkabílum að Esju-
bergi. Hver sá sem tekur þátt I Esjugöngunni verður látinn útfylla
sérstakt eyðublað, auk þess sem hann færi viðurkenningarskjal
fyrir að hafa tekið þátt í þessum afmælisgöngum. Að gönguferðun-
um loknum, en þær verða 10 talsins, verður dregin þrjú nöfn úr
hópi þátttakenda og fá þeir í verðlaun ókeypis helgarferð með
Ferðafélagi Islands eftir vali.
Næsta Esjuganga F.í. verður laugardaginn 14. maí, siðan verður
gengið fimmtudaginn 19. maí, laugardaginn 21. og sunnudaginn 22.
mai. Þá verður gengið á Esju laugardag fyrir hvitasunnu og á annan
i hvitasunnu, ennfremur laugardaginn 4. júni, laugardaginn 11.
júní og sunnudaginn 12. júní. Ávallt verður lagt af stað kl. 13.
Dr. Fitzgerald á Akranesi:
Blóm Ira að minnisvarð-
anum um írskt landnám hér
STJÓRN og trúnaðarmannaráð
verzlunarmannafélags Vest-
mannaeyja samþykkti f fyrra-
kvöld yfirvinnubann frá og með
næsta mánudegi. „Það má segja,
að félagið sé ósköp máttlaust
hérna“, sagði Sigmar Georgsson,
formaður félagsins, þegar Mbl.
spurði hann um afgreiðslu þessa
máls, en félagið er það eina innan
ASl sem hefur afgreitt yfirvinnu-
bannið með þessum hætti. „Hér
er mikið um einkakaupmanninn,
þannig að yfirvinnubann kemur
aðeins við tvö fyrirtæki, kaup-
félagið og Gunnar Ólafsson &
Co“, sagði Sigmar ennfremur.
„Einhvern veginn varð það svo
ofan á að gefa þessum fyrirtækj-
um þennan frest fram vfir helg-
ina“.
Sigmar sagði, að stjórnin og
trúnaðarmannaráðið, hefðu dreg-
ið að afgreiða yfirvinnubannsmál-
ið, fyrst vegna radda um ólög-
mæti aðgerðarinnar og svo hefðu
menn viljað biða þar til afstaða
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
ályktun, sem samþykkt var á
aukaþingi Félags menntaskóla-
kennara fyrir skömmu og er hún
svohljóðandi.
„Aukaþing FM, haldið 17. apríl
1977 í Reykjavík, mótmælir af
gefnu tilefni órökstuddum dylgj-
um í garð kennara i framhalds-
skólum landsins um að þeir hafi í
frammi pólitískan áróður í
kennslustundum. Þingið telur
V.R. hefði verið ljós. En fund um
málið hefði ekki verið unnt að
halda fyrr en í fyrrakvöld. „Það
urðu ákaflega miklar umræður
um málið í stjórninni og trúnaðar-
mannaráðinu og skoðanir voru
skiptar um, hvort yfirvinnubann-
ið ætti að skella tafarlaust á, eða
hvort rétt væri að fresta þvi fram
yfir helgi. Það varð svo samkomu-
lag um síðari kostinn". sagði Sig-
mar.
Gyða Steingrímsdóttir greiddi
ein atkvæði gegn yfirvinnubanni
á fundi stjórnar og trúnaðar-
mannaráðsins. „Ég er á móti
þessu yfirvinnubanni, þvi það
bitnar einungis á okkur sjálfum“,
sagði hún í samtali við Mbl. i gær.
,,Það styttir vinnutímann, minnk-
ar kaupið og eykur álagið, því
euðvitað verzlar fólk áfram“.
Þegar Mbl. spurði Gyðu, hvort
þessi skoðun ætti við hina al-
mennu yfirvinnubannsboðun í
heild, svaraði hún: „Ég vil ekkert
segja um aðra. En svona horfa
málin við frá mínum sjónarhóli.“
þessar dylgjur ámælisverðan at-
vinnuróg. Þingið bendir á að
kennurum er skylt að stuðla að
gagnrýnni umræðu á meðal nem-
enda sinna og láta ólík sjónarmið
njóta sín. Aukaþing FM leggur
því áherslu á að krafan um að
kennarar sniðgangi viðkvæm póli-
tísk deiluefni i kennslustofunni
brýtur i bága við grundvallar-
markmið skólans“
Með ályktuninni er svohljóð-
andi greinargerð: „Undanfarnar
vikur hafa öflugir fjölmiðlar
keppzt við að telja landsmönnum
trú um að kennarar í samfélags-
fræði og íslenzkum bókmenntum
misnoti sér aðstöðu sína í pólitisk-
um tilgangi. í leiðara Morgun-
blaðsins segir,t.d.: „Einstaka
nemendur hafa í viðræðum
manna á rnilli nefnt fjölmörg
dæmi um slíka misnotkun í þess-
um kennslugreinum". Hér er ver-
ið að hvetja kennara til að leiða
hjá sér umfjöllun um ákveðnar
hugmyndir eingöngu til þess að
koma til móts við áhrifamikla að-
ila í samfélaginu. Það er engu
líkara en menn álíti að hlutverk
kennara sé fólgió i þvi að steypa
upp í vitin á nemendum.
Krafan um að þagað sé um hug-
myndir, sem stangast á við kenn-
ingar valdhafa og e.t.v. almanna-
róm, felur i rauninni í sér ósk um
að skólinn standi vörð um allar
bábiljur í samfélaginu. En slik
ósk stangast á við það markmið
skólans að efla dómgreind og víó-
sýni nemenda. Sú heimsmynd,
sem nemendur hafa tiieinkað sér
allt frá blautu barnsbeini verður
óhjákvæmilega fyrir hnjaski í
framhaldsskólunum þar sem þær
mæta efanum og rökvísinni. Til
þess er leikurinn geróur.
Þetta mál snertir vinnuaðstöðu
kennara. Umræða um störf þeirra
er sjálfsögð og eðlileg, en órök-
studdum dylgjum verða samtök
þeirra að svara."
Síldarverðið
var 440%
hærra hér
í fyrirsögn fréttar í Mbl. um
samanburð í fersksíldarverði hér
á landi og á austurströnd Kanada
i fyrra varð sú misritun að verðið
hér var sagt hafa verið 44%
hærra. En munurinn var heldur
meiri, því verðið hér var 440%
hærra á kiió, eins og fram kom í
fréttinni.
UTANRÍKISRÁÐHERRA
írlands dr. Garrett Fitzgerald,
hélt I gærmorgun ásamt fylgdar-
liði sinu með varðskipi til Akra-
ness. Á bryggju á Akranesi tók
forseti bæjarstjórnar Daníel
Ágústfnusson ásamt bæjarstjórn
og bæjarfógeta á móti dr. Fitzger-
ald. Var síðan Akranes og
nágrenni skoðað. M.a. var skoðað
dvalarheimili aldraðra sem er í
byggingu á Sólmundarhöfða, en
áður en utanrfkisráðherrann sat
hádegisverðarbo^ bæjarstórnar
Akraness, var haldið að minnis-
varðanum um landnám íra á
Akranesi. Lagði utanríkisráð-
herrafrúin, Joan Fitzgerald,
blómvönd frá rfkisstjórn írlands
að minnisvarðanum. Meðal
fylgdarfólks dr. Fitzgeralds til
Akraness var sendiherra Íslands í
Dublin, Sigurður Bjarnason, og
kona hans Ólöf Pálsdóttir.
Síðdegis hélt utanríkisráðherr-
ann aftur til Reykjavíkur, en
hann hélt gestgjöfum sínum boð
að Hótel Loftleiðum í gærkvöldi.
Heimsókn dr. Fitzgeralds lauk i
morgun er hann hélt utan með vél
Flugleiða. Hér hefur irski utan-
rikisráðherrann sem kunnugt er
átt viðræður við ýmsa forystu-
menn, þ.á m. utanrikisráðherra
og forsætisráðherra, en dr.
Fitzgerald og Geir Hallgrímsson
hittust fyrir skömmu á Bilder-
berg-fundinum.
Guðmundarmálið:
Tveir hinna
ákærðu neita
nú aðild að
morðinu
VIÐ dómsyfirheyrslur í
Guðmundarmálinu svonefnda
hafa tveir af þremur ákærðu í
málinu, þeir Sævar Marínó
Cieselski og Tryggvi Rúnar Leifs-
son, nú dregið játningar sfnar til
baka um að hafa ráðið Guðmundi
Einarssyni bana og neita nú einn-
ig að hafa verið á þeim stað þar
sem atburðinn átti sér stað.
Kristján Viðar Viðarsson sem
einnig liggur undir ákæru, heldur
hins vegar fast við fyrri framburð
sinn, svo og hefur Erla Bolladótt-
ir staðfest framburð sinn að nýju
um atvik þessa máls. Albert
Klahn Skaftason hefur einnig
aukið við frambuð sinn og ber nú,
að hann hafi verið staddur í húsi
því þar sem atburðurinn átti sér
stað. Loks kemur fram, að maður
sá, sem sóttur var til Spánar til að
bera vitni í máli þessu, hefur bor-
ið, að hann hafi einnig verið
staddur í húsinu ásamt hinum
ákærðu og manni er hann kannað-
ist ekki við. í fréttatilkynningu
Sakadóms Reykjavíkur um mál
þetta, sem birt verður i heild sið-
ar, kemur hins vegar fram að ekk-
ert hafi að öðru leyti verið í frá-
sögn mannsins umfram það sem
hinir ákærðu höfðu borið. Segir í
fréttatilkynningunni að rannsókn
þessa máls sé nú í öllum aðal-
atriðum lokið.
Fyrsti fundur
sjómanna og
útvegsmanna
á mánudag
KRÖFUR sjómanna hafa verið af-
hentar útvegsmönnum. Óskar
Vigfússon, formaður Sjómanna-
sambands islands, afhenti þær
Kristjáni Ragnarssyni, formanni
Landssambands fslenzkra útvegs-
manna, á Loftleiðahótelinu
sfðastliðinn fimmtudag. Var þá
jafnframt ákveðið, að fyrsti
samningafundur yrði haldinn á
mánudag klukkan 14.
Gert er ráð fyrir að á þessum
fyrsta fundi verði aðilar sammála
um að vfsa deilunni til sáttasemj-
ara rfkisins. Aðilar munu ekki
birta kröfurnar fyrr en eftir
þennan fyrsta fund, en svo sem
lesendum Morgunblaðsins er
kunnugt birtust meginkröfur sjó-
mánna hér í blaðinu fyrir nokkr-
um vikum.
Firmakeppni
Fáks
Árleg firmakeppni hesta-
mannafélagsins Fáks verður hald-
in á Víðivöllum við Elliðaár,
sunnudaginn 8. maí. Alls taka 237
fyrirtæki þátt í firmakeppninni
og munu margir frækilegustu
gæðingar höfuðborgarinnar
keppa fyrir fyrirtækin.
Keppt verður i tveimur aldurs-
flokkum, flokki 14 ára og yngri og
flokki fullorðinna. Veitt verða
verðlaun í báðum flokkum.
Keppnin hefst kl. 3, en knapar
eiga að mæta kl. 2 með hesta sína.
Leiðrétting
í ávarpi, sem flutt var í Nes-
kirkju 14. april sl. og birt var i
Morgunblaðinu 1. mai sl. varð af
vangá það mishermi, að Guð-
mundi Inga Kristjánssyni voru
eignaðar þessar ljóðlínur:
„Sveit er sáðmanns kirkja
sáning bænargjörð".
Rétt er að ljóðlínur þessar eru
úr ljóði eftir Bjarna heitinn
Asgeirsson, alþingismann og ráð-
herra. Bið ég afsökunar á þessum
leiðinlegum mistökum.
Ólafur Jóhannesson.
Joan Fitzgerald leggur blómvönd að minnisvarðanum um landnám
ira á Akranesi. (Ljósm. Mbl. Júlfus Þórðarson)
Félag menntaskólakennara:
„Mótmælir órök-
studdum dylgjum,,
— í garð kennara