Morgunblaðið - 07.05.1977, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 07.05.1977, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1977 Kaffisala Kvenfélags Háteigs- sóknar Frá ráðstefnu iðnskólakennara. Mæðrablómið til sölu á sunnudag A morgun, sunnudaginn 8. maí, kl. 3 e.h. gengst Kvenfélag Háteigssóknar fyrir kaffisölu i Domus Medica. Ég vil vekja athygli almennings á þessari kaffisölu, því að allt frá upphafi hafa kvenfélagskonurnar borið fram veitingar af mikilli rausn og kaffisala þessi notið verðugra vinsælda þeirra fjöl- mörgu, sem veitinganna hafa notið. Kvenfélag Háteigssóknar hefir aílt frá stofnun félagsins innt mjög gott starf af höndum til efl- ingar Háteigskirkju og hafa kon- urnar sýnt mikla fórnfýsi og dugnað. Verkefni kvenfélagsins nú er að afla fjár til kaupa á kirkju- klukkum. Vegna fjárskorts hefir kirkjan verið klukknalaus og hafa margir haft orð á þeirri vöntun. Nú er það ásetningur Kvenfélags Háteigssóknar að leggja af mörkum svo mikið sem verða má til þessa sérstaka verkefnis. Ef vel gengur með fjáröflun munu kirkjuklukkur hljóma í turnum Háteigskirkju innan tíðar. Ég bið alla velunnara Háteigs- kirkju að leggja Kvenfélagi Háteigssóknar lið og fjölmenna i Domus Medica á sunnudaginn og njóta um leið ánægju og ágætra veitinga. Arngrtmiir Jónsson MÆÐRADAGURINN verður n.k. sunnudag, 8. maí. Að venju mun Mæðrastyrksnefnd hafa „mæðra- blómið“ til sölu í tilefni dagsins. Munu sölubörn annast sölu þess, eins og jafnan áður, en öllum ágóða af sölu merkisins verður nú sem fyrr varið til orlofsdvalar efnaiftilla eldri kvenna að Flúð- um í Árnessýslu, sem ekki eiga ella kost á hvfldarviku f sumar. Mæðrastyrksnefnd hefur efnt til slikrar hvíldarviku fyrir efna- litlar eldri konur þar eystra um margra ára skeið. Eru þær konur orðnar fjölmargar, sem þess hafa notið en hefðu ella farið með öllu á mis við sumarhvíld. Á síðasta sumri dvöldu 40 konur eystra á vegum nefndarinnar og er það einlæg von hennar, að ágóði af sölu „mæðrablómsins" að þessu sinni nægi til þess, að unnt verði að bjóða a.m.k. jafnmörgum kon- um til vikudvalar á komandi sumri. „Mæðrablóm" Mæðra- styrksnefndar verður ekki, frem- ur en áður, selt í blómaverzlunum en sölubörn munu að venju ganga í hús og bjóða það til sölu og eins verður reynt að selja það við sam- komuhús borgarinnar. Mæðra- styrksnefnd skorar á Reykvíkinga að taka sölubörnum hennar vel, svo að „Mæðrablóm" hennar geti verið í barmi sem flestra á Mæðradaginn. (Fréllalilkynning) Kirkjudagnr Grensás- kirkju þann 8. maí SUNNUDAGINN 8. maí verður kirkjudagur í Grensáskirkju. Tilgangur kirkjudggsins er fyrst og fremst að minna á kirkjuna, starf hennar, veg og vanda. Safnaðarstarfið hefur gengið vel í vetur og nú í fyrsta sinn hefur allt Safnaðarheimilið verið notað eft- ir að framkvæmdum lauk í kjall- ara sl. haust. Var æskulýðsstarfið þar vikulega, Al-Anon fundir, Biblíulestrar, Kvenfélagsfundir o.fl. Enn vantar þó ýmislegt í kjallarann t.d. er þar ekkert hljóðfæri og eftir er að ganga frá geymslum. Einnig er margt ógert í húsinu, t.d. verður sett „parkett" gólf í aðalsalinn í sumar. Þá þyrfti að setja upp hátalarakerfi í húsið. En allt eru þetta dýrar fram- kvæmdir og verður því tekið á móti fjárframlögum á kirkjudag- inn. Kirkjudagurinn hefst með Tveir nýir útibústjór- ar ráðnir við Iðnað- arbankann BANKARÁÐ Iðnaðarbankans hefur ráðið Jakob J. Havsteen lögræðing f stöðu útibússtjóra f útibúi bankans, sem opnað verður á Selfossi sfðar á þessu ári. Jakob er fæddur 26. aprfl 1941 og lauk kandidatsprófi I lögfræði frá Há- skóla tslands I júnf 1968. Frá þeim tfma hefur hann gegnt starfi fulltrúa hjá sýslumanni Arnessýlu á Selfossi. Þá hefur bankaráðið nýlega ráðið Jóhann T. Egilsson, I stöðu útibússtjóra í Hafnarfirði og mun hann taka við starfinu í sumar. Jóhann er fæddur 29. ágúst 1926 og hefur hann gegnt starfi skrif- stofustjóra útibús bankans á Akureyri frá stofnun þess, í nóvember 1965. Bjarni Tómasson, sem gegnt hefur starfi útibús- stjóra í Hafnarfirði undanfarin ár, mun nú að nýju koma til starfa við aðalbankann í Reykjavík. guðsþjónustu kl. 11:00 f.h. Síðan verður kaffisala kvenfélagsins kl. 15:00 til 18:00. Og kl. 20:30 verður kvöldvaka í safnaðarheimilinu. Á dagskrá verður m.a.: Jóhanna Sig- marsdóttir forstöðukona flytur ræðu, Jón G. Þórarinsson organ- isti kirkjunnar leikur á orgel, Manuela Wiesler leikur einleik á flautu, Kór Kvennaskólans í Reykjavík syngur o.fl. íbúar Grensássóknar og aðrir velunnarar kirkjunnar eru hvatt- ir til að koma í safnaðarheimilið við Háaleitisbraut 66 sunnudag- inn 8. mai, taka þátt í guðsþjón- ustunni, njóta góðra veitinga kvenfélagsins og eiga þar helga stund að kvöldu dags. Haildór S. Gröndal. olUUU clU RVUIUU Uclg2 28644 FW-IJ-IH 28645 Blönduhlíð 3ja herb. 85 fm. kjallaraíbúð i fjórbýlishúsi. Mjög þokkaleg íbúð. Verð 8,5 millj. Útborgun 5.5 millj. Bragagata 3ja herb. 80 fm. íbúð á 2. hæð i tvibýlishúsi. íbúðin er nýstand- sett. Skipti koma tíl greina. Kriuhólar 3ja herb. 90 fm. falleg ibúð á 6. hæð i háhýsi. Stór stofa, mikið skáparými. Verð 8,5 millj. Út- borgun 5,5 millj. Vesturberg 3ja herb. 85 fm. ibúð á 5. hæð i háhýsi. Mikið útsýni. Verð 8. millj. Leirubakki 3ja herb. 90 fm. ibúð á 3. hæð. Falleg og góð ibúð. Verð 8,5 millj. Útborgun 6 millj. Viðihvammur 3ja herb. 90 fm. sér hæð i þríbýlishúsi verð 8,5 millj. Útborgun 5,5 millj. Æsufell 4ra herb. 105 fm. Stórglæsileg ibúð á 6. hæð i lyftuhúsi mikið skáparými. Gott útsýni. Verð 10.5 millj. Útborgun 7 millj. Miðbraut Seltjarnarnesi 5 herb. 115 fm. 2. hæð i þri- býlishúsi. bílskúr fylgir. Verð 12,5 millj. Útborgun 8,5 millj. Laufvangur Hafnarf. 6 herb. 140 fm. endaibúð á 1. hæð i blokk. Aðeins 3 ibúðir i stigaganginum, þvottahús i ibúðinni. Stórar suðursvalir. Verð 13,5 millj. Vallarbraut Seltjarnarnesi stórglæsilegt einbýlishús á tveim hæðum. Verð 25 millj. Arnartangi, Mosf. 137 fm. fullgert einbýlishús á einum vinsælasta staðnum i Mosfellssveit. Vogar Vatnsleisuströnd parhús á tveim hæðum, þetta eru 3 herb. tvær samliggjandi stofur Á allri íbúðinni eru nýleg teppi, tvöfalt gler. Verð 6,5 millj. Lyngheiði, Hveragerði 130 fm. einbýlishús. Rúmlega tilbúið undir tréverk og ibúðar- hæft 830 fm. lóð. Bilskúrsréttur. Verð 8,5 millj. Útborgun 5 millj. Opið í dag frá 10—3 Þorsteinn Thoriacius viðskiptafræðingur aSdfCp f asteignasaia Öldugötu 8 Sölumaður Fmnur Karlsson heimasími 43470 l símar: 28644 : 28645 . , . ' r Sr-oiovM.w; j Samband eggjaframleióenda Heildsöluverð á fyrsta flokks eggjum er 450 kr. kg. STJÓRNIN KANADAKVÖLD Kynning á ferðum um byggðir Vestur- íslendinga. í veitingahúsinu Glæsibæ sunnu- dagskvöld 8. mai. Dagskrá: Húsið opnar kl. 19.00 Kvöldverður: veizlumatur f. kr. 1850 - Sítrónusteiktur lambahryggur Salle d’Agneau Citron Saddle of lamb Lemon Skemmtidagskrá: Ferðakynning — sýnd litkvikmynd frá Kanada. Einsöngur Guðrún Tómásdóttir óperusöngkona syngur við undirleik Selmu Kaldlóns Kvennakór Suðurnesja syngur, stjórnandi Herbert H. Ágústsson undirleikari, Ragnheiður Skúladóttir Þorsteinn Ö Stephensen leiklistarstjóri les Ijóð Kvennakór Suður- nesja syngur. Hljómsveitin Stormar leikur fyrir dansi gömlu og nýju dansana til kl. 1 eftir miðnætti. Munið að panta borð tímanlega hjá yfirþjóni í síma 86220 FerðaskrHstofan Sunna Lækjargötu 2, sími 17800. . Nýtt sunanumer: 27766 Afgr.timi Mánud,- Fóstud. 915-12, 13-16 og 17-1830 SPARISJÓÐUR Reykjavikur& nágrennis Skóíavörðustíg 11

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.