Morgunblaðið - 07.05.1977, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 07.05.1977, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 7. MAÍ 1977 Um víkinga- aldarmynt Þetta er fjórða og síðasta greinin í greinaflokki um Víkingaaldar- mynt. (1) hcfur verið f eif'u kaupmanns f Birka. Hún er með mörgum hentuf;um hóffum, þar sem hæjít var að halda silfurpeningum af mismunandi verógildi aðskildum. Voru nokkrir peningar f henni, þegar hún fannst, og auk þess fáein lítil lóð. Lítil vog, sem auðvelt var að flytja með sér (2) var og nauðsvnjahlutur kaupmanni á víkingaöld — ekki til þess að vega vörur, heldur til að vega gjaldmiðilinn, silfrið. Kn slfk vog var viðkvæm og varð að fara gætilega með hana. Mvndirnar sýna, hvernig hún var lögð saman (3), önnur skálin sett niður f hina (4), vogin síðan lögð niður f málmskál með loki (5) og þetta sfðan látið f skinnpoka (6, 7). auk þess mjög takmarkaðan tima. Það má sjá vott af þróun i þessa átt í Danmörku og Noregi ea. á árunum 1070 — 80. í þeim löndum, sem fluttu inn mynt, var gildi peninga ákvarðað af silfurinnihaldi þeirra. Væru gæði silfursins viðunandi, gat það dugað, sem gjaldmiðill, alls staðar þar sem mynt var inn- flutt. Það hefir einnig verið svo um þýzka silfurpeninga, sem finnast í víkingaaldarfjársjóð- um, að menn hafa keypt vörur af víkingum fyrir silfrið sitt, í stað þess að afhenda það léns- herranum, og fá svo verri pen- inga í staðinn. Víkingarnir voru efasemdar- innar menn gagnvart gæðum peninga. Var silfrið i peningun- um gott? Allir vfkingaaldarpen- ingar voru upphaflega flatir, eins og peningarnir eru hjá okkur í dag. Samt er mjög sjald- gæft að finna flata peninga frá víkingaöld. Þeir eru allir meira og minna bögglaðir, skörð eru í röndinni eftir hnífseggjar eða potað hefir verið i gegnum þá með hnífsoddi. Þannig fóru menn að því að sannreyna, hvort silfrið væri ekki mjúkt og gott. Flestir voru þessir pening- ar mjög þunnir og yfirleitt illa slegnir. Á sama hátt var auðvit- að silfrið, sem var í stöngum, armböndum, skrauti o.s.frv. meðhöndlað og skekkt og skælt. Menn höfðu ekki marga silfur- flokka t.d. eins og 925s, 830s, o.s.frv. og mynt hafði einungis verðgildi sem málmur, eins og fram kemur hér að framan. Skiptimyntin löguð til og vegin Vöruskiptaverzlun var ekki lengur eina verzlunaraðferðin, held- ur var gjaldmiðillinn hreinn málmur, veginn, eins og sést á myndinni til hægri. Var þetta f rauninni eina greiðslan, sem hægt var að treysta að fullu. Hjá skinnasalanum f Birka eða Kaupangi hafði silfurpeningurinn nákvæmlega sama verðgildi og jafnþyngd hans f ómótuðu silfri — gagnstætt þvf sem nú tfðkast, þegar silfrið er allmiklu dýrara ómótað en mótað. Vfkingar hikuðu þvf ekki við að höggva peningana f smáhluta, þegar skipta þurfti. Gormlaga armbönd úr óunnum silfurlengjum, sem borin voru um úlnliðinn — vasar þekktust ekki — voru önnur tegund gjaldmiðils. Þegar á þurfti að halda, var brotinn af þeim moli og hann veginn. Græna dósin neðst á myndinni var notuð til að geyma f henni slfkt silfur. Er hún þægileg og glæsileg og ekki öllu stærri en vasaúr. Merkt járn- eða bronslóð, sem kaupmenn hafa átt og komin eru úr Miðjarðarhafslöndum, hafa oft fundizt f gröfunum f Birka. Mynd og teikning af mynt sem slegin var f Heiðabæ f Dan- mörku um 900 — 950. — hinir allir úr silfri. Gull kom á víkingaöld aðallega frá Núbiu og Súdan. Bæði stórveldin við Miðjarðarhafið, þ.e. austróm- verska keisaradæmið og Kalífarikið höfðu silfur og gullmyntmót. Auk þess var þar líka koparmynt. í Vestur- og Mið-Evrópu var eingöngu notuð silfurmynt. Af arabiskum skjölum má ráða, að gengið hefir verið mis- jafnt á gulli og silfri og fer það eftir landshlutum og timabil- um. Um árið 830 var gengið á dinar (gullmynt) á móti dir- hem (silfurmynt) i Mesópóta- miu 1 á móti 12. Um 960 greiddu menn í Cordova 17 silfurpeninga fyrir hvern gull- pening og um árið 1000 ekki minna en 26 silfurpeninga fyrir einn gullpening á Egyptalandi. 1’ við nú athug- um betur lönd- in sitt hvor- um megin lín- unnar, sem við hugsuöum dregna úr Norðursjó um Sax- elfi í Svartahaf, kemur i ljós, að i löndunum vestan línunnar voru peningarnir verðeining eða reiknieining. Vara kostaði ákveðinn fjölda peninga. í löndum Norður- og Austur- Evrópu var hagkerfið, eða verzlunin, ekki komin svo langt i þróuninni. Hér var ekki reikn- að í peningúm, heldur var silfr- ið vegið, og var þá blandað sam- an mynt, skartgripum og ómót- uðu silfri. Menn gátu, hvort þeir heldur vildu, borgað með silfurskartgrip eða silfurmynt. Þungi silfursins réði. A Þýzkalandi og Frakklandi hafði komist á sá siður, að myntslátta, sem hafði fram á níundu öldina verið einkamál konungs eða keisara, var leyfð einkaaðilum. Það varð hags- munamál þeirra, sem mynt- sláttuleyfi höfðu, að græða sem mest á sinni eigin myntsláttu. Þetta gátu þeir gert á nokkuð marga vegu og meðal annars þann að banna notkun annarr- ar myntar en sinnar sláttu. Auk þess voru peningar oft innkall- aóir og þá ekki lengur gildir. Nýju peningarnir, sem menn fengu í staðinn, innihéldu þá einatt minna silfur en þeir, sem innkallaðir voru og bræddir upp. Peningar í þessum rikjum töpuðu því gildi sinu, sem verð- mæti, t.d. silfurgildi, og giltu 4. GREIN Víkingaöldin er silfuröld Norðurlanda. Gull var ekki not- að svo neitt geti heitið. í nokkr- um silfursjóðum finnst einn og einn hlutur úr gulli. Af um 60.000 arabiskum peningum, sem fundist hafa eru 6 úr gulli eftir RAGNAR BORG Svona leit Vfkingaaldarsilfrið út. Peningarnir bognir og skældir, klipptir, gegnumstungnir og skornir. Silfrið f stöngum og smábitum. Vikingaaldar fjársjóðir hafa komið í ljós hundruðum saman og eru ógryhni gamalla sjóða í vörzlu safna á öllum Norður- löndum. Sjóðirnir hafa komið i ljós í plógfari, eftir herfi, eða við töku húsgrunna. Peningarn- ir hafa auðvitað verið í mis- munandi ásigkomulagi eftir margra alda geymslu í jörðinni. Sumir sjóðirnir hafa verið geymdir í leðurpokum, eins og menn kannast við úr fornsög- unum. Aðrir hafa verið geymd- ir í krukkum, trékössum o.s.frv. En mynt hefir þá eiginleika að geymast vel, jafnvel lengi i jörð, og með þvi að lesa af hin- um ólíku peningum má skoða söguna í ljósi þess sem pen- ingarnir sýna. Þessi saga, sem ég hefi nú sagt af víkingaaldar- mynt, er okkur nátengd, því það voru einmitt þessir menn sem fundu ísland. Frjálsræði i verzlun með gjaldeyri opnaði vikingum glugga landkönnunn- ar, verzlunar og menningar. Á þessum tima réðu Norðurlanda- búar yfir Englandi og miklum hluta Norður-Frakklands, fundu ísland, Grænland og Ameriku. Réðu yfir stórum hlutum Rússlands og átti við- skipti viö alla. Er þetta nú ekki glæsilegra en hin iskalda hönd sósíalismans, sem skammtar ís- lendingum í dag hvaöa glugga þeir eigi að horfa útum þetta áriö, vill ekki selja nema tak- markað af gjaldeyri, skráir gengi pólitískt, hefir sett á við- skiptahömlur og bindur hendur verzlunarinnar. Er ekki kom- inn tími til að stokka upp hlut- ina í viðskiptalifi þjóðarinnar?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.