Morgunblaðið - 07.05.1977, Page 14

Morgunblaðið - 07.05.1977, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1977 Nýting landgæða til útivistar ekki síðra verkefni en íþróttin — sagði Hákon Guðmundsson við setn- ingu útilífsræðastefnu Landverndar SL. LAUGARDAG efndi Land- vernd til rádstefnu um útilff, þar sem fjallað var um ýmsar hliðar verkefnisins með framsöguræð- um og í umræðuhópum, kl. 9 að morgni setti Hákon Guðmunds- son ráðstefnuna með eftirfarandi ávarpi: Á ráðstefnu þeirri um landnýt- ingu, sem haldin var á vegum Landverndar vorið 1973, var í fyrsta sinn efnt til almennrar um- ræðu um heildarsamskipti íslenzku þjóðarinnar við land sitt og gæði þess. Voru þá reifuð og rædd viðhorf til nokkurra þátta landnýtingar i því skyni að fá yfirsýn yfir það, hvaða sjónar- miða bæri að gæta við búsetu i landinu, jafnt á líðandi stund og með framtfðarnot í huga. Hér var að sjálfsögðu um svo yfirgripsmikið viðfangsefni að ræða, að landnýtingarráðstefnan 1973 gat aðeins fjallað um fáar hliðar þess. En tilraun sú til út- tektar á landsnytjum, sem þar var hafin, leiddi i Ijós, svo sem vænta mátti, að einstakar greinar land- nýtingar væru það viðamiklar, að þær geymdu, hver fyrir sig, efni í sérstaka könnun og umræðu. Á þeim grundvelli var það byggt, að Landvernd ákvað, að beita sér fyrir ráðstefnum á sviði Frá ráðstefnu Landverndar um útilff. einstakra auðlinda eða lands- gæða, hvort heldur væri til lands eða sjávar, i því skyni að fá yfirlit um inntak þeirra og um- ræður um það, hvernig nýta bæri auðlindir þær, sem þjóðin á og ræður yfir, án þess að grundvelli þeirra eða uppsprett- um væri spillt. Varð næsta skref Landverndar á þessum vettvangi, að hlutast til um að efnt var til ráðstefnu i nóvember 1975 um fæðubúskap íslendinga. Nú er enn haldið áfram á þessari sömu braut, og að þessu sinni er viðfangsefnið hagnýting landsins til útivistar. Óþarft er að fjölyrða um þau margháttuðu gæði, sem náttúra Islands gefur færi á til útivistar. Þar er vítt til veggja og hátt til lofts og völ margra góðra kosta, allt frá hájöklaferðum í óveðra- ham til auðveldrar kvöldgöngu á heimaslóðum. En hvernig notfærir lands- fólkið sér þessi gæði. Kann það skil á gagnsemi þeirra og þeim hollustuháttum, sem þau geta veitt? Hver er aðstaða almenn- ings til að stunda útivist? Hver er og á að vera afstaða útivistariðk- andans til náttúru landsins, gróðurs þess og dýralífs? Góðu heilli horfir nú til þeirrar áttar, að með hverju ári fjölgar þeim, sem fá áhuga á útivist og skilja gildi hennar. Eigi að siður er full ástæða til þess, að vakin sé athygli almennings á þeirri lffsfyllingu, sem útivistin getur beitt þeim, sem hana stunda, og kemur hér margt til. Oft er það á orði haft, bæði i fjölmiðlum og í samræðum manna, að matarvenjur Islend- inga leiði þá til heilsuspillandi holdafars, ogeinhversstaðarkom það fram, að athuganir á lfkam- legu þoli og úthaldi islenskra karlmanna hefðu Ieitt í Ijós, að þeir mundu ekki í þeim efnum vera jafnokar frænda sinna í öðrum þjóðlöndum. Einnig heyrast ekki svo sjaldan raddir þess efnis, að við séum orðnir full elskir að svonefndum blikk- beljum og spörum fætur okkar í þeim mæli, að ævispor margra séu að verða að bilförum. Þá ber og að hafa i huga að aukin orlof veita fleiri mönnum tækifæri til ferðalaga og fólksfjölgun i þétt- býlinu skapar ibúum þess þörf fyrir meira andrými og hreyfingu undir berum himni. Ekki verður um það deilt, að útivist í óspilltu umhverfi — hreinu lofti og þagnarkyrrð — getur ráðið miklu um andlegt og líkamlegt heilsufar einstaklings- ins, og þar með þjóðarínnar i heild, og verður, þegar á allt er litið, besta heilsuverndin. Það má þvi augljóst vera, þegar til allra þessara atriða er litið, að almenn fræðsla um það, hverra kosta er völ í þessum efnum, er fullkom- lega tímabær og þá er aðlilegt, að jafnframt sé kannað, hverra úr- bóta er þörf til þess að hver og einn geti notfært sér þau gæði, sem iðkun útivistar hefur í kjöl- fari sínu. En hér er einnig til annarrar áttar að lita. Hverjar eru skyldur útivistarmannsins við náttúru landsins, og það umhverfi, þar sem hann nýtur útilífs síns? Hnattstaða landsins, veðrátta þess og gróðurfar leiða til þess, að íslenzk náttúra er viðkvæm fyrir umferð, og oft eru það fegurstu og eftirsóknarverðustu staðirnir, sem sízt þola átroðninginn. Það fylgir því eðlilega auknum ferða- lögum og vaxandi ferðamanna- straum, í byggðum og óbyggðum, að upp koma ýmis vandamál og úrlausnarefni, sem varða aðstöðu til útivistar, umgengishætti og al- menna náttúruvernd. Þessi þáttur útilífsins, nýting þeirra landsgæða, sem í boði eru á þessum vettvangi, er því eigi sfð- ur verðugt viðfangsefni en sjáif íþrótt útivistarinnar, þegar gerð er úttekt á gildi hennar fyrir mannlífið og þær reglur metnar, sem um iðkun hennar eiga að gilda. Mikið skortir á, að við Islend- ingar höfum fengið heildarsýn yfir þau svið, sem útivist í víðustu merkingu spannar, og er brýn þörf á því, að hér sé tekið til hendinni. Á þessum forsendum er það byggt, að Landvernd hefur nú í náinni samvinnu við Náttúru- verndarráð, Ferðamálaráð og nokkur félög, sem starfa á vett- vangi útilífs, efnt til ráðstefnu um stöðu útivistar hér á 1 ndi og útilífsiðkana. Ljóst má vera, að eins dags ráð- stefna gefur ekki færi á því, að brotin séu til mergjar þau marg- þættu viðfangsefni, sem til álita koma í þessu sambandi. En með ráðstefnu þessari er m.a. að því stefnt, að vekja athygli og áhuga almennings á gildi útivistar með því að kynnt sé, hvaða möguleikar séu til að stunda einstakar grein- ar útilífs I því sambandi verður og komið inn á það efni, hverra úrbóta sé þörf um aðstöðu á þessu sviði, — hver sé réttur útivistar- iðkandans til að notfæra sér þau gæði, sem landið býr yfir að þessu leyti og hvaða skyldur við um- hverfi og náttúru landsins fylgja því, sem kalla mætti iðkun útivist- ar. Öllum þeim, sem hafa unnið að undirbúningi þessarar ráðstefnu og átt þátt i þvi að ýta henni úr vör, flyt ég þakkir, en Vilhjálmur Lúðvíksson hefur þar gegnt hlut- verki oddvitans. Einnig færi ég þeim, sem góðfúslega hafa undir það vikizt að flytja hér erindi og taka þátt í umræðum og öðrum ráðstefnustörfum, beztu þakkir, en framlag þeirra ræður mestu um það, hvernig ráðstefnan heppnast. Býð ég velkomna hing- að alla þá, sem á einn eða annan hátt taka hér þátt i störfum eða fundarsetu. Að lokum þetta: Á útivist eru margir flestir og þar er um margt að velja, allt eftir efnum og ástæðum hvers og eins. Sumir kjósa laxveiði með dýrum tækjum og öðrum til- kostnaði. Aðrir leggja hnakk sinn á verðmætan gæðing. Enn eru þeir, sem velja sér dýrindis skíði eða viðamikinn útbúnað til jökla- gerða. Allt eru þetta góðir kostir, en ekki á allra færi. Það er líka svo, að enginn fer á skíði þar sem snjólaust er, eða veiðir fisk á þurru landi. Og vanti hnakk og hest verður lítið úr útreiðinni. En ein er sú tegund útivistar — gangan — sem hvorki krefst tækja né tóla, þótt stundum geti verið skemmtilegt og jafnvel gagnlegt að hafa staf. Að þessu leyti hefur sá maður, sem iðkar göngur sérstöðu meðal útivistar- manna. Hvorki er honum veiði- vatn^ snjór né hestur nauðsyn til síns útilífs. Hann þarf að vísu hentugan klæðnað, svo sem menn þurfa alltaf við venjulega vinnu sína, og sæmilega skó — þó þekkti ég mann, sem var berfættur við smalamennsku í Hekluhrauni, hann sagðist vera miklu léttari á sér sokkalaus og skólaus —. Og kunni göngumaðurinn á annað borð að klæða sig eftir aðstæðum, varðar hann hvorki um veður né færi. Hann getur valið sér göngu- land við sitt hæfi, slétt eða bratt, og hann skilur manna bezt þau orð skáldsins „að eiginlega er ekkert bratt, aðeins mismunandi flatt" Göngumaðurinn er ekki öðru háður en getu sinni og vilja. Sé hann við aldur, fer hann sér hægt, ef þörf krefur, en sé hann ungur getur hann tekið sprettinn. Gangan er þannig íþrótt allra. Heilnæm, auðveld, ódýr og hljóð- lát og hæfir þvi hvaða umhverfi sem er. Landvernd hefur á undanförn- um árum gefið út veggspjald i þvi skyni að vekja athygli á einhverj- um þætti i sambúð þjóðarinnar við landið, og á hvert veggspjald hefur verið skráð kjörorð, sem skýrir það markmið, sem myndin á að tákna. Veggspjald Landverndar í ár er því miður ekki enn komið út, en það verður helgað gönguferðum um landið. Ég vona að landsmenn bregðist vel við þeim boðskap, sem það flytur árið 1977, en hann er þessi. Göngum um landið Göngum vel um landið. Sýning Jónasar Guðmundssonar Jónas Guðmundsson held- ur nú sýningu á myndlist sinni á Kjarvalsstöðum. Jón- as stýrimaður, eins og hann er stundum kallaður, er einn af þeim fáu mönnum, sem orðið hafa til þess, að orðið þúsundþjalasmiður hefur haldist í tungu okkar. Hann leggur gjörva hönd á allt mögulegt, sem til lista telst, þó stundar hann enn ekki ballett-dans mér vitanlega. Hann skrifar skáldsögur, ferðapistla, ævisögur og leik- rit. Hann yrkir Ijóð og málar myndir, stundar blaða- mennsku og skrifar um allt Myndllsl eftir VALTÝ PÉTURSSON milli himins og jarðar, sem flokkast undir menninguna, gagnrýnir jafnt leiklist sem myndlist, og afköstin eru í samræmi við það, sem upp er talið hér á undan. Sú spurning hlýtur að vakna hvernig hægt hafi verið að gefa út dagblaðið Tímann, meðan Jónas stundaði navi- geringar um heimshöfin og grár fyrir járnum varði land- helgi okkar fyrir ásælm óvið- komandi. Enn á hann það til að skreppa bæjarleið, og þá aðallega til að sýna myndir sínar erlendis, aðallega í Þýskalandi. Þar í landi hafa menn fundið íslenskan tón í verkum Jónasar, og Jónas fundið stoð og styttu í vini sínum, Weishauer. Hefur sá kunningsskapur orðið nota- drjúgur fyrir hæfileika Jónas- ar, og er það vel. En Jónas Guðmundsson hefur alger- lega haldið hlut sínum í þess- um vinskap, eins og sannast rækilega á þessari sýningu á Kjarvalsstöðum Þannig hef- ur Jónas fikrað sig áfram í myndlist sinni, án þess að hafa nokkru sinni setið á fín- um akademíum eða verið viðriðmn menntastofnunma í Skipholtinu. Jónas Guðmundsson hefur hoggið stórum í list sinni að undanförnu. Hann sýnir mikla framför í myndgerð, árangur seinustu ára er aug- Ijós. Ef ég man rétt, hélt hann sýningu á verkum sín- um i Hamragörðum fyrir ein- um tveim árum. Ég hafði ánægju af mörgu á þeirri sýningu, en samt var það augljóst þá, að Jónas flýtti sér stundum um of, og hlutirnir voru nokkuð lausir í reipum. Hæfileikar hans voru auðséðir, en það var eins og herslumuninn vantaði. Á sýningunni á Kjarvalsstöðum hefur dæmið snúist við, og það kemur greinilega í Ijós, að Jónas Guðmundsson hef- ur í öllu sínu annriki ekki dregið af sér við vatnslitina. Nú sem fyrr eru það bátar og skip, sem koma Jónasi á flugið. Sjávarstemmningar og gömlu húsin i Vesturbæn- um eru honum hjartfólgin viðfangsefni Fáar línur i ein- lita myndfleti ná að tjá fyrir- myndirnar á ferskan og trú- verðugan hátt. Þorpin út á landbyggðinni eru þarna einnig og stundum bregður fólki fyrir í dagsins önn. Sjó- menn sjást við vinnu sína, fólk á förnum vegi sjávar- þorpanna. Flestar myndir á þessari sýnmgu eru vatnslita- myndir, aðeins örfáar olíu- myndir hafa fengið að fljóta með að sinni. Jónas hefur sérstaka tækni við myndgerð sina í vatnslitum og málar á tvöfaldan pappír, sem hann svo rifur upp á köflum, og beitir hann þannig lifandi og sjaldgæfri aðferð, sem fellur vel að hinum hröðu og augnablikskenndu átökum, sem dansa með sérstakri hrynjandi yfir myndflötinn. Það eru nær 80 verk á þess- ari sýningu Jónasar og eðli- lega eru þau dálítið misjöfn en heildarsvipur sýningarinn- ar er persónulegur og auð- kennist af litagleði og ást- riðufullum vinnubrögðum. Jónas er fæddur rómantík- er, sem vinnur í snörpum átökum. Hann er bestur, þegar hann lætur liti og form tjá speglun lofts og lagar. Ljósaskipti og dulræn birta eins og túlka öryggisleysi til- verunnar. Sjómaðurinn Jón- as Guðmundsson hefur sínar hugmyndir um himin og haf, tilveruna og hiðóráðna. Þetta er fjörleg og skemmtileg sýning hjá Jón- asi, og það má fullyrða, að hann hefur ekki gert betur áður. Þessi sýning kom mér í ágætt skap, og ég hafði sanna ánægju af að kynnast þessum verkum Jónasar Guðmundsonar. Valtýr Pétursson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.