Morgunblaðið - 10.05.1977, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1977
Féll í gjá og
síðubrotnaði
Húsavik, 9. maí.
A LAUGARDAG féll annar bónd-
inn á Tóvegg I Kelduhverfi Adam
Jónsson, af snjósleða í gjá og slas-
aðist nokkuð, en gekk einn og
óstuddur til bæjar, yfir kflómetra
leið.
Svo hagar til í landi Tóveggjar,
að Iand er allt meira eða minna
sprungið og i því miklar gjár og
gjótur, sem búfé eru hættulegar.
Mjög þarf að fylgjast með sauðfé
á þessum slóðum og f siðustu viku
missti Adam fjórar kindur í gjár,
Nýr skóli boðinn
út í Hafnarfirði
HAFNARFJARÐABÆR hefur
boðið út smiði nýs skóla, Fngi-
dalsskóla, sem ætlaður er fyrir
yngstu nemendur grunnskólans
og þjónar einkanlega byggðinni
vestan Reykjavfkurvegar, þ.e.
Norðurbænum. Framkvæmdir
við skólann eiga að hefjast á
þessu ári en stefnt er að því að
hann verði tekinn I notkun haust-
en þeim var öllum bjargað. Segja
má að í því snjóalagi, sem þarna
hefur verið I vetur og vor hafi
verið óvenju miklar hættur fyrir
kindur og oft hafa þeir bræður á
Tóvegg þurft að bjarga kindum,
en þó enga misst.
Síðdegis á laugardaginn var Ad-
am að svipast um eftir kindum og
ók á snjósleða eftir gjá sem hann
taldi trausta, en skyndilega féll
fönn undan sleðanum og datt Ad-
am niður í gjána, fimm til sex
metra, en sleðinn hékk eftir á
brúninni. Adam hafði sig fljótt
upp úr gjánni og komst af eigin
rammleik heim, þótt hann væri
síðubrotinn, en ekki teljandi
meiddur að öðru leyti. Hann sagði
að fyrst hefði hann ekki fundið
svo mikið til sársauka, en sfðustu
metrarnir hefðu verið alierfiðir.
Læknir kom i sjúkrabíl frá
Húsavík og var Adam fluttur á
sjúkrahúsið hér, þar sem hann
liggur nú og líður vel eftir atvik-
um.
— Fréttaritari.
200 manns tóku þátt í fyrstu Esjugöngunni
UM 200 manns tóku þátt I fyrstu
Esjugöngu Ferðafélags tslands
s.l. laugardag, en alls verða farn-
ar 10 göngur. Göngufólkið lagði
af stað frá melunum austan við
Esjuberg kl. 13.30 og þeir sem
fljótastir voru að ljúka göngunni
voru komnir til baka eftir röska 3
tíma, en þeir slðustu komu til
baka um kl. 19. Yngstu göngu-
mennirnir voru 8 ára, en þeir
elztu um sjötugt. Næsta Esju-
ganga F.í. verður n.k. laugardag.
Myndin var tekin þegar hluti
göngufólksins var að ieggja af
stað upp frá Esjubergi. Ljósm.
Mbl. RAX.
ið 1978.
Á fjárhagsáætlun bæjarins fyr-
ir þetta ár er gert ráð fyrir að
verja um 60 milljónum króna til
skólans. Ætlunin er að hann rúmi
um 400 nemendur með tvísetn-
ingu skólahússins. Húsið verður á
einni hæð, samtals um 1120 ferm.
eða 5200 rúmm. en auk þess verði
kjallari undir hluta hússins, alls
um 525 ferm. eða 1420 rúmm.
Magnús L. Sveinsson:
Tækin fundust
eftir ábendingu
MEGNIÐ af hljómflutnings-
tækjunum, sem stolið var fyrir
skömmu úr Landakotskirkju og
Sundlaug Vesturbæjar, hefur
fundizt á Seltjarnarnesi. Var
hringt til lögreglunnar í Reykja-
vík að næturlagi og tilkynnt hvar
tækin væri að finna. Rannsóknar-
lögreglan i Hafnarfirði leitar
þjófanna, sem eru ófundnir.
íhlutun borgaryfirvalda væri í
andstöðu við frjálsan samningsrétt
ÞAÐ KEMUR víst engum á óvart
þó sagt sé, að mál málanna í þjóð-
félaginu í dag séu kjaramálin.
Þau urðu einmitt tilefni all
snarpra orðaskipta á fundi borg-
arstjórnar Reykjavikur fimmtu-
daginn 5. mai. Þar flutti Björgvin
Guðmundsson (A) tillögu sem
efnislega var á þá leið, að borgar-
stjórn lýsti áhyggjum sínum
vegna yfirstandandi kjaradeilu og
hinnar miklu hættu á verkfalli.
Því telji borgarstjórn að allt verði
gert, sem unnt er, til að afstýra
verkfalli. Borgarstjórn teldi það
auðvelda mjög lausn kjaradeil-
Víkingur með 450 tonn af
kolmunna til Neskaupstaðar
KOLMUNNASKIPIÐ Víkingur
frá Akranesi kom til Nes-
kaupstaðar i gærkvöldi með 450
lestir af kolmunna, og er þetta
fyrsti kolmunninn sem berst til
landsins á þessu ári. Víkingur
fékk kolmunnann á veiðisvæðinu
SV af Akranbergi í Færeyjum.
Um leið og Vfkingur landar
kolmunnanum í Neskaupstað í
dag verður gert við vörpu skips-
ins, en hún rifnaði oft mjög illa,
sökum gífurlegs afla sem kom í
vörpuna.
Nú stunda fjögur íslenzk skip
kolmunnaveiðar við Færeyjar,
eru það auk Víkings, Sigurður
RE, Börkur NK og Guðmundur
RE, og voru Börkur og Guðmund-
ur á miðunum í gær, en aflinn
mun ekki hafa verið tiltölulega
mikill þá.
unnar ef vinnuveitendur gengju
að kröfu verkalýðsfélaganna um
100 þús. kr. lágmarkslaun á mán-
uði. Áliti borgarstjórn það sann-
gjarna og eðlilega kröfu. í þvi
skyni að stuðla að samkomulagi í
kjaradeilunni samþykkir borgar-
stjórn að lýsa því yfir, að Reykja-
víkurborg sé reiðubúin til þess að
samþykkja kröfuna um 100 þús.
kr. lágmarkslaun. Felur borgar-
stjórn borgarráði og samninga-
mönnum Reykjavíkurborgar að
koma slikri yfirlýsingu á fram-
færi á næsta sáttafundi í kjara-
deilunni. Borgarstjórn stígur
þetta skref í trausti þess, að aðrir
vinnuveitendur muni þá einnig
samþykkja kröfuna um 100 þús.
kr. lágmarkslaun. Bjóði rikis-
stjórnin skattalækkanir eða aðrar
ráðstafanir, er verkalýðsfélögin
meta til jafns við kauphækkun að
einhverju leyti, og náist sam-
komulag um lægri lágmarkslaun f
krónutölu en að framan greinir
gengur Reykjavikurborg að sjálf-
sögðu inn i það samkomulag."
Björgvin Guðmundsson sagði að
trúlega myndi þetta hafa með sér
224—248 milljón króna útgjalda-
auka fyrir borgina það sem eftir
væri þessa árs. Auðvelt ætti að
vera að skera aðra liði niður eins
og bent hefði verið á i umræðu
Erlendur Einarsson, forstjóri:
Vinnumálasambandið semur um
kaup og kjör í nánu samstarfi
við Sambandið og kaupfélögin
BAKNEFND Alþýðusambands-
ins kaus á fundi sfnum á
laugardag sérstaka viðræðu-
nefnd til þess að ræða við Sam-
band íslenzkra samvinnu-
félaga, þar sem nefndin taldi
Sambandið ekki lengur eiga
samleið með öðrum vinnuveit-
endum, en sem kunnugt er,
sendi stjórn Sambandsins í sið-
ustu viku frá sér ályktun um
kjaramál. Morgunblaðið bar
þessa ákvörðun í gær undir Er-
lend Einarsson, forstjóra. Hann
sagði:
„Samþykkt stjórnar Sam-
bandsins var fyrst og fremst
stefnuyfirlýsing, þar sem
stjórnin leggur áherzlu á, að
nauðsynlegt sé að láta þá, sem
lægst hafa launin, njóta þeirra
kjarabóta, sem hægt er að veita
miðað við það rýrni, sem efna-
hagslíf landsmanna veitir.
Stjórn Sambandsins hefur alls
ekkert á móti þvi að ræða við
samninganefnd Alþýðusam-
bandsins og skýra fyrir henni
þessa stefnumótandi ályktun.
Hins vegar er það Vinnumála-
samband samvinnufélaganna,
sem semur um kaup og kjör.
Samvinnuhreyfingin stofnaði
Vinnumálasambandið til þess
að gegna því hlutverki og það
hefur nána samvinnu við Sam-
bandið og kaupfélögin.
Þá er einnig i samþykkt
stjórhar Sambandsins drepið á
nauðsyn þess að unnt verði að
stytta vinnudag og ná meiri
framleiðni, þannig að fólk geti
fengið sæmileg launakjör mið-
að við venjulegan vinnudag.
Þetta er má segja framtíðar-
draumur og það er óhætt að
segja að lesa má út úr ályktun
stjórnar Sambandsins, að f
þessum samningum, sem nú
fari fram. þurfi að vera eins
konar þríhyrningur, sem vinn-
ur að lausn deilunnar, þ.e.a.s.
samtök stéttarfélaganna,
vinnuveitendur og svo rikis-
valdið. Á þetta leggur stjórnin
áherzlu i ályktun sinni,“ sagði
Erlendur Einarsson, forstjóri.
Magnús L. Sveinsson
um fjárhagsáætlun. Magnús L.
Sveinsson (S) sagðist ekki efast
um að góður hugur lægi að baki
tillöguflutningi Björgvins, en
hann teldi það á mikium misskiln-
ingi byggt hjá flutningsmanni að
samþykkt þessarar tillögu myndi
flýta fyrir lausn þessarar alvar-
legu kjaradeilu. Tillaga sem þessi
er ekki nýmæli hér i borgarstjórn
þvi undanfarna áratugi hefur
slikt komið fram nær alltaf þegar
kjaradeila sem þessi hefur staðið
yfir. Þó er eitt nýtt hér, það er að
Reykjavikurborg geri bráða-
birgðasamkomulag um einn lið í
kröfugerðinni og það muni gilda
þar til samningar hafa verið und-
irritaðir samanber síðustu máls-
greinina. „öðruvisi er ekki hægt
að skilja tillöguna“ sagði Magnús.
Það er ekkert nýtt fyrirbæri að
einn og einn vinnuveitandi lýsi
þvi yfir að þeir geti fallist á þá
samninga sem endanlega verði
undirritaðir, og losni á þann hátt
undan óþægindum sem vinnudeil-
ur leiða til. Svona væri ekki nýtt
og eitt slíkt boð hefði borist til
samninganefndar ASÍ i fyrradag
(þriðjudag). Slíku hefur alla
jafna verið hafnað. Magnús sagð-
ist halda að flutningsmaður hefði
ekki gert sér grein fyrir hvað í
tillögu hans fælist ef hún yrði
samþykkt. Magnús sagði augljóst
að verkalýðshreyfingin gæti ekki
Framhald á bls. 24.
Úrskurður Hæstaréttan
Steingrími ber
ekki að víkja sæti
SVO SEM fram kom í Mbl. nýlega
hefur Ilaukur Guðmundsson
rannsóknarlögreglumaður krafizt
þess, að Steingrimur Gautur
Kristjánsson héraðsdómari í
Hafnarfirði viki sæti sem dómari
f ávísanamáli hans vegna meintr-
ar hlutdrægni. Steingrímur úr-
skurðaði að honum bæri ekki að
vikja. Þessu vildi Haukur ekki
una og kærði úrskurðinn til
Hæstaréttar. I gær úrskurðaði sið-
an Hæstaréttur að úrskurður
Steingrims skyldi gilda og að hon-
um bæri ekki að vlkja sæti I mál-
inu. Rannsókn þess mun vel á veg
komin.
Stapavík selur
í Belgíu í dag
STAPAVÍK frá Siglufirði á að
selja röskar 100 lestir af fiski i
Ostende i Belgiu i dag. Stapavík
tók fiskinn i Siglufirði og er hann
úr togurum Siglfirðinga, en ekki
var hægt að vinna þennan fisk
heima sökum yfirvinnubannsins.
Þá landaði skuttogarinn Arnar
frá Skagaströnd 100 lestum af
fiski í Færeyjum s.l. fimmtudag,
fékk Arnar um 95 kr. fyrir hvert
kíló.
Flestir togaranna
komnir á grálúðuveiðar
FLESTIR Islenzku togaranna eru
nú á grálúðuveiðum djúpt undan
Vfkurálnum og hafa sumir fengið
ágætis afla þar. Að sögn Harðar
Guðbjartssonar skipstjóra á Guð-
bjarti frá ísafirði, eru 20—25 Is-
lenzkir togarar á þessum slóðum
og 6 togarar frá V-Þýzkalandi.
Sagði Hörður, að gallinn við
grálúðuveiðarnir væri sá að mjög
slæmur botn væri á þessum slóð-
um og troll skipanna rifnuðu
gífurlega mikið. Það væri hend-
ing ef trollin kæmu órifin upp.
Það þyrfti að búa veiðarfæri ís-
lenzku togaranna betur til þess-
ara veiða. Flestir íslenzku togar-
anna væru með 24 tonna bobb-
inga, en á þennan botn þyrftu
bobbingarnir að vera 35 tommur.