Morgunblaðið - 10.05.1977, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1977
PASSlUKÓRINN á Akureyri ásamt hljóðfæraleikurum og einsöngvur-
um flutti oratóríuna Messias eftir Hándel f íþróttaskemmunni á
Akureyri á sunnudaginn. Þetta var I fyrsta sinn, sem verkið er flutt
óstytt hér á landi. Stjórnandi var Roar Kvam. Áheyrendur munu hafa
verið um 800. Með þessum tónleikum, sem stóðu ( nærri fjórar
klukkustundur, lauk tónlistarhátfðinni á Akueyri. Ljósm. Sv.P.
Lamb með
10 fætur
ILLA vanskapað lamb fæddist
á Siglufirði um helgina. Hafði
lambið átta afturfætur og tvo
framfætur, eitt auga og van-
skapaðan munn. Lambið lifði
aðeins skamma stund og er nú
búið að flytja það til Reykja-
vlkur, þar sem ætlunin er að
stoppa það upp. Lamb þetta
var tvflembingur, en hitl
lambið var eðlilegt í alla staði.
Ligandi ærinnar er Þórarinn
Iljálmarsson.
Þá fæddist tvfhöfða lamb
fyrir nokkru í Siglufirði.
Vill fá bætur
vegna yfir-
vinnubannsins
SIGLUFIRÐI, 9. maí. Danska
skipið Maria Helleskov liggur nú
hér fulllestað loðnumjöli og mun
skipæstjórinn neita að láta úr
höfn fyrr en kaupendur mjölsins
hafa viðurkennt kröfur um bætur
vegna tafar skipsins hér.
Skipið tók 1725 lestir af loðnu-
mjöli og tók lestun sex og hálfan
dag vegna yfirvinnubannsins.
Það er danski skipstjórinn
óánægður með og vill fá bætur frá
kaupendum fyrir töfina vegna yf-
irvinnubannsins. Fréttaritari
Þrjú börn
fyrir bílum
Akureyri, 9. maí.
FIMM slys og óhöpp hafa orðið í
umferðinni hér f bær á tæpum
f jórum klukkustundum sfðdegis f
dag. Þrjú börn urðu fyrir bflum,
öll 7 ára gömul.
Fyrsta óhappið varð klukkan
15.50, þegar kviknaði í fólksbíl í
Hafnarstræti fyrir framan póst-
húsið, Eldurinn kom upp í vélar-
húsi bílsins og þar brann allt, sem
brunnið gat áður en eldurinn
varð slökktur. Klukkan 17.10 varð
7 ára drengur fyrir fólksbíl á
Þingvallastræti vió gatnamót
Vallargerðis. Hann slapp með lítil
meiðsli. Klukkan 19 var ekið á
barn í Hafnarstræti fyrir framan
hús númar 86, en þar hljóp 7 ára
telpa út á götuna milli kyrrstæðra
bila, sem stóðu við gangstéttina.
ökumaður hemlaói þegar hann sá
til ferða telpunnar en tókst ekki
að stöðva til fulls. Telpan lenti
beint framan á bílnum og hlaut
áverka á enni. Hún er til rann-
sóknar í sjúkrahúsi en virðist
ekki alvarlega slösuð. Sjö mínút-
um síðar hjólaði drengur á þrí-
hjóli utan í bil á mótum Þing-
vallastrætis og Þórunnarstrætis,
lenti undir bílnum og skreið und-
an honum hinum megin, tók hjól-
ið sitt og hjólaði burt í fússi. Hann
hafði ekkert meiðzt.
Síðasta óhappið í þessari hrinu
varð klukkan 19.28 á mótum
Skipagötu og Kaupvangsstrætis,
þar sem eru umferðarljós. Öku-
maður annars bílsins virtist hafa
gleymt ljósunum og ók beint inn í
hlið bíls jera átti rétjinn. Enginn
meiddist! ’ Sv.P.
— Topp-
fundurinn
Framhald af bls. 1.
færður um að almenningur í lönd-
unum sjö væri sammála því, sem
þar kæmi fram og styddi hana.
Jimmy Carter Bandaríkjafor-
seti sagði að þær ákvarðanir, sem
teknar hefðu verið á fundinum,
væru feiknalega umfangsmiklar
og mikilvægar, en hefðu litla þýð-
ingu, ef þeim væri ekki fylgt eft-
ir. „Við þurfum að standa við
skuldbindingar og heiður okkar
allra er að mörgu leyti í veði þar
til við höfum efnt loforðin.“
Það kom nokkuð á óvart í yfir-
lýsingunni að skorað er á aðila að
grípa til aðgerða til að útrýma
óheiðarlegum viðskiptaháttum og
hegðun i alþjóðaviðskiptum. Um
þetta atriði sagði Carter forseti á
fréttamannafundinum: „Við telj-
um að það sé tími kominn til að
alþjóðlegu eftirliti verði komið á
til að hindra mútur, kúgun og
ólöglegar aðgerðir, sem stundum
hafa verið látnar viðgangast á
sviði viðskipta- og bankamála."
Stjórnmálafréttaritarar segja
að erfiðustu málin á fundi leiðtog-
anna hafi verið i sambandi við
viðskipti og tollamál og hvernig
leita eigi nýrra orkugjafa.
Sala á kjarnorkuverum landa í
milli var einnig mjög viðkvæmt
mál, þar sem Bandaríkjamenn
gera strangar kröfur til þess að
slíkar sölur verði ekki til þess að
þjóðir geti komið sér upp birgð-
um kjarnorkuvopna. Carter for-
seti sagði á fréttamannafundinum
að mjög erfitt væri að setja regl-
ur, sem kæmu í veg fyrir slíkt án
þess að því fylgdu afskipti af inn-
anrikismálum hinna ýmsu þjóða.
Sagði hann að fundarmenn væntu
mikils og skjóts árangurs af könn-
uninni, sem gerð verður á þessum
málum á næstu tveim ur mánuð-
um.
í yfirlýsingunni er ekki að
finna stuðning við baráttu
Carters forseta fyrir mannrétt-
indum i heiminum, en Michael
Blumenthal, fjármálaráðherra
Bandaríkjanna, sagði eftir fund-
inn, að leiðtogarnir hefðu allir
verið sammála því að Carter hefði
í grundvallaratriðum rétt fyrir
sér á þvi sviði.
Stjórnmálafréttaritarar eru al-
mennt sammála um að verulegur
árangur hafi orðið af þessum
fundi og að furðanlega vel virðist
hafa tekist að leysa mörg
ágreiningsmál, sem talin voru erf-
ið i upphafi fundarins. Er nú talið
líklegt að annar toppfundur verði
haldinn fyrir lok þessa árs og þá
liklega í Japan, þar sem fylgt
verði eftir aðgerðunum í efna-
hagsmálum, sem samþykktar
voru á þessum fundi. Voru leið-
togarnir sammála um að í framtíð-
inni væri æskilegt að einn slíkur
fundur væri haldinn á ári hverju.
— Umferðarslys
Framhald af bls. 40
móti 19 í fyrra og 27 árið áður.
Ekkert slys varð á börnum í apríl
í ár.
„Þegar haft er í huga að um-
ferðin núna er engu minni en tvö
síðustu árin og slysahætta á
börnum hefur verið miklu meiri
vegna hins góða tíðarfars er ekki
hægt annað en vera ánægður með
Mtkprnuna,'/, §agði fisjtar filason
að lokum.
— Sáttafundir
Framhald af bls. 40
þær voru svo misjafnar, mismikl-
ar og væri vandamálið í raun að
unnt yrði að samræma þær. Einn
samninganefndarmanna innan
ASÍ sagði: „Vandamálið er aðeins
að samræma kröfurnar. Ég fyrir
mitt leyti gæti fallizt á 1 % eins og
vinnuveitendur leggja til. Ég er
jafnvel til viðræðu um núllið, ef
aðeins er tryggt að eitt skuli látið
yfir alla ganga.“
Almennur samningafundur er
aftur boðaður i dag klukkan 16.
Á baknefndarfundinum á laug-
ardaginn var 10-manna nefndinni
þ.e. nefnd formanna landssam-
bandanna innan ASÍ, forseta þess
og varaforseta, falið að ákveða
framhald baráttuaðgerða í sam-
ráði við samninganefnd ASÍ.
Þá segir i fréttatilkynningu frá
ASÍ í gær, að tvö kaupfélög hafi
ályktað í kjölfar ályktunar stjórn-
ar Sambands íslenzkra samvinnu-
félaga, Kaupfélag Austur-
Skaftfellinga, sem segir að leysa
beri kjaradeiluna á grundvelli
meginstefnu 23. þings ASI og
Kaupfélag Suðurnesja leggur á
það þunga áherzlu, að í yfirstand-
andi kjaradeilu vinni Samvinnu-
hreyfingin eftir ályktun stjórnar
Sambandsins og hefji þegar við-
ræður við samninganefnd ASI til
lausnar deilunni — eins og það er
orðað.
— Hearst
Framhald af bls. 1.
ára fangelsi, fyrir þátttöku í
bankaráni ásamt liðsmönnum
Symbionesiska frelsishersins
er rændu henni í febrúar 1974.
Skilorðsbundna dóminn í
dag fékk ungfrú Hearst fyrir
þáttöku i árás á sportvöru-
verzlun í Los Angeles í mai
1974 þegar hún skaut úr vél-
byssu yfir fjölfarna götu. Eng-
an sakaði.
Talbot dómari sagði að engin
hætta virtist vera á þvi að ung-
frú Hearst fremdi fleiri glæpi.
Hann minnti á að henni hefði
verið rænt og að hún hefði
sætt hræðilegum pyntingum í
57 daga.
— Leiðtoga-
fundur
Framhald af bls. 1.
milli V-Berlínar og sambandslýð-
vledisins Þýzkalands eru viður-
kennd.
Stjórnmálafréttaritarar segja
að þótt engin vandamál steðji að
V-Berlin í dag hafi fundur leið-
toganna átt að undirstrika að
NATO líti sem áður á þróunina 1
V-Berlín sem einn helzta próf-
steininn á vilja Sovétrikjanna til
að draga úr spennu milli austurs
og vesturs.
— Ihlutun
borgaryfirvalda
Framhald af bls. 2
samið jafnvel þó bara um borgina
væri að ræða þar sem kröfurnar
eru tengdar svo mörgu svo sem
vísitöluákvæðum, svo og sér-
ákvæðum. Samningar um visi-
töluákvæði eru algjör forsenda
þess, að hægt sé að ræða launatöl-
urnar að öðru leyti. Sumar sér-
kröfur ganga mun lengra en aðal-
krafan.
Magnús sagði að sumar næmu
samtals 134% launahækkun og
allir sæju að þessi stefna sumra
félaga gengi þvert á þá stefnu
sem mynduð var á þingi ASÍ.
Magnús L. Sveinsson sagðist ekki
vilja horfa upp á það sem gerst
hefði 1974 að eftir að láglauna-
hóparnir höfðu undirritað sina
samninga sömdu þeir, sem hærri
launin höfðu um meira sér til
handa og allir vissu hvað úr varð;
óðaverðbólga.
Magnús sagðist vilja lika vekja
athygli á sérstöðu borgarinnar yf-
irleitt í kjaramálum, þ.e. að aukin
útgjöld eru sótt í vasa skattborg-
aranna. Hann sagðist telja frá-
leitt, að opinberir áðilar taki
frumkvæði í kjaradeilum sem
þessum og skerði hinn sjálfstæða
samningsrétt deíluaðila. Það er
heilagur réttur verkalýðshreyf-
ingarinnar að hafa samningsrétt
frjálsan. Lagði Magnús siðan
fram eftirfarandi tillögu frá borg-
arfulltrúum Sjálfstæðisflokksins:
„Borgarstjórn telur æskilegast, að
nú sem endranær verði samið um
kaup og kjör í frjálsum samning-
um verkalýðsfélaga og vinnuveit-
enda. Samningaviðræður standa
nú yfir með milligöngu sérstakrar
sáttanefndar, sem ríkisstjórnin
hefur skipað og er undir forystu
sáttasemjara ríkisins. Tillaga
Björgvins Guðmundssonar gerir
ráð fyrir að Reykjavikurborg
samþykki einn þátt krafna verka-
lýðsfélaganna til bráðabirgða eða
þar til heildarsamningar hafa ver-
ið gerðir, en þá gangi Reykjavik-
urborg inn i það samkomulag.
Með slíku boði væri Reykjavikur-
borg að bjóðast til að kaupa sig
undan þeim óþægindum, sem
leiða af vinnudeilunni. Það er
ekki óþekkt í kjaradeilum, að ein-
staka vinnuveitendur bjóðist til
að semja upp á væntanlega samn-
inga til að fría sig óþægindum.
Verkalýðsfélögin hafa ævinlega
hafnað slíkum samningum og tal-
ið þá síst til þess fallna, að flýta
fyrir eða auðvelda lausn kjara-
deilna. Reykjavikurborg hlýtur
að sjálfsögðu að greiða það kaup-
gjald sem um verður samið og
íhlutun borgaryfirvalda í samn-
inga nú væri í andstöðu við frjáls-
an samningsrétt launþega og
vinnuveitenda. Borgarstjórn tel-
ur þvi ekki rétt að leita bráða-
birgðasamninga fyrir borgina við
verkalýðsfélögin og visar þvi til-
lögu Björgvins Guðmundssonar
frá.
Borgarstjórn leggur áherzlu á,
að það svigrúm sem fyrir hendi er
til raunverulegra kjarabóta verði
notað til þess að bæta kjör hinna
lægst launuðu og hvetur samn-
ingsaðila til að gera allt sem í
þeirra valdi stendur til að ná
samningum sem fyrst og forða frá
þeirri ógæfu sem verkföll jafnan
eru.“
Björgvin Guðmundsson tók aft-
ur til máls og sagðist vera tilbú-
inn að fella siðustu greinina aftan
af tillögu sinni. Björgvin sagði
það sína skoðun að því fleiri
vinnuveitendur sem lýstu yfir
stuðningi við 100 þús. kr. lág-
markslaun því meiri líkur væru á
lausn deilunnar. „Ég hélt að
Magnús L. Sveinsson myndi fagna
því að stór vinnuveitandi lýsti sín-
um stuðningi." Björgvin sagði það
sina skoðun að ekki væri hægt að
lifa í dag af lægri mánaðarlaun-
um en 100 þúsund krónum, og það
ætti einnig að vera verðtryggt.
Hann itrekaði þá skoðun sína að
með þvi að lýsa yfir stuðningi við
aðalkröfu verkalýðsfélaganna
gæti borgarstjórn Reykjavikur
greitt fyrir lausn, það ætti að
minnsta kosti að vera verkalýðs-
félögunum I hag þ.á.m. Verzlun-
armannafélaginu. Adda Bára Sig-
fúsdóttir (Abl) lýsti fyllsta stuðn-
ingi borgarfulltrúa Alþýðubanda-
lagsins við tillögu Björgvins. Hún
sagði það vera „hreina fátækt að
lifa af launum undir 100 þús. kr. á
mánuði." Kristján Benediktsson
(F) sagði að borgarfulltrúar
Framsóknarflokksins væru sam-
mála skoðun Ólafs Jóhannessonar
sem fram hefði komið í útvarps-
umræðum að lágmarkslaun beri
að hækka í 100 þúsund miðað við
1. nóv. 1976. Með visun til þess,
væru þeir þvi sammála að Reykja-
vikurborg tæki undir þá kröfu
ASÍ að lágmarkslaun hækki i 100
þús. kr. og þá skoðun formanns
Framsóknarflokksins, að koma
beri til móts við þá kröfu. Þótt
viljayfirlýsing sú sem felst í til-
lögu Björgvins Guðmundssonar
gangi nokkru skemmra í þessum
efnum, telji borgarfulltrúar
Framsóknarflokksins fráleitt að
vísa henni frá eins og meirihluti
borgarstjórnar leggur til. Ililmar
Guðlaugsson (S) sagðist telja að
Björgvin Guðmundsson gerði sér
ekki alveg fulla grein fyrir hve
málið væri umfangsmikið og hvað
þetta snerti marga þætti heildar-
samninganna. Hilmar sagðist
vilja ftreka það að forsenda samn-
inga væri verðtrygging. Hann
varpaði fram þeirri spurningu
hvað þýddi að semja um háa
prósentuhækkun ef engin trygg-
ing væri fyrir aukningu kaup-
htát'fáf? Þa Vildi Hilmáf veKja at-
hygli á að vernda bæri hinn
frjálsa samningsrétt og opinberir
aðilar ættu ekki á neinu stigi að
grípa inn í samninga aðila vinnu-
markaðarins, nema um sé að ræða
afmörkuð atriði. Hilmar sagðist
vera eindreginn stuðningsmaður
þeirrar stefnu sem tekin var á
sfðasta Alþýðusambandsþingi, en
tillaga Björgvins Guðmundssonar
væri ekki rétta leiðin til að ná því
markmiði, heldur yrði samþykkt
tillögunnar hans Björgvins frekar
til að torvelda samninga en greiða
fyrir þeim.
Magnús L. Sveinsson sagðist
gera ráð fyrir að þeir menn sem
töluðu um 100 þús. kr. kröfuna og
styddu hana gerðu sér grein fyrir
þeim annmörkum ef það ætti að
gerast innan þess ramma sem tal-
að sé um, eins og Ólafur Jóhann-
esson. Síðan sagði Magnús: „Það
er enginn vandi að gefa út yfirlýs-
ingu eins og stjórn Sambands ísl.
samvinnufélaga hefur gert en
hins vegar er tilboð Vinnúmála-
sambands samvinnufélaganna
ekki i takt við samþykkt stjórnar
Sambandsins," og sagðist Magnús
þó halda að þar væri stutt sam-
band á milli. Og hann spyrði af
gefnu tilefni hvor aðilinn réði
launamálastefnu Sambarrdsins,
stjórn þess eða Vinnumálasam-
band samvinnufélaganna sem
mætir við samningaborðið fyrir
hönd Sambandsins. Magnús sagði
að þeim í samninganefndinni
hefði fundist tilboð VMSS nokkuð
langt frá því marki sem stjórn
Sambandsins* lýsti yfir að sjálf-
sagt væri að ganga að. Magnús
sagðist ekki skilja þá tregðu að
standa við orðin. Hann sagði lít-
inn vanda að tala fagurlega með-
an ekki þyrfti að standa við það.
„Ég spyr,“ sagði Magnús, „á yfir-
lýsing eins og sú sem fram kemur
í tillögu Björgvins Guðmundsson-
ar að vera eitthvert plat eins og
yfirlýsing stjórnar Sambands-
ins?“ Ef menn lýsa þvi yfir að
þeir séu reiðubúnir að greiða 100
þús. kr., þá þyrftu þeir að vera
reiðubúnir að skrifa undir það.
Magnús sagði að menn sem
teldu það rétta stefnu hjá borg-
inni að lýsa yfir að hún sé reiðu-
búin að ganga að 100 þús. kr.
kröfunni yrðu að gera sér grein
fyrir að þetta væri aðeins einn
þáttur af heildarkröfunum. Borg-
arfulltrúinn spurði hvað væri þá
með verðtrygginguna sem væri
auðvitað þýðingarmest af öllu.
Verðbólgan hefur leikið laun-
þega grátt. Það er þvi grundvall-
aratriði að verðtryggja launin,
það væri miklu stærra atriði.
Betra væri að semja um 90 þús.
kr„ svo dæmi væri tekið, og hafa
það verðtryggt en semja um
óverðtryggðar 100 þús. kr. Magn-
ús sagði það hálfkveðría visu þótt
mikilvægt væri að tala um launin
þá væri það aðeins hálf sagan að
tala bara um launin en enga verð-
tryggingu. „Yfirlýsingar um að
borgin eigi aðeins að lýsa yfir
stuðningi en ekki semja, þær eru
léttar i veski hvers launþega,*'
sagði Magnús L. Sveinsson að lok-
um.
Björgvin Guðmundsson tók
næst til máls og þakkaði góðar
undirtektir borgarfulltrúa Al-
þýðubandalagsins og Framsókn-
arflokks við tillögu sinni. „Hér i
tillögu minni var eingöngu um
viljayfirlýsingu að ræða.“ Björg-
vin sagði að Magnús L. Sveinsson
hefði mátt skilja það, að hér væri
aðeins um eina kröfu verkalýðsfé-
laganna að ræða, það vissi Magn-
ús líka og þá auðvitað einnig að
þó eitt sé samþykkt þá þurfi
meira til lausnar deilunni. Björg-
vin Guðmundsson sagðist vissu-
lega sammála þvi að mikilvægt
væri að tryggja verðlagsuppbæt-
ur á Iaun en „verkanraður sem í
dag hefur 70 þús. hefur ekki gagn
í dag af verðlagsuppbótum sem
fram koma einhvern tíma i fram-
tiðinni." Nú þarf að hækka lægstu
laun í 100 þús. krónur og tryggja
síðan verðlagsuppbætur í framtíð-
inni. Kristján Benediktsson sagð-
ist ekki hafa nein gögn i hendinni
til að ræða plagg það frá VMSS
sem Magnús L. Sveinsson hefði
rætt um. Björgvin Guðmundsson
itrekaði siðan að tillaga stn væri
ekki tillaga að bráðabirgðasam-
komulagi heldur aðeins viljayfir-
lýsing. Frávísunartillaga borgar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins var
samþykkt með níu atkvæðum
gegn sex. Eins og sjá má voru
umræðúr all snarpar.