Morgunblaðið - 10.05.1977, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 10.05.1977, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1977 13 Umsión: Pétur J. Eiríksson Frjálst framtak í eigið húsnæði á 10 ára afmæli: „Gódur mark- aður hér fyrir vönduð sérrit” segir Jóhann Briem fram- kvæmdastjóri „ÞETTA hefur tekist með mikilli vinnu, skipulagningu og þjálfuðu starfsfólki," sagði Jóhann Briem framkvæmdastjóri Frjáls framtaks h/f á fundi með fréttamönnum í fyrri viku f tilefni 10 ára afmælis fyrir- tækisins og flutnings bækistöðva þess í rúmgott og glæsilegt eigið húsnæði í Ármúla 18. 10 ár eru nú liðin frá því að Frjálst framtak var stofnað og tók við útgáfu Frjálsrar verzlunar, sem var upphafið að út- gáfustarfseminni. í dag er Frjálst framtak stærsti útgefandi sérrita hér á landi og hafa umsvif fyrirtækisins aukizt jafnt og þétt. Sérritin 4 eru auk Frjálsrar verzlun- ar, Sjávarfréttir, íþróttablaðið og Iðn- aðarblaðið, sem hóf göngu sína seint á sl. ári Alls koma þessi rit út í tæplega 25000 eintökum samtals að sögn Jóhanns Briem, yfirleitt um 100 bls. síður hvert tölublað Frjáls verzlun kom fyrst út 1939 og kemur nú út sýna fram á, að þessi þróun átti ekki síður við hér á landi Ég gerði mér mjög fljótlega grein fyrir því að til að halda svona starfsemi gangandi væri ekki nægilegt að gefa út eitt rit og því hef ég stöðugt stefnt að þvi að auka umsvifin. Það hefur sýnt sig að markaður er hér á landi fyrir vönduð sérrit. Hins vegar er ekki hægt að reka slíka starfsemi nema með góðri skipu- lagningu, setja sér markmið og gera starfsáætlanir og þjálfa upp gott starfs- fólk. Þegar allt þetta er lagt saman er hægt að láta útgáfufyrirtæki eins og Frjálst framtak bera sig — í Bandaríkjunum hefur því verið haldið fram af mörgum útgefendum að 10 ár tæki að hasla nýju tímariti völl. hver er þín reynsla á þessu sviði? Tekur langan tíma að vinna ný blöð upp — Ég hef heyrt þannan sama ára- fjölda í viðræðum við bandaríska út- gefendur og það er rétt að yfirleitt tekur langan tíma að vinna ný blöð upp. Hins vegar hefur það sýnt sig i sambandi við Sjávarfréttir. íþrótta- blaðið og Iðnaðarblaðið að jarðvegur fyrir útgáfu slíkra rita er mjög góður ef dæma má af þeim viðtökum, sem þau hafa fengið Við leggjum áherzlu á að Jóhann Briem t.h. fyrir miðju ásamt Markúsi Erni og starfsfólki Frjáls framtaks. mánaðarlega undir ritstjórn Markúsar Arnar Antonssonar Sjávarfréttir, sérrit um sjávarútvegsmál. hefur komið út í 5 ár. fyrst í stað annan hvern mánuð en mánaðarlega frááramótunum 1975—76 og er ritstjóri þess Steinar J. Lúðviksson Frjálst framtak hefur nú um nokkurra ára skeið gefið út íþrótta- blaðið í samvinnu við ÍSÍ og kemur það út annan hvern mánuð undir rit- stjórn Sigurðar Magnússonar, skrifstofustjóra ÍSÍ Jóhann Briem er sjálfur ritstjóri Iðnaðarblaðsins. sem kemur út annan hvern mánuð nú til að byrja með Þá hefur fyrirtækið um nokkurra ára skeið gefið út árbókina íslenzk fyrirtæki og er nú verið að vinna að útgáfu 1977-bókarinnar og er ritstjóri hennar Hrönn Kristinsdóttir. Ljósmyndarar eru Kristinn Benedikts- son og Jóhannes Long og útlits- hönnuður Árni Gunnarsson Að sögn Jóhanns Briem vinna nú 20 fastráðnir starfsmenn hjá Frjálsu framtaki auk fjölmargra annarra, sem vinna að ýmsum verkefnum við útgáfu- starfið Jóhann var spurður að því hverju hann þakkaði vöxt fyrirtækisins. er á það væri litið á útgáfustarfsemi á íslandi hefði löngum verið talin erfið Ekki nóg að gefa út eitt rit — Það er rétt að þetta hefur verið erfitt Erlendis hefur þróunin verið sú að sérrit hafa átt vaxandi vinsældum að fagna Með skipulagðri auglýsinga- og kynningarstarfsemi hefur tekizt að fara aðrar leiðir en dagblöðin, tökum málin frá öðrum sjónarhóli. skyggn- umst dýpra og leggjum stolt okkar í vandaðar greinar innlendar og erlendar á öllum sviðum. Einkum má kannski segja að vöxtur Sjávarfrétta hafi verið snöggur og er það kannski eðlilegt. þar sem þorri landsmanna er tengdur þess- um atvinnuvegi og áhuginn fyrir sjávarútvegsmálum er okkur í blóð bor- inn. Starfsmenn á ritstjórnum allra blaðanna fylgjast mjög vel með á þeim sviðum, sem þau fjalla um og hafa til ráðuneytis og samstarfs hóp sérfróðra manna. — Hversu mikilvægur þáttur er skipulagning og áætlanagerð? — Til þess að hægt sé að reka svona útgáfufyrirtæki er slíkt algert grundvallarskilyrði Verðbólgubálið krefst þess að fylgst sé mjög nákvæm- lega með rekstrinum og að bókhaldið sé notað sem stjórnunartæki. Allar áætlanir eru endurskoðaðar um hver mánaðamót og kannað hvernig tekist hefur að fylgja þeim og hvaða breyt- ingar eru nauðsynlegar Ef ég hefði ekki lagt þetta til grundvallar þegar í upphafi hefðum við aldrei náð þeim áfanga. sem við fögnum nú Hið nýja húsnæði Frjáls framtaks er 400 fm að stærð og mjög vistlega innréttað. þar sem áherzla hefur verið lögð á að búa starfsfólkinu sem bezta aðstöðu Það var arkitektastofan ARKO sem hannaði innréttingar en Guðmundur Hervinsson sá um tré- smíðavinnu Afmæliskveðja: Bjarni og Ragn- heiður í Brekkubæ Þegar ég hefi á stundum verið að þvi spurður hvort ferðalög um hið viðlenda Austurlandskjör- dæmi væru ekki lýjandi til lengdar, þá hefi ég svarað því til, sem satt er, að þau séu hin mesta upplyfting frá erli hins daglega starfs í höfuðborginni. Þá vilja ýmsir gamlir kunningjar fá að vita hvað Vestfirðingurinn sé að sækja á Austurland, og er þvi þá enn til að svara, að maðurinn er að vísu framagjarn og hefir haft mikinn áhuga á félagsmálum frá unga aldri, en ekki siður, að ég hefði ekki fyrir nokkurn mun mátt til þess hugsa að missa af kynnum við fólk og þeim vina- fjöld, sem ég hefi eignazt austur þar. Ég heimsótti byggðir Austur- Skaftafellssýslu fyrst i byrjun apríl 1963. Þótt flest sé likt með landsmönnum öllum, er eigi fyrir að synja, að hvert hérað á sin sérkenni. Kynnin af Austur- Skaftfellingum voru óneitanlega all-frábrugðin því sem ég hafði átt að venjast eða til þekkt. Án þess hér og nú að tiunda þau i öllum efnum, þá voru þau skemmtileg umfram allt. Það væri skrítinn skynskiftingur sem ekki þakkaði sinum sæla fyrir að hafa náð að kynnast mönnum á borð við Sigurð Ólafsson, Stefán i Hlíð eða Einar i Hvalnesi, svo nefndir séu þrir gegnir og gengnir. Það var ekki fyrr en nokkru síðar að ég kynntist höfðings- manninum, sem í dag fyllir áttunda áratuginn, Bjarna bónda í Brekkubæ. En þótt kynnin séu skammæ, þá þykir mér allt æði og lifshlap þessa manns svo merki- legt, að ég má til með að stinga niður penna og heilsa á hann á heiðursdegi. Þó mun liðinn um það bil ára- tugur siðan ég gisti bæ hans i för með listamönnum, sem þekktu hvern mann bóndi hafði að geyma. Það varð hátt til lofts og vitt til veggja i litlu stofunni í Brekkubæ, þegar Bjarni var seztur við orgelið að leika undir með söngvurum, lög eftir sjálfan sig og aðra. Það varð mér þá og siðar undrunarefni hversu marga gagnmenntaða menn ísland á, þótt þeir berist misjafnlega á. Síðar sýslaði ég um smávegis fyrir hann, og fleiri áhugamenn austur þar um byggingu hinnar nýju Bjarnarnesskirkju, og hlaut að launum þakkir fyrir lítið verk, sem mér voru einkar kærar. Síðan á ég í fórum mínum bréf frá Bjarna, þar sem hver staf- krókur ber vitni hinum vandaða og nærgætna manni. Þá verður minnileg með honum dagstund á Seljavöllum hjá Agli bónda, þar sem hin fjölbreyttustu efni bar á góma. Lifsskoðun hans og trúarleg viðhorf eru fastmótuð af íhygli hins grandvara og gáfaða alvörumanns. Bjarni nam ungur fræði Nýalssinna og var útlistum hans fróðleg og mjög forvitnileg, þótt tóm gæfist of lítið til. Ég hefi viðað að mér nokkrum föngum um iifshlaup Bjarna, en þess er á hinn bóginn enginn kost- Framhald á bls. 29 Endumiinningar endumýjaðar Viö önnumst eftir- tökur og lagfæringar gamalla mynda. Stækkum i allar stæröir frá 13 x 18 cr til 2ja fermetra. AUGLÝSINGA OG IÐNAÐARLJÓSMYNDUN HVERFISGÖTU 18, BAKHÚS SÍMI 22811

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.