Morgunblaðið - 10.05.1977, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1977
37
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10 — 11
FRÁ MANUDEGI
U'UMiTTeK-aM'iJW
Noregi. Eitt af þvi sem kemur til
greina, er að leyfa bruggun á
sterkara öli en nú er, því öl gerir
menn þunga og værukæra og er
sumstaðar álitið betra en nokkurt
róandi meðal, jafnvel öl 2.75% að
styrkleika væri til bóta. —
Þá þarf i Reykjavik að stöðva
drykkjuna i heimahúsum um
helgar, partiin alræmdu og slags-
málin á götunum upp úr
miðnættinu, en það verður ekki
gert með öðru en þvi að leyfa
veitingahúsum að hafa opið til kl.
5 á morgnana á föstudags- og
laugardagskvöldum, eins og gert
er allstaðar annarsstaðar. Ég full-
yrði að fylleriis-partí eins og nú
eru um hverja helgi i mörgum
heimahúsum í Reykjavik
þekkjast ekki i Evrópu. Og ég
fullyrði að núverandi ástand staf-
ar ekki af því, að islendingar séu í
eðli sínu siðlausari en aðrar þjóð-
ir.
Ég býst við að sumum þyki
komið nóg og ég mun ekki svara
þeim mönnum, sem munu ráðast
á þetta greinarkorn, þvi ástand
áfengismála i Reykjavík og á
sveitarböllum er fyrirfram nægi-
legt svar til þeirra.
Ég vona svo, að þú, kæri Vel-
vakandi, birtir þennan stúf, til
athugunar fyrir þá sem raunveru-
lega vilja umbætur í þessum
málum.
Jón Pétursson“
0 Meira um
tannréttingar
Asta Bjarnadóttir:
— Ég vildi gjarnan
leiðrétta þann misskilning hjá
konu í Garðabæ, þegar hún talar
um tannréttingasérfræðinga í
Velvakanda á föstudag. Þeir, sem
hún talar um, eru venjulegir
tannlæknar, en það eru aðeins 3
tannréttingasérfræðingar hér á
Iandi, 1 á Akureyri og 2 i Reykja-
vík. Þegar ég fór í Sjúkrasamlagið
á sinum tíma var mér tjáð, að það
greiddi tannréttingar frá tveim
tannlæknum hér í borg og að þeir
væru venjulegir tannlæknar, en
hefðu ekki sérfræðimenntun i
tannréttingum. Það er dálitið
undarlegt að sjúkrasamlagið
greiði tannréttingar frá tann-
læknum, en ekki frá mönnum
með sérfræðimenntun. Ég
hringdi þá i tannlækni minn, sem
ég treysti fullkomlega, og spurði
hann ráða. Ráðlagði hann mér að
leita til sérfræðinga.
Ég skora á foreldra að láta
heyra til sin í þessu máli og
krefjast þess að við njótum sömu
réttinda og Akureyringar og
fáum endurgreiddar
tannréttingar eins og þeir. —
Og frá þessu tannréttingamáli
snúum við okkur að öðrum þætti
heilbrigðismálanna, en það er
um:
% Örorkubætur
vangefinna
Móðir:
— Ég á vangefinn dreng og
mig langar að spyrjast fyrir um
þann mismun, sem er á greiðslu
örorkubóta fyrir börn, — barna-
örorku. Af börnum, sem dveljast
á Lyngási er tekinn þriðjungur
barnaörorkunnar.en af börnum,
sem eru i Kjarvalshúsinu er
ekkert tekið. Tryggingarstofnun-
in sagði, að Kjarvals-heimilið
hefði ekki látið vita um þau börn,
sem þar dveldust og þvi væri ekki
þessi þriðjungur tekinn af þeim.
Er þetta ekki óþarfa munur?
Þessir hringdu . . .
9 Hvað þarf
mikið til
að lifa?
Roskin kona:
— Mig langar að fá þvi
svarað hvað er áætlað að kona,
ekkja, þurfi mikla peninga á
mánuði til að geta lifað af. Ekkju-
lífeyrir er nú rúmlega 20 þúsund
krónur á mánuði, sem dugar ekki
nema fyrir hita og rafmagni, en á
hverju á þá að lifa ef tekjurnar
eru ekki aðrar? Gamla fólkið er
að verða baggi á bænum og riki,
það er orðið svo margt og allir
vilja t.d. fá afslátt af fasteigna-
gjöldum. En er ætlast til að ekkja,
sem hefur ekki annað en ekkna-
bætur, geti lifað eingöngu af þeim
tekjum?
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Sovézki stórmeistarinn Tigran
Petrosjan var heimsmeistari á
árunum 1963—9. Hann tefldi þrjú
einvígi um heimsmeistaratitilinn,
sigraði Botvinnik með 12H
vinning gegn 9'/é og Spassky með
12H — 11V4. Arið 1969 glataði
hann svo heimsmeistaratitlinum í
hendur Spasskys er hann tapaði
10U—12U. ,
Hér hefur Petrosjan hvitt og á
leik gegn Pachman á móti i Bled í
Júgóslaviu árið 1961.
19. Dxf6+!! — Kxf6 20. Be5+ —
Kg5 21. Bg7! og svartur gafst upp,
þvi að hann verður mát eftir bæði
21. ... Rf5 22. f4+ — Kg4 23.
Re5+ — Kh5 24. Bf3 og 21. ... e5
22. h4+ — Kh5 23. Bf3.
% Þakkir til
bílstjóra
— Við viljum fá að senda
honum Baldri bílstjóra á leið 1
beztu kveðjur fyrir það hvað
hann er hjálplegur og liðlegur við
gamlá fólkið, sem ferðast með
þessari leið. Við sátum hér fjórar
konur um daginn og vorum að
spjalla um þetta og datt í hug að
fá að koma þessari kveðju á fram-
færi.
■m ■ -m * m
m mm- ■,
1
... *!MdÍiUHBl
HÖGNI HREKKVÍSI
l ullkomió phÍIÍpS vcrkstærti
Fagmenn sem hafa sérhæft sig i umsjá
og eftirliti með Philips-tækjúm
s'á um allar viðgerðir.
heimilistæki sf
SÆTÚIMI 8. SÍMI13869.
IFORMICA
-. BRAND
laminated plastic
Það er rétt
Að allir vilja helzt fá Formica í eldhúsinnrétting-
una, á baðið, á sólbekki og víðar, en halda
gjarnan að það sé svo dýrt. Þetta er hinsvegar
ekki rétt. Formica er lítið dýrar en annað
harðplast, en það er auðvitað það lang bezta.
Spyrjið smiðinn, hann þekkir Formica vel.
Mikið úrval lita, einnig marmara og viðar-
mynstur.
G. Þorsteinsson & Johnson h.f.,
Ármúla 1, sími 85533.
ts ■ ■saÉ~*N
nsfawwsRsr*’.
Shellkote vörur
eru fjölhæfari
en yður grunar
SHELLKOTE VÖRUR: NOTENDUR:
Þéttiefni, litarefni, eldvarnarefni, Ifmefni, þétti-og varnarefni bifreiða. Iðnaðarmenn, verktakar, húseigendur, húsbyggjendur, bifreiðaverkstæði.
SÖLUSTAÐIR:
Shell verzlunin, Suðurlandsbr. 4, Birgðastöð Skeljungs.Skerjafirði, umboðsaðilar Skeljungs um allt land og ýmsar byggingarvöru- verzlanir. Upplýsingabæklingur um Shell- kote vörur liggur frammi á af- greiðslustöðum og á skrifstofu félagsins, sími 38100.
Olíufélagið Skeljungur hf
Shell
EF ÞAÐ ER FRETT*
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
10
Al’GLYSINtíA-
SÍMINN ÉR:
22480