Morgunblaðið - 10.05.1977, Síða 3

Morgunblaðið - 10.05.1977, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1977 3 Kisiliðjan: Önnur skemmda þróin lagfærð „VIÐ höfum ákveðid að gera við aðra þrðna, sem skemmdist I um- brotunum,** sagði Vésteinn Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Kfsiliðjunnar við Mývatn, er Mbl. ræddi við hann f gær. Vésteinn sagði nauðsynlegt að gera frekari ráðstafanir fyrir hráefnisöflun- ina f sumar, en hvort hin þróin yrði lagfærð eða ný gerð, sagði hann óráðið nú. Vinnsla hefur gengið ágætlega eftir að Kfsiliðj- an fór aftur f gang og sagði Vé- steinn, að verksmiðjan hefði unn- ið með eðlilegum afköstum und- Týndi veski með 243 þús. krónum í í GÆR týndist seðlaveski eins og það sem þjónar á veitingahúsum nota, með 224 þúsund krónum í peningum og ávísun að upphæð 19 þúsund krónur. Veskið er merkt eigandanum og Sjálísalanum h.f., en veskið týnd- ist einhvers staðar á ferð úr Þver- holti —Sundlaug Vesturbæjar — Sundhöllin. Finnandi er vinsamlega beðinn að skila veskinu til lögreglunnar og er fundarlaunum heitið. anfarna daga og væri Ijóst, að engar skemmdir hefðu orðið á vélabúnaði verksmiðjunnar. Þró sú, sem ákveðið er að lag- færa, er þró númer þrjú, en í hana kom stór sprunga og gekk út um einn vegginn. Sagði Vésteinn, að erfitt væri að meta nú kostnað- inn af lagfæringunni, þar sem sprungan væri nokkuð löng og óvíst, hve mikið þurfti til að fylla hana upp, en þó teldu menn að kostnaðurinn ætti að verða innan við tíu milljónir króna. Með þeirri þró, sem enn er heil, og þessari, sem nú verður lag- færð, hefur Kísiliðjan rúm fyrir hráefni til fimm mánaða vinnslu, en Vésteinn sagði, að verksmiðjan þyrfti helzt að hafa hráefni til 7—8 mánaða, þegar hráefnisöflun lýkur að haustinu. Vésteinn Guðmundsson sagði að ákvörðun um lagfæringu þró- arinnar hefði verið tekin í sam- ráði en án raunverulegs stjórnar- fundar og myndi stjórnin senni- lega ekki koma formlega saman fyrr en á aðalfundinum í júní n.k. Hin þróin, sem skemmdist, er til muna verr farin en þró þrjú, þar sem tvær stórar sprungur mynduðust í henni. Kirkjukór Akraness fer til Betlehem — og syngur þar á jólanótt KIRKJUKÓR Akraness hefur ákveðið Betlehemsferð á næstu jólum og að sögn formanns kórs- ins, Guðrúnar Vilhjálmsdóttur, er ætlunin að syngja á torgi jöt- unnar I Betlehem á jólanótt. Söngstjóri kórsins er Haukur Guðlaugsson, og raddþjálfun annast Guðmunda Elfasdóttir, söngkona. Að sögn Guðrúnar bauðst kórn- um þetta fyrir tveimur árum f gegnum ferðamálaráðuneyti Isra- els, en þar sem kórinn verður sjálfur að bera kostnaðinn af ferðinni, varð ekki af ferð þá. Fimmtíu söngmenn eru i kórnum og sagði Guðrún, að mjög líklega yrði myndarleg hópferð úr þessu, þar sem aðstandendur einhverjir mundu fara með. Um fjáröflun sagði Guðrún að uppi væru ýmsar áætlanir, en sennilegast yrði meginkostnaður- inn úr vösum kórfélaga sjálfra. „Annars ætlar Akranesbær að styrkja okkur eitthvað," sagði Guðrún, „og við höfum sótt um styrk til annarra, en enn sem komið er ekki fengið önnur svör en þau, að styrkir til ferðalaga sem þessa séu ekki fyrir hendi, þótt styrkir séu til slíkra ferða til Norðurlanda." Geir Hallgrfmsson var endurkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins og Gunnar Thoroddsen, varafor- maður á landsfundi Sjálfstæðisflokksins f fyrrakvöld. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins: Geir Hallgrímsson end- urkjörinn formadur - og Gunnar Thoroddsen varaformadur GEIR Hallgrímsson var endurkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða á Landsfundi flokksins sl. sunnudags- kvöld. whlaut hann 618 atkvæði, en Gunnar Thoroddsen fékk 41 og aðrir færri. Gunnar Thoroddsen var jafn- framt endurkjörinn varaformaður flokksins með 564 atkvæðum. Ragnhildur Helgadóttir fékk 49 atkvæði í varafor- mannskjörinu, Albert Guðmundsson 16, Ingólf- ur Jónsson 11 og Jónas Haralz 9. Einnig var kosið í átta af 15 sætum í miðstjórn flokksins. Samband ungra sjálfstæðis- manna stóð að framboði tveggja úr sinum röðum, þeirra Ingu Jónu Þórðardóttur, viðskipta- fræðings frá Akranesi, og Kjartans Gunnarssonar, laga- nema úr Reykjavík. Voru þau valin til framboðs með próf- kjöri meðal ungra Landsfund- arfulltrúa. Þau náðu bæði kjöri, en áður áttu ungir sjálf- stæðismenn einn kjörinn full- trúa í miðstjórn. Inga Jóna hlaut flest atkvæði í miðstjórnarkjörinu eða 562. Næst urðu Birgir ísleifur Gunnarsson, Reykjavík, með 546 atkvæði, Jónas Haralz, Kópavogi, 484, Kjartan Gunn- arsson, 446, Salóme Þorkels- dóttir, Mosfellssveit, 365, Vig- fús Jónsson, Laxamýri í Þing- eyjarsýslu, 304, Björn Þórhalls- sson, Reykjavík, 301 og Tómas Tómasson, Keflavík 290. Meðal þeirra sem ekki náðu kjöri til miðstjórnar, voru Pét- ur Blöndal, Seyðisfirði, 283 at- kvæði, Geirþrúður Hildur Bernhöft, Reykjavík, 279, Kai- man Stefánsson, Kalmans- tungu, 268 og Óli Þ. Guðbjarts- son, Selfossi, 233 atkvæði. Kristín Magnúsdóttir 134, Jón ísberg, 115, Þorsteinn Gislason 89, Páll V. Danielsson 81. Tveir þeirra, sem setið hafa i miðstjórn siðan á siðasta Lands- fundi, þeir Jón Magnússon, Reykjavík, og Halldör Blöndal, Akureyri, gáfu ekki kost á sér til endurkjörs, en þau Geir- þrúður Bernhöft og Kalman Stefánsson áttu einnig sæti í fyrri miðstjórn en náðu ekki endurkjöri, eins og áður sagði. — Síðdegis í gær kaus þing- flokkur Sjálfstæðisflokksins fimm fulltrúa úr sínum hóp 1 miðstjórn. Kjörnir voru þeir AI- bert Guðmundsson, Jóhann Hafstein, Matthias Bjarnason, Matthfas A. Mathiesen og Stein- þór Gestsson. Ingólfur Jónsson, sem hefur átt sæti I miðstjórn Sjálfstæðisflokksins i þrjá ára- tugi gaf ekki kost á sér til end- urkjörs. TRIMARAN GLÆSILEGAR ÍBÚÐIR Þetta er staðurinn sem býður upp á hvort tveggja, spennandi skemmtanálíf fyrir unga fólkið og rólega og fagra baðströnd, sannkallaða paradís fyrir fjölskyldu og bamafólk. Við bjóðum upp á TRIMARAN-ibúðimar. Glcesilegar íbúðir ífögru umhverfi rétt við baðströndina. Frábcerlega vandaðar ibúðir meðfull- komnum eldhúsum og baðherbergjum, sólsvölum og einu eða fleiri svefnherbergjum. Trimaran er eina íbúðarhótelið í Lloret de Mar á Costa Brava með einkasundlaugum fyrir gesti sína. Kynnið ykkur hin sérstaklega hagstceðu kjör fyrir fjölskyldur. Auk þess sérstakar íbúðir og hótel eingöngu fyrir ungt fólk. LA CAROLINA hótel í sérflokki. Leikskóli og bamagcesla ókeypis fyrir Sunnugesti. Brottfarardagar: 12. júníuppselt-3. júlí-24. júlí-31. júlí- 7. ágúst-14. ágúst-21. ágúst- 28. ágúst - 4. sept. -11. sept. FERÐASKRIFSTOFAN SUNNA Lækjargötu 2 — Símar: 16400-12070-15060

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.