Morgunblaðið - 10.05.1977, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. MAl 1977
19
Flemming Delfs sigraði landa sinn Svend Pri I úrslitaleiknum f
einliðaleik eins og á Norðurlandamótinu hér ( haust.
Þrefalthjá
Dönum á HM
íbadminton
FLEMMING Delfs sigraði í einliðaleik karla og Lena Köppen (
einliðaleik kvenna á heimsmeistaramótinu ( badminton á Malmö
á sunnudaginn. Danir fengu þvf tvo helztu sigurvegara þessa
fyrsta opinbera heimsmeistaramóts ( greininni.
Flemming Delfs, sem er 25 ára gamall, bætti þarna heimsmeist-
aratitlinum í safn sitt, en fyrr í vetur sigraði hann á All England
mótinu og Norðurlandamótinu hér á landi síðastliðið haust. í
úrslitunum lék Delfs gegn Svend Pri og fóru leikar þannig að
Delfs sigraði örugglega 15:5 og 15:6. I fyrstu lotunni hafði Delfs
umtalsverða yfirburði, en í þeirri seinni náði Pri góðum „smöss-
um“ áður en Delfs tók yfirhöndina eins og i fyrri lotunni.
Meiri barátta var hjá konunum, en Lena Köppen, 24 ára
tannlæknisstúdent, sigraði Gillian Gilks, Englandi, 12:9 og 12:11.
Þó munurinn væri ekki mikill þá þótti leikur þeirra ekki sérlega
skemmtilegur á að horfa. Mikill fjöldi áhorfenda fylgdist með
leiknum og voru þeir flestir á bandi Dana i siðustu leikjunum.
I tvíliðaleik kvenna sigruðu japönsku stúlkurnar Toganoo og
Euneo þær Riddler og Beusekom frá Hollandi 15:10 og 15:11 í
úrslitaleiknum. í tviliðaleik karla unnu Tjun Tjin og Wadyudi frá
Indónesiu landa sina Christian og Ada Chandra 15:6 og 15:4 í
úrslitaleiknum. Svíar áttu þvi hvergi mann i úrslitunum, en
gestgjafarnir höfðu bundið miklar vonir við Frömann og Kihl-
ström i tvíliðaleiknum. Næsta HM i badminton verður haldið i
Indónesiu 1980.
í tvenndarkeppninni var gífurleg barátta milli Steen Skovgard
og Lenu Köppen, Danmörku, gegn þeim Derek Talbot og Gillian
Gilks, Englandi. Bættu Danirnir þarna þriðja heimsmeistaratitil-
inn.Í.S?>/n sitt. Urslitin urðu 13:12 og 18:17.
Lena Köppen sigraði ( einliðaleik kvenna og f tvenndarkeppni,
þannig að hún lagði sitt af mörkum til að gera veg Dana sem mestan
á fyrsta heimmeistaramótinu ( badminton.
OVÆNT URSUTIFYRSTU
LEIKJUM ÍSLANDSMÚTSINS
VESTMANNAEYINGAR sækja hart að marki Framara 1 leiknum á laugardaginn. Þeir berjast um
knöttinn Sigurbergur Sigsteinsson, Kristinn Atlason, Karl Sveinsson og Trausti Haraldsson. Eggert
Steingrfmsson fylgist með álengdar, en hvað Sigurlás Þorleifsson er að gera á markKnunni er ekki
gott að segja.
ÞÁ ER knattspyrnuvertfðin hafin fyrir alvöru og þegar hafa fimm leikir farið fram og fyrstu
umferðinni er lokið. t leikjum helgarinnar urðu mjög óvænt úrslit ( nokkrum leikjanna. Þannig áttu
vfst fæstir von á sigri UBK gegn Val á laugardaginn og þá ekki heldur á sigri ÍBV gegn Fram, en
knattspyrnuna er erfitt að reikna út nú sem fyrr.
Það var Akureyringurinn Aðalsteinn Sigurgeirsson, sem skoraði fyrsta mark íslandsmótsins.
Aðalsteinn fékk einnig fyrstur áminningu en Gisli Torfason, var fyrstur til að misnota vítaspyrnu, en
hann skaut framhjá í leiknum gegn Þór.
Allmargir áhorfendur fylgdust með fyrstu leikjunum, en hvergi voru þeir þó fleiri en á leik UBK og
Vals í Kópavogi, tæplega 1500. Tveir leikmenn voru fluttir á slysavarðstofuna I fyrstu leikjunum.
Vestmanneyingurinn Sigurlás Þorleifsson og Vikingurinn Róbert Agnarsson.
Hér á eftir fara stutt samtöl við tvo knattspyrnumenn, einn þjálfara og kunnan knattspyrnuáhuga-
„Áttum ekki von
á að sigra í dag"
GEORGE SKINNEAR, þjálfari
Veetmannaeyinga, var að
vonum kampakátur að loknum
sigurleik ÍBV gegn Fram á
laugardaginn. Skinnear þessi
þjálfar nú Eyjamenn annað ár-
ið í röð og það var undir hans
stjórn, sem ÍBV sigraði með
yfirburðum f 2. deildinni (
fyrra. George Skinnear er
Englendingur f húð og hár en
virðist gjörólikur hinum
brezku þjálfurunum, sem hér
starfa.
Skinnear er á sextugsaldri og
silfurgrátt hár hans og allt fas
gerir það að verkum að manni
finnst þarna frekar vera á ferð-
inni gamall frændi frá Eng-
landi en harður knattspyrnu-
þjálfari, alinn upp i knatt-
spyrnu atvinnumannsins.
Þegar farið er að tala við
Skinnear er hann ekkert annað
en góðmennskan og kurteisin
og um leið skilur maður það
dálæti, sem leikmenn ÍBV og
aðrir Eyjaskeggjar hafa á hon-
um.
— Þetta var ekki erfiður
leikur, sagði Skinnear og lokn-
um leiknum gegn Fram. — Við
höfðum átt von á enn meiri
hörku og erfiðari andstæðing-
um en kom á daginn. Sannast
sagna reiknaði ég ekki með
sigri í þessum fyrsta leik okkar.
Ég var á margan hátt ánægður
með strákana mina, þeir gerðu
góða hluti í leiknum, en duttu
svo niður þess á milli. Eðlilega
eykst bjartsýnin eftir svona sig-
urleik, en við vitum allir að
þetta var :ðeins fyrsti leikur-
inn, en 17 eru eftir. í fyrra
gekk okkur vel í 2. deildinni, en
það tekur tíma að ná upp þeim
hraða og þeirri hörku, sem er í
1. deildinni, þannig að þó við
höfum staðizt prófraunina í
dag, þá er þetta aðeins byrj-
unin, sagði Skinnear.
— áij.
Ekki séð eins slakt
//
KR-lið síðan 1914"
PÁLMI ÓLAFSSON, sem
raunar er óþarft að kynna fyrir
vallargestum og knattspyrnu-
mönnum, lét sig ekki vanta á
leikinn á Akranesi. Greinilegt
var, að gamli maðurinn var
ekki ánægður, er við hittum
„Kvíði ekki
sumrinu þrátt
fyrir tapið
— SUMARIÐ leggst vel ( mig
þrátt fyrir tapið í dag á móti
Keflvfkingum, sagði hinn gam-
alreyndi Þórsmarkvörður
Samúel Jóhannsson eftir leik-
inn á laugardaginn.
Langflestir af strákunum i
liðinu voru þarna að leika sinn
fyrsta leik í 1. deild. Viðbrigðin
hafa verið mikil hjá þeim, að
færast úr þriðju deild upp i þá
fyrstu á aðeins tveimur árum.
Þeir voru í vafa um hvernig
þeir stæðu sig þegar á hólminn
væri komið, t.d. markskorarinn
okkar Jón Lárusson. Honum
tókst að skora í sinum fyrsta
leik og ég veit að fleiri mörk
eiga eftir að fylgja í kjölfarið.
Næstu þrir leikir verða próf-
steinninn á það hvernig okkur
vegnar í sumar og ég hef trú á
því að við tryggjum okkur
áframhaldandi setu í deildinni.
— SS
hann að máli að leik loknum.
— Þetta var frekar leiðinlegur
leikur og léku bæði liðin illa,
sérstaklega þó KR, þar sem
leikur þeirra var fyrir neðan
allar hellur.
Kannski afsakar það eitt-
hvað, að leikið var á malarvelli,
en það kemur í ljós síðar, þegar
við sjáum liðin leika á grasi.
— Um Skagamenn vil ég
segja það, að þeir mega taka sig
á og leika mun betur saman, ef
þeir ætla að ná umtalsverðum
árangri í sumar. Mér þóttu þeir
Jón Alfreðsson, Árni Sveinsson
og Kristinn Björnsson vera
bestir í liði þeirra. Mér sýnist
Kristinn ætla að falla vel inni
liðið.
— KR-ingar hafa leikið af-
skaplega lélega knattspyrnu í
allt vor, þannig að getuleysi
þeirra i leiknum kom mér ekki
á óvart. Ég hef fylgzt með
knattspyrnu síðan 1914 og ég
held að KR hafi aldrei teflt
fram lélegra liði en að þessu
sinni. Um einstaka leikmenn er
það að segja, að þar ris enginn
uppúr meðalmennskunni,
nema ef vera skildi Magnús
Guðmundsson markvörður,
sem stóð sig með ágætum i þess-
um leik og hefur oft sýnt ágæta
markvörzlu.
— Hdan
„Sigurinn veit-
irsjálfstraust
//
SIGURÐUR Björgvinsson var
tvfmælalaust maður Kefla-
vfkurliðsins á laugardaginn.
Þessi ungi leikmaður skoraði
tvö dýrmæt mörk.
— Ég hef aldrei skorað tvö
mörk i meistaraflokksleik áður
og reyndar skoraði ég ekki
nema eitt mark í fyrrasumar
svo ég er auðvitað mjög
ánægður með leikinn, sagði Sig-
urður í spjalli eftir leik IBK og
Þórs. Og að sjálfsögðu er ég
mjög ánægður með það að við
skyldum vinna leikinn. Við vor-
um ekki alltof bjartsýnir fyrir
leikinn, þetta er svo ungt og
óreynt lið, 6 strákar úr öðrum
flokki. Sigurinn veitir okkur
sjálfstraust og við erum bjart-
sýnni á gott gengi í sumar en
við vorum fyrir leikinn.
— SS