Morgunblaðið - 10.05.1977, Side 31

Morgunblaðið - 10.05.1977, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1977 31 Guðfinna Björnsdóttir Torfustöðum—Mnning Fædd: 18. júlf 1895. Dáin: 1. maí 1977 Guðfinna var fædd að Núps- dalstungu í Miðfirði hinn 18. júlí 1895. Foreldrar hennar voru: Björn Jónsson óðalsbóndi i Núps- dalstungu (f. 21. nóv 1866, d. 12 maí 1938) og kona hans Ásgerður Bjarnadóttir (f. 22. ágúst 1865. d. 26. sept. 1942). Voru þau hjón bæði af merkum bændaættum í Húnaþingi, en sé farið lengra aft- ur í timann má geta þess, að afi Ásgerðar í Núpsdalstungu var Bjarni Rafnsson, sonur Rafns hreppstjóra Bjarnasonar á Forna- stöðum í Hálshreppi í S- Þingeyjasýslu. Hefur frændi Guð- finnu, Páll Kolka læknir, gert Núpsdalstungu fólkinu góð skil í bókinni Föðurtún. Guðfinna Björnsdóttir ólst upp í stórum systkinahópi í Núpsdals- tungu, en börn Björns og Ásgerð- ar voru alls átta. Var Guðfinna fjórða barn þeirra hjóna. 1. Elztur var Bjarni bóndi á Upp- sölum í Miðfirði f. 21. feb. 1890, d. 30. jan. 1970. 2. Jón Klæðskeri í Reykjavík, f. 18. mai 1891, d. 29. nóv. 1921. 3. Ólafur fyrrum bóndi í Núps- dalstungu, f. 20. jan. 1893. 4. Guðfinna (eins og áður er frá skýrt) f. 18. júlí 1895, d. 1. maí 1977. 5. Guðmundur kennari á Akra- nesi, f. 24. marz 1902. 6. Björn Leví, doktor í hagfræði, búsettur i Reykjavík, f. 22. nóv. 1903, d. 3. jan. 1956. 7. Elínborg Jóhanna húsfreyja að Bjargi á Seltjarnarnesi, f. 28. nóv. 1906. 8. Yngst var fyrri kona mín, Guðný Margrét, f. 2. júni 1908, d. 5. júni 1953. Eins og sést af framanskráðu eru nú fimm þessara systkina látin. Núpsdalstunguheimilið var menningarheimili í þess orðs beztu merkingu. Þar var bóka- kostur góður, mikil gestrisni, enda komu þangað oft langferða- menn á leið sinni í önnur byggðarlög, þótt bærinn væri ekki beinlinis i þjóðbraut. Öll voru þessi systkini góðum gáfum gædd og handlagni var þeim í blóð boin. Var Guðfinna þannig i stakk búin, að allt lék i höndum hennar, enda stundaði hún smíðar jafnt manni sinum hér I Reykjavik í meir en þrjá áratugi. Árið 1919 giftist- Guðfinna frænda sínum Magnúsi Frimanni Jónssyni á Torfustöðum i Núps- dal, en sá bær er þvi sem næst beint á móti Núpsdalstungu, vest- an Núpsár. Var Magnús sonur Jóns Jónssonar bónda á Torfu- stöðum, ættuðum úr Dalasýslu, og konu hans Ólafar Jónasdóttur frá Svarðbæli. Bróðir Magnúsar var hinn þekkti skólamaður Björn H. Jönsson skólastjóri á Isafirði. Guðfinna og Magnús hófu búskað á Torfustöðum og bjuggu þar óslitið fram yfir 1940, en 1943 varð Guðfinna fyrir þvi slysi að detta á svelli og varð að dvelja á sjúkrahúsi i marga mánuði. Eftir þetta áfall var útilokað, að þau hjón gætu stundað sveitabúskap, enda kom Magnús sér fljótlega fyrir með trésmíðaverkstæði, fyrst í smáum stíl í útihúsi á Bjargi á Seltjarnarnesi, en laust eftir 1950 keyptu þau húseignina Mávahlið við Hagamel, þar sem Magnús gat innréttað stórt verk- stæði. í upphafi smíðaði Magnús næstum eingöngu amboð, en hin síðari ár ýmsa aðra hluti. Um það leyti sem þau hjón sett- ust að á Seltjarnarnesi voru þau eignalítil. Búskapurinn hafði allt- af gefið lítið í aðra hönd, en auk þess lögðu þau í töluverðan kostn- að við byggingar á jörð sinni Torfustöðum. Þegar upp var staðið var faðir Magnúsar, Jón Jónsson, en á lifi háaldraður, (d. 1950 þá 95 ára). Það kom þvi ekki til mála að hrekja hann frá þeim stað, þar sem hann hafði dvalið mestan sinn aldur. Útkoman varð sú, að jörðin var seld ágætum hjónum fyrir tiltölulega lítið verð, en með þvi skilyrði, að gamli maðurinn fengi að dvelja þar sín síðustu æviár. Var það vel ráðið og sýnir bezt hug og velvilja sonar og tengdadóttur til gamla manns- ins. Eftir að Guðfinna og Magnús fluttu til Reykjavíkur og höfðu komið sér vel fyrir í Mávahlíð við Hagamel, fór hagur þeirra batn- andi ár frá ári. Magnús hafði frá upphafi stundað smíðar af og til öll sin búskaparár og var því eng- inn nýgræðingur í iðninni. Þótt Guðfinna næði aldrei fullu likamsþreki eftir þetta mikla slys, sem hún varð fyrir, var andlegt þrek hennar óbilað. Hún sneri sér strax að smiðunum við hlið manns sins. Það var i sjálfu sér engin tilviljun, að verkstæði þeirra naut fljótlega mikilla vinsælda, því að allir hiutir voru þar velgerðir og eins ódýrir og tök voru á, enda var það aldrei að þeirra skapi að okra á neinum. Sá maður, sem lengst hefur staðið við hlið þeirra hjóna og unnið á verkstæðinu þvi sem næst frá upphafi, er fóstur- bróðir Magnúsar, Saiómon Hafliðason, og á hann að leiðar- lokum þeirra hjóna þakkir skilið. Guðfinna og Magnús eignuðust eina dóttur barna, Ásdísi, f. 21.ágúst 1920. Hún giftist ung að árum 1945, Benedikt Guðmunds- syni á Staðarbakka I Miðfirði og hafa þau búið á Staðarbakka góðu búi á hálflendunni á móti bræðr- um Benedikts, Gísla og Magnúsi. Þau eiga fjögur börn uppkomin, sem öll hafa stofnað sitt eigið heimili, og eru þrjú þau elztu búsett í Reykjavík. Nöfn þeirra í aldursröð eru þessi: Margrét gift Ólafi kennara Jóhannssyni frá Hnausakoti. Ingimundur hús- gagnasmiður, kvæntur Matthildi Sverrisdóttur frá Hólmavík. Jón Magnús, stúdent, kvæntur Þor- björgu Ólafsdóttur frá Ánastöð- um á Vatnsnesi. Rafn búfræð- ingur, kvæntur Ingibjörgu Þórarinsdóttur frá Straumi i Hróarstungu, þau búa á Staðar- bakka. Barna-barnabörn Guð- finnu og Magnúsar eru nú sjö, þegar þetta er ritað. Ingimundur Benediktsson hef- ur nú fyrir nokkru siðan tekið við verkstæði afa síns og ömmu og rekur það með svipuðu sniði og áður var. Ég kynntist Guðfinnu og Magnúsi ekki fyrr en um það leyti sem ég tengdist þessu fólki og voru þau þá sest að á Seltjarnar- nesi. Nokkru eftir að konan min dó og ég var fluttur alfarið til Reykjavikur og sestur að á Haga- melnum og orðinn nábúi mág- konu minnar, urðu kynni okkar enn nánari. Guðfinna og Magnús voru þá búin að koma sér ágæt- lega fyrir i nýjum húsakynnum í Mávahlíð við Hagamel. Þá urðum við, ég og dóttir mín lftil, tiðir gestir hjá þeim hjónum. Þá þurfti ég oft að leita til þeirra i ýmsum vanda, sem þau leystu ávallt með hlýhug og góðum ráðum. Það, sem einkenndi mest heim- ili þeirra hjóna, var fölskvalaus glaðværð og mikil gestrisni, þar sem öllum var boðið inn ög alltaf voru miklar og góðar veitingar á boðstölum. Magnús Frímann var með fróð- ari mönnum, sem ég hef kynnst, sílesandi þegar tóm var til og bókakosturinn alltaf að aukast. Magnús gaf sér nokkurn tima til ritstarfa, en ekki vannst honum tími til að ganga frá nema einni bók „Skammdegisgestir", sem út kom árið 1950. Bæði höfðu þau hjón ákveðnar skoðanir á mönn- um og málefnum og ekki ávallt „sammála siðasta ræðumanni", en hreinskilni þeirra og græskulaus kimni gerði það að verkum að alltaf urðu vinir þeirra fleiri er tímar- liðu. Má i þvi sambandi nefna Þórberg Þórðarson rithöf- und, einn af mörgum, sem voru þar tiðir gestir. Guðfinna missti mann sinn þann 14. marz 1975. Magnús var fæddur 2. júní 1891 og var hann að mestu óvinnufær síðustu árin. Hann andaðist á Hrafnistu og hafði þá dvalið þar nokkra mán- uði. Siðustu árin dvaldi Guðfinna ein í sínu húsi og hélt sinni reisn og skörungsskap eins og áður fyrr. Hún dvaldi aðeins hálfan mánuð i sjúkrahúsi, en þar andað- ist hún aðfaranótt 1. maí. Ég kom tvisvar til hennar á þessum tíma og var hún þá vel málhress og mundi vel alla hluti. Það var auð- heyrt að hún gerði sér þá fullljóst að stutt var að leiðarlokum. Blessuð sé minning hennar. Magnús Sveinsson. Nokkru fyrir síðustu aldamót, hófu búskap í Núpsdalstúngu i Miðfirði, hjónin Björn Jósnson og Ásgerður Bjarnadóttir. í gömlum jarðabókum, er jörðin talin ein með betri jörðum í sveitinni. Þau hjón koma þar upp stórum barnahóp, fimm sonum, Bjarna, Jóni, Ólafi, Guðmundi og Birni og þrem dætrum, Guðfinnu, Jóhönnu og Guðnýju. Öll urðu þessi börn, þegar á legg komust atgervis- og efnisfólk, eru nú aðeins þrjú þeirra enn á lífi, úr þessum stóra systkinahóp, þau Ólafur, Guðmundur og Jóhanna. Guðfinna, sem nú kveður og ég vildi minnast með þessum linum var elst þessara systra. Giftist hún úr foreldrahúsum Magnúsi Jónssyni á Torfustöðum, i sömu sveit, og hefja þau þar búskap, árið 1919. 14 árum síðar, eða 1934, ráðast þú í að byggja stórt tveggja hæða íbúðarhús úr steini á jörðinni og fá til þess lán, úr Bygginga- og Landnámasjóði, sem þá var helsta fyrirgreiðslustofnunin, til bygginga íbúðarhúsa i sveitum. Það var einmitt þá fyrir réttum 43 árum, sem ég kynntist fyrst, Guðfinnu á Torfustöðum. Ég hafði verið í Miðfirðinum um veturinn, en réð mig um vorið til Magnúsar bónda og Guðfinnu, því nú átti að fara að byggja íbúðarhúsið, en Magnús búinn að draga aó allt efni til byggingar- innar og átti ég að hjálpa til við bygginguna. Ég man nú ekki lengur svo ég geti borið um það með vissu, hvort þeirra hjóna var yfirsmiður við bygginguna, en hitt get ég borið um að Guðfinna var smiður góður, útsjónarsöm og dugleg svo af bar, að hverju sem hún gekk, jafnt utanhúss við smíðarnar sem innanhúss við matargerð — og ekki var kostur- inn skorinn við nögl. Þá er mér það enn í dag minnis- stætt, hvað þessi hjón voru glað- lynd og skemmtileg. Þótt vinnudagurinn væri stund- um langur, liðu dagarnir fljótt og húsið reis af grunni óðar en varói. Frá þessu vori, fyrir 43 árum, er mér ennþá Guðfinna eftir- minnanlegur persónuleiki, sífelt glöð og skemmtileg í allri um- gengni og viðræðum, enda marg- fróð og greind kona. Árið 1943 verður Guðfinna fyrir áfalli, sem leiddi til þess, að þau hjón urðu að hætta búskap, selja jörðina og flytja suður til Reykjavíkur alfar- in árið eftir, til Jóhönnu systur Guðfinnu. Setja þau fljótlega upp trésmiðaverkstæði, þar sem þau unnu bæði hjónin, að framleiðslu ýmissa nauðsynjahluta, svo sem orf, hrífur og allskonar sköft, sem nægur markaður var fyrir, bæði hér í bænum og út um allt land. 1955 kaupa þau gamlan bónda- bæ, Mávahlið, þar sem nú er Hagamelur 47, koma sér þar upp nýju heimili, eð fullkomu tré- smíðaverkstæði. Eftir að Guðfinna missti mann sinn fyrir nokkrum árum, var hún flesta daga við smíðar á verk- stæðinu, eða þar til hún fór á Landspitalann í byrjun apríl siðastliðinn. Þau Magnús og Guðfinna, eignuðust eina dóttur barna. Ásdísi fædd 1920, gift Benedikt Guðmundssyni bónda á Staðarbakka i Miðfirði. Eiga þau fjögur börn og sjö barnabörn. Þegar þessi mæta kona yfir- gefur nú venslafólk sitt og vini, mun hennar minnst af samferða- mönnum með hlýhug og þakklæti fyrir liðnar samverustundir og við þær endurminningar verður gott að dvelja. Glaðlyndi hennar og góðvild til samferðafólksins, verður varanleg minning i hugum þeirra sem þekktu hana best. — Minning um góða konu. Minning sem frá engum verður tekin. Með þakkiæti í huga, fyrir gömul kynni, kveð ég þessa bjartleitu og bjartsýnu vinkonu mína. Ásdísi dóttur hennar, þakka ég gömul og ný kynni og votta henni og öðrum aðstandendum samúð mina. Útför Guðfinnu verður gerð frá Neskirkju i dag. Halldór Þorsteinsson. Þegar nánir ættingjar og vinir kveðja er svo ótal margt sem kem- ur fram úr fylgsnum hugans, minningar um það sem var og þann sem horfinn er bak við móð- una miklu. Þannig er það einnig nú þegar Guðfinna Björnsdóttir frá Núpsdalstungu er kvödd. Hún fæddist í Núpsdalstungu í Miðfirði, dóttir hjónanna Björns Jónssonar og Ásgerðar Bjarna- dóttur, ein af stórum barnahóp, en þau voru 9 systkin. Hún giftist ung frænda sinum, Magnúsi Jóns- syni á Torfustöðum, og bjó á Torfustöðum i mörg ár. Þau eign- uðust eina dóttur, Ásdisi, sem giftist Benedikt Guðmundssyni, sem búa að Staðarbakka í Mið- firði, myndarbúi. Fyrir um það bil tuttugu árum varð Guðfinna fyrir þvi áfalli að brotna illa og verða að liggja á sjúkrahúsi á annað ár, og var lengi að ná sér eftir leguna. Þetta varð til þess að þau urðu að bregða búi og fluttust þá til Reykjavikur þar sem Magnús kom á fót trésmiðavinnustofu. Við það vann hann á meðan hon- um entist lif og heilsa og hjálpaði Guðfinna honum ötullega. Magnús lézt árið 1975, en Guð- finna rak verkstæðið áfram ásamt mági sínum og dóttursyni og tók VERKSTJÓRAFÉLAG Reykja- víkur hélt aðalfund sinn nýlega og kom fram f skýrslu stjórnar að fjárhagur félagsins var góður og mikil gróska (félagslffi. Tólf fulltrúar voru kjörnir á fundinum til að sitja 17. þing Verkstjórasambands tslands, sem haldið verður að Hallormsstað 1. þátt i daglegum störfum þess til æviloka. Guðfinna Björnsdóttir var mikilhæf kona, gáfuð, þrekmikil og myndarleg í öllum sínum verk- um. Hún var afbura húsmóðir og unun að koma á heimili hennar og njóta þeirrar miklu gestrisni sem henni var svo eiginleg. Það var svo einkennilegt að sjá hana vinna, það var eins og verkin ynnu sig sjálf, svo létt voru þau i hödum hennar, en um leið með slíku snilldarbragði að af bar. Margar eru minningarnar um góðar samverustundir heima hjá Guðfinnu og manni hennar á liðn- um árum. Það er nú langt um liðið siðan Guðfinna sleit barnskónum heima í Núpsdalstungu og margt hefur breyzt siðan hún gekk þar um, ung stúlka heimasæta, i daln- um sínum. — Langt er siðan að hún sat þar á stokki með bróður- son sinn ungan á hnénu raulaði við hann og sagði honum sögur. Siðar sagði hún okkur sögur af honum, hverni hann hefði leikið sér og hvað hann hefði sagt þá. Hún var minnug og sagði skemmtilega frá löngu liðnum at- burðum. Það verður tómlegt nú þegar hún er horfin, en minning- in lifir um mikla og góða konu og þakklætið fyrir þau kynni fylgir henni héðan yfir á land lifenda. Rannveig Ingimundardóttir. — Amnesty Framhald af bls. 23 i Kambódiu. Amnesty segir að þessar fréttir séu enn óstaðfestar, en „ekki sé hægt að sniðganga mikinn fjölda ásakana um skyndi- aftökur." Amnesty reynir ekki að áætla hve margir hafi verið myrtir og bendir á að tölur séu mjög á reiki og að óháðir aðilar hafi enga möguleika haft til þess að kynna sér ástandið í Kambódiu. Samtökin láta einkum i ljós áhyggjur vegna frétta um að fyrr- verandi embættismenn hafi horfið og sumir þeirra hafi verið myrtir eða sendir í vinnubúðir, ásakana um misþyrmingar eða af- tökur á skyldfólki „landráða- manna" eða „óvina“ á sumum svæðum og frétta um að sums staðar séu þeir sem séu taldir „óhlýðnir" geti sætt hegningu án þess að farið sé að lögum. — 3. júlí n.k. Félagið rekur nú sumarhús fyrir félagsmenn i Skorradal og i Stokkseyrarhreppi. Félagsmenn eru nú 560. I stjórn félagsins voru kosnir: Formaður Haukur Guðjónsson, ritari Einar K. Gíslason, gjaldkeri Rútur Eggértsson, varaformaður Sigurður Teitsson og varagjald- keri Stefán P. Gunnlaugsson. lær'ð VÉLRITUN Ný námskeið hefjast fimmtudaginn 12. maí. Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar. Engin heimavinna. Upplýsingar og innritun í síma 4131 1. Vélritunarskólinn Suðurlandsbraut 20. Sýning á grafískum w. verkum í Menningar stofnun Bandaríkjanna Síðasta sýningarvika á /« % % ' 'I;- j/f, A f monoprints eftir Joseph Goldyne að Neshaga 16. menningar/tofnun Opin virka daga frá kl. BondorikjonnQ 1 — 7. Sýningunni lýkur 13. maí. Mikil gróska í Verk- stjórafélagi Rvíkur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.