Morgunblaðið - 22.05.1977, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1977
7
Uppstigmngardagur er lið-
inn, meðfásóttum guðs-
þjónustum umfram aðra
helgidaga flesta eða alla. En
hvert erindi á hann við mig
og þig? Þann sérstæða boð-
skap ber hann, hvort sem
mönnum líkar betur eða verr,
að sjálfur Kristur hafi ekki
stigiðfrá krossinum beint inn
í himin Guðs dýrðar, heldur
hafi hann dvalið í einskonar
landamæraveröld hinsjarð-
neska og ójarðneska I 40
daga og stigið þá upp í himin
Guðs, að þvi er guðspjöll og
Postulasagan herma.
Hverfum að annarri mynd:
Þrír menn þjást af kvölum
krossdauðans. Einn þeirra
þriggja er i uppreisnarhug
gegn Guði, mönnum og
þessum grimdarfullu örlög-
um. Annar hefur um hrið
horft undrandi á, hvernig
maðurinn, sem í miðju hang-
ir, ber þessar ægilegu kvalir,
og þegar hann má mæla
segirhann: ,,Herra, minnstu
mín, þegar þú kemur í ríki
þitt". Og svarið kemur Ifkt og
lögð sé liknarhönd á opna
und: „Sannlega segi ég þér: í
dag skaltu vera með mér i
Paradís".
Ekki „í upprisunni á efsta
degi", ekki við lúðurhljóm
dómsdags, þegardauðir
ganga fram úrgröfum sinum
íklæddir sínu gamla holdi,
sem raunar var orðið að dufti
og maðkamat fyrir milljónum
ára. Nei, í dag, innan fárra
klukkustunda.
Um paradís
—tilhœrri
heima
Kristur segir ekkert orð um
það við manninn, sem við
hlið hans er að deyja, að
hann verði samferða sér inn í
himin Guðs háu dýrðar, en í
Paradis segir hann að fund-
um þeirra skuli innan fárra
stunda bera saman.
Gjörum okkur Ijóst, að hér
er ekki verið að tala um ein-
hvern allsherjar dómsdag eft-
ir þúsundir eða milljónir ára
og þaðan af síðar um grafar-
svefn látinna manna, unz
líkaminn ris úr gröf sinni.
Liggur ekki beinast við að
álykta, að Paradís sé ein-
hverskonar millbilsheimur,
þar sem menn dveljist fyrst
eftir andlátið, njóti nauðsyn-
legrar hvildar og læri þar að
aðlaðast ójarðneskum lífs-
aðstæðum?
Gefum gaum nokkurum
staðreyndum, sem lesa má
úr guðspjöllunum. I fyrstu
skiptin, sem Kristur birtist
upprisinn, sýndist mynd
hans ekki skýrari en svo, að
vinir hans þekkja hann ekki,
hvorki Maria Magdalena við
gröfina né lærisveinarnir
tveirá leiðinni til Emmaus.
Hann bannar Mariu, þegar
hún loks þekkir hann, að
snerta sig, en Tómasi leyfir
hann síðar að snerta á upp-
risulíkama sínum, og læri-
sveinarnir þekkja hann tafar-
laust. Birtingar hans virðast
verða æ skýrari og hámarkið
er það, sem Páll postuli segir
frá, að 500 manns sjá hann
samtímis undir berum himni.
Erekki hvarvetna svo í
þeim litla skika tilverunnar,
sem við höfum vitneskju um,
að það kostar tima og þjálfun
að aðlaða sig nýjum lifs-
aðstæðum. Og hvað mun þá
um svo stórkostlega breyt-
ingu, sem líkamsdauðinn
veldur?
Uppstigningardagur
bendir mér til þess, að þegar
dvöl hans ( Paradis er lokið
hafi hann horfiðtil hærri
heima, til himins eins og
Ritningin komst að orði. Ekki
svo að hann hafi hann hætt
að vera jarðneskum vinum
nálægur. Saga lærisveinanna
eftir himnaför hans, hið ó-
trúlega þrek þeirra, sigur-
vinningar og geygleysi þeirra
andspænis ofsóknum og
dauða, er borin uppi af lif-
andi sannfæringu og öruggri
reynslu um það, að hann var
daglega með þeim á för,
nálægur þeim þrátt fyrir bú-
staðaskiptin.
Frásagnir hinna helgu
heimilda eru ekki margorðar
en nægja mér til að lesa úr
þeim það, að jafnvel hann,
sem öllum mönnum var æðri
og endurspeglaði meira af
Guði, aðjafnvel hann laut
lögmáli þróunar og að-
hæfingar, og hvað mun þá
um okkur, ófullkomna og
breiska menn?
Mun ekki það undir ásig-
komulagi mannsins komið,
er hann deyr, hve lengi hon-
um er nauðsyn að dveljast í
heimkynninu, sem guðspjöll
nefna Paradis, áðurenn
hann er hæfur fyrir æðri lífs-
svið? Af helgum ritum og
margendurtekinni reynslu
kynslóðanna erástæða til að
ætla, að látinna manna verði
vart, en þeim mun minna,
sem lengra líðurfrá burtför
þeirra af jörðu. Bendirþað
ekki til þess að meðan þeir
dveljist i Paradis séu þeir
jörðunni nær, en „fjarlægist"
hana siðar meir og meir?
Sú speki er mikil, sem
þessum rökum ræður, vís-
dómsfull sú guðlega stjórn,
sem er hérað verki. Líkt og
kærleiksrik og vitur móðir
beinir barni veg, leiðir það
mildri hendi um bernsku-
og æskuár og lagar aðstæður
eftir því, sem barninu hentar
á hverjum áfanga, svo leiðir
börnin sin vísdómsfullur Guð
alfaðirgegn um heima og
himna að marki, sem hann
hefur þeim frá eilifð sett.
Og leiðtoginn er hinn sami
og hér, lausnarinn hinn sami
og hér. HANN, sem Ritning-
in segir að farið hafi gegn um
himnana, HANN, sem veg-
inn hefur varðað. Upprisinn
Kristur, leystur úrfjötrum
holds, varð jarðneskum vin-
um sínum stórkostlegri veru-
leiki en hann hafði jafnvel
verið þeim fyrr, og sú hefur
síðan í 1 9 aldir verið dýr-
mætasta reynsla ótal manna.
Á bænastundum hafa þeir
fundið nálægð hans umvefja
sig. Á hættustundum hafa
þeir fundið leiðsögn hans og
fundið frið í stormum freist-
inga og voða.
Honum sé sungið lof af
englum og mönnum um aldir
aldanna.
Ferðamenn
Flytjum ferðamannabíla til og frá flestum við-
komuhöfnum okkar. Fastar áætlanaferðir. Leitið
upplýsinga á skrifstofunni.
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
Pósthússtræti 2, sími 27100.
jft
Snyrtistofan
Hóte/Loftleiðum,
sími 25320
Andlitsböð, húðhreinsun, fótaaðgerð, handsnyrt-
ing; litun, fjarlægi óæskileg hár af fótleggjum og
andliti. Líkamsnudd — partanudd.
1 . flokks aðstaða fótaaðgerða- og
“ Helga Þóra Jánsdóttir, KSSSST', _
iþ^i^i^i^i^i^i^i^i^i^i^i
Nýtt frá
KÚNÍGÚND
Hafnarstræti 11
Nú höfum við fengið
„Pott-Grill" frá hinu
heimsþekkta danska
fyrirtæki COPCO.
Komið og skoðið —
Hagstætt verð.
Kúnigúnd...
copco
Þessar tvær bera af sem gull af eir!
Úti Spred er 100% Akryl málning og reynslan
sannar að Úti Spred endist lengur.
Kvarz er Akryl málning. fyllt marmarasandi
Hefur frábæra viðloðun við múr og gefur jafnframt
mikla fyllingu Getur komiö i stað pússningar.
Sigtún 3
JLiiiLSSTAÖAveal
Garðabær
MolQKStilling
LOFTUR LOFTSSON
MIÐTÚNI
CARÐABÆ
Sími42796
^^^^^^Heimasími
44675
Hef opnað nýtt stillinga-
verkstæði í Garðabæ.
Hugsið vel um vélina.
Örugg vinna með full-
komnustu tækjum sem
völ er á.
Arnarnesvogur
LOrTUR LOFTSSON MIDTL)NI CARDABA