Morgunblaðið - 22.05.1977, Side 15

Morgunblaðið - 22.05.1977, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAl 1977 15 FORMÁLI HÖFUNDAR Það bar til árið 1898, að rithöfundur nokkur, sem erfitt átti uppdráttar, Morgan Robertson að nafni, setti saman skáldsögu um ævintýralegt farþegaskip á Atlantshafi, miklu stærra en nokkru sinni hafði verið smíðað. Robertson hafði á skipi sínu auðugt fólk og sjálfumglatt og lét það farast kalda aprílnótt með því að rekast á ísjaka. Þetta sýndi einhvern veginn fánýtið í öllu saman, og bókin hét reyndar „Fánýti“, þegar hún kom út það ár hjá forlaginu M. F. Mansfield. Fjórtán árum síðar Iét brezkt skipafélag, sem hét White Star, smíða eimskip, sem var merkilega líkt skipinu í sögu Robertsons. Nýja skipið var 66.000 lestir; skip Robertsons 70.000 lestir. Hið raunverulega skip var 882.5 fet á langd; skipið í sögunni var 800 fet. Bæði skipin höfðu þrefalda skrúfu og gátu farið með 24—25 sjómílna hraða. Bæði gátu borið um 3000 manns, og bæði höfðu björgunarbáta, sem nægðu aðeins broti af þessum fjölda. En það sýndist ekki skipta svo miklu máli, því að bæði voru kölluð „ósökkvandi". Hinn 10. apríl 1912 lét hið raunverulega skip úr höfn í South- ampton í fyrstu ferð til New York. Á skipinu var meðal annars ómetanlegt cintak af Rubáiyát eftir Omar Khayyám og hópur farþega, sem samtals réð fyrir 250 milljónum dollara. Á leiðinni yfir hafið rakst skipið á ísjaka og sökk kalda aprílnótt. Robertson kallaði skip sitt Titan; White Star-félagið nefndi sitt skip Titanic. Þetta er sagan af síðustu nótt þess. Leikkonan, sem farið heíur með hlutverk lafði Marjorie í sjónvarpsþáttunum til þessa, var orðin leið á hlutvekrkinu, og vildi hætta. Var þvi það ráð tekið að senda hana með Titanic í þessa fyrstu og einu ferð skipsins, og láta hana farast í þessu mesta sjóslysi sögunnar. Haft er fyrir satt að leikkonan hafi síðar séð eftir þessari ákvörðun sinni, en þá var of seint að lífga hana við. Titanic var 46 þúsund tonna skip, stærsta og íburðarmesta skip sins tíma, og átti ekki að geta sokkið. Skrokkurinn var allur tvöfaldur, og skipt niður i 16 vatnsheld hólf, þannig að þótt sjór flæddi í fjögur hólf, átti það ekki að koma að sök. Að kvöldi 14. apríl 1912 var Titanic á siglingu á hafíssvæði og í þoku suður af Mikla banka eða Grand Banks fiskimiðunum við Nýfundnaland. Þrátt fyrir slæm skilyrði var skipinu siglt á 22 sjómílna hraða„þvi nú átti að setja hraðamet yfir Atlants- hafið í fyrstu ferð þessa glæsi- lega skips. Þegar Titanic sigldi á isjakann rifnaði 90—100 metra löng rifa i byrðing þess, og sjór- inn streymdi inn i fimm vatns- þéttu hólfanna, og örlög skipsins voru ráðin. Alls voru 2.224 manns um borð I Titanic þegar það fórst, og komust 711 lífs af. í ljós kom að þrátt fyrir fjölda farþega og áhafnar, voru björgunarbátar skipsins aðeins ætlaðir fyrir 1.178 manns. Það hafði þó ekki allt að segja, þvi þegar fyrstu björgunarbátarnir lögðu frá sökkvandi skipinu, fluttu þeir aðeins fáa farþega. Enginn Formáli i bókinni „Sú nótt gleymist aldrei“. og Tltanic-slysið • ÞEGARsjón- varpsáhorfendur skyldu við þáttinn „Húsbændur og hjú“ á sunnudaginn var, hafði húsbónd- inn nýlokið við að semja „Marconi- gram“, eða sím- skeyti, til konu sinn- ar, sem var á leið vestur yfir Atlants- hafið með farþega- skipinu Titanic. trúði þvi enn að skipið gæti sokkið. Máltækið segir að ekki verði feigum forðað og á það sérstak- lega við um örlög þeirra 1.513 sem fórust með Titanic. Far- þegaskipið „Californian" var þarna skammt undan, því skip- stjóri þess hafði ákveðið að halda kyrru fyrir vegna hafíss og þoku. Lá skipið um 20 mílum frá Titanic þessa örlaganótt, en varð ekki vart við neyðarblysin. Loftskeytamaður var um borð í Californian en hann var nýgenginn til náða þegar slysið varð, og hlustaði því ekki á hjálparbeiðnirnar. Ljóst er að enn fleiri hefðu farizt ef farþegaskipið „Carpathia".. hefði ekki komið á veggvang um tuttugu mínútum eftir að Titanic sökk. ítarlega er sagt frá þessu hörmulega slysi í bókinni „A Night to Remember“ eftir Walter Lord, sem komið hefur út í islenzkri þýðingu (Sú nótt gleymist aldrei). Eins og að líkum lætur hófst fljótlega rannsókn á orsökum slyssins, og störfuðu rann- sóknarnefndir bæði í Banda- ríkjunum og Bretlandi. Þá var boðað til alþjóða ráðstefnu um öryggi á hafinu í London árið eftir og þar meðal annars sam- þykkt að öll skip skyldu búin björgunarbátum, er tækju alla þá, er um borð væru hverju sinni, að björgunaræfingar skyldu haldnar í hverri ferð, og að um borð í hafskipum skyldi vera vakt við loftskeytatækin allan sólarhringinn. Þá var einnig komið á alþjóða iseftir- liti til að aðvara skip um ísrek á Norður-Atlantshafi. Dagsetningin var 12. apríl árið 1912, en um miðnættið tveimur dögum síð- ar sigldi Titanicá borgarísjaka og sökk í ískalt djúpið klukkan 2.20 að morgni 15. apríl. Með skipinu fórust 1.513 manns. Nokkrir leikaranna úr ,4Iúsbændur og hjú“. Lafði Marjorie lengst til vinstri. Títanic leggur af stað frá Southampton 10. apríl 1912 Nýtthapp- drætti krabba- meinsfélaganna EINS og kunnugt er byggist starf- semi Krabbameinssamtakanna hérlendis að miklu leyti á fé, sem aflað er með happdrætti tvisvar á ári, vor og haust. Krabbameins- félag Reykjavíkur sér um rekstur happdrættisins, en helmingur ágóðans rennur til Krabbameins- félags íslands. Stendur hann að nokkru leyti undir starfsemi þess, t.d. frumurannsóknum, krabba- meinsleit og krabbameinsskrán- ingu. Einnig hefur ágóðanum verið varið til fræðslu um krabba- meinsvarnir og m.a. um skaðsemi reykinga, sem Krabbameinsfélag Reykjavikur hefur staðið fyrir i skólum. Vorhappdrætti félagsins er nú farið af stað og hafa miðar og gíróseðlar verið sendir öllum skattframteljendum á aldrinum 21—65 ára utan Reykjavíkur- svæðisins, en lausasala í Reykja- vik fer fram í happdrættisbil i Bankastræti. Vinningar eru tveir: Pontiac Ventura Coupé, sjálfskipt og Austin Mini 1000, báðar árgerð 1977. Dregið verður hinn 17. júni n.k. AUCI.VSINCASÍMINN ER: 22480 |R«rfltinbl«öib Lamy penni er vel valin stúdentagjöf LAMY

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.