Morgunblaðið - 22.05.1977, Side 18

Morgunblaðið - 22.05.1977, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1977 UMHVERFISVANDI Eru háhýsa- börnin hálf- gerðar horn- rekur? í nýútkomnu fréttabréfi Græna krossins þýzka heldur barnalækn- ir nokkur, Kurt Hartung, því fram, að börnum sé skaðlegt að alast upp í háum húsum. Fullyrð- ir hann, að þau börn, sem alast upp í háhýsum þroskist að jafnaði síður og eigi við meiri hegðunar- vanda að stríða en hin, sem alast upp í „hóflega" háum húsum. Hartung færir m.a. þau rök að þessu, að athafnasvæði f háhýsum fullnægi engan veginn hreyfing- ar- og athafnaþörf barna. Sé það og reynt, að því hærra uppi, sem fjölskylda búi þeim mun síður sendi móðirin börn sín ein út eða fari út með þeim. Hann bætir þvi við, að erfitt og fyrirhafnarsamt sé að líta eftir börnunum í háhýs- unum; eina sambandið sé dyra- síminn, en annars verði fólk að vera í stöðugum lyftuferðum. Það verður foreldrunum sem sé svo fyrirhafnarsamt að hafa börn- in úti við, að þeir hneigjast til að hleypa þeim sem sjaldnast út. En auk þess er algengt, að börn sitji mikið inni fyrir hræðslu sakir, óttist að verða fyrir barðinu á hópum sér eldri barna, ef þau hætti sér út. Af þessum og ýmsum svipuðum sökum sitja börnin inni flestum stundum. Þau hreyfa sig þá ekki jafnmikið og þau þyrftu, en þar af leiðir, að vöðvar og ýmis helztu líffæri þroskast ekki eins og skyldi. Hegðunarörðugleikar (,,óþekkt“) aukast í réttu nlut- falli við það, hve hátt börn búa í húsi — þau verða sem sé þvl „óþekkari" þeim mun ofar, sem dregur. Hartung læknir gefur foreldr- um þau ráð við þessu að hafa börn sín sem lengst og oftast úti við og telja þá ekki eftir sér ómakið að fara með þeim, ef þurfa þyki, en reyna annars að venja þau á reglulegar leikfimisæfingar inni við. Bezt sé þó, að hvort tveggja fari saman, útivist og skipulegar æfingar; þá eigi að vera tryggt, að börnin reyni nóg á sig. — THE GERMAN TRIBUNE. Snáðinn hans „Papa Doc,, EINS og kunnugt er úr fréttum hefur Carter Bandarfkjaforseti verið að reyna að þröngva ýmsum ríkisstjórnum f Mið- og Suður- amerfku til þess að draga úr blóðsúthellingum og almennri kúgun f löndum sfnum. Hefur Carter verið ómyrkur f máfi við harðstjórnirnar og haft f hótun- um við þær. Harðstjórarnir hafa fæstir tekið þessu vel; eru þeir þó hræddir, þvf að flestir eru þeir mjög upp á Bandarfkin komnir í fjármálum. En á dögunum svöruðu tveir þeirra lítillega fyrir sig; það voru Somoza, forseti Nicaragua (Veröld 15/5) og Jean-Claude Duvalier, „æviforseti" f Haiti.. Af Somoza var það nýlega sagt, að hann lét myrða alla íbúa heilla þorpa vegna gruns um stuðning þorpsbúa við skæruliða. Og aðrar fréttir af honum hafa verið eftir því. Duvalier forseti f Haiti ávarp- aði hins vegar nokkur þúsund sveitamanna, sem gengið höfðu SVIPUR EKKI hef ég tölur við hendina — en Ifkiegt þykir mér, að flestir flugmenn og kappakstursmenn fari að hægja á sér, þegar þeir nálgast áttrætt. Sumir fara hins vegar svo hratt, að þeir taka ekki eftir þvf, er aldurinn færist yfir. Mildred Bruce er ein þeirra. Hún varð 81 árs um daginn, hefur ver- ið á ferð og flugi alla ævi og er það enn. Hún hefur verið að keppa í akstri, siglingum og flugi allar götur frá því um 1920. Hún hefur lent í fleiri ævintýrum en hana rekur minni til. Árið 1930 flaug hún t.d. umhverfis jörðina f Blá- fugli, sem hún átti. Á miðri leið hlekktist vélinni á og Mildred nauðlenti f eyðimörk. Hún hafði ekki setið þar lengi, þegar stiga- menn komu aðvffandi. Voru þeir hinir ógurlegustu ásýndum. Ekki þekktu þeir til flugvéla og áttuðu sig ekki á því, hver verðmæti eru í þeim fólgin. Aftur á móti þekktu þeir til perlufesta, og Mildred var einmitt með perlufesti um háls- inn. Tóku stigdmenn hana. En þegar þeir komust að því, að perl- urnar voru falskar báðust þeir innilega afsökunar og skiluðu festinni aftur. Svona voru stiga- menn vel uppaldir f þá daga. Mildred bauð svo foringja þeirra að setjast upp í vélina hjá sér. Setti hún á hann flugmanns- hjáim, kenndi honum á stjórntæk- in, og klykkti út með því, að hann væri með almyndarlegustu mönn- um. Höfðinginn varð svo upp með sér, að honum hvarf allt kaup- sýsluvit og hafði hann ekki rænu Sú gamla lyftir sér upp á að taka Mildred heim með sér og heimta lausnargjald fyrir hana, en leyfði henni að fara í friði. Mildred fór snemma að setja met. Það var fyrsta metið, að hún kom fyrir rétt í þrjá daga f röð sökuð um of hraðan akstur á vél- hjóli. í þriðja skiptið varð dómar- anum nóg boðið. Kvaðst hann ólíkur öðrum forráðamönnum skemmtistaða að því leyti, að sér væri illa við fastagesti, sektaði Mildred um fimm shillinga — og bannaði henni að aka vélhjóli næsta árið. Mildred giftist kappaksturs- manni, Victor Bruce að nafní, og saman settu þau ótalin met í ým- iss konar akstri. Victor varð fyrst- ur Breta til þess að sigra í Monte Carlo-rallýkeppninni. Árið eftir sigraði Mildred í kappakstri kvenna I Monte Carlo. Hún kveð- ur eiginmann sinn hafa verið frá- bæran ökumann, og hafi hann kennt sér allt, sem hún kann. Þar kom þó, að hann gat ekki lengur haldið f hana. Hjónabandið entist í 11 ár; þá kynntist Victor heima- kærri stúlku og varð ástfanginn af henni. Sagði hann konu sinni, að annað hvort kæmi hún fram- vegis heim á skikkanlegum tíma á kvöldin ellegar hann skildi við hana og gengi að eiga þá heima- kæru. Mildred lét sér hvergi bregða. „Bjóddu henni í mat“, sagði hún. „Það er bezt að ég líti á hana og sjái til, hvort hún hentar þér“. Victor bauð stúlkunni í mat, Mildred skoðaði hana — og kvað hana mundu henta prýðilega. Var þungu fargi af Mildred létt, og gat hún nú skilið við Victor með góðri samvizku. Þau höfðu annars átt ágæta ævi saman og átti Mildred margar góðar minningar frá þeim árum. Hæst bar e.t.v. 10 sólar- hringa kappaksturinn í Mont- héry. Það var rétt eftir, að þau óku 400 kílómetra norður fyrir heimskautsbaug og settu þar upp brezka fánann.. .Tíu sólarhringa kappaksturinn var þó viðburðar- ríkari. Vegirnir voru afleitir og við borð lá, að Voctor kæmist ekki lifandi á leiðarenda. Bíllinn rann til á svelli, fór nokkra hringi í loftinu, kom niður á hvolfi — og Victor undir honum. En hjónin voru ekki vön þvf að láta smá- muni á sig fá. Þau veltu bílnum við, ýttu honum upp á veginn, héldu kappakstrinum áfram — og settu met. Þótt Mildred sé nú komin á níræðisaldur er hún staðráðin f þvf að hægja ekki ferðina. Kveður hún lífshættulegt að taka lffinu með ró og verði það enda margra bani. Mildred rak lengi flugfélag jafnframt kappakstrinum, sigl- ingunum og fluginu, en hætti því og stofnaði byggingafyrirtæki. Það rekur hún enn. Á arinhillunni heima hjá henni er minjagripur um eitt metið, sem hún setti og ennþá stendur. Þá ók hún 2149 mflna leið á réttum sól- arhring. Meðalhraðinn var 89.57 mílur á klukkustund (u.þ.b. 145 km). Hún segist mundu hafa náð meiri meðalhraða, ef hún hefði stillt sig um að drekka bensín á leiðinni. Þannie var. að henni var bent að koma út af brautinni vegna þess, að hún hafði dottað undir stýri. Hún sá, að þetta dugði ekki og hugðist hressa sig við með vatnssopa áður en hún legði af stað aftur. Þreif hún brúsa, bar stútinn að munni sér og teygaði stórum. Það reyndist vera bensfn í brúsanum. Mildred er sannfærð um það, að hún eigi beztu ár sín eftir, og er staðráðin f þvf að setja fleiri met. Fyrir kemur, að hún fær mar- traðir; það er ævinlega sama mar- tröðin. Mildred dreymir, að hún er í kappakstri á eftirlætisbraut sinni — 1100 mílna leið yfir Alpa- fjöllin. Utan við vegarkantinn er 1000 feta þverhnípi. Mildred dreymir aftur og aftur, að hún ekur út af og hrapar — en ekki alia leið. „Ef mig dreymdi það“, segir hún, „væri ég feig. Meðan ég hrapa ekki til botns veit ég, að öllu er óhætt“. —ALEX HAMILTON. LISTIN AÐ LIFA DJARFT — Mildred vió „Bláfuglinn“ sinn árið 1930 og undir stýri f kappaksturs- keppni nú fyrir skemmstu. SKALD REINER Kunze er einn þekktasti rithöfundur austurþýzkur. t fyrra kom út nýjasta bók hans, „Beztu árin“; hún var gef in út á forlagi S. Fischer f Frankfurt um það bil, sem hin árlega bókasýning þar hófst. Þetta varð metsölubók, og þegar þetta er ritað eru seld hátt á annað hundrað þúsund eintök. Mánuði eftir útkomu bókarinnar var Kunze rekinn úr austur-þýzku rithöfundasamtökunum. Jafn- framt var lagt bann víð útgáfu verka hans f Austur-Þýzkalandi — og þar með austantjaldslönd- unum öllum. Kunze var nú ýmsu vanur af yfirvöldum f heimalandi sfnu og tók þessu með jafnaðargeði. Rit- aði hann útgefendum sfnum f bréfi, að hann væri „við öllu búinn, sem rfkisstjórnin kynni að reyna“. Um svipað leyti og Kunze ritaði þetta tólu austurþýzk yfir- völd rfkisborgararétt af Wolf Biermann, Ijóðskáldi og söngv- Rétt einn sem vildi ekki láta segjast ara, sem lengi hafði verið fremst- ur f flokki andófsmanna austur þar. Biermann var á ferð um Vestur-Þýzkaland og fékk nú ekki að snúa aftur, þótt hann vildi. Það var svo um miðjan aprfl sfðastliðinn, að Reiner vinur hans Kunze hafði fengið nóg, labbaði sig inn á vegabréfaskrifstofu og sótti um leyfi til þess að fara úr landi. Yfirvöldin þurftu ekki að hugsa sig um lengi. Kunze fékk leyfið innan þriggja daga. Er hann nú setztur að f Vestur- Þýzkalandi ásamt konu sinni og dóttur. „Wolf Biermann er enn sann- færður kommúnisti (Kunze hefur kallað hann „trúmann"). Kunze er hins vegar genginn af kenning- unni. Kveðst hann hafa misst alla trú á henni á námsárum sfnum f háskólanum fyrir sakir „pólitfsks og hugmyndafræðilegs ofbeldis, sem stúdentar voru beittir svo, að sumir biðu þess ekki bætur". Arið 1968 sagði Kunze sig úr austur-þýzka kommúnistaflokkn- um f mótmælaskyni við innrás Varsjárbandalagsins f Tékkó- slóvakfu. Wolf Biermann mót- mælti innrásinni Ifka opinber- lega. Hann gat aftur á móti ekki sagt sig úr kommúnistaflokknum, þvf að hann hafði verið rekinn úr honum nokkru áður — fyrir það að semja ádeiluleik um Berlfnar- múrinn. Ljóð og hljómplötur Biermanns voru albönnuð f Austur- Þýzkalandi. Það kom þó ekki við sannfæringu hans um ágæti kommúnisma, og hann hélt þvf eftir sem áður fram, að austan- tjaldsparturinn væri „betri helm- ingur Þýzkalands". Kunze er hins vegar alveg búinn að snúa baki við „kerfinu. Það getur ekkert gott af þvf Ieitt“, segir hann og talar með mikilii fyrirlitningu um stjórnarfarið austantjalds þar sem stúdentum sé kennt, að „bylt- ingarvfsindi marz-lenfnismans“ séu „þeirra dýrasti andans arfur“ og það sé „æðst takmark þeirra f Iffinu að tileinka sér hann og rækja“. UPPELDIÐ Wolf Biermann beindi gagn- rýni sinni aðallega að öfgunum f skrifræðinu og ráðsmennsku hinna „afturhaldssömu, stalfnsku flokksleiðtoga". En Kunze tekur allt kerfið fyrir, og segir, að það „afmái einstaklinga". Reyndar lýsti Biermann yfir þvf nýlega, að nýjasta bók Kunze, „Beztu árin“, væri góð heimild um ástandið f Austur-Þýzkalandi. t bókinni er þvf lýst, er börn eru vanin við skotvopn, og þeim innrættur hernaðarandi frá unga aldri. Lög- reglan skiptir sér af uppeldi þeirra: foreldrum er t.d. skipað að hætta að leyfa þeim að sækja tónleika f kirkjum, og svo mætti lengi telja. Daglegt Iff f landinu er gagnsýrt kúgun, „andlegum þrýstingi" og refsingum. Vitað er,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.