Morgunblaðið - 22.05.1977, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 22.05.1977, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1977 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Fasteignasala í miðborginni óskar að ráða sölustjóra sem fyrst. Meðeign gæti komið til greina. Umsækjendur þurfa að hafa góða fram- komu, vera áhugasamir og hafa bíl til umráða. Umsóknum ber að skila til Mbl. fyrir28. þ.m. merkt: F-6009. Sölumaður helst vanur veiðarfærum, óskast. Einkaritari óskast til þess að leysa af í júní/JÚLÍ. Hálfs dags vinna kemur til greina. íslenska járnblendifélagið hf. /ce/andic Alloys Ltd. Lágmú/i 9, Reykjavík, lce/and. Framkvæmdastjóri íslenska járnblendifélagið h/f. óskar að ráða framkvæmdastjóra til að veita félag- inu forstöðu. Skrifstofa þess verður að Grundartanga í Hvalfirði. Umsóknir, er greini menntun og fyrri störf, skulu vera á íslensku og jafnframt einu Norðurlandamáli eða ensku. Senda ber umsóknir á nafn félagsins að Lágmúla 9, Reykjavík, b/t Hjörtur Torfason, vara- formaður, eigi síðar en 6. júní n.k. Heilsuverndarstöð Reykjavíkur óskar að ráða: HJÚKRUNARFRÆÐINGA við heima- hjúkrun, skóla og barnadeild. SJÚKRALIÐA við heimahjúkrun í afleys- ingar. LJÓSMÓÐUR á mæðradeild Upplýsingar gefur hjúkrunarfram- kvæmdastjóri í síma 22400. Bifreiðastjóra- félagið Fram, Freyjugötu 26 Vill ráða mann eða konu, til starfa á skrifstofu félagsins, hálfan daginn frá kl. 1 3 — 1 7. Viðkomandi þarf að vera vanur vélritun, og hafa gott vald á íslenzku og einu norðurlandamáli. Upplýsingar gefur formaður félagsins, á venjulegum skrif- stofutíma. Upplýsingar ekki gefnar í síma. Stjórnin. Sauðárkrókur Sjúkrasamlag Sauðárkróks, auglýsir eftir framkvæmdastjóra, sem getur byrjað störf, ekki seinna en 1 5. júlí. Upplýsingar gefur Esther Jónsdóttir, símar 95-5133, 95-5287. Umsóknir sendast Huldu Sigurbjörns- dóttur, Skagfirðingabraut 37, fyrir 15. júní. Sjúkrasam/ag Sauðárkróks. IHafnarfjörður — ____ skrifstofustarf Umsóknarfrestur um áður auglýst starf við vélritun á bæjarskrifstofunum hefur verið framlengdur til 1. júní n.k. Starfið krefst góðrar vélritunar- og ís- lenzkukunnáttu. Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf, sendist undirrituðum. Bæjarritarinn í Hafnarfirði. Viljum ráða mann eða konu til ýmissa skrifstofustarfa. Góð bókhaldsþekking nauðsynleg. Kristinn Guðnason h. f., Suður/andsbraut 20. Verzlunarstarf Bóka- og ritfangaverzlun í Miðborginni vill ráða mann eða konu til fjölbreytilegra verzlunarstarfa. Góð ensku- og vélritunar- kunnátta nauðsynleg. Umsóknir um aldur, menntun og fyrri störf, sendist afgreiðslu Mbl. fyrir 1. júní n.k. merkt: „Framtíð — 2106". Orkustofnun óskar að ráða til sín vélritara í hálft starf. Umsóknir með uppl. um menntun og fyrri störf sendist Orkustofnun, Laugavegi 116 fyrir 25. maí. Orkustofnun. Vantar yður starfsfólk? Höfum vinnufúst fólk vant margvísleg- ustu störfum. Atvinnumið/un stúdenta, sími 15959. Hagvangur hf. óskar að ráða vanan bókhaldsmann fyrir einn af viðskiptavinum sínum. Fyrirtæki: Stórt framleiðslufyrirtæki á höfuðborgar- svæðinu. í boði er starf bókhaldsmanns. Fjölbreytt starf, bókhald, eftirlit, uppbygging upplýsingakerfis ! fjöl- þættum rekstri. Ágæt laun, Framtíðarstarf. Við leitum að starfskrafti sem hefur góða reynslu og þekkingu á bókhaldi, sem er röskur og hress og sem er á aldrinum 25 til 35 ára. Hagvangur hf c/o Ö/afur Örn Haraldsson, Rekstrar- og þjóðhagfræðiþjónusta, K/apparstíg 26. Reykjavík. Farið verður með a/tar umsóknir sem a/gert trúnaðarmá/. Öllum umsóknum verður svarað. Vélaeftirlit með fleiru Þjónustufyrirtæki I borginni óskar eftir að ráða mann til vélaeftirlits, ýmissa við- gerða og viðhalds. Tilboð sendist Mbl. merkt: „Framtíð — 2096". Akranes — Akranes Viljum ráða menn vana akstri á stórum bílum og þungavinnuvélum. Þorgeir og He/gi h. f. Akranesi, sími 1494 — 1830 Bókhaldsstarf Stórt fyrirtæki í Reykjavík óskar eftir að ráða mann til framtíðar í bókhaldsstörf. Starfið er fólgið í eftirliti með viðskipta- reikningum, afstemmingum og fleiri bók- haldsstörfum. Umsóknir með upplýsingum um mennt- un og fyrri störf sendist blaðinu fyrir 28. þ. mán. Merkt: „Bókhald 2107". Hagvangur hf. Óskar að ráða sölu- og deildarstjóra fyrir einn af viðskiptavinum sínum. Fyrirtækið: — Traust og vaxandi innflutningsfyrir- tæki á höfuðborgarsvæðinu. í boði er: — Starf sölustjóra, er getur af dugnaði unnið að uppbyggingu sérstakrar deildar, sem nú er í vexti og mótun. — Sjálfstætt starf, sem felur í sér sölu, rafmagnsvara til heimila og rafveitna, vörupantanir, bréfaskipti (á ensku) og viðskipti við erlenda aðila. — Ágæt laun. — Framtíðarstarf. Við leitum að starfskrafti: — Sem hefur verzlunar- eða samvinnu- skólamenntun. — Sem hefur reynslu af deildarstjórn eða sjálfstæðum rekstri. — Sem hefur inngrip og áhuga á raf- tækni (rafvirkja- eða raftæknimenntun æskileg, en þó ekki nauðsyn). — Sem getur unnið sjálfstætt að áfram- haldandi uppbyggingu viðkomandi deildar. -— Sem getur stundað enskar bréfa- skriftir og unnið birgða- og sölu- áætlanir. — Sem getur hafið störf í ágúst- september 1977. Byrjunartími getur þó hafizt fyrr. — Sem er á aldrinum 25—35 ára. Skriflegar umsóknir, ásamt yfirliti yfir menntun, starfsferil og mögulega meðmælendur, sendist fyrir 1. júní 1977 til: Hagvangur hf! c/o Ólafur Örn Haraldsson Rekstrar- og þ/óðhagfræðiþjónusta, Klapparstíg 26, Reykjavík. Farið verður með allar umsóknir sem algert trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.