Morgunblaðið - 10.06.1977, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JUNÍ 1977
Leiðrétting
Það var mishermt í blaðinu á
miðvikudaginn, að Lionsklúbbur-
inn á staðnum hefði staðið að há-
tíðarhöldum sjómannadagsins i
Þorlákshöfn ásamt slysavarna-
deildinni og Bátaútvegsfélagi
Þorlákshafnar núna og í fyrra.
Það var Kiwanisklúbburinn sem
stóð að hátíðahöldunum. Eru við-
komandi beðnir velvirðingar á
mistöðunum.
Notkun
avisana
Framhald af bls. 2
við Björn Tryggvason aðstoðar-
seðlabankastjóra í gær og spurði
hann hver væri ástæðan fyrir því,
að áritun á brottfarakort farþega
AUGLYSIIMGATEIKNISTOFA
MYNDAMÓTA
Aðalstræti 6 sími 25810
yrði tekið upp og hversvegna
notkun ávísana væri bönnuð í Fri-
höfninni.
Varðandi fyrra atriðið sagði
Björn, að áritun á brottfararkort-
in hefði verið ákveðin til að tak-
marka notkun íslenzkra peninga i
Frihöfninni. Um seinna atriðið
sagði hann, að þar sem nú hefðu
verið settar nýjar reglur um hvað
mætti flytja út af islenzkum seðl-
um, þá hefði verið talið nauðsyn-
legt að banna notkun ávísana i
Fríhöfninni, ef það hefði verið
leyft áfram, hefði fólk getað farið
með meira af seðlum úr iandi en
það hefði heimild til, auk þess
hefði oft viljað brenna við, að fólk
hefði skilið eftir gúmmitékka i
Fríhöfninni þegar það hefði farið
af landi brott.
— Baskar
Framhald af bls. 1
ETA, voru sendir til Noregs en
þar eru fyrir þrir landar
þeirra, sem fóru í útlegð fyrir
nokkru. Tvímenningarnir voru
handteknir í ágúst 1975 og
ákærðir fyrir aðild að morðinu
á Luis Carrero Blanco, forsæt-
isráðherra, sem framið var
1973. ETA lýsti sig ábyrgt fyrir
því.
Hinir sjö fóru til Damerkur
og Austurríkis, en fimm höfðu
verið sendir til Belgíu. Þvi eru
samtals 17 Baskar komnir i út-
legð, en talið er að enn séu
fjórir til níu Baskar í fangels-
um vegna ólöglegrar stjórn-
málastarfsemi.
Aðalfundur S.Í.F.
hefst í dag
AÐALFUNDUR Sölusambands
ísl. fiskframleiðenda hefst á
Hótel Sögu kl. 10 árdegis i dag. í
upphafi fundar mun formaður
stjórnar sambandsins, Tómas
Þorvaldsson, flytja skýrslu
stjórnar, en síðan verða tekin
fyrir önnur mál.
— Vestfirðir
Framhald af bls. 32
sagði Tryggvi. Einnig hefur það
ýtt undir þessa tillögu, að ýmsir
járniðnaðarmenn störfuðu algjör-
lega sjálfstætt og þeir hefðu unn-
ið eftir vild og einnig hitt, að bæði
trésmiðir á ísafirði og í nágrenn-
inu svo og rafvirkjar hefðu haft
yfirvinnubannið að engu. Tré-
smiðir þar vestra hefðu ekkert
stéttarfélag á staðnum bak við sig
og teldu sig þvi ekki þurfa að lúta
ákvörðunum verkalýðsforust-
unnar um yfirvinnubann. Járn-
iðnaðarmönnum mörgum
hverjum hefði þvi þótt yfirvinnu-
bannið fremur máttlaus aðgerð af
þessum ástæðum.
— Samningavið-
ræður við EBE
Framhald af bls. 32
að reyna að gera fiskveiðisamn-
inga við íslendinga og hann svar-
aði þvi til að hann væri undir
margs konar þrýstingi í starfi
sínu. Hins vegar væri þvi ekki að
leyna að það hefði verið erfitt að
standa frammi fyrir fram-
kvæmdanefnd og ráðherra ráði
bandalagsins æ ofaní æ og geta
engu svarað til um spurningar
varðandi ísland og EBE vegna
þess að engar viðræður hefði far-
ið fram á sama tima og stöðugt
hefði verið unnið að samninga-
gerð við aðrar þjóðir. Slík staða
hefði verið óviðunandi þvi að það
hlyti að vera íslandi og aðildar-
ríkjum EBE I hag, að tryggja góð
og eðlileg samskipti á öllum svið-
um.
Einar Ágústsson sagðist vilja
staðfest ummæli Judds og Gunde-
lach um að viðræðurnar í gær
hefði ekki verið samningaviðræð-
ur, engar tillögur verið ræddar
eða lagðar fram. Hins vegar sagð-
ist utanrikisráðherra aldrei hafa
verið hræddur við að segja að
þegar og ef sá timi kæmi að fisk-
stofnar íslendinga hefðu náð sér
að þá yrði gagnkvæmd fiskveiði-
réttindi hagur beggja, en sá tími
væri ekki kominn nú.
Gundelach var spurður hvort
EBE myndi beita íslendinga
þrýstingi ef samningaviðræður
héldu áfram að dragast á langinn
og hann svaraði þvi til að EBE
hefði ekki beitt íslendinga hótun-
um og myndi ekki gera. Hann
sagðist telja að mikið hefði miðað
í rétta átt í þessum viðræðum og
að hann gæti er heim kæmi skýrt
framkvæmdanefndinni frá því að
hann teldi að stöðunni i viðræð-
um aðila hegði verið snúið við úr
stöðnun á viðræðubraut. Einar
Ágústsson utanríkisráðherra tók
fram að I viðræðunum hefði
eldrei verið minnst á eitt einasta
brezkt skip né einn fisk fyrir
brezk skip á íslandsmiðum.
Fiskverndarmál
Matthías Bjarnason var að þvi
spurður hvað um hefði verið að
ræða, ef ekki fisk. Ráðherrann
svaraði því til að töluvert hefði
verið rætt um fiskverndunarmál
og hefðu hann og Einar lagt fyrir
EBE-mennina drög að fiskvernd-
unarmálum á svipuðum grund-
velli og nú væri verið að ræða um
á hafréttarráðstefnu S.Þ.
Matthías sagði að EBE hefði þeg-
ar beitt sér fyrir ýmsum aðgerð-
um á sviði fiskverndar eins og t.d.
við Grænland, sem kæmu íslend-
ingum til góða.
Einar Ágústsson var að því
spurður hvort hann teldi að ís-
lendingar hefðu upp á eitthvað að
bjóða er sezt yrði aftur að viðræð-
um og samningaumleitunum en
hann svaraði þvi til, að hann væri
hræddur um að staðan yrði erfið
og hann sæi ekki fram á að að-
stæður yrðu breyttar er til næsta
fundar kæmi.
Er spurt vár um hvenær þessar
viðræður færu fram sagði Gunde-
lach að ekkert hefði verið ákveðið
um það né fundarstað. en reynt að
finna hentugan tíma og stað fyrir
báða aðila, hugsanlega í haust eft-
ir sumarleyfi.
Viðræður sendinefndanna hóf-
ust um 10 leytið I gærmorgun og
stóðu fram yfir hádegi. Þá var
gert hlé til kl. 16.00, en kl. 14.00
ræddu þeir Judd og Gundelach
við Geir Hallgrimsson forsætis-
ráðherra. Þeir halda heimleiðis í
dag.
Yfirlýsing
viðræðunefnda
tslands og EBE
Viðræður áttu sér stað hinn 9.
júní milli ríkisstjórnar íslands og
Efnahagsbandalags Evrópu. Við-
ræðurnar leiddu af hálfu islend-
inga, Einar Ágústsson utanríkis-
ráðherra og Matthias Bjarnason
sjávarútvegsráðherra, en af hálfu
EBE, Finn Olav Gundelach vara-
forsetiframkvæmdaráðs banda-
lagsins og Frank Judd þingmað-
ur, sem er forseti ráðherranefnd-
ar EBE. Skoða ber fund þennan í
ljósi þeirra viðræðna, er fram
fóru sl. nóvember og sem nú hef-
ur verið fylgt eftir með þessum
könnunarviöræðum.
Tilgangur viðræðnanna er að
kanna möguleika á endurnýjun
viðræðna og samningaumleitana
fljótlega í samræmi við hina sam-
eiginlegu yfirlýsingu fyrrgeindra
aðila hinn 26. nóvember sl. Báðir
aðilar útskýrðu afstöðu sína til
hinna margvislegu atriða er rædd
voru og vonast til þess að næsti
fundur þeirra væri þá verulega
nær samkomulagi um nýtingu
auðlinda, hafsins, sem báðir geti
við unað. Viðræðurnar voru gagn-
legar og vinsamlegar.
— Kúba
Framhald af bls. 1
fyrra kjörtimabili Carters forseta,
en upp úr 1980 mætti búast við
þvi, að þau yrðu komin I eðlilegt
horf.
Um möguleikann á því að
Kúbumenn sendu herlið til fleiri
Afrikuríkja en orðið er vildi
Castro ekkert fullyrða, og hann
vísaði því á bug, að hernaðarlegir
ráðgjafar frá Kúbu væru í
Eþíópíu.
Castro sagði, aðnSovétrikin
væru það land í veröldinni, þar
sem frelsi væri mest. Hann sagð-
ist telja, að Carter forseti væri
hugsjónamaður, en Richard Nix-
on væri maður undirförull og
óklókur í stjórnmálum.
— Bridge
Framhald af bls. 23
en sem kunnugt er fer landslið-
ið á Evrópumótið sem haldið
verður í Danmörku í sumar.
Val fyrirliðans kemur engum
á óvart. Uppistaðan sveit Iljalta
Eliassonar, styrkt með tslands-
meisturunum f tvímenningi.
Landsliðið er því þannig skip-
að: Ásmundur Pálsson, Hjalti
Elfasson, Guðlaugur R.
Jóhannsson, Örn Arnþórsson,
Hörður Arnþórsson og Þórar-
inn Sigþórsson.
Mótið fer fram í Helsingör
dagana 30. júlí til 12. ágúst.
— Línur að
skýrast
Framhald af bls.'32
sem verður á þriggja mánaða
fresti. Þar munu vinnuveitendur
hafa samþykkt þá reglu að hafður
sé þröskuldur sem sé 2%, allt sem
umfram það sé bætt, það sem
fyrir neðan er falli niður. Alþýðu-
sambandið hefur samþykkt V/í%,
svo að i milli ber aðeins ‘A%. Þá
hefur Alþýðusambandið og viðrað
annan valkost í þessu efni, sem er
að þröskuldurinn sé 2%, en siðan
komi uppsöfnunarregla. Nái
hækkunin ekki 2% komi ekki til
greiðslu samkvæmt henni, en það
sem safnazt hafi fyrir geymist síð-
an fram á næsta vísitölutlmabil
og fari vísitöluhækkunin þá um-
fram 2 stig komi til greiðslu. I
gær, er Morgunblaðið hefði siðast
fréttir af viðræðunum, munu
vinnuveitendur hafa verið að fara
í saumana á þessum valkostum og
reikna út hvað þeir þýddu og
hvorn þeir ættu að taka, eða þá
bera fram enn nýja hugmynd.
Heimildarmenn blaðsins kváðust
fullvissir um að vinnuveitendur
tækju valkostinn um llA prósent-
ið.
Um verðlagsbótina sjálfa mun
vera samkomulag um að fram til
1. marz 1978 verði greidd föst
ákveðin krónutala fyrir hvert stig
sem verðbótavisitalan hækkar
um, en eftir það komi prósentu-
hækkun á öll laun í sama hlutfalli
og verðbótavisitalan hækkar. 1
hugmyndum sáttanefndarinnar
var rætt um 850 krónur fyrir
hvert stig, sem visitalan hækkaði
um, en ef heimildarmenn
Morgunblaðsins reynast sann-
spáir um endanleg úrslit kjara-
samninganna má ætla að hvert
stig verði metið á 870 til 875 krón-
ur.
Lítið var um sérkröfuviðræður í
kjaraviðræðunum í gær. Málm- og
skipasmiðasamband Islands mun
eiga eftir að ganga frá sínum sér-
kröfum svo og ýmsir smærri
hópar. Það er mál manna, að
þegar ljóst verður hver endanleg
niðurstaða verður á kaupliðnum,
muni þau mál leysast. Þá voru
starfsnefndirnar, sem fjalla um
lífeyrissjóðamálin og húsnæðis-
málin, sem tengjast þessum samn-
ingaviðræðum, á fundum i gær og
samkvæmt þeim heimildum, sem
Morgunblaðið hafði, voru þau mál
bæði að komast á lokastig.
SLATTUVELAR
Það er leikur einn að
slá grasflötinn með Norlett-
Nú fyrirliggjandi margargerðir
á hagstæðum verðum.