Morgunblaðið - 09.07.1977, Page 3
Skák — Skák — Skák
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JULI 1977
3
Höfrungar
í Sædýra-
safninu
Þrfr höfrungar synda nú f laug Sædýrasafnsins og eru þeir hinir
fyrstu sinnar tegundar, sem fangaðir eru hér við land, og færðir
til lands. Voru það skipverjar á Guðrúnu GK, sem náðu skepnun-
um undir forsjá bandarfsks sérfræðings, en með leyfi frá
sjávarútvegsráðuneytinu til þessara veiða upp á vasann. Nú á að
sjá til hvernig þeim farnast f prfsundinni, en ef þeir aðlagazt
henni stendur til að selja þá úr landi, enda höfrungar aufúsu-
gestir f sædýrasöfnum og dýragörðum, þar sem þeir leika ýmsar
kúnstir.
Humarveiðar hafa gengið vel
— 2030 lestir komnar á land
HUMARVEIÐARNAR
hafa gengið ágætlega sfðan
þær hófust, 20. maf s.l., og
samkvæmt upplýsingum
Fiskifélags fslands eru nú
komnar á land 2030 lestir.
Humarkvótinn er 2800
lestir og er reiknað með því
að búið verði að veiða upp í
hann um mánaðamótin
næstu, en upphaflega var
ráðgert að veiðarnar stæðu
til 12. ágúst. Er því viðbúið
að veiðarnar verði stöðvað-
ar fyrr en áætlað var, en
sjávarútvegsráðherra mun
taka ákvörðun um það.
175 bátar sóttu um leyfi
til humarveiða en ekki
hafa allir bátarnir notfært
sér leyfin. Er talið að
145—150 bátar hafi stund-
að þessar veiðar í sumar.
Aflann fá þeir undan
suðurströndinni. Lang-
mestu af aflanum er land-
að á Hornafirði, Vest-
mannaeyjum og Þorláks-
höfn og algengt er að aflan-
um sé ekið í vinnslu annaís
staðar.
NÁMAFJALL * KROFLUASKJAN -----------* GJASTYKKI
Stöövorhús Leirhnjúkur
Þennan uppdrátt hefur Axel Björnsson gert, til að lýsa hugmyndum um kvikurennsli undir
Kröflusvæðinu. Hér er um mjög einfaldaðan uppdrátt að ræða.
Kröflusvæðið:
Næstu umbrot í september
A NÆSTUmánuðum má vænta
þess, að land á Kröflusvæði rísi
um 6—7 mm/sólarhring, og
fari svo, verður land komið I
september n.k. í svipaða hæð og
það var fyrir síðasta sig, og má
þá fastlega búast við, að skjálft-
ar fari að vaxa og hættuástand
skapist á ný. Svo segir Axel
Björnsson, jarðeðlisfræðingur
Orkustofnunar i grein um jarð-
hræringar við Kröflu, sem birt-
ist f nýjasta hefti Náttúrufræð-
ingsins, tímarits Hins islenzka
náttúrufræðifélags. I greininni
segir Axel ennfremur, að sé
hraunkvika nú að smáfylla upp
í sprungusveiminn norðan og
sunnan Kröfluöskjunnar og
haldi aðstreymi kviku að neðan
áfram verði að telja líkur á
hraungosi á næstu árum nokk-
uð miklar.
I greininni rekur Axel jarð-
hræringarnar við Kröflu og
segir að gerðir hafi verið likan-
reikningar af hegðan Kröflu-
svæðis.
I greininni getur Axel m.a.
líkanreikninga, sem hann hef-
ur gert af hegðan Kröflusvæð-
isins. Segir hann að helztu
niðurstöður þessara reikninga
gefi grófa hugmynd um rúm-
mál þess lands, sem sígur og rís,
og um hraunrennsli inn og út
úr kvikuhólfinu. Nefnir hann
tvö dæmi; Meðalrishraði miðju
rissvæðisins milli siga, frá þvi i
marz 1976, samsvarar því, að
rennsli inn á svæðið sé nokkuð
stöðugt og álíka mikið og
rennsli Elliðaánna i Reykjavik.
I siginu 27. aprfl, 1977, varð
landssig á miðju svæðisins 91
sm og allt bendir til hraun-
renslis út úr kvikuhólfinu, sem
er um það bil tiundi hluti af
rúmmáli Mývatnseldahrauns.
Meðalrennslismagnið var
fyrsta sólarhringinn allt að þre-
földu rennsli Jökulsár á Fjöll-
um.
eftir MARGEIR
PÉTURSSON
Þriðja jamteflið
blasir við eftir
daufa skák hjá
Spassky og Portisch
í gær var tefld í Genf í
Sviss þriðja einvigisskák
þeirra Spasskys og
Portisch í undanúrslitum
áskorendaeinvígjanna í
skák.
Að sögn Harry
Golombeks, yfirdómara í
einvíginu, í einkaskeyti
til Morgunblaðsins, var
byrjunin mjög róleg og
þó að Spassky reyndi
mikið til þess að brjótast
í gegnum varnir and-
stæðingsins^varðist ung-
verjinn vel og staðan
virtist ætíð í jafnvægi.
Golombek taldi biðstöð-
una jafnteflislega.
Hvítt: Boris Spassky
Svart: Lajos Portisch
Spænski leikurinn
1- e4 — e5, 2. Rf3 — Rc6,
3. Bb5 — a6, 4. Ba4 —
Rf6, 5. 0-0 — Be7, 6.
Hel — b5, 7. Bb3 — d6, 8.
c3 c3 — 0-0, 9. h3 —
Rb8, (Breyer afbrigðið,
sem Portisch þekkir
manna bezt.) 10. d4 —
Rbd7, 11. Rbd2 (Einnig
er hér oft leikið 11. c4,
sem þykir hvassara.)
Bb7, 12. Bc2 — He8, 13.
Rfl — (Fischer lék 13. b4
í einvígi sínu við Spassky
1972 og sigraði, en siðan
hafa fundist fullnægj-
andi varnir við leiknum.)
Bf8, 14. Rg3 — g6, 15. a4
— c5, 16. d5 — c4, 17.
Bg5 — h6, 18. Be3 —
Rc5, 19. Dd2 — Kh7, 20.
Ha3 (Þekkt áætlun í
þessu afbrigði. Hvítur
tvöfaldar hrókana á a-
línunni, en beinir hinum
léttu mönnum sínum að
kóngsstöðu svarts.) Hb8,
21. Heal — He7, 22. Hla2
Portisch
(Hvítur vill hafa b-peðið
valdað, ef svartur léki
seinna b5-b4. Vegna þess
hve staðan er lokuð hef-
ur hvítur góðan tíma fyr-
ir slíka undirbúnings-
leiki) Hc7, 23. axb5 —
axb5, 24. Ddl (En ekki
strax 24. h4 — Rg4),
Rfd7, 25. h4 (Hvítur sér
að lítið verður að gert á
drottningarvæng og
beinir því augunum að
kóngsvængnum) Bc8, 26.
h5 — Rf6, 27. Rh2 —
Hcb7, 28. Bd2 — Bg7, 29.
De2 (Hvitur þreifar fyrir
sér um sóknarfæri, en
staða svarts er traust og
án afgerandi veikleika)
’Rg8, 30. Ha8 (Loksins
freistar hvítur gæfunnar
á drottningarvæng) Bd7,
31. H8a3 — Bf6, 32. Be3
— Bg5! (Staðan má nú
heita í jafnvægi) 33. Rf3
— Bxe3, 34. Dxe3 — Db6,
35. Rd2 — Rf6, 36. Bdl —
Kg7, 37. Be2 — Hc8, 38.
Hal — Ra4, 39. Dxb6 —
Hxb6,40. Hla2 —Rxh5.
Portisch
Spassky
Hér fór skákin í bið.
Hvítur lék biðleik. Jafn-
tefli má vissulega telja
líklegust úrslitin.
Spassky