Morgunblaðið - 09.07.1977, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JULI 1977
13
Arrigo Levi — gaf Evrópu-
kommúnismanum nafn.
Santiago Carillo — leiðir
stefna hans til upplausnar
spánska kommúnista-
flokksins?
Enrico Berlinguer, for-
maður Kommúnistaflokks
ttalfu.
Georges Marchais, leiðtogi
franskra kommúnista
framfarir í Portúgal urðu litlar
undir hægri sinnaðri einræðis-
stjórn).
Lengst héldu franskir kommún-
istar tryggð við Stalinismann. Það
sem olli fráhvarfi þeirra var
ákvörðunin um að bindast sam-
tökum við flokk sósíalista, enda
þótt ýmsar væringar hafi síðan
leitt i ljós, að samvinna þessara
tveggja vinstri flokka er ekki
byggð á traustum grunni. Af-
skipti franskra kommúnista af
evró-kommúnismanum hófust er
þeir bundust samtökum við
kommúnistaflokkinn á ítalíu, sem
augljóslega var af því að þeir
töldu sér hag í þvi fyrir kosning-
ar. I þessu sambandi verður að
hafa í huga að yfirleitt hefur
Frökkum þótt italskir kommún-
istar mun hugnanlegri en skoð-
anabræður þeirra í Frakklandi.
Markalfnan.
En ef ekki er um að ræða sam-
eiginlegar hugsjónir og hagsmuni
þá hefur hugmyndin um evró-
uommúnisma náð að festa rætur
af þvi að hún leiðir í ljós hug-
myndafræðilegan ágreining og
dregur þannig ákveðna linu. Sú
lína hefði ef til vill ekki orðið svo
skýrt mörkuð ef ekki væri til að
dreifa nærveru Sovétmanna i
Austur-Evrópu. Ein af ástæð-
unum fyrir hinni hörðu andstöðu
Sovétmanna við evró-
kommúnismann er án efa sá
hljómgrunnur sem stuðningur
kommúnista við þjóðernissinna
og baráttu fyrir borgaralegum
réttindum í Austur-Evrópu hefur
hlotið.
Frá fyrstu tíð ber saga
kommúnismans þess vitni að ekki
er rúm fyrir frávik frá ákveðinni
stefnu að settu marki, og í Sovét-
ríkjunum sýnir sagan, að gagn-
rýni utanaðkomandi aðila verður
ekki þoluð. Að vísu er óhjákvæmi-
legt, að framkvæmdin sé með mis-
munandi móti í einstökum rikj-
um, en það breytir ekki því, að
„aðeins er um að ræða einn sann-
an og vísindalegan kommún-
isma“, eins og segir i heiftarlegri
siðaprédikun yfir evró-
kommúnistum í New Times, hinu
sovézka timariti um utanríkismál.
Þegar allt kemur til alls er eina
réttlæting ráðamanna innan
sovézka valdakerfisins sú að hafa
höndlað þennan eina sannleika.
Þeir hafa aldrei verið kosnir af
neinum og hafa heldur aldrei gef-
ið neinum kost á að hafna sér.
Hvað eftir annað hafa sovézku
leiðtogarnir sýnt, að þeir kjósa
fremur opinskáar deilur og upp-
lausn en það að taka upp aðra
túlkun á hinum yfirlýsta sann-
leika. Framtíðin leiðir í ljós hvort
sú herferð, sem hófst með harð-
orðum yfirlýsingum um að Carillo
sé að reyna að „riðla hinni alþjóð-
legu hreyfingu kommúnista", or-
sakar nýtt öngþveiti og endalok
þeirrar trúareiningar, sem krafizt
er í Kreml, eða hvort spánskir
kommúnistar einangrast og flokk-
ur þeirra verði ef til vill leystur
upp. Llklegt er að klofningurinn
fari vaxandi þar sem hann á ræt-
ur að rekja til ólíkra lifnaðar-
hátta, og staðreyndir lffsins hafa
þann eiginleika að reynast yfir-
sterkari en dauð hugmyndafræði.
(Greinin birtist nýlega I The
New York Times, en höfundur er
Flora Lewis).
Súrefniskassi afhentur — Alfheiður Magnúsdóttir, formaður Kvenfél-
agsins Týbrár, og Halla Bjarnadóttir, úr stjórn félagsins, standa hjá
súrefniskassa, sem félagið gaf Elli- og hjúkrunarheimilinu á Höfn.
Ljósm. Elfas.
Elli- og hjúkrunarheimil-
inu á Höfn afhentar gjafir
Höfn, 3. júlf.
NYVERIÐ boðaði stjórn Elli- og
hjúkrunarheimilis Austur-
Skaftafellssýslu forsvarsmenn
þriggja félagasamtaka I sýslunni
og gesti á fund sinn f húsakynn-
um heimilisins f tilefni af gjöf-
um, sem heimilinu hafa borizt á
árinu 1976 að upphæð um ein og
hálf milljón króna. Voru gjafir
þessar frá Kvenfélagasambandi
Austur-Skaftafellssýslu, Lions-
klúbbi Hornafjarðar og Kvenfél-
aginu Tfbrá á Höfn. Friðjón Guð-
röðarson, sýslumaður, sem jafn-
framt er formaður og rekstrar-
stjóri heimilisins, flutti foráða-
mönnum félagasamtakanna þakk-
ir fyrir hönd stjórnar heimilisins.
I ræðu, sem Friðjón Guðröðar-
son flutti við þetta tækifæri, kom
fram að Kvenfélagasamband
Austur-Skaftafellssýslu hefur frá
upphafi, eða frá miðju ári 1974, er
Elli- og hjúkrunarheimilið ásamt
fæðingardeild tók til starfa, stutt
það með ráðum og dáð. Um leið og
heimilið var opnað afhenti þáver-
andi formaður þess, Sigurlaug
Arnadóttir, Hraunkoti, 700 þús-
und krónur til kaupa á innan-
stokksmunum auk 200 þúsunda
til kaupa á sjónvarpi. Sagði Frið-
jón, að vegna stuðnings sam-
bandsins hefði í árslok 1976 verið
ráðizt i þá framkvæmd að byggja
við elliheimilið og afhenti Kven-
félagasambandið eina milljón
króna til þessara framkvæmda.
Síðar í vor afhenti sambandið að
gjöf eitt sjúkrarúm, sem kostaði
rúml. 266 þúsund krónur.
Fram kom einnig að Lions-
klúbbur Hornafjarðar ákvað á sl.
vetri að gefa heimilinu sjúkrarúm
að verðmæti um 266 þúsund krón-
ur og eru rúm þessi af sænskri
gerð og einhver þau fullkomn-
ustu, sem völ er á. 1 vor afhenti
Kvenfélagið Tibrá á Höfn heimil-
inu súrefniskassa fyrir ungbörn
Framhald á bls. 34
Kópangskaupstaönr G!
-------------------
Skólafulltrúi
Staða skólafulltrúa í Kópavogi er hér með
auglýst laus til umsóknar. Staðan verður veitt
frá 1. sept. 1977. Umsóknarfrestur er til 5.
ágúst 1977. Umsóknum skal skilað á sérstök-
um eyðublöðum til undirritaðs sem einnig veitir
nánari upplýsingar.
Bæjarritarinn í Kópavogi.
T-Bleian
er frá Mölnlycke
ivieo i-Dieiunm notisx i-Duxur, par sem Dieiurn-
ar eru með plastundirlagi.
T-buxur eru taubuxur, sem veita lofti í gegnum
sig, sem plastbuxur gera ekki.
Vellíðan barnsins eykst.
EIMSKIF
Á NÆSTUNNI
FERMA SKIP VOR
TIL ÍSLANDS
SEM HÉR SEGIR:
1 ANTWERPEN:
Skógafoss
1 5. júli
20. júli
26. júli
2. ágúst
Úðafoss
Skeiðsfoss
Ujjj Úðafoss
I ROTTERDAM:
Skógafoss 14.júlí
Úðafoss 21. júli
Skeiðsfoss 27. júlí
Úðafoss 3. ágúst
FELIXSTOWE:
Mánafoss 1 2. júli
Dettifoss 19. júli
Mánafoss 26. júlí
Dettifoss 2. ágúst
HAMBORG:
Mánafoss 1 4. júlí
Dettifoss 21. júlí
Mánafoss 28. júlí
Dettifoss 4. ágúst
PORTSMOUTH:
I Selfoss 19. júli
Bakkafoss 28. júli
I Brúarfoss 29. júli
Goðafoss 9. ágúst
I KAUPMANNAHÖFN:
I
í
1
6
1
1
§
I
I
i
Múlafoss
Háifoss
Múlafoss
Háifoss
GOTHENBURG
Múlafoss
Háifoss
Múlafoss
Háifoss
HELSINGBORG
Tungufoss
Álafoss
Tungufoss
Álafoss
MOSS:
Tungufoss
Álafoss
Tungufoss
Álafoss
12. júli
19. júli
26. júli
2. ágúst
13. júli
20. júli
28. júli
3. ágúst
1 3. júli
25. júli iffl.
1 ágúst. H
1 1. ágúst
I
1 2. júli Xjl
26. júlí
2. ágúst yj
m
1 2. ágúst jm
KRISTIANSAND: ffl
14. júli
27. júli
3. ágúst
1 3. ágúst
Tungufoss
Álafoss
Tungufoss
Álafoss
STAVANGER:
tagarfoss
Tungufoss
Tungufoss
Álafoss
Tungufoss
GDYNIA/GDANSK:
m
i
p
m
p
■st jQ
s.júii p
1 5. júli Lrt
28. júli
4. jágúst
1 5. ágúst
14. júli
27. júli
12. júli
25. júli
26. júli j
Fjallfoss
Grundarfoss
VALKOM:
Pj Fjallfoss
(jjT Grundarfoss
@i VENTSPILS:
Grundarfoss
[y WESTON POINT:
Kljáfoss 21. júli
|JJ Kljáfoss 4. ágúst
^ Reglubundnar ferðir
á 10 daga fresti
frá STAVANGER,
KRISTIANSAND
fgMOSS
0G HELSINGBORG
P
P
P
m
P
P
p
í)
i7Í
ALLT MEÐ
EIMSKIP