Morgunblaðið - 09.07.1977, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 09.07.1977, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JULl 1977 fclk í fréttum t frumskóginum sveiflaði Tar/an sér f tágum en Jeffrey sveiflar sér f rana Bierma. TARZAN + Jeffrey litli, sem er þriggja ára, á ekki neina venjulega leikfélaga. Þeir leikfélagar sem hann kann bezt við eru af stærri gerðinni. En faðir Jeffrys, Jeff Wilson, hefur ekki áhyggjur af drengnum. Hann veit að Jeffrey er f „góðum höndum“. Jeff Wilson er fílatemjari í hinum stóra, enska sirkusi Billy Smarts, og hann veit að dýrunum mun aldrei detta í hug að gera drengnum mein. Sirkusfólkið hefur gefið honum nafnið Tarzan. Bezti vinur hans er 45 ára gamall fíll sem heitir Bierma. Jeffrey litli leggst óhræddur fyrir framan fflinn, sem sfðan heldur öðrum framfætinum fyrir ofan höfuð drengsins, og tfmunum saman situr hann á rana fflsins og lætur hann bera sig. Jeffrey brosir öruggur, þvf hann veit að Bierma kitlar hann bara svolftið í hárið. Dýr tiöla + Þessi fiðla var nýlega seld á uppboði hjá Sotheby f London fyrir hæstu upphæð sem greidd hefur verið fyrir hljóð- færi, eða 36.5 miljónir. Fiðlan er smfðuð á Italfu árið 1738. Amy óhress + Forsetadóttirin bandarfska Amy Carter er mjög óhamingjusöm yfir að ganga f „venju- íegan skóla“. Nú hefur verið sótt um skólavist fyrir hana f mjög ffnum einkaskóla næsta vetur. Ekki hefur enn borist svar frá skðlanum, hvort hann getur tekið á móti forsetadótturinni. PEUCEOT KEIÐIIJOL MEÐ IIJÁLMUMÓrOU Sjálfskipt. Vél 1,5 — 1,8 hefstöfl. Eyðsla 1,6 til 2 I. á 1 00 km. Ennfremur gírahjól með 2,5 hestafla vél. Smekklegt útlit á franska vísu og hin margrómuðu Peugeot gæði. --------------------------- UMBOÐIÐ A AKUREYRI- HAFRAFELL HF. VÍKINGUR SF. VAGNHÖFÐA 7 — SÍMI 85211-85505 FURUVÖLLUM 11 SÍMI 21670 HESTA ÞING FAXA verður haldið að Faxaborg dagana 16. og 17. júlí n.k. Dagskrá mótsins verður sem hér segir. Laugardagur 16. júlí. Kl: 10.00 Kynbótahestar dæmdir. 13:00 Kynbótahryssur dæmdar. 14.10 Unglingakeppni yngri en 1 5 ára. 16:00 Gæðingadómar. Sunnudagur 17. júlí Kl. 10:00 Mótið sett. 10:1 5 Kynbótahestar sýndir, verðlaun afhent. 1 1:00 Kynbótahryssur sýndar, verðlaun afhent. 13:30 Hópreið barna og fullorðinna. 14:00 Helgistund 14:15 Sýning og verðlaunaafhending í unglingaflokki. 1 5:00 Gæðingar sýndir, verðlaun afhent. 1 5:45 Kappreiðar. Keppt verður í eftirtöldum greinum: 250 m. skeið 250 m. unghrossahlaup 300 m. stökk 800 m. stökk 1.500 m. brokk Góð verðlaun verða veitt. Skráningu í kappreiðar, gæðingakeppni og unglingakeppni skal verða lokið þ. 12. júlí. Skráning fer fram hjá Ólöfu Guðbrandsdóttur Nýja-Bæ, sími um Varmalæk, Árna Guðmunds- syni í síma 93-7190 á vinnutíma eða heima á Beigalda eftir kl. 6:00 á kvöldin og Braga Ásgeirssyni Borgarnesi, símar 93-7375 og 7400.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.