Morgunblaðið - 09.07.1977, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JULl 1977
MERKUR áfangi náðist
laugardaginn 2. júlí síð-
astliðinn í sögu fslenzkra
flugmála, en þann dag
var farið fyrsta áætlunar-
flug Flugleiða h.f. milli
tslands og Parísar. Hefur
þar með verið bætt úr því
sambandsleysi, sem ver-
ið hefur milli tslands og
Frakklands, og væntan-
lega munu samskipti
þjóðanna taka mikinn
f jörkipp f náinni fram-
tfð. Það tekur nú aðeins 3
stundir að ferðast milli
tslands og Parísar og
ferðamátinn gæti ekki
verið þægilegri.
Nú þegar er mikill áhugi á
Islandsferðum í Frakklandi og
i fyrsta fluginu frá Paris til
Islands var þota F.l. þéttskipuð
og 7 manns á biðlista. En nú i
sumar, og væntanlega einnig
næsta sumar, verða þessar áætl-
unarferðir Flugleiða í tvo mán-
uði. Það fer eftir reynslunni
hvernig áframhaldandi áætlun-
arflugi verður háttað.
Forstöðumaður skrifstofu
Flugleiða í Paris, Gérard Alant,
hefur tjáð Morgunblaðinu, að
mikill áhugi sé meðal Frakka á
Islandsferðum og í sumar eru
mjög margir bókaðir i ferðirn-
ar. Aiant kvað marga Frakka
hafa haft áhuga á Islandi frá
fornu fari, en til viðbótar því
kæmi sú staðreynd, að fjöl-
margir þeirra vildu heimsækja
nýjar slóðir, væru orðnir leiðir
á ferðum til sólarlanda Miðjarð-
arhafsins og til annarra ná-
grannalanda. Hann kvaðst
sannfærður um, að mikill mark-
aður væri í Frakklandi fyrir
Islandsferðir og hann kvaðst
einnig vonast til að Islendingar
hefðu áhuga á ferðast til Frakk-
lands.
Gérard Alant tók fram, að
áætlunarflugið milli Parísar og
íslands væri ekki i sambandi
við Bandaríkjaflug Flugleiða.
Franskir Amerikufarar Flug-
leiða yrðu áfram að fara til
Luxemburgar til að ná áætlun-
arvélum þar, enda hefðu frönsk
flugmálayfirvöld sett um það
skilyrði, að hin nýja áætlunar-
leið milli Parísar og tslands
yrði ekki i tengslum við Banda-
ríkjaflug Flugleiða.
ið upp á kampavin og snittur til
hátiðabrigða og var annar við-
urgjörningur eftir því. Eftir að-
eins þriggja tima þægilegt flug
var lent á Orly-flugvelli.
Þar tóku á móti gestunum
sendiherra Islands i Frakk-
landi, Einar Benediktsson, for-
stöðumaður Flugleiðaskrifstof-
unnar, Gérard Alant, yfirmað-
ur austursölusvæðis Flugleiða,
Davíð Vilhjálmsson, og deildar-
stjóri Islandssöludeildar Gunn-
ar Wendler Jóhannsson, báðir
með aðsetur i Frankfurt, svo og
fleiri Flugleiðamenn.
Yfirmaður Orly-flugvallar,
Georges Roy, tók á móti hópn-
um. Lýsti hann ánægju sinni
yfir því að áætlunarflug væri
hafið milli landanna. Halldór E.
Sigurðsson, samgönguráðherra
flutti einnig ávarp og óskaði
Flugleiðamönnum til hamingju
með þennan áfanga, sem hann
kvaðst óska að yrði til að auka
samskipti þjóðanna.
Næstu tvo daga buðu Flug-
leiðir gestum sinum i skoðunar-
ferðir um nágrenni Parísar, svo
og um borgina sjálfa. Einar
Benediktsson, sendiherra,
hafði boð inni i ibúð sinni við
Avenue Foch og voru þar m.a.
saman komnir ýmsir Islending-
ar, búsettir i París, og franskir
flugmálamenn og blaðamenn.
Parisarferðir Flugleiða verða
i tæpa tvo mánuði i sumar. Síð-
asta ferðin er 27. ágúst og verð-
ur flogið á laugardögum. Skrif-
stofa Flugleiða i Paris er að 32,
Rue de Quatre-Septembre. A
skrifstofunni starfa nú 19
manns undir stjórn Gérard
Alant, þar á meðal tvær stúlk-
ur, Eyja Asgrímsdóttir Mancini
og Guðlaug Gunnlaugsdóttir
Meslier.
Áhöfn Gullfaxa í fyrstu Par-
ísarferðinni var skipuð Jóhann-
esi R. Snorrásyni, yfirflug-
stjóra, Gunnari H. Guðjónssyni,
aðstoðarflugstjóra, Oddi Páls-
syni, flugvélstjóra, Jóni R.
Steindórssyni, eftirlitsflug-
stjóra, Kristínu Snæhólm, yfir-
flugfreyju, Rúnu Bínu Sig-
tryggsdóttur, 1. flugfreyju,
Ólöfu Jónsdóttur, flugfreyju,
Elisabetu Hákonardóttur, flug-
freyju, og Ingunni Thorarens-
en, flugfreyju.
—bjð.
Yfirmaður Orly-flugvallar, George Roy (t.h.), ræðir við Halldór E.
Sigurðsson, samgönguráðherra, og frú, Blynjólf Ingólfsson, ráðu-
neytisstjóra, og Einar Benediktsson, sendiherra.
Ahöfn Gullfaxa, við komuna til Orly-flugvallar, ásamt Gérard
Alant, forstöumanni Flugleiðaskrifstofunnar í Parfs.
Gérard Alant f skrifstofu sinni ásamt samgönguráðherra og for-
stjórum Flugleiða, Sigurði Helgasyni og Alfreð Elfassyni.
FYRSTA FLUGIÐ
Fyrsta áætlunarflugið var
farið frá Keflavik kl. 3 siðdegis
með Gullfaxa Flugfélags Is-
lands. Jóhannes R. Snorrason,
yfirflugstjóri, var við stjórn.
Farþegar voru milli 70—80, þar
á meðal nokkrir boðsgestir,
Halldór E. Sigurðsson, sam-
gönguráðherra, franski sendi-
herrann í Reykjavík, J.P. de
Latour Jean, Brynjólfur Ing-
ólfsson, ráðuneytisstjóri sam-
gönguráðuneytis, Henrik Sv.
Björnsson, ráðuneytisstjóri ut-
anríkisráðuneytis, Agnar
Kofoed Hansen, flugmálastjóri,
svo og eiginkonur þeirra.
Nokkrir blaðamenn voru með í
ferðinni, svo og tveir forstjórar
Flugleiða, Alfreð Eliasson og
Sigurður Helgason og frú.
A leiðinni var farþegum boð-
Kapmavfni skenkt I glösin f fyrstu Parfsarferðinni. Elfsabet
Hákonardóttir og ólöf Jónsdóttir <t.h.).