Morgunblaðið - 09.07.1977, Síða 21

Morgunblaðið - 09.07.1977, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JULI 1977 21 r Birgir Isl. Gunnarsson, borgarstjóri: Á FUNDI borgarstjórnar Reykjavíkur f fyrra- kvöld, skýrði Birgir tsl. Gunnarsson, borgar- stjðri frá því að senni- lega yrði að taka fjár- hagsáætlun borgarinnar fyrir árið 1977 til endur- skoðunar vegna launa- hækkana. Borgarstjóri flutti stutta ræðu þar sem hann gerði grein fyrir þessum viðhorfum og fer hún hér á eftir í heild. Fjárhagsáætlun 1977 Við afgreiðslu fjárhagsáætl- unar borgarsjóðs fyrir árið 1977 hér í borgarstjórn 20. janúar s.l. tók ég sérstaklega fram, ^ð fjárhagsáætlunin var miðuð við verðlag og kaupgjald, eins og það þá var ákveðið, þó með vissum frávikum að því er varðaði rauðu strikin svo- nefndu. Ég tók orðrétt fram, að „verði á árinu um verulegar breytingar að ræða á verðlags- eða kaupgjaldsmálum hlýtur borgarstjórn að standa and- spænis því að þurfa að taka fjárhagsáætlunina upp til endurskoðunar og breytingar í samræmi við hugsanlega þróun mála. Það er þá einnig jafn- ljóst, að borgarsjóður getur ekki nú á næstu vikum eða mánuðum, meðan ekki er vitað hvaða stefnu þessi mál kunna að taka, ráðstafað öllu fram- kvæmdafé ársins, eins og það nú er áætlað." Við gerð fjárhagsáætlunar- innar voru tillögur um fjárveit- ingar til greiðslu launa og launatengdra gjalda miðaðar við ákvæði kjarasamninga frá 29. febrúar 1976, að því er tek- ur til aðildarfélaga Alþýðusam- bands Islands og við kjara- samning við starfsmannafélög borgarinnar frá þvi i april 1976, svo og við 2.67% kaupgjalds- álag samkvæmt vísitölu, sem Sennilegt að endurskoða verðifjár- hagsáætlun vegna launahækkana gilti frá júlí til október 1976. Að auki var ákveðin fjárveiting að upphæð kr. 215 millj. 430 þús. til að mæta hækkun kaup- gjaldsvísitölu á árinu 1977. Heildarfjárveiting borgarsjóðs til launa og launatengdra gjalda er þannig kr. 3 milljarð- ar 324 milljónir 380 þúsund, en sú upphæð sem miða þarf við, þegar áætluð eru áhrif launa- breytinga er grunntala áætl- unarinnar, sem var kr. 3 mill- jarðar 108 milljónir 950 þús- und. Á árinu hafa orðið eftirfar- andi breytingar á launakostn- aði: 1. Kaupgreiðsluvísitala hækk- aði um 3.11% á öll laun frá 1. janúar 1977 að telja. 2. Kaupgreiðsluvísitala hækk- aði um 2.5% á öll laun frá 1. marz 1977 að telja. Þar sem þetta álag reiknast einnig á 3.11% visitöluhækkunina er það i raun 2.58%. 3. Frá 1. júní 1977 tók gildi 6.73% hækkun kaup- greiðsluvísitölu á laun sam- kvæmt kjarasamningum við starfsmannafélög borgarinn- ar. Þetta álag reiknast á báð- ar fyrrtöldu hækkanirnar, þannig að hækkun frá' grunntölu áætlunarinnar að þessu leyti er í raun 7.11 %. 4. Rétt er að nefna i þessu sam- bandi, að 1. þ.m. fengu starfsmannafélögin 4% grunnkaupshækkun sam- kvæmt ákvæðum í kjara- samningum. Þessari hækk- un var að sjálfsögðu reiknað með við gerð fjárhagsásetl- unarinnar. 5. Áhrif samninga aðila vinnu- markaðarins frá 22. júni s.I. hafa ekki verið metin til meðaltalshækkunar. Þó má e.t.v. telja, að fyrsta hækk- uni, kr. 18.000 á mánaðar- laun og sérkröfuálag að auki, gefi allt að 30% hækk- un launakostnaðar sam- kvæmt lægstu töxtum verka- lýðsfélaganna. Virðist þá ágizkun um 20% meðaltals- hækkun launakostnaðar frá 22. júní s.I. að telja tæpast geta verið of há. Ósamið er við starfs- mannafélög borgarinnar. þ.e. Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og Hjúkrunarfélag Islands svo og við Stéttarfélag verk- fræðinga, en samningar við það félag renna út 10. þ.m. Ef reiknað er með, að samn- ingar við Starfsmannafélög- in verði svipaðir þeim samn- ingum, sem gerðir hafa ver- ið við félög Alþýðusambands Islands má reikna með, að meðalhækkun launakostn- aðar vegna félagsmanna þeirra verði einnig um 20% miðað við marzlaun, og er þá reiknað með, að visitölu- hækkunin frá 1. júní og grunnkaupshækkunin frá 1. júli verði felld inn i væntan- lega samninga við þessi félög, enda munu þeir kjara- samningar, sem gerðir verða við þau síðar á árinu gilda frá l.þ.m. í samræmi við það, sem ríkissjóður hefur.þegar gert samkomulag um við Bandalag starfsmanna ríkis og bæja. 6. Hinn 1. desember 1977 hækka mánaðarlaun sam- kvæmt samningi aðila vinnumarkaðarins um 5.000 kr. Miðað við þessar forsendur og án þess að tekið sé tillit til frekari hækkunar á kaup- gjaldsvisitölu siðar á árinu hækkar launakostnaður borgar- sjóðs um 16.25%, eða kr. 505 milljónir 430 þúsund. Fjárveit- in til að mæta þessum hækk- unum var, eins og áður segir, kr. 215 milljónir 430 þúsund. Mismunurinn er kr. 290 milljónir. Sparnaðarnefnd í samráði við forstöðumenn hinna ýmsu deilda og stofnana vinnur nú að nánari athugun á fjárhagsáætl- un ársins 1977, bæði að því er varðar önnur rekstrarútgjöld en launakostnað svo og á hinum ýmsu tekjuliðum. Nákvæmra upplýsinga um álagningu út- svara og aðstöðugjalda er hins vegar ekki að vænta fyrr en seint í þessum mánuði og fyrr verður tæpast hægt að taka endanlega afstöðu til endur- skoðunar eða breytinga á fjár- hagsáætluninni. Borgarráði verður að sjálf- sögðu gerð nánari grein fyrir þessum málum eftir þvi sem þau skýrast og að venju mun borgarráð fjalla um og gera til- lögur til borgarstjórnar um meðferð þeirra. t Samþykkt borgarstjórnar um sumarleyfi fram í miðjan sept- ember verður því að skoðast með þeim fyrirvara, að mjög verður að teljast sennilegt, að borgarstjórn verði kvödd saman til aukafundar siðast i þessum mánuði eða í fyrrihluta ágústmánaðar til að fjalla um og taka afstöðu til breytinga á fjárhagsáætlun 1977. „Til dýpri skilnings á högum og háttum forfeðra okkar” Steinþór Gestsson Ræða Steinþórs Gestssonar alþingismanns og bónda á Hæli við vígslu Þjóðveldisbæjarins Steinþór Gestsson alþingismað- ur og bóndi á Hæli flutti eftirfar- andi ræðu við opnun þjöðveldis- bæjarins I Þjórsárdal, en hann var formaður byggingarnefndar bæjarins: Vírðulegu gestir. Ég hef þá ánægju að bjóða yður öll velkomin á þennan stað, þegar byggingarnefnd afhendir hæst- virtum forsætisráðherra þjóð- veldishæinn i Þjórsárdal fullgerð- an til hagnýtingar og varðveislu. Um leið og þau þáttaskil verða, að byggingu þjóðveldisbæjarins er lokið, þykir hlýða áð gera nokkra grein fyrir aðdraganda að byggingu þessa mannvirkis og framvindu málsins til þessa dags. Þjóðhátiðarnefnd 1974 var kos- in af Alþingi 5. maí 1966. A fyrsta fundi nefndarinnar kom formað- ur hennar, Matthias Johannessen ritstjóri, fram með þá tillögu að reistur yrði sögualdarbær í tengslum við þjóðhátiðarhaldið 1974, eftir þelm heimildum sem kunnar eru, og rústirnar á Stöng i Þjórsárdal eru ljósast dæmi um. I tillögum sem þjóðhátíðarnefnd 1974 kynnti fyrir Alþingi 17. mars 1967 var bygging sögualdarbæjar ein af þremur meginviðfangsefn- um, sem nefndin lagði til að tengt yrði þjóðhátíðarárinu. Fjárveit- inganefnd Alþingis fékk málið til meðferðar og í áliti, sem hún læt- ur frá sér fara 17. april 1967, og hún stendur öll að, segir svo m.a.: „Að öðru leyti en hér hefur verið nefnt, eru fjárveitinganefndar- menn yfirleitt hlynntir tillögum landnámshátiðanefndar, þar á meðal tillögunni um byggingu á eftirlíkingu af sögualdarbæ". Að fengnum þessum jákvæðu undirtektum Alþingis réði þjóð- hátiðarnefndin Hörð Ágústsson til að sjá um gerð líkans sem reist væri á rannsóknum hans á forn- um húsakosti á Islandi, en það taldist vera nauðsynlegur undan- fari þess að byggja sögualdarbæ i fullri stærð fyrir 1974, og fékk nefndin fjárveitingu til að láta gera likanið. Þegar líkanið var sýnt alþingis- mönnum 10. febr. 1971 sagði for- maður þjóðhátíðarnefndar í Þjóðveldisbærinn. ávarpi sínu meðal annars þetta: „Þjóðhátiðarnefnd er það mikið kappsmál, að sögualdarbær þessi verði reistur fyrir 1974, svo merk- ar hugmyndir sem hann gefur um húsakynni og aðbúnað forfeðra vorra fyrr á öldum." Um þær mundir sem tillögur um byggingu sögualdarbæjar voru ræddar í þjóðhátíðarnefnd, lýsti Jóhannes Nordal, formaður stjórnar Landsvirkjunar þeirri hugmynd sinni að bærinn yrði reistur í Þjórsárdal. Hr. Kristján Eldjárn, forseti, sem unnið hafði að rannsóknum á Stöng, taldi að bygging bæjarins í nágrenni Stangar væri góð hugmynd og hvatti til framkvæmdanna. Einn- ig var hugmyndin kynnt Þór Magnússyni, þjóðminjaverði. Hann segir svo í bréfi til þjóðhá- tiðarnefndar hinn 8. okt. 1970. „Ég þakka bréf nefndarinnar dags. 30. sept. sl., viðvikjandi sögualdarbæ í Þjórsárdal. Mér var örlítið kunnugt um þessa hug- mynd fyrir, sem mér finnst prýði- leg og vel viðeigandi á þessum stað.“ Þessi hugmynd var siðnn kynnt þjóðhátiðarnefnd Árnes- sýslu og hreppsnefnd Gnúpverja- hrepps, sem tóku undir hana og hétu stuðningi við framvkæmdir sem og stjórn Landsvirkjunar. Framkvæmdastjóri þjóðhátíðar- nefndar 1974 átti viðræður um málið við formann þjóðhátiðar- nefndar Árnessýslu, sýslumann Arnessýslu, oddvita Gnúpverja- hrepps og formann stjórnar Landsvirkjunar, sem leiddu til þess að þjóðhátiðarnefnd Árnes- sýslu hét að beita sér fyrir ákveð- inni lágmarksfjáröflun í héraði til framkvæmdanna og skipan b.vgg- inganefndar. Svo sem kunnugt er, komu til þeir atburðir i Vestmannaeyjum á öndverðu ári 1973 sem drógu svo úr áhuga nranna á þjóðhátíð- Framhald á bls. 23

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.